Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1990, Blaðsíða 4
4
FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 1990.
Sljómmál
Spurt í Ólafsvík:
Hver verða úrslit
kosninganna?
Páll Matthíasson nemi: Ég er ekkert
farinn aö spá í þaö.
Jón Þór Lúðvíksson bakarameistari:
Þetta veröur tvísýnt. Það eru svo
margir nýir menn.
Marteinn Karlsson útgerðarmaður:
Ég er ekkert farinn aö spá í þessar
kosningar ennþá.
Halldór Björgvinsson sjómaður: Ég á
eftir að kynna mér framboðin.
Marís M. Gilsíjörð verslunarmaður:
Ætli L-listinn nái ekki tveimur
mönnum. Kommarnir þurrkast úr.
Ég held aö A-listinn haldi sínum
tveimur mönnum, B-listinn fái tvo
og Sjálfstæðisflokkurinn einn.
Rúnar Fríðþjófsson vélstjóri: Þaö veit
enginn hvemig þetta fer.
Ólafsvik:
Sprengihætta
í listasamstarfi
Fimm listar bjóöa fram í Ólafsvík.
Þaö eru A-listi Alþýöuflokks og
óháðra, B-listi Framsóknarfélags Ól-
afsvíkur, D-listi Sjálfstæðisflokks,
G-listi Alþýöubandalags og L-listi
Samtaka lýöræöissinna.
Þetta kjörtímabil hefur veriö róstu-
samt í meira lagi hvað meirihluta-
samstarf listanna varðar og óhætt
að segja að sprengiþráðurinn hafi
verið afar stuttur. Eftir kosning-
amar 1986 mynduöu Alþýðuflokkur
og Sjálfstæðisflokkur meirihluta. Sá
meirililuti sprakk eftir 13 daga. Þá
tók við meirihluti Lýðræðissinna,
Alþýðuflokks og Alþýöubandalags.
Sá meirihluti entist öllu lengur eða
í 13 mánuði, fram í október 1987. Þá
slitu alþýðubandalagsmenn meiri-
hlutasamstarfinu, að sögn vegna of
mikill framkvæmda. I desember
sama ár myndaðist meirihluti fram-
sóknarmanna, sjálfstæðismanna og
Kristján Pálsson bæjarstjóri skipar
efsta sæti á lista Samtaka lýðræðis-
sinna
Kristján Pálsson:
Atvinnumálin
hafa forgang
„Atvinnumálin hafa algeran for-
gang. Það þarf aö styrkja útgerðina
og fá meiri fisk til bæjarins. Það má
gera með stofnun aflamiðlunar og
bættri aðstöðu fyrir útgerð þannig
að bærinn verði áhugaverðari fyrir
útgerðaraðila,“ sagði Kristján Páls-
son bæjarstjóri og efsti maöur á L-
lista, Samtaka lýðræðissinna.
„Bæta þarf stööu bæjarsjóðs sem
var mjög slæm þegar þessi bæjar-
stjórn tók við. Við þurfum 2-3 ár til
að staðan verði eðlileg. Þá fyrst er
hægt að huga að framkvæmdum eins
og að klára gatnaframkvæmdir og
byggja íþróttahús. Við þurfum mark-
vissan ferðamannaiðnað, aukningu á
straumi ferðamanna með auglýsing-
um og uppbyggingu aðstöðu. Um-
hverfismál, fegrun bæjarins og
æskulýðs- og íþróttamál eru ofarlega
á baugi. Vinna þarf aðalskipulag eft-
ir að Fróðárhreppur sameinaöist Ól-
afsvík. Síðan þarf að styrkja vatns-
veituna, ganga frá holræsum og
lækka raforkuverð." -hlh
alþýðubandalagsmanna. Sá meiri-
hluti náði ekki einu sinni að starfa
þar sem hann sprakk eftir aðeins
þrjá daga. Var framsóknarmönnum
kennt um. í febrúar var síðan mynd-
aður meirihluti allra lista nema
Sjálfstæðisflokks og hefur hann
haldið síðan. Þó mun hafa komið upp
töluverð sprengihætta vegna mikilla
sparnaðar- og samdráttaraðgerða í
Olafsvík.
Skuldastaða Ólafsvíkur er slæm.
Síðustu tvö ár hafa framkvæmdir því
verið nánast engar og verða ekki
miklar næstu tvö árin. Atvinnumál
eru Ólafsvíkingum ofarlega í huga.
Atvinnulífið byggist nær eingöngu á
sjávarútvegi en síðustu þrjár vertíðir
hafa brugðist.
Um 1200 manns búa í Ólafsvík. Á
kjörskrá eru 810, 432 karlar og 378
konur.
-hlh
Atli Alexandersson:
Vinna verður
aflann heima
„Það þarf fyrst og fremst að laga
stöðu bæjarsjóðs. Það þarf að ná
skuldunum niður og gæta aðhalds. í
hafnarmálum þarf, auk dýpkunar
hafnarinnar, að ganga frá Norður-
tangagarðinum og bæta aðstöðu
smábáta. Endurbæta þarf vatnsveit-
una svo tryggt sé að fyrirtæki fái
nægilegt vatn,“ sagði Atli Alexand-
ersson kennari sem skipar efsta sæti
á lista Framsóknarfélags Ólafsvíkur.
