Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1990, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1990, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 1990. 3 dv Fréttir Kostnaður hjá sjúkrahúsunum færður yfir á Tryggingastofnun: Ríkið er að færa úr einum vasa í annan - um 20% ódýrara aö gera hjartaaðgerðir hér en að senda sjúklinga utan Svo virðist sem gleymst hafi að gera ráð fyrir aukningu hjartaskurðaðgerða hér á landi við fjárlagagerðina þannig að henni hefur verið frestað. Sömu sögu má segja um glasafrjóvganir en þeim hefur nú verið frestað. Hvort tveggja átti að framkvæma á Landspítalanum. Fasteigna- gjöld Hafn- firðinga fóru í Aðaldal Vegna mistaka á gíróseðlura fóru greiðslur fasteignagjalda i Hafnarfirði ekki inn á hlaupa- reikninghæjarsjóðs við Sparisjóð Hafnarfjarðar heldur voru pen- ingamir lagðir inn í Sparisjóð Aðaldæla í Suöur-Þingeyjar- sýslu. Vegna þessara mistaka streyradu peningar, sem aldrei fyrr, til hins litla sparisjóðs. Að sjálfsögðu stoppuðu þeir stutt við þar. Færslumar vora leiðréttar og Bæjarsjóður Hafnarfjarðar naut góös af þó taíir hafi orðið þar á. Það sem gerði þessi mistök var að á gíróseðlunum, sem sendir voru til greiðenda, var rangt bankanúmer. Sparisjóður Hafn- arfjarðar hefur bankanúmerið 1101 en Sparisjóður Aðaldæla 1110. Tölvubókhald Sparisjóðs Aðal- dæla er i Sparisjóði Reykdæla og það var starfsfólk þess sparisjóðs sem haföi mest óþægindi af bak- færslunum. -sme Nokkrum sinnum á síðustu mánuðum hefur verið haft sam- band við fréttamenn DV og skýrt frá þvi aö smábarn, sem skiliö hafi verið eftir í bífreið i bíla- geymslu Kringlunnar, hafi látist vegna mengunar af útblæstri bíla, í síðustu viku var haft sam- band við fréttamann og tilkynnt um slíkt tilfelli og það fylgdi sög- unni að um væri að ræða fimmta tilfeUið. Að sjálfsögðu var málið kannað hveiju sinn en læknar og lögregla ekki kannast við málið. Vegna síðustu sögunnar var rætt við lækna á sjúkrahúsum borgarinn- ar, Ólaf Ólafsson landlækni og Skúla Johnsen borgarlækni, auk rannsóknarlögreglu. Enginn þessara aðila kannaðist við aö slíkt dauösfall hefði átt sér stað. Landlæknir gerði ítarlega könn- un á málinu en enginn kannast við tilfelli af þessu tagi. Ólafur Ólafsson landlæknir benti á að ef dauðsfall hefði átt sér stað með þessum hætti hefði lögregla að sjálfsögðu verið köU- uð til og einnig hefði farið fram krufning. En þessir aðilar kann- ast ekki við málið. Hitt þótti fréttamönnum DV merkilegra að flestir þeir sem spurðir voru um málið höfðu heyrt þessar sögur. Þær eru þvi ótrúlega útbreíddar og lífseigar. Vissulega era margar og marg- víslegar kjaftasögur í gangi sem ekki þykir ástæða til að greina frá i íjölmiðlum enda sjaldnast fótur fyrir þeim. En þessi saga er svo útbreidd meðal almennings að ástæða þótti til að kanna máliö. Og niðurstaðan er sú að þær séu meðöUutilhæfulausar. -S.dór Byggingarkostnaðiir: 14,6 prósent verðbólga Byggingarkostnaður hækkaöi um 1,1 prósent frá'mars til apríl samkvæmt útreikningum Hag- stofunnar. Að stærstum hluta má rekja þessa hækkun til verðhækkunar á sementi og steypu. Þessi hækk- un jafngjldir um 14,6 prósent hækkun á ársgrundvelh. Bygg- ingarvísitalan, sem gildir fVrír næsta mánuð, verður 169,3 stig. Þá hefur Hagstofan gefið út launavísitölu fyrir aprUmánuð og er hún óbreytt frá fyrra mánuöi, -gse „Það sem viö fengum við ijárlaga- gerðina var skorið við nögl þannig að það má gera ráð fyrir að við þurf- um að taka upp fjárhagshliðina aftur vegna þessara breytinga. Mér sýnist að þarna sé ríkið bara að flytja úr einum vasa í annan,“ sagði Kristján Guðjónsson, deildarstjóri hjá Trygg- ingastofnun ríkisins, en nú hefur verið ákveðið að draga úr hjartaað- gerðum hér á landi og fresta glasa- frjóvgunum. Er þetta gert til að ná spamaði fram hjá Ríkisspítulunum og þá sérstaklega Landspítalanum. Við gerð fjáraukalaga, sem fjárveit- inganefnd Alþingis vinnur nú að, hefur komið í ljós að um 170 milljón- ir vantaði til Ríkisspítalanna til að þeir gætu sinnt verkefnum sínum. Ekki verða veittar nema tæplega 150 mtiljónir til spítalanna þannig að niðurskurður er óhjákvæmilegur. Að sögn Grétars Ólafssonar, yfir- læknis brjóstholsdeildar Landspítal- ans, virðist þarna gert ráð fyrir að um 60 aðgeröir (af 160 til 180) verði áfram gerðar í Englandi en ekki hér heima eins og þó var ætlunin. Sagði Grétar að það kæmi honum ein- kennilega fyrir sjónir því það væri mun dýrara að senda sjúklinga úr landi. Þar að auki sagði hann að ásókn væri í að komast í aðgerðir hér heima því ígerðarhætta væri mun minni hér en eftir aðgerðir úti. Grétar sagðist geta fullyrt að það væri ódýrara að gera þessar aðgerðir hér á landi. Um kostnaðinn við hjartaaðgerð eru reyndar skiptar skoðanir en Grétar sagði að munurinn á aðgerð- um hér og erlendis væri um 300.000 til 400.000 krónur en hann sagði að aðgerð í Englandi kostaði hátt í millj- ón, auk þess sem kostnaður vegna aðgerðanna erlendis lenti á sjúkra- húsunum hér vegna þess að sjúkling- ar dveldust oft á sjúkrahúsi hér áður en farið er út. Þá sagði hann að ferða- lög ættingja væra oft ekki reiknuö með en fyrir þjóðfélagið í heild þyrfti að sjálfsögðu að hugsa fyrir því. „Þessi ákvöröun stjórnvalda spar- ar útgjöld Ríkisspítalanna en er varla þjóðhagslega hagkvæm," sagði Dav- íð Á. Gunnarsson, forstjóri Ríkisspít- alanna, en hann sagði að þaö væri að minnsta kosti 20% ódýrara að gera þessar hjartaaðgerðir hér á landi. Þá er fullyrt að kostnaður vegna glasafrjóvgana verði mun minni hér á landi vegna þess að álagning bresku einkasjúkrahúsanna sé mjög há. Alveg verður hætt við glasa- frjóvganir hér á landi en að sögn Kristjáns er óljóst hvaö verður með glasafrjóvganir erlendis. í fyrra fóru 128 pör í yfir 150 ferðir til glasafrjóvg- unar. Lætur nærri að kostnaður við hveija ferð sé um 200.000 krónur fyr- ir utan ferðakostnað og uppihald sem fólkið verður sjálft að greiða. Það var fyrst og fremst næsta ár sem glasa- frjóvganir áttu að hefjast. -SMJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.