Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1990, Síða 6
HhWAJX ,6! SUDAaOT8Ö4
22
FÖSTUDÁGUR 19. JÁXÚAR 19ÍK}.
Regnboginn:
Landslag
í þoku
Kvikmyndaklúbbur íslands sýnir
í Regnboganum á laugardaginn kl.
15.00 Landslag í þoku (Topio stin
Omichli) sem var valin besta kvik-
mynd Evrópu í fyrra. Leikstjóri er
Theo Angelopoulous. Fjallar
myndin um ferðalag þvert yflr
Grikkland en feröalög hafa alltaf
verið snar þáttur í myndum Ange-
lopoulous.
Aðalpersónumar eru systkinin
Voula, sem er 14 ára, og Alexand-
ros, 5 ára. Þau bíða oft á járn-
brautarstöðinni eftir því að faðir
þeirra snúi aftur. Móðir þeirra sem
vanrækir þau hefur sagt þeim að
hann sé í Þýskalandi, en hklega er
hann ekki til.
Dag einn stíga bömin um borð í
lest til Þýskalands til að leita að
föður sínum. Þeim er fljótlega hent
út úr lestinni vegna þess að þau eru
miðalaus en þau halda þrátt fyrir
það áfram tilviljunarkenndri ferð
sinni til landamæra, sem em óskil-
greind, því ekki liggja landamæri
Grikklands og Þýskalands saman.
Á ferðinni verða þau vitni að ýms-
um atburðum og hitta kynlega
kvisti.
Theo Angelopoulous fæddist í
Aþenu 1935. Áður en hann hóf nám
í kvikmyndagerð stundaði hann
nám í lögfræði. Hann stundaði nám
við kvikmyndaskóla franska ríkis-
ins en það nám varð endasleppt því
hann var rekinn úr skólanum.
Angelopoulous sneri aftur til
Grikklands. Hann vann fyrir sér
sem kvikmyndagagnrýnandi við
blaðið Democratica þar til blaðið
var bannað af herforingjastjórn-
inni 1967. Ári eftir það gerði hann
sína fyrstu stuttmynd.
Myndir Angelopoulous þóttu í
fyrstu minna á myndir Miklós
Jancsó, það er að segja fá og löng
myndskeið í hverri mynd. Á síð-
ustu árum hefur stíll hans þróast
og myndir hans orðið hraðari og
loks með Landslagi í þoku hefur
hann öðlast alþjóðlega viðurkenn-
ingu.
-HK
Kvikmyndir - Kvikmyndir
Laugarásbíó:
Losti
Eftir smálægö snýr A1 Pacino
sterkur aftur til leiks í sakamála-
myndirini Losta (Sea of Love) sem
Laugarásbíó frumsýnir í dag. Kvik-
mynd þessi hefur vakið mikla at-
hygh í Bandaríkjunum og þá ekki
síst stórleikur A1 Pacino í hlutverki
rannsóknarlögreglumannsins
Frank Keller sem lifir fyrir vinn-
una.
Þegar myndin hefst er hann að
fá viðurkenningu fyrir 20 ára
starfsaldur. Um leið er morðingi á
kreiki í New York sem notar einka-
málaauglýsingar í dagblaði til að
nálgast fómarlömb sín.
Frank fær málið til meðferöar og
ásamt félaga sínum gera þeir til-
raun til að ná til morðingjans gegn-
um einkamálaauglýsingarnar.
Þessi tilraun þeirra félaga ber loks
árangur en ekki á þann veg sem
Frank bjóst við.
A1 Pacino hefur leikið margar
löggur á leikferli sínum og bætir
hér einni í safnið og kæmi ekki á
óvart þótt hann fengi sjöttu
óskarstilnefninguna fyrir leik sinn
í þessari mynd.
Ellen Barkin, er leikur þá konu
sem Keller grunar sterklega um
moröin, hefur einnig fengið góða
dóma fyrir leik sinn og er samleik-
ur þeirra í senn innilegur og erót-
ískur.
Leikstjóri er Harold Becker sem
hefur verið nokkuð brokkgengur á
ferli sínum. Hann er innfæddur
New Yorkbúi sem byrjaði feril sinn
sem hönnuður og ljósmyndari.
Leiddi það til þess að hann fór að
stjórna gerð auglýsingamynda og
stuttum myndum fyrir sjónvarp.
Sína fyrstu kvikmynd, The Rag-
man’s Daughter, gerði Becker í
Englandi. Það var 1972. Hann gerir
svo ekki aðra mynd í fullri lengd
fyrr en 1979. Var það The Onion
Field sem hann gerði eftir sögu
Joseph Wambaugh. Síðasta kvik-
mynd Beckers áður en hann leik-
stýrði Losta var The Boost með
James Woods og Sean Young í aðal-
hlutverkum.
-HK
Al Pacino hefur fengið dóða dóma fyrir leik sinn í Losta.
Stjömubíó:
Skollaleikur
Richard Pryor og Gene Wilder leika tvo blaðasala í Skolla-
leik, annar er blindur, hinn er heyrnarlaus.