„Það þarf að leysa málefni Útvegs
hf. þar sem bærinn er með miklar
ábyrgðir. Með minnkandi aflaheim-
ildum í hefðbundnum veiðum þurfa
fiskvinnslufyrirtæki að sameinast
um að vinna afla sem best hér heima.
Bæjarstjóm þarf, í samvinnu viö
nágrannasveitarfélögin á utanverðu
Nesinu og fyrirtæki, að stofna ferða-
málafélag sem skipuleggi ferða-
mannaþjónustu. Undirbúa þarf
stækkun á húsnæði grunnskólans og
byggja þarf íþróttahús. Það era verk-
efni sem bíða betri stöðu bæjar-
sjóðs.“ -hlh
Atli Alexandersson kennari skipar
efsta sæti á lista Framsóknarfélags
Ólafsvíkur.
Árni E. Albertsson skrifstofumaður
skipar efsta sæti á lista Alþýðu-
bandalc. sins.
Arni E. Albertsson:
Stofnun fisk-
markaðar
„Við leggjum megináherslu á að
laga skuldastöðu bæjarsjóðs en hún
gefur ekki ráðrúm til neinna stór-
framkvæmda. Atvinnumál eru ofar-
lega á baugi þar sem breytingar eru
að verða. Sífellt meira af flski er að
fara úr byggðarlaginu en flskur er
aðalatriði fyrir okkur. Stofnun fisk-
markaðar gæti aukið fiskframboð í
Ólafsvík," sagði Ámi E. Albertsson
skrifstofumaður sem skipar efsta
sæti á lista Alþýðubandalagsins.
„Höfnin er lífæð Ólafsvíkur. Klára
þarf verkefni sem hafin eru þar og
bæta aðstöðu smábátanna. Vatns-
veitumál er aðkallandi þar sem
vatnsskorts er farið að gæta. Mark-
vissa ferðaþjónustu vantar. Stuðla
þarf að samstarfi þeirra sem þar
starfa. Kostnaður við stjómun og
rekstur bæjarins gefur tilefni til end-
urskoðunar á yfirstjórn bæjarins.
Félagsleg þjónusta er hér ekki að
marki. Hana þarf að bæta. Bæta þarf
tveimur framhaldsbekkjum við
grunnskólan -hlh
Sveinn Þór Elinbergsson:
Gott atvinnulíf
forsenda
hagsældar
„Atvinnumálin eru númer eitt. Þar
þurfum við að halda jafnvægi og vera
á varðbergi gagnvart öllum ögrunum
eins og óvissu í sjávarútvegsmálum.
Miklar breytingar eru að ganga yfir
og mikið af fiski fer hjá garði hér.
Gölluðu kvótakerfi er þar um að
kenna. Bæjarstjórn á að hafa frum-
kvæðisskyldu í atvinnumálmn Ól-
afsvíkur en gott atvinnulíf er for-
senda hagsældar," sagði Sveinn Þór
Elínbergsson, yfirkennari og forseti
bæjarstjómar. Sveinn skipar efsta
sæti á lista Alþýðuflokksins.
„Við viljum standa vörð um þá
ávinninga sem okkur hafa hlotnast
á þessu kjörtímabili og koma meðal
annars fram í rekstri og aukinni
þjónustu bæjarfélagsins. Styrkja
þarf stöðu bæjarsjóðs með áfram-
haldandi aðhaldi og sparnaði svo að
við verðum í stakk búin til að takast
á við ný verkefni þótt síðar verði.“
-hlh
Sveinn Þór Elínbergsson yfirkennari
skipar efsta sæti á lista Alþýðu-
flokksins.
Bjöm Amaldsson Sjálfstæðisflokki:
Áhersla á f jármál bæjarins
Björn Arnaldsson vélstjóri skipar
efsta sæti á lista Sjálfstæðisflokks-
ins.
„Við leggjum áherslu á fjármál
bæjarins. Bæjarsjóður hefur verið
rekinn með miklum halla undanfar-
in ár. Sjálfstæðismenn hafa setið í
minnihluta þetta kjörtímabil en við
sefjum sem aðalmarkmið að ná utan-
úm fjármál bæjarins. Það gengur
ekki að reka bæjarsjóð með halla,“
sagði Bjöm Amaldsson vélstjóri sem
skipar efsta sæti á lista Sjálfstæöis-
flokks.
„Vegna fjárhagsstöðunnar mega
ekki verða nýjar framkvæmdir á
vegum bæjarins nema brýna nauð-
syn beri tÚ. Skuldir era um 200 millj-
ónir sem er alltof mikið fyrir 1200
manna bæjarfélag. Vegna þeirra
þýðir ekkert að vera með langa lof-
orðahsta. Slíkt er blekking ein. Við
sjálfstæðismenn erum stöðugt afl í
bæjarstjórn og ætlum að styrkja
starfið enn frekar. Við höfum ekki
átt þátt í úlfúðinni í bæjarstjórn á
þessu kjörtímabili. Viö viljum stuðla
að öflugu atvinnulífi á staðnum. Út-
gerð og fiskvinnsla verður að geta
gengið eðlilega þar sem við lifum af
þeirri atvinnustarfsemi. Annars bíða
ótal verkefni sem hægt verður að
framkvæma þegar fjárhagurinn leyf-
ir.“
-hlh
(II f ( c’.K'.Í í i j li fi