Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1990, Síða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1990, Síða 5
MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 1990. 5 Fréttir Skilyrði í erfðaskrá sníða eiganda Vatnsendajarðarinnar þröngan stakk: Arftaka óheimilt að selja jörðina eða veðsetja hana „Það hefur verið umræða um þetta svona lauslega fram og til baka en eins og málin standa á þessari stundu finnst mér nyög ótrúlegt að ég taki nokkum þátt í Stöð 2. Stöð 2 bland- ast ekkert sölu á Vatnsendajörðinni og það á enginn hjá Stöð 2 tilkall til jarðarinnar. Ég skil ekki hvemig það gat lent í fjölmiðlum. Það er eiginlega út í hött að tengja okkur saman,“ sagði Magnús Hjaltested, fjárbóndi á Vatnsenda, í samtah viö DV. „Ég segi ekkert um málið og það er ekkert um það að segja,“ sagði Ólafur H. Jónsson, einn þriggja fyrr- um aðaleigenda íslenska Sjónvarps- félagsins, við DV. Ólafur er mágur Magnúsar Hjalte- sted, eiganda Vatnsendalandsins. Samkvæmt heimildum blaðsins mun Vatnsendalandið hafa komið inn í mál Stöðvar 2 í tengslum við útvegun þriggja fyrri aðaleigenda stöðvarinn- ar á 150 milljón króna hlutafé í sam- ræmi við samninga um hlutafjár- aukningu frá því á gamlársdag. Eins og nánar er rakið á öðram stað í blaðinu hefur DV heimildir fyrir því að fyrir áramótin hafi legið fyrir starfssamningur Stöðvar 2 við Magnús og konu hans. Fasteignamat ekki til Magnús sagði að öll Vatnsenda- jörðin væri alls ekki til sölu. Hins hennar enjörðinmunalls verarúm- vegar kæmi til greina að selja hluta lega 800 hektarar. Fasteignamat mun Horft til Vatnsendalandsins. Það mun alls vera um 800 hektarar að stærð. Etliðavatn í forgrunni. Kort af Vatnsendalandinu og nágrenni. Undir „Reykjavík" er Seljahverfi í Breiðholti. Vatnsendalandið er á aöalskipulagi Kópavogskaupstaðar tit árs- ins 2008 sem auglýst er um þessar mundir. ekki vera til en að sögn Magnúsar er ekki fjarri lagi að áætla að fast- eignamat Vatnsenda geti hljóðað upp á einn milljarð króna. Ef miðað væri við hektaraverð Fífuhvammslands- ins á núvirði væri verðmæti allrar V atnsendaj arðarinnar mun meira en einn milljarður. Reykjavíkurborg hefur gert bind- andi tilboð 1 hluta Vatnsendajarðar- innar upp á um 200 milljónir. Eig- andi jarðarinnar mun hafa frest til fostudagsins S.janúar til að taka af- stöðu til tilboðsins. Um er að ræða rúmlega 300 hektara lands en þar af em rúmir 100 hektarar byggingar- land. Hjá Reykjavíkurborg mun vera gert ráð fyrir um 15 þúsund manna byggð við Vatnsenda. Skipulag til 2008 Kópavogskaupstaður hefur for- kaupsrétt að Vatnsendalandinu en það er inni á aðalskipulagi Kópa- vogskaupstaðar til ársins 2008. Skipulagið er til auglýsingar og hefur því ekki verið samþykkt af félags- málaráðherra. Samkvæmt skipulag- inu er gert ráð fyrir stórum íbúða- svæöum á Vatnsendalandinu, land- búnaðarsvæðum við Vatnsendabýl- ið, útivistarsvæðum og svæði fyrir verslun, þjónustu og iðnað. Þar sem Kópavogskaupstaður hefur for- kaupsrétt að Vatnsendalandinu get- ur kaupstaðurinn gengið inn í kaup- in gangi eigandi að kauptilboði Reykjavíkurborgar. Þrír hæstaréttardómar Magnús er í dag eini eigandi Vatns- endajarðarinnar. Það gekk ekki þegj- andi og hljóðalaust fyrir hann að fá eignarhald á jörðinni. Til þess þurfti fógetaúrskurði og þrjá hæstaréttar- dóma