Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1990, Page 32
! Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
i þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
j ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. fréttaskotum allan sólarhringinn.
ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 1990.
Kópavogur:
Alger
v uppsfokk-
un hjá
Framsókn
Framsóknarmenn í Kópavogi hafa
valiö nýtt fólk til aö skipa efstu sæti
á framboðslista flokksins við bæjar-
stjórnarkosningarnar í Kópavogi.
Skúli Sigurgrímsson, sem er eini
bæjarfulltrúi flokksins, gaf ekki kost
á sér til endurkjörs.
Fulltrúaráö Framsóknarflokksins í
Kópavogi ákvað listann í gær. Sex
ífstu sæti eru þannig skipuö: Sigurð-
ar Geirdal, Inga Þyrí Kjartansdóttir,
?áll Magnússon, Stefán Arngríms-
;on, Marta Jensdóttir og Ómar Stef-
insson.
Þaö stefnir í miklar breytingar í
jæjarstjóm Kópavogs. Miklar breyt-
ngar veröa á framboðslistum Sjálf-
itæöisflokks og Framsóknarflokks.
3á hefur Heimir Pálsson, forseti
>æjarstjómar og oddviti Alþýðu-
)andalagsins, ákveöiö aö gefa ekki
íost á sér til endurkjörs.
-sme
' Léstí
vinnuslysi
Ungur maður lést í vinnuslysi í
Kolbeinstaðamýri á Seltjarnarnesi í
’ærmorgun. Slysiö varö á vinnu-
svæöi Hagvirkis þegar maðurinn var
ið stýra valtara upp á tengivagn
Iráttarbíls. Valtarinn var ekki kom-
nn alla leið upp þegar hann stakkst
íiður og lenti á toppnum. Talið er
ið maðurinn hafi látist samstundis.
vlaðurinn var 29 ára gamall og lætur
:ftir sig eiginkonu og eitt barn.
-ÓTT
Kópavogur:
Vélsleðum
stolið
Tveimur vélsleðum var stoliö úr
jeymsluhúsnæði á Skemmuvegi 34 í
Kópavogi í nótt og fannst annar
oeirra um hálfniuleytiö í morgun.
Þegar DV fór í prentun stóö leit yfir
aö hinum sleðanum. Hann er grár
neö gráu sæti og er af tegundinni
Polaris Trailer árgerö 1989. Sleðinn
?em fannst í morgun var á Skeiðvell-
mum í Víðidal. Sleðarnir sem stohð
var munu kosta á aðra milljón sam-
LOKI
Er iðnrekendafélagið að
breytast í víg-lund?
Steingrímur mun
„Stofnun aflamiðlunar verður
tekin fyrir á ríkisstjórnarfundi i
dag. Við verðum að afgreiöa málið.
Það verður að höggva á hnútinn
því þetta getur ekki gengiö svona
lengur. Við getum ekki látið
ákvörðun um nýtt flskverð stranda
á þessu atriði,“ sagði Steingrímur
Hermamisson forsætisráðherra í
morgun.
Steingrímur gaf loforð um aö
aflamíðlun yrði stofnuð, þegar
kjarasamningarnir voru undirrit-
aðir á dögunum. Hann getur gert
þaö með reglugerð, en málið
strandar á andstöðu Jóns Baldvins
Hannibalssonar utanrikisráð-
herra.
Viðskiptadeild utanríkisráðu-
neytisins hefur séð um úthlutun
leyfa til gámaútflutnings um langt
skeið. Samkomulag hefur náðst
milli hagsmunaaðila um að stjórn
aflamiðlunar verði skipuð tveimur
fulltrúum frá útgerðarmönnum,
einum frá fiskvinnslunni, einum
frá sjómönnum og einum frá fisk-
verkunarfólki. Jón Baldvín vill að
auk þess komi í stjórnina fulltrúar
frá fiskmörkuðunum og heildsöl-
um í gámaútflutningi. Á það mega
hagsmunaaðilarnir ekki heyra
núnnst. Þetta er deilan sem leysa
þarf, eða höggva á hnútinn eins og
Steingrímur orðaði það.
Steingi'ímur sagði að þegar þessi
ríkisstjórn var mynduð heföu
framsóknarmenn látið mikið af
hendi til Borgaraflokksins. Þá var
ákveðið að þessi mál færðust frá
utanríkisráðuneytinu til sjávarút-
vegsráðuneytisins. Utanríkisráð-
herra var með fyrirvara um hvern-
ing stjóm aflamiðlunar yrði skipuð
og það hefur ekki breyst og sam-
komulag ekki náðst.
„Nú verður að takast að ná sam-
komulagi um aflamiðlunina oggefa
út reglugerð. Við erum búnir að
tala um þetta fram og aftur í
nokkra mánuði og það verður að
höggva á hnútinn,“ sagði Stein-
grímur Hermannsson.
Samkomulag er sagt komið í yfir-
nefhd um nýtt fiskverö en beðið
ákvörðunar um stofnun aflamiðl-
unar með að birta það. Aflamiðlun
er skilyrði þess að samkomulag um
nýtt fiskverð takist. Þar er gert ráð
fyrir að fiskverð hækki um 3 pró-
sent og aö þeir sem landa öllum
afla heima, utan fiskmarkaöa, fái
12 prósent löndunarálag. Það var
krafa fulltrúa sjómanna meðan
málið var enn hjá Verðlagsráöi.
-S.dór
Útför séra Róberts Jack fór fram í gær. Athöfnin var gerð frá Bústaðakirkju. Fyrir kistunni gekk
sekkjapípuleikari. Eins og kunnugt er var séra Róbert skoskur. Hann kom ungur maður hingað til
lands og nam guðfræði við Háskóla íslands. DV-mynd S
Iðnrekendur:
Víglundur
gefur kost
á sér
„Ég hef ekki gefið annað til kynna
en að ég sé tilbúinn til að vera áfram
formaður Félags íslenskra iðnrek-
enda,“ sagði Víglundur Þorsteins-
son, formaður félagsins, en stjórnar-
kjör fer fram í næsta mánuði. Lýður
Friðjónsson, forstjóri Vífilfells, sagði
í DV í gær að hann væri að hugsa
málið hvort hann gefur kost á sér í
formannssætið, en margir hefðu
hvatt hann til að gera það.
Kosning til stjórnar Félags ís-
lenskra iðnrekenda er óhlutbundin
og fer þannig fram að fyrirtækin,
sem mynda félagið, fá senda kjörs-
eðla. Á þá ber mönnum að rita nafn
þess er þeir vilja kjósa sem formann.
Hann er kosinn árlega. Síðan nöfn
þriggja annarra stjórnarmanna sem
kosnir eru tfl tveggja ára í senn.
Vegna þessa fyrirkomulags eru í
raun allir innan félagsins í framboði
og því ekki um það að ræða að
ákveðnir menn gefi kost á sér þótt
þeir geti gefið til kynna áhuga sinn
á að setjast í stjórn félagsins.
-S.dór
Veðrið á morgun:
Sums
staðar
éljaveður
Á morgun verður breytileg átt
á landinu með éljum víða viö sjó-
inn en yfirleitt þurru og björtu
veðri inn til landsins. Hiti verður
um og yfir frostmarki syðst á
landinu en vægt frost annars
staðar.
NÝJA
SENDIBÍLASTÖÐIN
68-5000
Úti að aka
í 40 ár
BÍLALEIGA
v/FIugvallarveg
91-61-44-00