Gamanleikararnir snjöllu Richard Pry-
or og Gene Wilder leika aðalhlutverkið í
nýrri gamanmynd, Skollaleik (See No
Evil, hear No Evil), sem Stjömubíó frum-
sýndi í vikunni. Mynd þessi naut mikilla
vinsælda í Bandaríkjunum á síðasta ári.
Richard Pryor leikur Wally sem er
blindur og Gene Wilder Dave sem er
heymarlaus. Þótt ekki séu þeir til stór-
ræðanna að því er virðist fellur á þá grun-
ur um morð, þótt ótrúlegt sé.
Þeir félagar reka saman blaðasölu í New
York. Samkomulagið er ekki alltaf upp á
það besta því það er ekki bara að annar
sé blindur og hinn heymarlaus heldur er
samkomulagið ekki sem best.
Wally er sóðakjaftur, hávær, dónalegur
og montinn. Dave er hins vegar hæglátur,
kurteis og hið mesta prúðmenni. Þeir
passa þó hvor annan og er Wally eym
Daves og Dave augu Wallys.
Þegar maöur finnst myrtur við blaðasöl-
una þeirra eru þeir grunaðir um morðið.
Þeim ber þó saman við vitnaleiðslur. Dave
segist hafa séð fagurleggjaða stúlku
hlaupa af morðstað og Wally segist hafa
fundið ilmvatnslykt. Þeir félagar halda því
í leit að fagurleggjaðri konu sem ilmar vel
og lenda þeir í ýmsum uppákomum í þeirri
leit.
Leikstjóri Skollaleiks er Arthur Hiller
sem hefur áður leikstýrt Richard Pryor
og Gene Wilder saman í kvikmynd. Var
það Silver Streak serri gerð var 1976. Var
þar um gamansama sakamálamynd að
ræða sem þótti vel heppnuð.
-HK
Nauðungaruppboð
á eftirtöldum fasteignum
fer fram á skrifstofu embættisins
að Aðalstræti 92, Patreksfirði, á
neðangreindum tíma:
Báturinn Ver BA-112, þingl. eign Ól-
afs Gunnarssonar, fer fram eftir kröíu
Eyrasparisjóðs, Ólafs Birgis Ámason-
ar lögfr. og Siglingamálastoftiunar
ríkisins miðvikudaginn 24. janúar
1990 kl. 16.00.
Miðtún 2,2 b, Tálknafirði, þingl. eign
Ólafs Gunnbjömssonar, fer fram eftir
kröfii Ingimundar Einarssonar hdl.
miðvikudaginn 24. janúar 1990, kl.
18.00.__________
Miðtún 4,1 c, Tálknafirði, þingl. eign
Kristjáns Karls Gunnarssonar, fer
fram eftir kröfti Lífeyrissjóðs Vest-
firðinga, Tryggva Guðmundssonar
hdl. og Byggingasjóðs ríkisins mið-
vikudaginn 24. janúar 1990, kl. 18.30.
Dalbraut 24, Bíldudal, þingl. eign
Þóris Ágústssonar, fer fram eftir kröfu
Jóns Eiríkssonar hdl., Lífeyrissjóðs
Vestfirðinga og Innheimtu ríkissjóðs
fimmtudaginn 25. janúar 1990 kl. 9.30.
Strandgata 11, Bíldudal, þinffl. eign
Rækjuvers hf., fer fram eftir kröfu
Byggðastofhunar, Magnúsar
Norðdahl hdl. og Innheimtustofunnar
sf. fimmtudaginn 25. janúar 1990 kl.
9.30.
Dalbraut 34, Bíldudal, þingl. eign
Magnúsar Björgvinssonar, fer fram
eftir kröfu Lögheimtunnar hf. fimmtu-
daginn 25. janúar 1990 kl. 10.00.
Dalbraut 40, Bíldudal, þingl. eign
Óskars Bjömssonar, fer fram eftir
kröfu Jóhanns H. Níelssonar hrl., Inn-
heimtustofunnar sf. og Byggingasjóðs
ríkisins fimmtudaginn 25. janúar 1990
kl. 10.30.
Túngata 29, Tálknafirði, þingl. eign
Sigmundar Hávarðarsonar, fer fram
eftir kröfu Byggingasjóðs ríkisins
fimmtudaginn 25. janúar 1990 kl. 9.00.
Grænibakki 3, Bíldudal, þingl. eign
Andrésar Garðarssonar, fer fram eftir
kröfu Hallgríms B. Geirssonar hrl.,
Jóns Eiríkssonar hdl., Innheimtustof-
unnar sf. og Byggingasjóðs ríkisins
fimmtudaginn 25. janúar 1990 kl.
11.00.
Hafnarbraut 2, Bfldudal, þingl. eign
Edinborgar hf., fer fram eftir kröfu
þrotabús Kaupfél. V.-Barð., Gísla
Baldurs Garðarssonar hdl., Fiskveiða-
sjóðs íslands og Innheimtu ríkissjóðs
fimmtudaginn 25. janúar 1990 kl.
