Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1990, Blaðsíða 2
2
MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 1990.
Fréttir
Sjómenn að leggja síðustu hönd á kröfugerðina:
Sjómenn dregist
aftur úr öðrum
- segir Hólmgeir Jónsson, hagfræðingur Sjómannasambandsins
„Það er verið að leggja síðustu
hönd á kröfugerð sjómanna í kom-
andi kjarasamningum. Kröfugerðin
verður svo tekin til meðferöar á sam-
bandsstjórnarfundi Sjómannasam-
bandsins um miðjan þennan mánuð.
Ég held að allir viöurkenni að sjó-
menn hafa dregist aftur úr öðrum
launþegum, hvað kjörin varðar. Þeir
eru nú að ganga inn í þriðja aflasam-
dráttarárið í röö. Auk þess hafa
skiptakjörin rýrnaö um 5 prósent
síöan í september, vegna olíuverðs-
hækkana," sagði Hólmgeir Jónsson,
hagfræðingur Sjómannasambands
íslands, í samtali við DV í gær.
Kjarasamningar sjómanna féllu úr
gildi um áramótin, eins og flestra
verkalýðsfélaga í landinu. Hólmgeir
var inntur eftir því hvort Sjómanna-
sambandið myndi taka þátt í þeirri
kjarasamningagerð sem aðilar
vinnumarkaðarins eru nú að glíma
við.
Hann sagði að engin formleg af-
staða hefði verið tekin til þeirra, en
Sjómannasambandið fylgdist að
sjálfsögðu með því sem þar væri að
gerast.
„En ég held að sjómenn hafi dreg-
ist það mikið aftur úr öðrum laun-
þegum að þeir verði fyrst á fá fram
ákveðnar lagfæringar áður en þeir
geta tekið þátt í því sem aðilar vinnu-
markaðarins eru að ræða um,“ sagði
Hólmgeir Jónsson.
-S.dór
Spámaður Steingríms völva eða seiðskratti?
Ég hef ekki
nafnið á
spámanninum
- segir forsætisráðherra
„Þetta kom nú fram í einhverjum
fjölmiðlanna var mér bent á. Það er
nú alltaf verið að spá, það eru völvur
og ég veit ekki hvað. Það kemur til
dæmis fram í Vikunni, þó að hún
leiði það nú af öörum ástæðum, að
hlutimir fari batnandi þegar líður á
árið. Mér fannst þetta vera yfirleitt
sú niðurstaða sem þessir aðilar kom-
ust að. Ég hef ekki nafn á þessum
manni frekar en aðrir sem gefa sig
fram viö þetta," sagði Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra þeg-
ar hann var spurður að því hver
hann væri hinn forspái maður sem
forsætisráðherra ræddi um í ávarpi
sínu til þjóðarinnar á gamlárskvöld.
Þar sagði forsætisráðherra: „Við
áramótin er að venju keppst viö að
spá fyrir nýju ári. Menn vilja vita
hvað framtíðin ber í sínu skauti.
Meðal annars er greint frá því að
forspár maður telji sig sjá ljóma yfir
íslandi seinni hluta næsta árs.“
Steingrímur sagði aö ekki væri
hægt að kenna þessa spá við einn
spámann, heldur væri þetta byggt á
þeim tóni sem hann hefði fundið í
spámönnum fjölmiðla. Eftirfarandi
spámenn birtust í fjölmiðlum fyrir
áramót: seiðskratti Þjóðviljans, Amy
Engilberts hjá Pressunni og völva
Vikunnar.
- Það er þá enginn einn ákveöinn
spámaður að spá fyrir forsætisráð-
herra íslands?
„Það spáir enginn sérstaklega fyrir
hann. Það gerir hann sjálfur og þá
helst uppi á fjöllum í fallegu um-
hverfi í kyrrðinni," sagði Steingrím-
ur.
-SMJ
Verðhækkanir og verðlækkanir:
Veðbókarvottorð
hækkuðu um 150%
Umtalsverðar hækkanir urðu á
ýmsum þjónustugjöldum um ára-
mótin.
