Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1990, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1990, Blaðsíða 16
16 FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 1990. íþróttir Luzern, lið Sigurðar Grétarssonar, vann í fyrrakvöld liö Lugano, 2-0, í úrslitakeppni 1. deildarinnar í knattspyrnu í Sviss. Önnur úrslit urðu þessi: St Gallen-Grasshoppers 0-1, Yo- ung Boys-Sion 1-0, Lausenne- Neuchatel Xaxnax 0-0. Xamax er í efsta sæti með 24 stig, Grass- hoppers hefur 23, Lausanne 21, Luzem 20 og Lugano 20 stig. Fyrsta opna golfmót sumarsins í Grindavík f , /) Fyrsta go'fmót sum- arsins verður haidið á J) sunnudaginn þegar 1 opna Atlantik mótið fer fram á golfvellinum í Grinda- vik. Að sögn aöstandenda móts- ins þá er völlurinn í sæmilegu ástandi og án efa þá munu marg- ir golfarar bregða sér til Grínda- vjkur, Þátttákendur eru béðnir að skrá sig í síma 92-68720 á laug- ardaginn roilli kl, 15 og 17. Nýlr menn tii Hauka Liði Hauka sem leikur í 3. deild- ínni í knattspyrnu í sumar er enn að berast iiðsauki. Nú hafa Þór Hinriksson og Samúel Grytvik báðir skipt yflr í Hauka en þeir léku með liði Aftureldingar á síð- asta ári. Reynismenn styrkjast Reynir frá Árskógsströnd, sem einnig leikur í 3. deild, hefur feng- ið til sín þijá nýja leikmenn. Það eru Páll Gíslason, fyrrum ungl- ingalandsliösraaður, og Jóharm Jóhannsson úr Þór og Rósberg Óttarsson úr Leiftri. Reynir hefur hins vegar raisst raesta raarka- skorara sinn, Ágúst Sigurðsson, yfir til nágrannanna í Dalvík, sem einnig leika í 3. deild. Steve Davis stendur nú höilum fæti Hinn þrefaldi heimsmelstari Steve Ilavis stendur höllum fæti í undanúrslitaeinvígi sínu viö Jimray White í heirasmeistara- keppninni í snóker sem nú stend- ur yfir í Sheffield í Englandi. Þeg- ar keppni lauk í gær hafði White náð öruggri forystu, 13-9, en sá sera fyrr vinnur 16 ramma kemst i urslitin. Stephen Hendry hefur hins vegar náö undirtökunum gegn John Parrott og leiðir 9-6. Leikjunum lýkur í dag og þá kem- ur í Jjós hveijir leika tii úrslita ura beimsmeistaratitilinn. Barnes bestur hjá blaöamönnum Enskir knattspyrnufréttamenn útnefndu í gær John Banies frá Liverpool knattspyrnumann árs- ins í Englandi. Hann Llaut einu atkvæði meira en félagi hans úr liði liverpool, Alan Hansen. Gary Linekér, framherji frá Totten- hám, varð þriðji. Á dögunum varð Barnes annar í kjöri knatt- spyrnumannanna sjálfra. á eftir David Platt frá Aston Villa. Fiorentina ekki heima i úrslitunum B’iorentina getur ekki leikið heimaleik sinn gegn Juventus í úrslitum UEFA-bikarsins í knatt- spyrnu á heimavelli sinum i Plór- ens. Knattspymusamband Evr- ópu úrskuröaði í gær að félagið yrði að leika í minnst 300 km fiar- lægð frá heimaborginni vegna óeirða áhorfenda á heimaleik liðsins gegn Werder Bremen í undanúrslitum keppninnar. Valur byrjar án Ingvars - gæti misst af fyrstu leikjunum Ingvar Guðmundsson, miðjumað- urinn öflugi úr Val, gæti misst af fyrstu umferðum 1. deildarkeppn- innar í knattspyrnu sem hefst þann 19. næsta mánaðar. Ingvar, sem lék í stöðu hægri bak- varðar með landsliðinu gegn Bermúda og Bandaríkjunum fyrr í þessum mánuði, þarf að gangast und- ir aðgerð á hné og verður tæplega orðinn leikfær þegar íslandsmótið byrjar. Mikil meiðsh hafa hrjáð Valsliðið, marga af fastamönnum þess vantaði þegar það tapaði fyrir Þrótti í Reykja- vikurmótinu á sunnudagskvöldið, en aðrir en Ingvar eru á skjótum bata- vegi. Fjórir Valsmenn á heimleið Fjórir leikmenn Vals, sem spiluðu erlendis í vetur, eru komnir heim og verða löglegir með