Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1990, Qupperneq 11
MÁNUDAGUR15. JANÚAR'1990.
Utlönd
>
Rúmenar
vonast eftir
aðstoð
erlendis frá
Leiðtogar Rúmeníu, sem sættu
mikilli gagnrýni landa sinna um
helgina, vonast til aö fá næga aðstoð
erlendis frá til að reisa við efnahag
landsins en hann er í rúst eftir aldar-
fjórðungs óstjóm og einræði Ceau-
sescus. Þeir hafa þegar farið fram á
aðstoð frá aðiidarríkjum Evrópu-
bandalagsins og í gær sagði háttsett-
ur embættismaður bandalagsins að
aðildarríkin myndu leggja sitt af
mörkum til að Rúmenía, Tékkósló-
vakía og Búlgaría næðu fótfestu á
vegi lýðræðisumbóta og efnahags-
legra breytinga.
Vestur-þýski utanríkisráðherrann,
Hans-Dietrich Genscher, mun eiga
fund með leiðtogum bráðabirgða-
stjórnar Þjóðfrelsishreyfingarinnar
sem farið hefur með völd síðan Ceau-
sescu var sviptur völdum og tekinn
af lífi í desember. Ceuasescu greiddi
upp allar erlendar skuldir landsins á
valdatíma sínum með því að svelta
þjóðina og flytja nær alla matvæla-
framleiðsluna úr landi. Stjórnvalda
bíður því erfitt verkefni.
En það er meira en efnahagsleg
óreiða sem bráðabirgðastj órnin þarí
að leysa úr. í kjölfar mikilla og fjöl-
mennra mótmæla í miðborg Búkar-
est um helgina, þar sem þúsundir
manna söfnuðust saman fyrir fram-
an höfuðstöðvar stjórnar Þjóðfrelsis-
hreyfingarinnar, tilkynnti forseti
Rúmeníu, Ion Biescu, að kommún-
istaflokkurinn væri ólöglegur. Hann
breytti þó ákvörðun sinni sólarhring
síðar eftir gagnrýni um að hann hefði
tekið ákvörðunina í fljótfærni og lát-
ið undan mannfjöldanum og til-
kynnti að það yrði undir þjóðinni
komið hvort flokkurinn ýrði bannaö-
ur, frumvarp um slíkt yrði lagt fyrir
þjóðaratkvæðagreiðslu 28. janúar
næstkomandi. Þann dag verður
einnig kosið um hvort banna eigi
dauðarefsingu en margir þeir sem
þátt tóku 1 mótmælunum um helgina
kröfðust þess að þeir sem ábyrgð
bæru á dauða þúsunda manna í bylt-
ingunni gegn Ceausescu yrðu teknir
af lífi. Talsmaður hreyfingarinnar
sagði í gær að réttað yrði yfir leið-
togum Ceausescu stjórnarinnar og
liðsmönnum Securitate, hinnar ill-
ræmdu öryggislögreglu, fyrir opnum
tjöldum. Réttarhöldin hefjast í þess-
ari viku. Meðal þeirra sem réttað
verður yfir eru börn Ceausescu-
hjónanna. Reuter
I JAPIS BRAUTARHOLTI 2
Viö veitum allt aö 5095 afslátt af heimsþekktum
vörumerkjum
Panasonic
SAMSUMG
Útlitsgallaöar vörur á sprenghlægilegu veröi
Veitumeinnig 12% st.gr. afslátt af nýjum vörum
JAPISð
• BRAUTARHOLT 2 ■
i
JEEP
The American Legend
Eígtim þessa bíla tíl afgreíðslu strax á hagstæðu verðí:
Vf 1989 Jeep Comanche pallbíll, 4WD
BÚNAÐUR M.A.:
4.0 lítra vél, sjálfskipting, vökvastýrí, útvarp, Off Road
pakkí, tröppustuðarí, lengri pallurínn.
Verð kr.
1.550.000
JÖFUR
— þegab
Þú KAUP'R B\U
Cherokee Pioneer, 4 dyra, 4WD
Wí
BÚNAÐUR
4.0 lítra vél, sjálfskipting, vökvastýri, útvarp, Off Road
pakki, veltistýri, þakgrind, litað gler.
1.990.000
Verð kr.
JÖFUR hf
NÝBÝLAVEGI 2, KÓPAVOGI, SlMI 42600