Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1990, Síða 23
FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 1990.
31
Smáauglýsingar
Fréttir
■ Bílar til sölu
Suzuki Samurai 413 JX ’88 til sölu, á
nýjum 30" dekkjum og 8" White Spoke
felgum, ekinn 25 þús. km, selst beint
eða í skiptum fyrir Toyota LiteAce eða
svipaðan bíl, ’86-’87, mætti vera með
bílasíma. Sími 91-54317 eftir kl. 18.
Ford pickup, árg. '84, 4wd, ekinn 57
þús. mílur, 6 cyl., 4,9 lítra vél, 4 gíra
kassi, beinskiptur, toppeintak. Til
sýnis og sölu á Bílasölu Ragnars
Bjarnasonar, s. 673434 eða á kvöldin
í síma 20475.
M. Benz 230E ’81 til sölu, gullfallegur
bíll, ný vetrardekk. Ath. skipti á ódýr-
ari bíl. Uppl. á Bílasölu Ragnars
Bjamasonar, sími 673434, og á kvöldin
í síma 667146.
MAN, árg. 1986, 14,192, til sölu. Uppi. i
síma 985-23341 og heimasíma 91-39153.
Siwiri
Sport
Sporttoppar á Econoline, millistærð
með gluggum og toppgrind. Uppl. í
síma 91-71306 eða 985-24800.
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta
á eftirtöldum fasteignum:
Grænibakki 8, Bfldudal, þingl. eign
Jónu Runóifsdóttur, fer fram eftir
kröfu Byggingarsjóðs ríkisins, Lands-
banka Islands, Sigurbergs Guðjóns-
sonar hdl., Magnúsar Norðdahl hdl.
og Ævars Guðmundssonar hdl. á eign-
inni sjálfri mánudagixm 19. febrúar ’90
kl. 16.00.
Urðargata 20, Patreksfirði, þingl. eign
Ingibjargar Hjartardóttur og Helga
Haraldssonar, fer fram eftir kröfú Líf-
eyrissjóðs Vestfirðinga, Islandsbanka,
Sigríðar Thorlacius hdl., Sigurmars
K. Albertssonar hrl., Innheimtustof-
unnar s/f og Lögheimttmnar hf. á
eigninni sjálfri mánudaginn 19. febr.
’90 kl. 18.__________________________
á jörðinni Fífústöðum, Bfldudals-
hreppi, þingl. eign Ama Jóhannesson-
ar, fer fram eftir kröfú Stofhlánadeild-
ar landbúnaðarins, Þórólfs Beck hrl.,
Eyrasparisjóðs, Haraldar Blöndal hrl.
og Skúla Pálssonar hrl. á eigninni
sjálfri miðvikudaginn 21. febr. ’90 kl.
11.00.
Sýslumaður Barðastrandarsýslu
Hvítasmmusöfnuðurinn rís upp gegn Einari J. Gíslasyni:
Til þessa hafa orð
Einars verið lög
- segir Garðar Ragnarsson sem andstæðingar Einars styðja
„Það sem Einar J. Gíslason hefur
sagt og gert hefur verið lög í söfnuð-
inum. Þegar ég kom heim eftir að
hafa verið fjarri í 21 ár fann ég strax
að það hafði myndast spenna í söfn-
uðinum vegna þess hvemig málum
hans hefur verið sinnt og söfnuður-
inn er stöðugt að minnka,” sagði
Garðar Ragnarsson sem andstæðing-
ar Einars J. Gíslasonar í Fíladelfíu-
söfnuðinum vilja fá sem næsta for-
stöðumann.
Deilur hafa komið upp í Fíladelfíu-
söfnuðinum um val á eftirmanni Ein-
ars sem ákveðið hefur að hætta eftir
að hafa verið í forystu í 19 ár. Á fundi
í söfnuðinum á miðvikudagskvöldið
ætlaði Einar að tilnefna Hafliða
Kristinsson sem eftirmann sinn en
margir safnaðarmenn gátu ekki sætt
sig við þá aðferð.
Á endanum var fallist á að viðhafa
svokallaða „leynilega skoðanakönn-
un“ um valið á Hafliöa. Hún fer fram
23. og 24. febrúar. Þar er söfnuðinum
gefinn kostur á að svara því játandi
eða neitandi hvort hann vill Hafliða
fyrir forstöðumann en ekki verður
kosið um aöra. Þetta líta menn á sem
hálfan sigur fyrir Einar.
En það var fleira sem gekk gegn
Einari á fundinum. Hann lýsti því
yfir að hann ætlaði að sitja áfram í
stjórninni þótt hann hætti sem for-
stöðumaður. Þetta gat söfnuðurinn
ekki samþykkt og var ákveðið að öll
stjórnin viki um leið og nýr forstöðu-
maður tæki við störfum.
„Auðvitað má líta á þessa niður-
stöðu sem vantraust á Einar en mál
hefðu ekki þurft að ganga svona
langt,” sagði Garðar. „Eg skil vel af-
stöðu Einars sem verið hefur ótví-
ræður leiðtogi lengi en ég hefði ekki
gert þetta svona og vildi heldur ekki
þurfa að taka við söfnuðinum með
þessum hætti.
