Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1990, Síða 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 1990.
Útlönd
Bauöst tii að borða súpu
Havel sýnir sigurmerkiö t Toronto
I Kanada gær. Sfmamynd Reuter
Forseti Tékkóslóvakíu, Vaclav
Havel, sló á létta strengi í hádegis-
verðarboði forsætisráðherrans í
Ontario í Kanada í gær og bauðst
til að borða bara súpu í hádegismat
tilað forsætisráðherrann ætti fyrir
fleiri hádegisverðum. Havel notaði
þó einnig tækifæriö til að hrósa
efnahagsstyrk Kanada en Kanada-
menn heyra nú samt bara slæmar
fréttir af efnahagsástandinu í
landinu.
Havel lauk í gær tveggja daga
heimsókn sinni 1 Kanada og hélt til
Washington i Bandaríkjunum.
Flugvél hrapaði á hús
Nokkrum mínútum eftir aö mæðgumar Margrethe Salling og Benedic-
te, sem er átta ára, höfðu farið ft-á heimili sfnu í Támby á Amager í
Kaupmannahöfh hrapaöi eins hreyfils flugvél af gerðinni Beech-33 á hús
þeirra sem varð fljótt alelda. Flugmaðurinn lést samstundis.
Flugvélin var á leiðinni frá Kastrupflugvelli til Hróarskeldu og var gert
ráð fyrir að ferðin tæki fimmtán minútur. Einni mínútu eftir flugtak
missti flugturninn samband við flugmanninn og mínútu síðar var til-
kynnt að flugvél hefði hrapað í Támby.
Múrinn broilnn
Austur-þýskir verkamenn byrjuöu í gærkvöldi að rifa niður Beriinarmur-
Inn við Brandenborgarhliðið við míkil fagnaðariæti Austur- og Vestur-
Berifnarbúa. Sfmamynd Reuter
Þúsundir Austur- og Vestur-Þjóöverja fögnuðu ákaít 1 gærkvöldi þegar
hafist var handa við að rifa niður Berlínarmúrinn við Brandenborgar-
hliðið. Virtust menn fagna jafnmikið og þegar Austur-Þjóðveijum var
leyft að fara gegnum hlið múrsins í nóvember siðastliðnum. í stað þess
hluta múrsins sem riflim var mun verða sett upp vírgirðing.
Austur-þýskir verkamenn munu vinna við niðurrif múrsins aö kvöld-
lagi til að valda sem minnstum truflunum. Vonast þeir til að geta brotið
hundraö metra kafla á kvöldi.
Landamærastöövar eru enn viö múrinn en lögreglumenn og tollveröir
láta sér fátt um finnast þó einhvetjir skjótist gegnum göt á múmum eða
klifri yfir hann.
Glufa á Albaníu
Efnahagssérfræðingur stjómarinnar í Albaniu sagði 1 gær að albönsk
yfirvöld ætluðu aö leyfa erlendar fjárfestingar í landinu. Hins vegar
mega erlendir aöilar ekki eiga hlutdeild í innlendum fyrirtækjum. Dyrn-
ar hafá sem sagt veriö opnaðar í hálfa gátt, eins og fréttaskýrendur segja.
TO að dragast ekki enn meira aftur úr, þegar önnur Austur-Evrópuríki
eru aö segja skilið við kommúnisma og taka upp markaðshagkerfi, kynntu
albönsk yfirvöld ýmsar efhahagslegar endurbætur.
Yfirvöld hafa ekki vfljað opinbera tölur um efhahagsástandiö í landinu
því enn er litið á þær sem ríkisleyndarmál.
Fyvrum ráðherra handtekinn
Grískur dómari fýrirskipaði í
gær handtöku á fyrrum ráðherra
8ósialistastjómarinnar vegna
ásakana um skjalafals í sambandi
viö ólöglega komsölu til Evrópu-
bandalagsins. Bandalagið dæmdi
Grikkland 1987 til aö greiöa 2,5
milljóna dollara sekt fýrir aö hafa
flutt út júgóslavneskt korn og
skráð það sem grískt til aö fa niður-
greiöslur.
Nikos Athanasopoulos er fyrsti
ráðherrann í stjórn Andreas Pap-
andreou sem er handtekinn í kjöl-
far ásakana um aöild aö fjármála-
hneykslum. Dómarinn kvaðst hafa
fyrirskipaö handtökuna til að
koma í veg fyrir að ráðherrann
flýði úr landL
Gríska þingið samþykkti í sumar
að aflétta friðhelgi sex ráðherra Nikos Athanasopoulos, fyrrum að-
sósíalistastjómarflmar, þar á með- stoðarfjórmólaráðherra i Grikk-
al Papandreou, til að hægt yrði aö |an<Jij ó ieið fró hæstarétti í gær
ákæra þó vegna meintrar aöildar ásamt lögreglumönnum.
