Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1990, Page 2
Fréttir
MÁNUDAGUR 15. JANÚAR 1990.
DV
Eigiiikona með mikla áverka og fótbrotin eftir eiginmanninn:
Lá lengi slösuð áður en
hún komst á slysadeild
Lögö hefur verið fram krafa í Saka-
dómi Reykjavíkur um aö úrskurðaö
verði gæsluvaröhald vegna' karl-
manns sem veitti eiginkonu sinni
alvarlega líkamsáverka á heimili
þeirra á Eggjavegi í Reykjavík.
Hjónin lentu í deilum aöfaranótt
laugardagsins. Þær leiddu síöan til
alvarlegra átaka. Síðdegis á laugar-
dag hringdi maðurinn síðan eftir
sjúkrabíl og kom lögreglan einnig á
staöinn. Konan var þá flutt á Borgar-
spítalann. Hún var fótbrotin og haföi
fengið mikla áverka á andlit og ann-
ars staðar á líkamanum.
Ekki fer á milli mála að konan
komst ekki undir læknishönd fyrr
en löngu eftir að hún varð fyrir árás
mannsins. Ljóst liggur fyrir að eigin-
maöurinn átti sök að máli.
Réttað var í málinu í Sakadómi í
gærdag og var krafa lögð fram um
að maðurinn skyldi úrskurðaður í
gæ§luvarðhald. Dómarinn frestaði
þinghaldi þar til í dag þangað til hann
hefur kynnt sér málsgögn. Málið er
til meðferðar hjá Rannsóknarlög-
reglu ríkisins.
-ÓTT
ökumaður, sem hafði misst stjórn á bíl sinum i beygju við Stekkjarbakka, var fluttur meðvitundarlaus á slysa-
deild eftir bílveltu í morgun. Bíllinn endaði langt utan vegar skammt frá knattspyrnuvelli ÍR. DV-mynd S
Bílvelta við Stekkjarbakka í morgun:
Fluttur
laus á
Ökumaöur Mercedes Benz bíls var
fluttur meðvitundarlaus á slysadeild
eftir að hafa ekið út af á beygju við
Stekkjarbakka í Breiöholti á áttunda
tímanum í morgun. BOlinn valt en
ekki var vitað nákvæmlega hve
meðvitundar-
slysadeildina
margar veltur hann fór þegar. Bíll-
inn endaði langt utan vegar og lagö-
ist toppurinn saman að miklu leyti
eftir velturnar.
Nota þurfti verkfæri tækjabíls
slökkvOiðsins tO að koma manninum
út. Hann skarst töluvert á höföi.
Maðurinn gekkst síðan undir skoöun
vegna höföumeiðslanna á Bofgar-
spítalanum. Þegar síðast fréttist var
ekki vitað hve alvarleg meiðsl hans
voru. -ÓTT
Væntanleg málaferli vegna Vatnsenda:
Magnús Thoroddsen í
málið fyrir Margréti?
Asgeir Thoroddsen héraösdóms-
lögmaður hefur farið þess á leit við
Magnús Thoroddsen hæstaréttarlög-
mann aö hann annist málshöfðun
fyrir Margréti Hjaltested og syni
hennar á í.endur Magnúsi Hjalt-
ested, núverandi ábúanda á Vatns-
enda. Magnús Thoroddsen er ný-
kominn tíl landsins eftir dvöl erlend-
is en hann íhugar nú hvort honum
verður fært að annast máhð fyrir
Margréti.
Lögmennirnir Ásgeir Thoroddsen
og Bjami Þór Óskarsson hafa síðast-
hðna viku kannað málsgögn Mar-
grétar Hjaltested og sona hennar
ásamt erföaskránni aö Vatnsenda. í
framhaldi af því sagði Ásgeir í sam-
taU við DV að hann heföi talað við
Magnús um að hann tæki málið að
sér.