Ég tel skoðanakönnunina óheppi-
lega en það getur verið að hún sé
óhjákvæmileg eins og mál hafa þró-
ast. Hafliði stæði líka betur á eftir
ef hann væri kosinn beinni kosn-
ingu. Það er nauðsynlegt að ein-
hugur ríki um forstöðumenn.
Það er eins og söfnuöurinn hafi
einangrast hér á landi. i öðrum lönd-
um er það viðtekin venja að Hvíta-
sunnusöfnuðirnir kjósi sér forstöðu-
menn og að nýr forstöðumaður velji
menn til að stjórna með sér. Það val
er síðan borið undir atkvæði í söfn-
uðinum. Ég veit hins vegar ekki til
þess að skoðanakönnun hafi verið
viðhöfð til að söfnuðurinn geti sagt
álit sitt á einum manni.
Ég vil ekki líta á mig sem keppi-
naut Hafliða. Við höfum unnið sam-
an og milli okkar er góð vinátta. Ég
hef ekki gefið kost á mér í embætti
forstöðumanns og þegar ég kom
heim frá Danmörku ætlaði ég mér
ekki að taka slíkt starf að mér. Ég
hafði þá verið forstöðumaður fyrir
söfnuðinum í Óðinsvéum og vildi nú
taka þátt í almennu safnaðarstarfi,”
sagði Garðar Ragnarsson.
-GK
Enn mjög gotl verð á f iski
á Bretlandsmarkaði
- Bylgjan fékk 152.55 krónur aö meðaltali fyrir ýsuna
Enn er mjög gott verð á fiski í
Bretlandi eins og eftirfarandi ber
með sér.
Bv. Bylgjan seldi afla sinn í Hull
alls 84 lestir fyrir 11 milljónir
króna, meðalverð 131,36 kr. kg.
Þorskur seldist á 131,05 kr. kg, ýsa
á 152,55 kr. kg, ufsi á 71,37 kr. kg
og blandaður flatfiskúr 127,36 kr.
kg.
Bv. Gullver seldi í Grimsby 8.
febrúar 1990 alls 161 lest fyrir 24,9
milljónir króna, meðalverð 154,90
kr. kg og er hæsta meðalverð sem
fengist hefur í Bretlandi. Þorskur
seldist á 157,09 kr. kg, ýsa 147,94
kr. kg, ufsi 142,01 kr. kg, karfi 94,51
kr. kg, grálúða á 152,57 kr. kg og
blandaður flatfiskur 134,18 kr. kg.
9. febrúar voru seld úr gámum alls
998 tonn af fiski fyrir 144 milljónir
króna. Meðalverð var 144,40 kr. kg.
12. febrúar var seldur fiskur úr
gámum alls 470,5 lestir fyrir 65
milljónir kr„ meðalverð 138,88 kr.
kg.
13. febrúar voru seldar úr gámum
alls 352 lestir fyrir 48.916.780,67 kr.
Þýskaland
Bv. Skafti seldi afla sinn í Bre-
merhaven 7. febrúar 1990 alls 151,9
lestir fyrir 15,7 milljónir króna,
meöalverð 103,54 kr. kg. Þorskur
seldist á 113,32 kr. kg, ufsi á 103,13
kr. kg, karfi 107,37 kr. kg og grálúða
á 120,38 kr. kg.
Bv. Hjörleifur seldi í Bremer-
haven 9.2. alls 89,9 lestir fyrir
7.941.260,72 kr. Meðalverð var 88,25
kr. kg.
Bv. Ásbjöm seldi afla sinn í
Bremerhaven alls 169 lestir fyrir
16,2 milljónir króna, meðalverð
95,81 kr. kg. Þorskur seldist á 94,90
kr. kg, ufsi 81,79 kr. kg, karfi 99,86
kr. kg og blandaður flatfiskur á
54,87 kr. kg.
Bv. Dagrún seldi í Bremerhaven
14.2. alls 135 lestir fyrir 12,6 milljón-
ir króna.
Metútflutningur á síld og
makríl segir í Fiskaren.
Nýtt met var sett í útflutningi á
síld og makríl árið 1989 segir fram-
kvæmdastjórinn Jan Peter-Schop,
en hann er framkvæmdastjóri fyrir
Norway Pelagisk Fish LTD.
Á síðastliðnu ári var útflutningur
á síld og makríl að verðmæti 710
milljónir norskra króna en var árið
1988 615 milljónir n. króna. Helstu
kaupendurnir eru Japanir og Efna-
hagsbandalagsríkin. Tvær af
hverjum þrem saltsíidartunnum
fara á markað í Austur-Evrópu.
Endursagt úr Fiskaren 7. febrúar
1990.
Freðfiskverð á Bandaríkja-
markaði samkvæmt verð-
lista í Fish-Price-Current
íslenskur þorskur, bein- og roð-
laus, 2,30 $ lb. eða 330,60 kr. kg.
Kanadískur þorskur, bein- og roð-
laus, 1,65-1,75 $ lb. eða 217-231 kr.
kg.