þeirra aö þremur hneykslismálum. simamynd Reuter
Vaxandi ólga
í Rúmeníu
Um fjögur þúsund rúmenskir kola-
námumenn gengu fylktu hði um göt-
ur Búkarest, höfuðborgar Rúmeníu,
1 gærkvöldi til aö lýsa yfir stuðningi
við bráðabirgðastjórn Þjóðfrelsis-
hreyfingarinnar sem farið hefur með
völdin í landinu frá því aö harðstjór-
anum Ceausescu var steypt af stóli
seint á síðasta ári. Námamennimir
flykktust til Búkarest í kjölfar fiöl-
mennrar mótmælagöngu andstæð-
inga stjómarinnar um helgina þar
sem ráðist var inn í bækistöðvar
stjómarinnar. Iliescu, forseti Rúme-
niu, fordæmdi í gær aðgerðir stjórn-
arandstæðinga um helgina og sagði
að endurtæki slíkt sig yrði gripið til
harðra refsiaðgerða.
„Iliescu, við munum hjálpa þér“
hrópuðu námamennimir í Búkarest
í gær. Þúsundir mótmælenda á
sunnudag kröfðust afsagnar Iliescu
en hann gegnir embætti forseta. Þeir
sögðu að hann hagaði sér eins og
harðstjórinn Ceausescu en honum
var steypt af stóli í desember síðast-
liðnum og tekinn af lífi.
Námamennimir í gær komu með
lestum frá borginni Petrosani til að
taka þátt í fiöldafundinum í höfuö-
borginni þrátt fyrir hvatningu
stjómvalda um að vera um kyrrt
heima hjá sér. Fundurinn í höfuð-
borginni í gærkvöldi var hápunktur
fiöldasamkoma víös vegar um landiö
til stuðnings stjóm Iliescus.
Forsetinn varaði við því í gær að
Rúmenía gæti orðið annað Líbanon
nema' tækist að halda ofbeldinu í
landinu í skefium. „Viljum við virki-
lega annaö hernaðareinræði?" sagði
hann og vísaði þar með tfl áratuga
harðsfiómar Ceausescus.
Rúmenskir kolanámumenn hrópa slagorð til stuðnings stjórn lliescus.
Slmamynd Reuter
Á fundi meö fulltrúum náma-
manna lagöi forsetinn að þeim að
virða nýja stjórnmálaflokka í
landinu. Sagði hann að þeir væru
nauðsynlegur hluti nýrrar Rúmeníu.
En námamennirnir sögðu aö hinir
nýju stjómmálaflokkar ættu enga
virðingu skilið.
Áætlað er að stjórn Iliescus sitji þar
til að afloknum kosningum þann 20.
maí næstkomandi. Þær kosningar
verða þær fyrstu frjálsu í Rúmeníu
frá árinu 1946.
Reuter
Leiðtogi kommúnista 1 Litháen:
Vill viðræður við Moskvu
Leiðtogi kommúnista í sovéska
lýðveldinu Litháen, Algirdas Braz-
auskas, hvatti í gær til viðræðna full-
trúa lýðveldisins og Moskvustjórn-
arinnar um sjálfstæði Litháens en
um helgina spáðu tveir háttsettir
kommúnistar í lýðveldinu því að það
myndi lýsa yfir sjálfstæði fyrir árs-
lok.
Litháen og hin Eystrasaltslýðveld-
in, Eistland og Lettland, vom sjálf-
stæð ríki á millistríðsárunum en
vom innlimuð í Sovétríkin árið 1940.
Brazauskas sagði að viðræðurnar
yrðu að hefiast „í nánustu framtíð"
en sagði jafnframt að að lokaákvörð-
un um sjálfstæöisyfirlýsingu Litháen
yrði komin undir nýju þingi lýðveld-
isins sem kosið verður til á laugar-
dag.
Búist er við að löggjafarþing Sovét-
ríkjanna hefii fljótlega viðræöur um
uppkast að lögum sem myndu, í
fyrsta sinn, skilgreina við hvaða að-
stæður lýðveldi geti sagt sig úr lögum
við Sovétríkin.
Reuter
Eduard Sévardnadze, sovéski utanríkisráðherrann:
Mörg ár í samein-
ingu Þýskalands
Sovéski utanríkisráöherrann,
Eduard Sévardnadze, kvaöst í gær
telja að nokkur ár, í að það minnsta,
væm í sameiningu þýsku ríkjanna.
„Ég held ekki að sameining muni
eiga sér stað eins fljótt og þeir halda
í Bonn,“ sagði utanríkisráðherrann
í viðtali við Izvestia, dagblað sovésku
sfiómarinnar.
Sévardnadze sagði að hann hefði
varað vestur-þýska utanríkisráð-
herrann, Hans-Dietrich Genscher,
við aö Kremlarstjórn myndi ekki
horfa upp á það aðgerðalaus að sam-
einað Þýskaland gengi til liðs við
Nato, Atlantshafsbandalagið. Hann
sagði að Sovétríkin gætu lagt til
ýmsa aöra kosti.
Utanríkisráöherrann kvaðst hafa „íhuga hugsanlegar afleiðingar"
sagt við Genscher, er þeir hittust í sameiningar þýsku ríkjanna.
Kanada nýverið, að hann ætti að Reuter
Eduard Sévardnadze, utanríkisráöherra Sovétríkjanna. Simamynd Reuter