Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1990, Blaðsíða 1
Eddie Skoller grínast við áhorfendur þegar hann skemmti í Islensku óperunni fyrir tveimur árum.
Eddie Skoller í íslensku óperunni:
Húmor sem
slendingar
kunna
að meta
Fyrir tveimur árum kom hinn
þekkti grínisti Eddie Skoller til
landsins á vegum Lionsklúbbsins
Njarðar og hélt þrjár skemmtanir í
íslensku óperunni og var húsfyllir á
þeim öllum. Vegna fjölda tilmæla var
farið að reyna að fá hann aftur til
landsins og tókst það fyrir stuttu en
Skoller er mikill heimshomaflakkari
og hefur skemmt í öllum heims-
homum. Mun hann skemmta á laug-
ardags- og sunnudagskvöld.
Eddie Skoller, sem er fertugur að
aldri, er nú talinn vinsælasti
skemmtikraftur á Norðurlöndum og
hefur hann ávallt fyllt stærstu tón-
listarsali í mörgum löndum. Nýlega
hefur hann heimsótt svo ólíkar borg-
ir sem Moskvu, Singapore, Hong
Kong, Bangkok, Manila, Melboume
og London. Skoller kemur ávallt
fram einn með gítarinn sinn og sem
skemmtikrafti hefur honum verið
líkt við Victor Borge.
Eddie Skoller fæddist í Bandaríkj-
unum. Faðir hans, Arne, fæddist í
Sovétríkjunum og móðir hans,
Ingrid, fæddist í Svíþjóð. Þegar Eddie
Skoller var sex ára gamall flutti fjöl-
skylda hans til Danmerkur þar sem
hann ólst upp. Fyrstu skref hans á
leiksviði sem skemmtikraftur vom í
kringum 1970 og einnig lék hann á
þeim tíma í söngleiknum Hárinu eða
1971.
Fljótlega eftir það byrjaði hann að
koma fram einn sem tónlistarmaður
og um leið notfærði hann sér með-
fæddan húmor sér til framdráttar.
Hann vakti fljótlega athygli og söng
inn á metsöluplötur sem ekki aðeins
urðu vinsælar í Danmörku heldur
víða í Evrópu. Má nefna lagið What
Did You Learn in School Today sem
varð það lag sem vakti fyrst athygli
á honum hér á landi.
Það er mikill fengur aö fá Eddie
Skoller til landsins. Þessum
skemmtilega grinista tekst aö ná
fram hjá áhorfendum hlátri sem lifir
lengi í minningunni. Þess má geta
að allt starf innan lionshreyfingar-
innar er unnið í sjálfboðavinnu og
því fer afiur afrakstur tónleikanna
óskertur til líknarmála.
Ferðafélag íslands - árstíðaferð:
Heiðmörk aö vetri
Ein af nýjungunum, sem Ferðafélag
íslands býður upp á í ár, eru árstíða-
ferðir í Heiðmörk. Verður fyrsta
ferðin farin á sunnudaginn og nefnist
hún Heiðmörk að vetri. í augum
A gönguferð í Heiðmörkinni.
flestra er Heiömörkin líklega fyrst
og fremst sumarland til útiveru en
hún getur einnig verið heillandi á
vetuma.
í árstíðaferðum verður jafnan farið
í skógarreit Ferðafélagsins en árið
1950 fékk félagið úthlutað spildu í
Heiðmörkinni þar sem gróðursettar
hafa verið um hundrað þúsund trjá-
plöntur. Þangað hafa verið farnar
gróðursetningarferðir á hverju vori
og á síöari árum til grisjunar og
áburðargjafar.
í gönguferðinni á sunnudaginn
verður komið víðar við en í skógar-
reitnum. Byrjað verður við Höfuð-
leðurshól hjá Silungapolh og haldið
að Hólmsborg, fallega hringhlaðinni
fjárborg frá árinu 1918. Þaðan er
gengið í Skógarhlíöarkrika og Skóg-
arreit FÍ og síðan til baka að Rauð-
hólum.
Rauðhólarnir eru sem kunnugt er
friðlýstir gervigighólar, um 80 að
tölu. Fyrir friðlýsinguna 1961 var þar
unnið mikið efnisnám svo eystri
hluta þeirra var mikið spillt. En þeir
eru ekki síður skoðunarverðir af
þeim sökum.
Gangan er tilvalin fjölskylduferð
og er brottfór frá Umferðarmiðstöð-
inni, austanmegin, kl. 13.
...... —' **
Fyrsta kvikmyndin á vortímabili er Landslag í þoku sem var kosin besta
kvikmynd í Evrópu i fyrra.
Kvikmyndaklúbbur íslands:
Nítján kvikmyndir
ávortímabili
Kvikmyndaklúbbur íslands hóf
þriðja sýningartímabil sitt í gær
með sýningu myndarinnar Lands-
lag í þoku (Topio stin Omichh) sem
er grísk frá 1988 og er leikstjóri
Theo Angelopoulos. Sú mynd var
valin besta kvikmynd Evrópu 1989.
Verður landslag í þoku endursýnd
á laugardaginn og er nánar fjallað
um hana á kvikmyndasíðu í helg-
arkálfinum. Næsta kvikmynd, sem
klúbburinn sýnir, er einnig eftir
Angelopoulous og heitir Ferð til
Kithira.
Megináherslur á þessu vortíma-
bih verða lagöar á film noir mynd-
ir frá Bandaríkjunum og á sænskar
kvikmyndir frá öðrum og þriðja
tug aldarinnar. Einnig verða sýnd-
ar þrjár hrylUngsmyndir í lok
tímabUsins. Tvær eru eftir B-
myndákónginn Roger Corman og
ein eftir Andy Warhol en það er
þrívíddarmynd hans um Franken-
stein.
Þá verða sýndar tvær kvikmynd-
ir frá Ítalíu, þijár frá Sovétríkjun-
um, tvær frá Grikklandi og ein ferá
Frakklandi. Og síöast en ekki síst
verður ein íslensk kvikmynd, Rokk
í Reykjavík, eftir Friðrik Þór Frið-
riksson.
Starfsemi kvikmyndaklúbbsins
byggist á því að meðUmir hans
kaupi félagsskírteini sem gilda frá
18. janúar til 26. maí. Með því öðl-
ast þeir rétt á að kaupa aðgöngu-
miða á hóflegu verði. Aðgöngumið-
ar fást ekki aíhentir nema gegn
framvísun félagsskírteinis. Félags-
skírteinið kostar 100 kr. og að-
göngumiðinn 300 kr. á hverja sýn-
ingu.
Sýningar eru í Regnboganum við
Hverfisgötu á fimmtudögum kl.
21.00 og 23.15 í Utlum sal og á laug-
ardögum kl. 15.00 í stórum sal.