Islands-ýsa, roð- og beinlaus, 2,90 $
lb. eða 384 kr. kg.
Kanada-ýsa, roð- og beinlaus, 2,20-
2,30 $ lb. eða 230-250 kr. kg.
íslands-karfi, bein- og roðlaus, 1,62
$ lb. eða 213 kr. kg.
íslands-karfi, beinlaus með roði,
1,55 $ lb. eða 204 kr. kg.
íslands-karfi með roði, 1,35 $ lb. eða
178 kr. kg.
Kanada-karfi með roði, 1,25-1,30 $
lb. eða 165 kr. kg.
Kanada-ufsi, bein- og roðlaus,
1,30-1,35 $ lb. eða 171-178 kr. kg.
íslands-ufsi, bein- og roðlaus, 1,36 $
lb. eða 179,50 kr. kg.
Þorskblokk frá Íslandi/K-
anada/Japan 211-217 kr. kg.
Tókýó:
Síðustu daga hefur verð á laxi
verið 1.550 yen eða nálægt 660 kr.
kg og er það 50 yenum lægra verð
en fékkst fyrir norskan lax nokkru
áður. Talið er að nokkuð hafi verið
um undirboð og hafi það haft mjög
slæm áhrif. Chile selur til Japan
50% af framleiðslu sinni á ári eða
um 2000 tonn. Áætla Chilemenn að
árið 1990 verði framleiðsla þeirra
16.400 lestir og 1991 verði hún 28.800
tonn.
Chile er með þessum hætti að
festa sig í sessi á japanska mark-
aðnum. Um þessar mundir kaupa
Fiskmarkaðir
Ingólfur Stefánsson
japanskir peningamenn eldiskvíar
þeirra Chilebúa. Laxinn frá Chile
hefur verið á 90 króna lægra verði
en norskur lax.
Madrid
Að undanfórnu hefur verð á
norskum laxi hækkað nokkuð. Út-
flytjendur virðast hafa lært það að
hafa ekki of mikið framboð af hon-
um á markaðnum. Meðalverð-
hækkun er 45 kr. kg. Yfirleitt er
fiskurinn ágætur og hefur það mik-
ið að segja. Framboð á laxi frá Skot-
landi og Færeyjum er eins og verið
hefur um þetta leyti árs. Norðmenn
telja að þeir hafi ekki verið í svo
langan tíma einir á markaðnum
með lax. Mikið hefur borist af lýsu
á markaðinn að undanfömu frá
Chile. Þetta hefur sett strik í reikn-
inginn hjá Spánverjum sem verið
hafa stærstir í lýsu á markaðnum.
Óvíst er hvaða áhrif sala á þessum
fiski hefur á laxamarkaðinn.
Boulogne
Miðvikudaginn 14. febrúar var
seldur fiskur frá íslandi og var
verðið fremur iágt. Ekki virðist
gott aö spá hvernig markaðurinn í
Boulogne verður frá degi til dags
og hafa menn, sem flytja talsvert
út til Frakklands, ekki getað gert
sér grein fyrir því hvað ræður
verðinu.
Ufsi.........................63 krónur kílóið.
Karfi........................75 krónur kílóið.
Blálanga........94-105 krónur kílóið.
Langa.......................126 krónur kílóið.
Keila.......................115 krónur kílóið.
Árangursríkar veiðar við
Ástralíu
Ný fisktegund hefur fundist við
strendur Ástralíu sem heitir Or-
ange Roughy. Ástralíustjórn stað-
festir að mikil veiði hafi verið á
miðunum að undanfórnu og
stærstu landanir hafa verið í
Melbourne, fullferriú hjá Longva-
togurunum.
Stjórnvöld vilja takmarka veið-
arnar og vilja þess vegna ekki ótak-
markaðan togarafjölda á miðin.
Þau hugsa sér að vernda stofninn.
Miklar rannsóknir hafa farið fram
á lifnaðarháttum hans og hafa
menn fundið hrygningarsvæði
fisksins. Hann virðist hrygna viö
stóra neðansj ávarfj allgarða í miklu
magni.
Fiskurinn heldur sig á miklu dýpi
en þegar hrygning er búin fljóta
seiðin upp og eru í yfirborðinu þar
til þau eru orðin sjálfbjarga. Árið
1986 veiddust 400 tonn, 1987 veidd-
ust 14.000 tonn og 1988 veiddust
46.000 tonn af þessum fiski.
Þessi fisktegund veiðist einnig
við Sydney en ekki er fullkannaö
hvað mikið er af henni þar. í Syd-
ney er verið að byggja stóran fisk-
markaö sem ætlað er að kosti 148
milljónir norskra króna. Þessi
markaður er talinn einn fullkomn-
asti fiskmarkaöur í heimi, tölvuv-
æddur, svo viðskiptin ganga fljótt
og fá menn peninga strax. Neysla
Ástralíubúa er talin vera 17 kíló á
hvert mannsbam í landinu. Mikill
fjöldi fisktegunda er á markaönum
og þekki ég þær ekki allar, en mjög
mikið er um risakrabba sem er 2-3
kíló og er seldur á háu verði.
Lauslega endursagt úr Fiskaren.