í lok sjöunda áratugarins. En það er ekki nóg með aö ffæstaréttar- dómarnir kveði skýrt á um eignar- rétt Magnúsar á Vatnsendajörðinni heldur em ákvæði í fógetaúrskurði, staðfestum með hæstaréttardómi, sem draga í efa rétt hans til að selja eöa veðsetja eignina í dag. Forsaga málsins er sú að faðir Magnúsar, Sigurður Lárusson Hjaltested, bjó á jörðinni ásamt konu sinni, Margréti G. Hjaltested, þar til hann lést í nóvember 1967. Áður en Sigurður kvæntist Margréti átti hann þrjú börn og var Magnús Hjalt- ested þeirra elstur. Með Margréti átti Sigurður síðan þrjú önnur böm. Við andlát Sigurðar risu upp deilur um skipti búsins. Afi Magnúsar, Magnús Einarsson Hjaltested úr- smiöur, hafði eignast Vatnsendajörð- ina 1914. Magnús samdi erfðaskrá 1938 sem staðfest var að nýju 1940. Við andlát Sigurðar 1967 risu deilur um gildi þessarar erfðarskrár þar sem því var meðal annars haldið fram að undirskriftir hennar væru falsaðar og forsendur fyrir gildi hennar og framkvæmd brostnar. Margrét krafðist þess að búinu yrði skipt samkvæmt almennum skipta- reglum en ekki erfðaskránni. Magn- ús Hjaltested byggði kröfur sínar í málinu hins vegar á því að erfðaskrá- in væri að öllu leyti í fullu gildi. Hann kvaðst ætla að setjast að á Vatnsenda og hefja þar búskap. Mun Magnús hafa haft kindur á Vatns- enda síðastliðin ár. Fógetaúrskurður hljóðaöi á þá leið að Magnúsi Sigurðssyni Hjaltested væri áskihnn réttur eftir látinn fóður sinn til „aö taka við til ábúöar og hagnýtingar jörðina Vatnsenda í Kópavogskaupstað með þeim tak- mörkunum og skilmálum sem settir eru í arfleiðsluskrá Magnúsar Ein- arssonar Hjaltested, dagsettri 4.jan- úar 1938“.. Var Margrét borin af jörð- DV-mynd Brynjar Gauti inni ásamt öllu því er henni tilheyrði og hveijir þeir sem dvöldu þar vegna hennar. Var málið til umfjöUunar í fjölmiðlum á þessum tíma. Missir erfðaréttinda? Samkvæmt erfðaskránni átti jarð- eignin að ganga erfðum til elsta son- ar Sigurðar og svo niðja hans í bein- an karllegg. Þannig átti aðeins einn maður að fá arfinn, sá elsti í karl- legg. Ef einhver erfingjanna hætti búskap á jörðinni mundi hann missa rétt sinn samkvæmt erfðaskránni en sá er næstur var í röðinni átti að taka við. Var tilskilið af hálfu fógeta- réttar að sérhver erfingi er fengi erfðarétt samkvæmt erfðaskránni væri skyldur til að halda öll þau skil- yrði sem þar væru sett en vanræksla á því ylli tafarlausum réttindamissi fyrir hlutaðeigandi. Meðal helstu skilyrða sem sett vom í erfðaskránni voru þessi: „Arftaka er óheimilt að selja jörð- ina eða veðsetja hana fyrir meiru en nemur 50 prósentum af fasteigna- mati jarðarinnar og þó aðeins til greiðslu erfðafjárskatts, ef með þarf, eða til nauðsynlegra endurbóta á jörðinni sjálfri eða húsum hennar. Arftaka er heimilt að selja á leigu lóðir úr óræktuöu landi jarðarinn- ar.“ Samkvæmt þessum skilyrðum má ganga út frá því að Magnús Hjalt- ested geti hvorki selt né veðsett jörð- ina í dag. Ef Magnús selur Reykjavík- urborg eða Kópavogskaupstað hluta jarðarinnar ætti hann að missa öll erfðaréttindi samkvæmt erfða- skránni. í samtölum viö lögmann var DV tjáð að það væri vafamál hvort skipu- lagslög hrektu fógetúrskurðinn sem staðfestur var í hæstarétti 1969. -hlh [tuGALffiK, SÍMl 33755

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.