Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1990, Síða 7
FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 1990.
23
íþróttir helgarinnar:
Topplið gegn
botnliðmn í
handboltanum
Það er útlit fyrir aö staðan í 1.
deild karla í handknattleik breytist
ekki ýkja mikið um helgina. Fjögur
efstu hðin. mæta þeim íjórum
neðstu í 12. umferð deildarinnar
sem öll er á dagskrá kl. 16.30 á
morgun, laugardag.
Valsmenn, sem eru efstir, fá
Gróttu í heimsókn á Hlíðarenda,
og FH-ingar taka á móti KA í Hafn-
arfirði. Það er ólíklegt að Grótta
og KA sæki gull í greipar topplið-
anna, en þó er rétt að hafa í huga
að KA hefur gengið vel gegn FH í
Firðinum síðustu árin.
Stjarnan, sem er í þriðja sæti,
mætir Víkingum, næstneðsta lið-
inu, í Laugardalshöllinni. Ljóst er
að Víkingar þurfa mikið að taka sig
á ef þeir ætla sér að ná í stig úr
þeirri viðureign. Þá leikur HK,
neðsta liðið, gegn KR, sem er í 4.
sætinu, í Digranesi, og það verður
erfiður róður fyrir Kópavogsliðið.
Fimmti leikurinn er viðureign
ÍBV og ÍR í Vestmannaeyjum, en
aðeins eitt stig skilur þessi lið að
um miðja deildina. Þetta gæti orðið
tvísýnasti leikur umferðarinnar.
í 1. deild kvenna er leikin 13.
umferð, sem reyndar lýkur ekki
fyrr en með leik Fram og KR næsta
miðvikudag. Haukar og Stjarnan
leika í Hafnarfirði kl. 13.30 á morg-
un, Víkingur og FH í Laugardals-
höllinni kl. 15 sama dag og Valur
og Grótta á Hlíðarenda kl. 18.
Framarar geta enn styrkt stöðu
sína í 2. deild karla í kvöld þegar
þeir sækja Keflvíkinga heim. Leik-
ur liðanna hefst kl. 20. Á morgun
heíjast síðan tveir leikir kl. 15,
Breiðablik og Valur b mætast í
Digranesi og FH b og Haukar í
Hafnarflrði.
Fimm leikir í
úrvalsdeildinni
í úrvalsdeildinni í körfuknattleik
fara fram fimm leikir á sunnudag-
inn. Þar er spennan í rénun, enda
nokkuð ljóst að KR, Njarðvík,
Keflavík og Grindavík fara í úr-
slitakeppnina og Reynir fellur úr
deildinni. Kl. 16 hefjast leikir
Hauka og Keflavíkur, Njarðvíkur
og Vals og Tindastóls og ÍR og kl.
20 verður flautað til leiks hjá
Grindavík og Þór og hjá KR og
Reyni.
í 1. deild karla fara þrír leikir
fram kl. 14 á morgun, Bolungar-
vík-Breiðablik, Snæfell-UÍA og
Léttir-Víkveiji. Á sunnudag kl. 14
leika síðan UMSB og UÍA í Borgar-
nesi.
ÍR og ÍS leika í 1. deild kvenna í
Seljaskóla kl. 14 Á morgun, Njarð-
vík og KR kl. 14 á sunnudag og
Grindavík og Haukar kl. 18 á
sunnudag.
Kópavogshlaupið
Frjálsíþróttadeild Breiðabliks
stendur fyrir Kópavogshlaupinu,
sem fer fram á morgun, laugardag,
og hefst það kl. 14 við Vallargerði-
svöll í Kópavogi. Karlar hlaupa 6
kílómetra, konur og drengir 3 kíló-
metra. Skráning fer fram á staðn-
um en nánari upplýsingar fást hjá
Héðinn Gilsson og félagar í FH mæta KA í 1. deildinni i handknattleik
á morgun.
Lúðvík Björgvinssyni í síma 45427.
Badminton
. Unglingameistaramót ÍA verður
haldið á Akranesi um helgina. Á
sunnudaginn verður síðan fyrir-
tækjakeppni badmintonsambands-
ins haldin í húsakynnum TBR.
Beint frá knattspyrnu,
handboita og skíðum
Ríkissjónvarpið verður með bein-
ar útsendingar frá þremur íþrótta-
greinum um helgina, skíðum,
knattspyrnu og handknattleik.
