Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1990, Blaðsíða 6
6
MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 1990.
Viðskipti
Reyfaraleg saga á bak við mál Stöðvar 2 á gamlársdag
Búið að gera 3 ára samning
við Jón Óttar, Hans og Ólaf
- gengið að riftunarkröfum Páls í Pólaris
Jón Óttar Ragnarsson, sjónvarpsstjóri Stöðvar 2. Kominn með þriggja ára samning sem sjónvarpsstjóri.
Stöðvar 2 sagan á tveimur siðustu
dögum ársins 1989 líkist fremur góð-
um reyfara en raunveruleika. Þann-
ig hefur DV áreiðanlegar heimildir
fyrir því aö nýbúið hafi veriö aö gera
3 ára starfssamning við Jón Óttar
Ragnarsson, Hans Kristján Árnason
og Ólaf H. Jónsson, svo og Magnús
Hjaltested, íjárbónda á Vatnsenda,
og konu hans, Kristínu Jónsdóttur,
þegar fimm fyrirtækja hópurinn svo-
nefndi var kvaddur á skyndifund í
Fréttaljós
Jón G. Hauksson
Verslunarbankanum um hádegis-
bilið á gamlársdag. Ennfremur lá þá
lika fyrir að búið var að samþykkja
riftunarkröfu Páls G. Jónssonar í
Pólaris en hann keypti á sínum tíma
hlut í Stöðinni fyrir um 70 milljónir.
Páll taldi sig hafa verið svikinn þar
sem hann hefði ekki fengið réttar
upplýsingar um íjárhagsstöðu Stööv-
ar 2 þegar hann keypti. Þessir samn-
ingar réðu úrslitum um það að fimm
fyrirtækja hópurinn gaf Stöðina end-
anlega frá sér.
/
Upp úr slitnaði
á gamlársdag
Viðræður Verslunarbankans við
fyrirtækjahópinn, Heklu, Hagkaup,
Vífilfell, Prentsmiðjuna Odda og
Árna Samúélsson í Bíóhöllinni, hóf-
ust um miðjan nóvember. í upphafi
voru fyrirtækin raunar þrjú eða
Hekla, Hagkaup og Vífilfell. Oddi og
Árni Samúelsson bættust síðan við.
Lengi vel leit út fyrir aö þessi fyrir-
tæki myndu kaupa Stöðina en eftir
um sex vikna viðræður slitnaði end-
anlega upp úr á hinum sögulega
fundi sem haldinn var í Verslunar-
bankanum á gamlársdag.
Segja má að reyfarinn hafi tekið
óvænta stefnu eftir jól þegar Versl-
unarbankinn setti þeim þremenning-
um og aðaleigendum Stöðvar 2, Jóni
Óttari Ragnarssyni, Hans Kristjáni
Árnasyni og Ólafi H. Jónssyni, þann
úrslitakost að mál Stöðvarinnar
gagnvart bankanum yröu að vera
komin á hreint fyrir áramót þegar
íslandsbanki yrði til.
Jón Óttar á fund
Steingríms
Sjónvarpsstjórinn, Jón Óttar Ragn-
arsson, leitaði þá til forsætisráð-
herra, Steingríms Hermannssonar,
um að ríkisstjómin veitti ríkisábyrgð
fyrir 400 miUjóna króna eclendu láni
sem Stöðin ætlaði að kaupa. Jón Ótt-
ar og félagar áttu síðan fund með
Jóni Sigurðssyni viöskiptaráðherra
og Ólafi Ragnari Grímssyni íjármála-
ráöherra.
Þvi næst var beiöni Stöðvar 2
manna lögð fyrir ríkisstjórnarfund
síðastliðinn fimmtudag, 28. desemb-
er. Úr varð að taka átti ákvörðun um
málið á ríkisstjómarfundi daginn
eftir, 29. desember. Þeim ríkisstjóm-
arfundi var mjög óvænt frestað um
morguninn.