Hlíðarendaliðinu þegar íslandsmótið hefst. Það eru Sigurjón Kristjánsson, sem lék með FC Boom í belgísku 2. deildinni, og þeir Einar Páll Tómasson, Þórður Bogason og Baldur Bragason sem léku með Paderborn-Neuhaus í vest- .ur-þýsku 3. deildinni. Þorsteinn ekki alvarlega meiddur Þorsteinn Halldórsson, miðjumaður KR-inga, var borinn af velli þegar KR lék við Leikni um síðustu helgi. Óttast var að liðbönd væru slitin, en svo reyndist ekki, um tognun var að ræða, og Þorsteinn ætti að geta farið að leika með KR á ný áður en Reykja- víkurmótinu lýkur. -VS Brann byrjar í beinni útsendingu - norska knattspyman í gang á morgun Hermundur Sigmundsson, DV, Noregi: Brann, hð Skagabræðranna Teits og Ólafs Þórðarsona, leikur á morgun opnunarleik norsku 1. deildar keppninnar í knattspyrnu. Brann sækir þá heim nýliöana Strömgodset og verður leikurinn sýndur beint í norska sjónvarpinu. Brann er spáð góðu gengi í sumar og liðinu hefur gengið ágætlega á undirbúningstímabilinu. Fimm út- lendingar leika nú með Brann, tveir Pólveijar, Alsírbúi, Svíi og Ólafur, og hefur félagið verið gagnrýnt nokk- uð í heimabænum, Bergen, því aö- eins einn „innfæddur“ er í byrjunar- liðinu. Aftur á móti er lið Býllingen frá Bergen, sem nú leikur í fyrsta skipti í 1. deild, einungis skipað heimamönnum! Teitur er að heíja sitt þriðja tíma- bil sem þjálfari Brann og Ólafur sitt annað sem leikmaður með félaginu. Brann er enn komið í sviðsljósið því nú hefur veriö gert opinbert að félagið skuldar um 25 milljónir ís- lenskra króna í skatta. Leitt hefur verið getum að því í norskum blöðum að það eina sem Brann geti gert til að losa sig við þá stóru skuld sé að selja leikvang félagsins. Víkingar í undanúrslit - þegar ÍR mistókst að ná í aukastig gegn Leikni Vonir ÍR-inga um að komast í und- anúrsht Reykjavíkurmótsins í knatt- spymu urðu að engu þegar þeir unnu Leikni aðeins 2-1 á gervigrasinu í Laugardal í gærkvöldi. ÍR-ingar þurftu aukastig til að eiga möguleika á að komast upp fyrir Víkinga og í annað sætið. Tryggvi Gunnarsson og Njáll Eiðs- son skoruðu fyrir ÍR en Kjartan Guð- mundsson fyrir Leikni í þessu fyrsta einvígi Breiðholtsliðanna í Reykja- vikurmóti meistaraflokks. KR og Víkingur komast áfram úr A-riðli, KR hefur 6 stig en Víkingur 5, en þessi lið eiga eftir að mætast í lokaleik riðiisins. ÍR náði þriðja sæti með 4 stig, Fylkir fékk 3 og Leiknir rak lestina með 2 stig. Tactic-mótið á Sana- vellinum um helgina Gylfi Kiistjánsson, DV, Akureyri: Knattspymumenn á Norðurlandi hafa átt í erfiðleikum með að und- irbúa sig fyrir keppnistímabilið, en eru þó að berjast um í snjó og vetrar- veðri þessa dagana í þeim tilgangi. Tactic-mótið, sem er einn liöur í þessum undirbúningi fer fram um helgina, og verður leikið á Sanavelii á Akureyri. í því taka þátt 1. deildar liðin KA og Þór og Tindastóll og Leiftur úr 2. deiid. Fyrstu leikimir verða í dag, kl. 17.30 leika KA og Tindastóll og kl. 19.30 Þór og Leiftur. Á morgun leika KA og Leiftur kl. 13 og Þór og Tinda- stóll kl. 17. Mótinu lýkur síðan á sunnudag með leikjum Leifturs og Tindastóls kl. 11 og leik KA og Þórs kl. 17. Fræðslufulltrúi Tækninefnd KSÍ hyggst ráða fræðslufulltrúa í fullt starf í sumar. Skriflegar umsóknir berist DV merkt „Fræðslufulltrúi 5544" fyrir 6. maí nk. Tækninefnd KSÍ Heppnis- sigur FH í lokaleik FH-ingar sigruðu Eyjamenn 28-26 í Iokaleik Íslandsmótsíns í Kaplakrika 1 gærkvöldi. FH-ingar tóku á móti íslandsbikarnum í leikslok en sýndu enga meistara- takta í leiknum sjálfum og voru raunar heppnir að sigra. Eyjameim höfðu forystu allt þar til 5 mínútur voru eftir en þá tóku FH-ingar við sér og náðu að tryggja sér sigur undir lokin. Mörk FH: Héðinn 8/2, Gunnar 8, Guðjón 4, Óskar 4/1, Þorgils Óttar 3 og Jón Erling 1. Mörk IBV: Sigurður G. 10/2, Þorsteinn 5, Sigurður F. 4, Hilmar 2, Guöfmnur 2, Da\úð 2 og Jóhann Lokastaðaníl.deild FH.......18 16 1 1 475-402 33 Valur....18 13 1 4 473-408 27 Stjarnan.... 