Eftir aö hafa kannaö málsgögnin
segir Ásgeir aö augljóslega sé verið
að fara í kringum erfðaskrána að
Vatnsenda með þeim samningi sem
gerður hefur verið á milU Magnúsar
Hjaltested og Reykjavíkurborgar.
„Þarna er verið að selja stóran hlut
af jörðinni sem er óheimUt ssun-
kvæmt erfðaskránni. Auk þess eru
forsendur fyrir búskap löngu brostn-
ar. Þó svo aö menn telji sig vera fjár-
bónda með því að hafa nokkrar kind-
ur á jörö sem engan veginn er falUn
til búskapar lengur hefur greirúlega
líka verið farið í kringum ákvæði
erföaskrárinnar með því atriði. Sam-
kvæmt þessum staðreyndum á að
fara í önnur fyrirmæU erfðaskrár-
innar. En það er alveg augljóst að
með samningnum við Reykjavíkur-
borg er Magnús Hjaltested að bijóta
í bága viö erfðaskrána," sagöi Ásgeir
Thoroddsen. -ÓTT
Kona hlaut höfðuðáverka á Hótel íslandi:
Yfirdyravörður taldi
konuna ekki slasaða
Tvær konur urðu fyrir aUmikl-
um meiðslum á Hótel íslandi í
fyrrinótt. Önnur þeirra hlaut
meiösl á höfði og var fyrst taUð að
hún heföi höfuðkúpubrotnað. Svo
reyndist þó ekki vera við nánari
athugun. Hin konan hafði fengið
þungt högg á brjóstkassa en fékk
að fara heim frá slysadeUd að lok-
inni skoðun.
Málsatvik vegna þessara atburða
eru mjög óljós. Við skýrslutöku í
gær kom í ljós að konurnar eru
ekki vissar um hvemig þær hlutu
meiðsl sín - þær voru ekki vissar
um hvað gerðist. Um nótdna voru
dyraverðir á Hótel íslandi með
skiptar skoðanir um hvort sú sem
meiddist á höföi væri í raun og
veru slösuö. Yfirdyravörður tók
síðan af skarið eftir nokkra reki-
stefnu og taldi aö konan þyrfti ekki
að fara á slysadeild - þetta væri
bara ölvun. Konan var engu að síö-
ur flutt á slysadeild.
Ekkert hefur komið fram ennþá
sem beinir grun að neinum sér-
stökum aðila sem veist hafi að kon-
unum og veitt þeim þessa áverka.
-ÓTT
Héraðsdómarar skipaðir í samræmi við bráðabirgðalög:
Bæjarfógetar skipta um umdæmi
Forseti íslands skipaði þau Ragn-
heiði Thorlacius fulltrúa, Adólf
Adólfsson bæjarfógeta, Ólaf Olafsson
fulltrúa og Ólaf K. Ólafsson bæjar-
fógeta 1 gær héraðsdómara að tillögu
dóms- og kirkjumálaráðherra. Utan-
ríkisráöherra hefur enn ekki skipað
héraðsdómara við embætti lögreglu-
stjórans á Keflavíkurflugvelli.
Ragnheiöur Thorlacius, fulltrúi
sýslumannsins í Mýra- og Borgar-
fjaröarsýslu, var skipuð héraðs-
dómari við embætti sýslumannsins í
Vestur-Skaftafellsýslu, sýslumanns-
ins í Rangárvallasýslu, bæjarfóget-
ans á 'Akranesi, sýslumánnsins í
Mýra- og Borgarfjarðarsýslu, sýslu-
mannsins í Snæfells- og Hnappadals-
sýslu og bæjarfógetans í Ólafsvík og
sýslumannsins í Dalasýslu og mun
hún mun hafa aöalaðsetur í Borgar-
nesi.