Nú hófust hlaup og læti. Stöðvar 2
menn sáust á hlaupum í ráðuneytum
þennan fræga fostudagseftirmiðdag.
Útkoman varö hins vegar sú aö ríkis-
stjómin vildi ekki gefa út bráða-
birgðalög um ríkisábyrgð handa Stöð
2 en bauð á hinn bóginn viljayfirlýs-
ingu þess efnis að hún myndi leggja
fyrir Alþingi lagafmmvarp um ríkis-
ábyrgð vegna fyrirtækisins. Þetta
fannst Verslunarbankanum ekki
duga.
Næturfundur
með ríkinu
En spennunni var ekki lokið með
aðstoð ríkisins til handa Stöðinni.
Áfram var leitað leiða. Eftir mið-
nætti á fóstudagskvöld mættu þeir
Jón Sveinsson, aðstoðarmaður for-
sætisráðherra, Már Guömundsson,
efnahagsráðgjafi Ólafs Ragnars
Grímssonar, og Bjöm Friðfmnsson,
ráðuneytisstjóri í viðskiptaráðuneyt-
inu, á næturfúnd með Stöðvarmönn-
um.
Þessi fundahöld héldu áfram dag-
inn eftir, laugardaginn 30. desember.
Um klukkan fimm þennan dag var
ljóst að öllu sund voru lokuð til að
ríkið kæmi með einum eða öömm
hætti inn í myndina. En meðal ann-
ars var búið að kanna þann mögu-
leika að Atvinnutryggingasjóður,
Hlutabréfasjóður eða jafnvel Fram-
kvæmdasjóður gætu kömið inn í
dæmið.
Skuld breytt í eign
- Þegar hér var komiö sögu var
Verslunarbanki kominn í þá stöðu
að verða að tryggja stöðu sína gagn-
vart Stöð 2 fyrir gamlársdag en við
þann dag mun margumtöluð mats-
nefnd bankanna fjögurra í íslands-
banka miða í sínu uppgjöri. Verslun-
arbankinn mat stöðuna svo síðdegis
þennan laugardag aö betra væri að
eiga 250 milljóna króna hlut í Stöð 2
heldur en 250 milljóna kröfu vegna
láns til Stöðvar 2. Áð eign í fyrirtæk-
inu væri öömvísi metin en ótryggt
lán til Stöðvarinnar.
Á hlutahafafundi Sjónvarps-
félgagsins daginn eftir, á gamlársdag,
var samþykkt hlutafjáraukning úr
um 5,5 milljónum í um 405 milljónir
króna. í samkomulaginu, sem gert
var á fundinum, tók Eignarhalds-
félag Verslunarbankans hf. að sér að
ábyrgjast sölu á hlutafé fyrir 250
milljónir króna en fyrri aðaleigend-
ur, Jón Óttar, Hans Kristján og Ólaf-
ur H., ætluðu að útvega hlutafé upp
á um 150 milljónir króna. Þetta hlut-
afé er ætlunin að fá út með sölu jarð-
arinnar Vatnsenda en Reykjavík hef-
ur áhuga á landinu undir bygginga-
framkvæmdir.
Skyndifundur í bankanum
í hádegi á gamlársdag
Verslunarbankinn boðaði síðan til
fundar með fimm fyrirtækja hópnum
í Verslunarbankanum klukkan eitt
um hádegið á gamlársdag. Á þennan
fund mættu af hálfu bankans þeir
Gísli V. Einarsson, formaður banka-
ráðs, Tryggvi Pálsson bankastjóri,
Orri Vigfússon bankaráðsmaður,
Þorvaldur Guðmundsson í Síld og
fiski, bankaráðsmaður, Þorvarðui'
Elíasson, skólastjóri Verslunarbank-
ans, og Guðmundur H. Garðarsson
bankaráðsmaður. Af hálfu fimm fyr-
irtækja hópsins mættu þeir Heklu-
bræöur Ingimundur og Sigfús Sig-
fússynir, Siguröur Gísli Pálmason,
stjórnarformaöur Hagkaups, Þorgeir
Baldursson, forstjóri Prentsmiðj-
unnar Odda, Árni Samúelsson bíó-
kóngur og Lýður Friðjónsson, fram-
kvæmdastjóri Vífilfells. Á fundinn
mættu einnig þeir Óskar Magnússon
lögmaður og Símon Á. Gunnarsson,
löggiltur endurskoðandi, en þeir
voru fimm fyrirtækja hópnum til
aðstoöar í samningaviðræöunum við
Verslunarbankann.