18 12 2 4 422-391 26 KR........18 9 3 6 404-386 21 KA........18 7 1 10 397-423 15 ÍR........18 6 2 10 386-401 14 Víkingur... 18 5 3 10 405-425 13 ÍBV.......18 5 3 10 421-431 13 Grótta....18 5 1 12 392-444 11 HK........18 2 3 13 372-436 7 Sigurðskorti aöeins tvÖ mörk Litlu munaði að Sigurður Gunn- arsson, ÍBV, næði að skjótast uppfyrir Brypjar Harðarson, Val, og verða markakóngur 1. deildar. Sigurður skoraði 10 mörk gegn FH í gærkvöldi en hefði þurft 12 til að ná Brynjari! Markahæstir í 1. deíld urðu eft- irtaldir Qórtáu leikmenn: BrynjarHarðarson, Val...126/35 Sígurður Gunnarsson, ÍBV ...124/32 Magnús Sigurðsson, HK........ 119/57 Halldór Ingólfsson, Gróttu....107/43 HéðinnGilsson, FH.......104/11 Gylfi Bírgisson, Stjörnunni ..101/16 PáUÓlafsson.KR..........101/26 Erlingur Kristjánsson, KA....101/34 Sigurðm- Bjamason, Stjörn ..100/13 Óskar Ármannsson, FH.... 99/44 BirgirSigurðsson.Vík....97/19 Valdimar Grímsson, Val..94/9 Bjarki Si.gurðsson, Vik. 93/10 GuðjónÁmason.FH.........90/1 -RR/VS • Guðjón Arnason, fyrirliði FH-inga, lyftir I ingum eftir sigur þeirra á Eyjamönnum í knattleik í gærkvöldi. FH-ingar unnu tíu síð 36 mögulegum, sex stigum meira en Valsm Úrslit í bikarkeppni ¥ „Stefnum að s sigurieiknum - Víkingur mætir Val úrslitum á s „Ég vona að þetta verði skemmtileg- ur leikur og það er kominn tími til að Víkingur vinni bikarinn," sagði Guð- mundur Guðmundsson, þjálfari Vík- ings í handknattleik, en á sunnudag fer fram úrshtaleikurinn í bikarkeppni HSÍ og jafnframt síðasti stórleikur tímabilsins í handknattleiknum. Vík- ingar mæta Val í úrslitum klukkan 20.30 í Laugardalshöll. Víkingar urðu síðast bikarmeistarar 1986 og hafa unnið titilinn oftast allra liða eða sex sinnum. Valsmenn urðu bikarmeistarar 1987 og eiga möguleika á að bæta þriðja bikarmeistaratitlinum í safnið á sunnudagskvöld. Klukkan 16 á sunnu- dag leika Fram og Stjaman til úrshta í kvennaflokki. „Viö hlökkum til þessa leiks. Miðað við árangurinn á keppnistímabilinu yrði það skemmtilegur bónus að vinna bikarinn. Valsmenn eru auðvitað álitnir sigurstranglegri fyrirfram en við munum berjast af krafti. Við höfum unnið sigur í síðustu sex leikjum ef bikarinn er meðtahnn og stefnum auð- vitað að sjöunda sigrinum í röð,“ sagði Guðmundur ennfremur. „Verður dæmigerður bikarúrslitaleikur“ Einar Þorvarðarson, markvörður Valsmanna, haföi þetta að segja um bikarúrslitaleikinn á sunnudag: „Ég bjartsýnn og ekki bjartsýnn. Þetta verður að öllum líkindum dæmigerður bikarúrslitaleikur og við Valsmenn stöndum ekkert betur fyrir hann en Víkingar. Þrátt fyrir að árangur okkar hafl verið mun betri í deildarkeppn- inni segir það ekkert þegar bikarinn er annars vegar. Sigurinn getur lent hvorum megin sem er,“ sagði Einar. Sögusagnir hafa verið á kreiki þess efnis að Einar hygðist leggja skóna á hilluna. Um þetta sagði Einar í gær: „Þetta er einfaldlega ekki rétt. Ég hef hugsað mér að láta íslenskan hand- knattleik njóta krafta minna á næsta keppnistímabili,“ sagði Einar brosandi og bætti við: „Þetta keppnistímabil hefur að miklu leyti farið fyrir ofan garð og neðan hjá mér vegna meiðsla

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.