Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1990, Page 13
FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 1990.
Lesendur
Kona i Garðabænum kvartar yfir ólátum í Regnboganum
Ólæti og rusl í bíó
Kona í Garðabænum hringdi:
Fyrir nokkrum dögum fór ég í bíó
með þrjú börn. Nánar tiltekið fórum
við að sjá Ski Patrol í Regnboganum
á flmmsýningu.
I stuttu máli sagt hafði ég litla
ánægju af myndinni því ég hvorki
sá né heyrði vegna sælgætisausturs,
poppkornsdrullu og látanna í börn-
unum. Þetta var hreinasti viðbjóður.
Þarna vantaði alveg manneskju
sem gæti haft hemil á börnunum þvi
þaö er alveg nauðsynlegt að hafa eft-
irlit þar sem svo mörg börn eru sam-
an komin.
Þegar ég var sjálf yngri, í smábæ
úti á landi, var alltaf eftirlitsmann-
eskja í bíó sem sá til þess að bíógest-
ir héldu sér á mottunni og ef einhver
var með ólæti var sá hinn sami sett-
ur í bíóbindindi.
Barnavemdaryfirvöld:
Ætlar Mbl. að hylma
yfir vondu verkin?
Formaður framkvæmdanefndar
Fjölskylduverndar skrifar:
Á undanfornum vikum og mánuð-
um hefur nokkuð verið fjallað um
barnaverndarmál og meðferö þeirra
út frá sjónvarmiði þeirra foreldra
sem standa í útistöðum við barna-
verndaryfirvöld. Þeir foreldrar, sem
lýst hafa harmi sínum og vanmætti
gagnvart þessum aðilum, staðfesta
að þrátt fyrir hvers konar möguleg
mótmæli hafa börn verið íjarlægð frá
heimilum sínum. Oft og iðulega er
það yfirlýst skoðun viðkomandi yfir-
valda aö mótmæli foreldranna séu
óviöunandi og til varnaðar við
áformum þeirra sem starfa að for-
sjársviptingum.
Engin lagaákvæði í barnaverndar-
lögunum takmarka algjört vald
barnaverndarstarfsfólks, því geta
þessir aðilar eftir eigin dómgreind
og með samkomulagi hvorir við aðra
ákveðið hverjir skuh taldir hæfir for-
eldrar og hverjir ekki. Dómstólar
dæma ekki um réttmæti úrskurðar
barnaverndaryfirvalda.
Ef gildismat þeirra sem stjórna og
ráða hefur brenglast í mannlegum
samskiptum er það okkar að spyrna
við fótum og sjá til þess að réttlætinu
verði framfylgt. Sá harkalegi verkn-
aður að taka börn af heimilum sínum
í svo stórum stíl sem nú hefur verið
gert getur ekki leitt neitt gott af sér,
en það hins vegar getur orsakað
sundrung og meiri spillingu og ekki
síst vanvirðu barna gagnvart hinum
fullorðnu almennt, og skömm á for-
eldrum sínum. Er þetta þjóðfélagið
sem bíður barnanna okkar?
Flest höfum við okkar vonir um
hamingjusama framtið þó svo sum
okkar eigi erfitt eitthvert tímabil lífs
okkar. Samt sem áður einkennist
umíjöllun þessa forræðishyggjufólks
af vandamálafælni í garð foreldra og
eru þeir vissir um að hagsmunir
barna og foreldra þeirra fari ekki
saman. „Og væri það oft að þannig
væri því varið“, las égeitt sinni í Mbl.
Morgunblaðið hefur ekki látið sitt
eftir liggja að fjalla um barnavernd-
armál er snúa að bamaverndaraðil-
um sjálfum og fögrum yfirlýsingum
þessara aðila er haldið á lofti eins og:
„Brúa verður bilið milli mannrétt-
inda fullorðinna og barna“ sem var
reyndar yfirlýsing núverandi for-
manns barnaverndarnefndar
Reykjavíkur eitt sinn á Alþingi er
hún hélt ræðu um barnaverndarmál.
En hins vegar hefur blaðið vísað á
bug fjölda greina er snúa aö fórn-
arlömbunum sjálfum sem standa í
útistöðum við barnaverndaryfirvöld.
Þetta stangast á við þá staðreynd að
Morgunblaðið á að vera málgagn
sjálfstæðisstefnunnar, en hins vegar
starfa barnaverndaraðilar í anda
kommúnista og taka ei gilda hina
gömlu hugsjón óháðs manns.
Ætlar Mbl. einungis að halda á lofti
málstað barnaverndaryfirvalda?
Getur það verið að það sé vegna þess
að eiginkona aðalritstjóra Mbl. situr
í Barnaverndarnefnd Reykjavíkur?
Eða getur það verið vegna þess að
fjölskylda eiginmanns formanns
Barnaverndarnefndar Reykjavíkur
er aðaleigandi Mbl. og lögmaður
Mbl. á einnig sæti í Barnaverndar-
nefnd Reykjavíkur? Ætlar Mbl. að
breiða yfir hin vondu verk barna-
verndaryfirvalda vegna þessa? Er
mögulegt að treysta öðru efni í Morg-
unblaðinu þegar tekið er mið af
þessu?
Veiðifélag
k Elliðavatns
Stangaveiði á vatnasvæði Elliðavatns
hefst 1. maí. Veiðileyfi eru seld á
Vatnsenda og Elliðavatni. Á sömu
stöðum geta félagar úr Sjálfsbjörg,
unglingar (12-16 ára) og ellilífeyris-
þegar úr Reykjavík og Kópavogi feng-
ið afhent veiðileyfi án greiðslu.
Veiðifélag Elliðavatns
fá 15% afslátt eins og
þeir sem greiða
smaau^
hönd með
peningum
hringja
verður
Það er gamla
Þú hringir,
við birtum
það ber árangur!
Augjýsingadeild DV er opin:
VrrkVóaga kl. 9.00-22.00
báugardaga kl. 9.00-14.00
Sunnudaqa kl. 18.00-22.00
Athugið:
Auglýsing f helgarblað®DV þarf að
berast fyrir kl. 17.00 á fostudag.
AUGLÝSING
UMINNLAUSNARVERÐ
VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTHNA RÍKISSJÓÐS
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* ÁKR.100 00
1983- 2. fl. 1984- 3. fl. 01.05.90-01.11.90 12.05.90-12.11.90 kr. 45.613,34 kr. 46.769,59
‘Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbót.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi
nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, apríl 1990
SEÐLAB ANKIÍSLANDS