Höskuldur og Jón Óttar
í hálftvöfréttum
Bankamennirnir gerðu hópnum
grein fyrir því hvernig mál heföu
þróast á milli bankans og Stöövar 2
og áð bankinn ætti hlut í Stööinni.
Jafnframt að þessi 250 milljóna
króna hlutur bankans væri til sölu.
Á sama tíma voru þeir Höskuldur
Ólafsson, bankastjóri Verslunar-
bankans, og Jón Óttar Ragnarsson
sjónvarpsstjóri í hálftvöfréttum á
Stöð 2 aö fjalla um málefni Stöðvar-
innar og að Eignarhaldsfélag Versl-
unarbankans hefði komið inn með
250 milljóna króna hlut í Stöðina. Jón
Óttar ljómaöi allur í þessum fréttum
og sagði eitthvað á þá leið að þetta
væru sín bestu áramót í mörg ár.
En hvernig mátti það vera að Jón
Óttar væri svona ánægður því ekki
var að sjá að mál Stöðvarinnar væru
leyst þar sem Verslunarbankinn á
eftir að selja meirihluta sinn í Stöð-
inni, 250 milljónir króna?
Jón Óttar Ijómaði
Ástæðan var auðvitað sú að ný
stjórn Stöðvar 2, en meirihluti henn-
ar er Eignarhaldsfélag Verslunar-
bankans hf., hafði gert 3 ára samning
við Jón Óttar, Hans Kristján og Ólaf
H. Jónsson. Sömuleiöis lá líka fyrir
3 ára starfssamningur viö Magnús
Hjaltested, fjárbónda á jörðinni
Vatnsenda, og konu hans, Kristínu
Jónsdóttur, systur Ólafs H. Jónsson-
ar á Stöð 2. Þannig var tryggt að Jón
Óttar yrði sjónvarpsstjóri hjá Stöð-
inni næstu þrjú árin þó enn ætti eft-
ir að selja meirihlutann í Stöðinni.
Fimm fyrirtækja hópurinn hafði í
þær sex vikur sem samningaviðræð-
ur höföu staðið yfir við bankann
ávallt lagt á það ofurkapp að fá meiri-
hlutann í Stöðinni til að geta stjórnað
henni. Samstarfssamningur tÚ 3 ára
við æðstu menn Stöðvar 2 var nokk-
uö sem fimm fyrirtækja hópurinn gat
ekki sætt sig við.
Riftunarkrafa
Póls í Pólaris
Þegar það lá einnig fyrir að riftun-
arkrafa Páls G. Jónssonar í Pólaris
haföi á endaspretti ársins verið sam-
þykkt breyttist dæmið auðvitað stór-
lega. Páll keypti hlutafé fyrir 70 millj-
ónir í Stöðinni. Það að ákveða að
endurgreiða Páli í Pólaris á núver-
andi verðlagi getur því þýtt hátt í 100
milljóna endurgreiðslu.
Lengi vel hefur verið rætt um að
skuldir Stöövar 2 séu um 1 milljarð-
ur. Og raunar var það sú tala sem
veifað var framan í fimm fyrirtækja
hópinn til aö byrja með. Síðan hefur
skuldastaða Stöðvar 2 verið að breyt-
ast meðan á viðræðunum hefur stað-
ið. Þannig var talan 1.300 milljónir
króna nýlega reifuö. Um 100 milljóna
króna endurgreiðsla til Páls í Pólaris
ætti að hækka þessa tölu í um 1.400
milljónir króna.