11.30.
Brunnar 14, Patreksfirði, þingl. eign
Erlu Hafliðadóttur, fer fram eftir
kröfu Hróbjarts Jónatanssonar hdl.
fimmtudaginn 25. janúar 1990 kl.
13.00.
Urðargata 2, Patreksfirði, þingl. eign
Erlu Hafliðadóttur, fer fram eftir
kröfu Hróbjarts Jónatanssonar hdl.
og Innheimtu ríkissjóðs fimmtudaginn
25. janúar 1990 kl. 13.30.
Stekkar 19, Patreksfirði, þingl. eign
Öivinds Solbakk, fer fram eftir kröfu
Landsbanka íslands, Gunnars Sæ-
mundssonar hrl., Benedikts Ólafsson-
ar hdl. og Ólafs Sigurgeirssonar hdl.
fóstudaginn 26. janúar 1990 kl. 9.30.
Aðalstræti 21, efri hæð, Patreksfirði,
þingl. eign-Ásbjöms Ólafssonar, fer
fram eftir kröfií Lífeyrissjóðs Vest-
firðinga miðvikudaginn 24. janúar
1990 kl. 17.30.________________
SÝSLUMADUR BAReASTRANDARSÝSLU
Nauðungaruppboð
annað og síðasta
á eftirtöldum fasteignum
fer fram á skrifstofu embættisins
að Aðalstræti 92, Patreksfirði, á
neðangreindum tíma:
Fífustaðir, Bíldudalshreppi, þingl.
eign Áma Jóhannessonar, fer fram
eftir kröfu Eyrasparisjóðs, Þórólfs K.
Beck hrl., Stofnlánadeildar landbún-
aðarins, Haraldar Blöndal hrl. og
Skúla Pálssonar hrl. fimmtudaginn
25. janúar 1990 kl. 15.00.
Báturinn Vigdís Helga BA401, þingl.
eign Gests Gunnbjömssonar o.fl., fer
fram eftir kröfu Fjárheimtunnar hf.,
Jóns Eiríkssonar hdl., Landsbanka
Islands, Eyrasparisjóðs, Guðmundar
Markússonar hrl. og Siglingamála-
stofhunar ríkisins fimmtudaginn 25.
janúar 1990 kl. 15.30.
Túngata 37, Tálknafirði, tal. eign
Gests Gunnbjömssonar, fer fram eftir
kröfu Jóns Hjaltasonar hrl. og Amar
Höskuldssonar hdl. fimmtudaginn 25.
janúar 1990 kl. 16.00.
Laufás, Tálknafirði, þingl. eign Jó-
hönnu Helgu Guðmundsdóttur, fer
fram eftir kröfu Landsbanka íslands
fimmtudaginn 25. janúar 1990 kl.
16.30.______________________________
Grænibakki 8, Bfldudal, þingl. eign
Jónu Runólfsdóttur, fer fram eftir
kröfu Byggingasjóðs ríkisins, Lands-
banka_fslands, Sigurbergs Guðjóns-
sonar hdl., Magnúsar Norðdahl hdl.,
Ævars Guðmundssonar hdl. og Inn-
heimtu ríkissjóðs fimmtudaginn 25.
janúar 1990 kl. 17.00.
Aðalstræti 15, Patreksfirði, þingl. eign
Helga R. Auðunssonar, fer fram eftir
kröfu Lífeyrissjóðs Vestfirðinga
fimmtudaginn 25. janúar 1990 kl.
18.00. _____________________________
Móatún 16, Tálknafirði, þingl. eign
Jóns Þorgilssonar, fer fram eftir kröfu
Ammundar Backman hrl. og Bygg-
ingasjóðs ríkisins miðvikudaginn 24.
janúar 1990 kl. 14.00.
Gilsfjarðarbrekka, Geiradalshreppi,
þingí. eign Hugrúnar Einarsdóttur,
fer fram eftir kröfu Stoftilánadeildar
landbúnaðarins miðvikudaginn 24.
janúar 1990 kl. 14.30.
Túngata 15, efri hæð, Patreksfirði,
þingl. eign Aðalsteins Haraldssonar,
fer fram eftir kröfu Verslunarbanka
íslands, Lífeyrissjóðs Vestfirðinga,
Ólafs Garðarssonar hdl., Innheimtu-
stofunnar sf., Patrekshrepps og Inn-
heimtu ríkissjóðs fimmtudaginn 25.
janúar 1990 kl. 18.30.
Urðargata 20, 3. hæð, Patreksfirði,
þingl. eign Ingibjargar Hjartardóttur
og Helga Haraldssonar, fer fram eftir
kröfu Lífeyrissjóðs Vestfirðinga,
Verslunarbarika Islands, Sigríðar
Thorlacius hdl., Sigurmars K. Alberts-
sonar hrl., Innheimtustofunnar sf. og
Lögheimtunnar hf. föstudaginn 26.
janúar 1990 kl. 9.00.
SÝSLUMAÐUR BARÐASTRANDARSÝSLU