Veöbókarvottorð hækkuðu mest,
eða um 150 prósent. Þau -kostuðu
200 krónur fyrir áramót en kosta
nú 500 krónur. Þinglýsingar kost-
uöu 280 krónur en kosta nú 600
krónur. Hækkunin er 114 prósent.
Þá hækkaöi gjald fyrir ljósritun úr
130 krónum í 250 krónur. Það er
92 prósenta verðhækkun.
Dropinn ódýrari
Viröisaukaskattur varð til þess
að áfengi og tóbak lækkaði í verði
í gær um 0,4%. Samkvæmt verð-
lagninganeglum ÁTVR er allt
áfengisverö látið standa á tug
króna og lækka þvi einungis dýrari
tegundir. Þannig lækkar vodka,
viskí og koníak um 10 krónur hver
flaska. Þannig kostar íslenskt
brennivín 1.490 krónur í stað 1.500
áður. Verð á bjór og léttvíni breyt-
ist ekki.
Pakki af sígarettum, sem áður
kostaði 199 krónur, lækkar um 1
krónu og er svo um flestar tóbak-
stegundir.
„Ég minnist þess ekki að áfengi
og tóbak hafi veriö lækkað með
þessum hætti hjá Áfengis- og tó-
baksverslun rikisins,“ sagði Hö-
skuldur Jónsson forstjóri í samtali
við DV. Verslanir ÁTVR voru lok-
aðar í gær vegna vörutalningar en
verða opnar í dag og nýtt verð kom-
ið í gildi.
Olía og bensín
Breytingar urðu á bensín- og olíu-
verði í gær vegna skattkerfisbreyt-
ingarinnar.
Nú kostar litri af blýlausu bensíni
49,20 krónur í stað 49,90 áður. Lítri
af súperbensíni lækkaöi úr 54,10
krónum í 53,60 krónur.
Dísilolía, sem áður var undan-
þegin söluskatti, hækkaði úr 17,30
krónum hver lítri í 22,50 krónur.
-Pá/sme
Ragnar Rúnar Þorgeirsson stendur hér við flakið af bilnum.
Bílbelti björguöu lífi:
„Þakka guði fyrir að
konan var ekki með“
- sagöi ökumaöur sem slapp ótrúlega vel efdr árekstur
„Ég missti stjóm á bílnum í hálku
við Kúagerði. Hann byrjaði skyndi-
lega að renna og ég stefndi á stóran
vöruflutningabíl sem kom á móti. Ég
og bílstjórinn á stóra bílnum sáum
báðir aö hverju stefndi. Honum tókst
að fara út fyrir veginn en ég reyndi
að snúa mínum bíl áður en ég lenti
á þessu rosastóra stykki. Ég reyndi
aö láta afturendann lenda á vöru-
flutningabílnum en þaö tókst ekki.
Bfilinn mínn skall síðan með helj-
armiklu afli á hann. Þá missti ég
sennilega meðvitund nokkra stund,“
sagði Ragnar Rúnar Þorgeirsson, 39
ára gamall ökumaöur, sem telur að
bílbelti hafi bjargað lífi síriu þegar
hann lenti í mjög hörðum árekstri á
Reykjanesbraut síðastliðinn fimmtu-
dag.
„Ég þakka bara guði fyrir aö konan
mín var ekki með. Bíllinn lenti far-
þegamegin á vöruflutningabílnum og
hentist aftur með honum. Ég sá bara
stóra gapandi rifu farþegamegin þeg-
ar ég rankaði viö mer - eg hef lent á
stýrinu en hef ekki hugmynd um
hvers vegna annar handleggurinn er
allur marinn. Ég varð bara eftir í
beltunum og hef eymsli í öxlinni.
Allar rúðurnar nema tvær brotn-
uöu og biti úr þakinu stakkst niður
viö höfuðpúðan á farþegasætinu. Ég
skreið út úr bílnum í sjokki og var
allur í rúðubrotum. Þeim rigndi yfir
mig og brotin stungust í andlitið á
mér - ég leit út eins og freknóttur
krakki.