Fróðlegt verður að fylgjast með
framvindu mála hjá Stöðinni. Tekst
Eignarhaldsfélagi Verslunarbank-
ans hf. að selja 250 milljóna hlutafé
sitt í Stöðinni? Tekst að selja 100
milljóna viöbótarhlutafé sem hlut-
hafafundur samþykkti að heimila á
gamlársdag? Bjargar Vatnsendi mál-
unum? Það er mörgum spurningum
ósvarað. Þetta er reyfari..
-JGH
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækurób. 11-12 Bb
Sparireikningar
3jamán. uppsögn 11,5-13 Úb,V-
6mán. uppsögn 13-14 b,Ab Úb.V-
12mán.uppsögn 12-15 b,Ab Lb
18mán. uppsögn 26 Ib
Tékkareikningar, alm. 2-4 Sp
Sértékkareikningar 10-12 Bb
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 0,75-1,5 Allir
6 mán. uppsögn 2.5-3.0 nema Sp Lb.Bb,-
Innlán meðsérkjörum 21 Sb Allir
Innlángengistryggð
Bandarikjadalir 7-7,5 Sb
Sterlingspund 13-13,75 Úb.Bb,-
Vestur-þýsk mörk 6,75-7 lb,V- b.Ab, Úb.lb,-
Danskarkrónur 10,5-11,0 Vb.Ab Úb.lb,-
ÚTLÁNSVEXTIR (%) Vb.Ab lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvíxlar(forv.) 27.5 Allir
Viðskiptavíxlar(forv.)(1) kaupgengi
Almennskuldabréf 31,5-32,75 Lb.Bb
Viðskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir
, Hlaupareikningar(yfirdr.) 32,5-35 Lb.Bb
Utlán verðtryggð
. Skuldabréf 7,25-8,25 Úb
Útlán til framleiðslu
Isl. krónur 28,5-33 Lb.Bb.
SDR 10,75 Allir
Bandarikjadalir 10,25-10,5 Allir
Sterlingspund 16,75 nema Úb.Vb Allir
Vestur-þýskmörk 9,75-10 Allir
Húsnæðislán 3,5 nema Lb
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 40,4
MEÐALVEXTIR
óverðtr. des. 89 •31,6
Verötr. des. 89 7,7.
VlSITÖLUR
Lánskjaravisitalajan. 2771 stig
Lánskjaravísitala des. 2722 stig
Byggingavísitala des. 505 stig
Byggingavísitalades. 157,9stig
Húsaleiguvisitala 3,5% hækkaði 1. okt.
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Einingabréf 1 4,508
Einingabréf 2 2,481
Éiningabréf 3 2,971
Skammtímabréf 1,539
Lífeyrisbréf 2,267
Gengisbréf 1,993
Kjarabréf 4,460
Markbréf 2,368
Tekjubréf 1,898
Skyndibréf 1,346
Fjölþjóðabréf 1,268
Sjóðsbréf 1 2,169
Sjóðsbréf 2 1,662
Sjóðsbréf 3 1,523
Sjóðsbréf 4 1,281
Vaxtasjóðsbréf 1,5225
HLUTABREF
Söluverö að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Sjóvá-Almennar hf. 400 kr.
Eimskip 400 kr.
Flugleiðir 162 kr.
Hampiðjan 172 kr.
Hlutabréfasjóður 166 kr.
lönaöarbankinn 180 kr.
Skagstrendingur hf. 300 kr.
Útvegsbankinn hf. 155 kr.
Verslunarbankinn 153 kr.
Olíufélagið hf. 318 kr.
Grandi hf. 157 kr.
Tollvörugeymslan hf. 114 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb= Iðnaðarbank-
inn, Lb= Landsbankinn, Sb=.Samvinnu-
bankinn, Úb= Útvegsbankinn, Vb =
Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóðirnir.
Nánari upplýsingar um peningamarkað-
inn birtast í DV á fimmtudögum.