Adólf Adólfsson, bæjarfógeti í Bol-
ungarvík, var skipaður héraðsdóm-
ari við embætti sýslumannsins í Bol-
ungarvík, sýslumannsins í ísafjarö-
arsýslu og bæjarfógetans á ísafirði
og sýslumannsins í Strandasýslu.
Ólafur Ólafsson, fulltrúi bæjarfóg-
eta á Akureyri, var skipaður héraðs-
dómari við embætti sýslumannsins í
Húnavatnssýslu, sýslumannsins í
Skagafjarðarsýslu og bæjarfógetans
á Sauðárkróki, bæjarfógetans á
Siglufirði, bæjarfógetans á Olafsfirði,
sýslumannsins í Þingeyjarsýslu og
bæjarfógetans á Húsavík.
Ólafur K. Ólafsson, bæjarfógeti í
Neskaupstað, var skipaður héraðs-
dómari við embætti sýslumannsins í
Norður-Múlasýslu og bæjarfógetans
á Seyðisfirði, sýslumannsins í Suð-
ur-Múlasýslu og bæjarfógetans í
Neskaupstað og sýslumannsins í
Austur-Skaftafellssýslu.
Tveir bæjarfógetar
Héraðsdómararnir eru skipaðir til
1. júní næstkomandi. Fram til þess
tíma mun Alþingi fjalla um bráða-
birgðalögin og stöðurnar verða aug-
lýstar lausar til umsóknar.
Það sem sérstaka athygli vekur í
skipunum þessum er að meðal þeirra
fjögurra héraðsdómara, sem skipaöir
voru, eru tveir bæjarfógetar, þeir
Ólafur K. Ólafsson, bæjarfógeti í
Neskaupstað, og Adólf Adólfsson,
bæjarfógeti í Bolungarvík.
Aö sögn Óla Þ. Guðbjartssonar
dóms- og kirkjumálaráðherra hafa
aðrir verið skipaðir í þeirra störf.
Pétur Hafstein, sýslumaður og bæj-
arfógeti á isafirði, var frá og með
deginum í gær skipaður bæjarfógeti
í Bolungarvík og Siguröur Eiríksson,
sýslumaður á Eskifirði, tók frá sama
tíma við starfi Ólafs K. Ólafssonar,
bæjarfógeta í Neskaupstað, og'munu
þeir gegna þessum störfum til 1. júní
næstkomandi.
Héraðsdómaramir munu hafa að-
alaðsetur sitt á þeim stöðum þar sem
þeir eru búsettir nú en munu ferðast
á milli embætta eftir því sem þörf er
á.
Dómur Hæstaréttar
Tildrög þess að ákveðið var að setja
bráöabirgðalög um embætti héraðs-
dómara má rekja til þess að nýlega
gekk dómur í Hæstarétti íslands, þar
sem niðurstaðan var á þann veg að
dómur, uppkveðinn í Sakadómi, var
feldur úr gildi og málinu vísað heim
í hérað til löglegrar málsmeðferðar
og dómsálagningar. Sýslumaðurinn
í Arnessýslu og fulltrúi hans voru
lýstir vanhæfir til að fara með dóm-
störf í málinu þar sem sýslumaður-
inn sé jafnframt lögreglustjóri í sama
umdæmi og hafi sem slíkur farið með
lögreglurannsókn málsins.
Sú staða sé uppi í tuttugu umdæm-
um landsins að einn og sami maður
sé í senn lögreglustjóri og dómari,
án þess að sjálfstæðir héraösdómar-
ar starfi við þau embætti sem geti
farið með og dæmt í opinberum mál-
um á eigin ábyrgð.
Því hafi brýna nauðsyn borið til
að breyta núgildandi lögum og munu
bráðbirgöalögin standa óbreytt, ef
Alþingi samþykkir þau, til 1. júlí 1992
þegar ný skipan dómstóla í héraði,
samkvæmt lögum um aöskilnaö
dómsvalds og umboösvalds í héraði,
kemur til framkvæmda.
-J.Mar