Sýnt verður beint frá keppni í
heimsbikarnum á skíðum báða
dagana, frá kl. 11.15-13 á laugardag
og 11.30-13 á sunnudag. Á morgun
kl. 15 verður sýnt beint frá leik
Arsenal og Tottenham í 1. deild
ensku knattspyrnunnar og þar á
eftir verður bein útsending frá 1.
deild karla í handknattleik. Á und-
an ensku knattspyrnunni, frá kl.
14-14.50, verður golfá dagskránni.
Snóker og pool í
beinni útsendingu
Stöð 2 verður einnig með beinar
útsendingar um helgina. Á morgun
verður sýnt frá 1. deild karla í
handknattleik frá kl. 17 til 17.45 og
í íþróttaþættinum á sunnudag
verður sýnt beint einvígi banda-
rísks snillings í pool og íslands-
meistarans í snóker. Þeir munu
keppa í báðum þessum útgáfum af
billjard. Auk þess verður í sunnu-
dagsþættinum, sem stendur frá
13.30 til 16.30, ítalska knattspyrnan
og bandaríski körfuboltinn.
-VS
HUGSUM FRAM A VEGINN
AUGLVSING
UM ÓSKILAHR0SS
Eftirtalin hross, sem eru í vörslu hestamannafélagsins
Fáks og ekki er vitað um eigendur að, verða seld á
opinberu uppboði fyrir áföllnum kostnaði að liðnum
14 dögum verði réttir eigendur ekki búnir að vitja
þeirra fyrir þann tíma og greiða af þeim áfallinn kostn-
að.
1. Brúnn hestur, aldur ca 9 v., mark - fjöður aftan
vinstra.
2. Rauðstjörnóttur hestur, aldur ca 10 v„ mark -
stýft hægra.
3. Brúnn hestur, aldur ca 10-11 v„ ómarkaður.
Uppboðið verður auglýst síðar. Nánari upplýsingar
um hrossin verða veittar á skrifstofu Fáks í síma
672166 á milli kl. 14.00 og 18.00 virka daga.
Hestamannafélagið Fákur
Snæfellingar
Upplýsingafundur
um
Evrópska efnahagssvæðið, EES,
verður haldinn á vegum
utanríkisráðuneytisins
í Félagsheimilinu, Ólafsvík,
í kvöld kl. 9.
Jón Baldvin Flannibalsson utanríkisráðherra hefur
framsögu og mun ásamt embættismönnum utanríkis-
ráðuneytisins svara fyrirspurnum um viðræður Frí-
verslunarsamtaka Evrópu, EFTA, og Evrópubanda-
lagsins, EB, um myndun sameiginlegs markaðar í
Evrópu. .
Utanríkisráðuneytið
Laus staða
Staða lektors í félagsráðgjöf við félagsvísindadeild Háskóla is-
lands er laus til umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir, ásamt ítarlegri skýrslu um visindastörf umsækjenda,
ritsmíðar og rannsóknir, svo og námsferil og störf, skulu sendar
menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavik, fyrir 16.
febrúar nk.
Námsvist í Sovétríkjunum
Sovésk stjórnvöld munu væntanlega veita einum íslendingi skóla-
vist og styrk til háskólanáms í Sovétrikjunum háskólaárið 1990-91.
Umsóknum skal komið til menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu
6, 1 50 Reykjavík, fyrir 1 5. febrúar nk. og fylgi staðtest afrit próf-
skírteina ásamt meðmælum.
Umsóknareyðublöð fást I ráðuneytinu.
Rannsóknastyrkir EMBÓ
í sameindalíffræði
Sameindalíffræðisamtök Evrópu (European Molecular Biology
Organization, EMBO) styrkja vísindamenn, sem starfa í Evrópu
og ísrael, til skemmri eða lengri dvalar viðerlendar rannsóknastofn-
anir á sviði sameindalíffræði. Nánari upplýsingar fást um styrkina
í menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, og þar
eru einnig fyrir hendi skrár um fyrirhuguð námskeið og málstofur
■ á ýmsum sviðum sameindaliffræði sem EMBO efnir til á árinu
1990. - Umsóknareyðublöð fást hjá Dr. J. Tooze, Executive Sec-
retary, European Molecular Biology Organization, 69 Heidelberg
1, Postfach 1022 40, Sambandslýðveldinu Þýskalandi. Límmiði
með nafni og póstfangi sendanda skal fylgja fyrirspurnum. Um-
sóknarfrestur um langdvalarstyrki er til 16. febrúar og til 15. ágúst
en um skammtímastyrki má senda umsókn hvenær sem er.
Menntamálaráðuneytið
*