Þegar ég stóö viö hliðina á hræinu
hugsaði ég til þess að konan mín
hætti við aö fara með mér rétt áður
en ég keyrði af stað úr bænum. Hún
hefði stórslasast - tfi dæmis ef bitinn
hefði farið í hana,“ sagði Ragnar
Rúnar. í samtali yið DV vfidi hann
ítreka að bílbeltin björguðu lífi hans
í slysinu. Hann gengur nú með
„kraga“ um hálsinn en er vel rólfær
og er aö ná sér eftir þennan harða
árekstur. -ÓTT
I>V
Biðstada
hjá BSRB
„Það má segja að nú sé biðstaöa
í kjarasamningamálum opin-
berra starfsmanna, biðstaða og
gerjun,“ sagði Ögmundur Jónas-
son, formaður Bandalags starfs-
manna ríkis og bæja.
Hann sagði að opinberir starfs-
menn heföu skoðaö og fylgst með
þeim samningatilraunum sem
aðilar vinnumarkaðarins hefðu
verið að ræöa síðustu vikurnar.
Ekkert nema gott væri um það
að segja að reyna aö halda aftur
af verðlagshækkunum hvers
konar. Hitt væri aftur annaö mál
að eftir væri að sjá hvaða trygg-
ingar fengjust fyrir því að slíkir
samningar héldu. Ögmundur
sagði þaö Ijóst að ef slíka samn-
inga ætti aö gera, þyrfti um þá
mjög víðtæka samstöðu á vinnu-
markaðnum.
„En til þess að við getum farið
út í samningagerð af þessu tagi,
þurfa mjög viða miklar lagfær-
ingar að koma til hjá okkur, sem
er samræming á töxtum fólks,
sem vinnur sömu vinnu, en hefur
ekki sömu laun,“ sagði Ögmund-
ur Jónasson.
Hann sagðist óttast aö kjara-
samningarnir almennt færu út í
þóf sem teygjast mundi fram eftir
vetri. -S.dór
Rútubifreiöastjórar:
Boða verkfall
15. janúar
Bifreiðastjórafélagið Sleipnir,
sem er félag rútubifreiðastjóra,
hefur boðað þriggja daga verkfall
frá og með 15. janúar, hafi samn-
ingar ekki tekist fyrir þann tíma.
Sleipnismenn fara fram á 100 pró-
sent launahækkun.
Síðasti samningafundur var
haldinn milli jóla og nýárs og var
harnt árangurslaus.
„Ég tel víst að við boðum til
allsheijar verkfalls strax að lo-
knu þessu þriggja daga verkfalli
hafi samningar ekki tekist. Og
eins og andinn hefur veriö á þeim
samningafundum sem haldnir
hafa veriö fæ ég ekki séö að lausn
sé í sjónmáli," sagði Magnús
Guömundsson, formaður Sleipn-
■ is, í saratali við DV.
Um áttatíu félagar eru í Bif-
reiðastjórafélagmu Sleipni.
Kjaradeila þeirra og rútubílaeig-
enda er þegar komin til sátta-
semjara.
Margar byltur
Margir gangandi vegfarendur
urðu fyrir óhöppum í lúmskri
hálku á höfuðborgarsvæöinu í
morgun. Sjúkrabílar fluttu
óvenjumarga á slysadeild. Á
timabili voru þrír sjúkrabílar i
útkalli í einu og mun hafa verið
um beinbrot eða tognanir að
ræða.
Götur voru saltaöar í morgun
en heimkeyrslur og gangstéttir
leyndu mjög á sér og fengu því
margir slæmar byltur. Árekstrar
bíla voru orðnir allmargir þegar
líða tók á morguninn.
Einn bókstafiu- getur oft breytt
merkingu heillar setningar. Það
gerðist einmitt í DV í gær þar sem
skýrt var frá brunanum í Krossa-
nesverksmiðjunni. Þar er haft
eftir Tómasi Búa, slökkviðliös-
stjóra á Akureyri, að eölilegt
væri að brunavamir í verksmiðj-
unni hefðu verið látnar sitja á
hakanum.
Að sjálfsögðu átti að standa að
- óeðlilegt - væri að þær hefðu
verið látnar sitja á hakanum.
Tómas Búi er beðinn velvirðing-
ar á þessu bókstafsniðurfalli. :