Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1990, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1990, Qupperneq 8
8 MÁNUDAGUR 7. MAÍ 1990. Libresse KVENLEGU DÖMUBINDIN Æ m \ to) Gabriel HÖGGDEYFAR STERKIR, ORUGGIR ÓDÝRIR! SKEIFUNNI 5A, SIMI: 91 - 8 47 88 Utlönd Bæjar- og sveitarstjórnarkosningar í A-Þýskalandi: Hægri flokkar sigurvegarar Stjórnarflokkar Austur-Þýska- lands misstu eilítið fylgi í nýafstöðn- um bæjar- og sveitarstjórnarkosn- ingum en teljast samt sigurvegarar kosninganna. Kristilegir demó- kratar, ílokkur Lothar de Maiziere forsætisráðherra, var einn þeirra flokka sem missti fylgi en í morgun var ljóst að hann var samt sem áður sá flokkur sem mests fylgis naut í þessum kosningum alveg eins og í almennu þingkosningunum sem fram fóru fyrr á árinu. Þegar búið var að telja 92 prósent atkvæða hafði flokkur de Maiziere fengið 34,6 prósent atkvæða en þaö er 6,2 prósentum minna en í almennu þingkosningunum í mars síðastliön- um. Jafnaðarmenn, sem eiga aðild að stjórn de Maiziere, höfðu alls hlot- ið 20,9 prósent atkvæða sem er eilítið minna fylgi en þeir fengu í'þing- kosningunum. Fréttaskýrendur telja að rekja megi þetta fylgistap flokks ráðherrans og aðildarflokka sam- steypustjórnar hans til þeirra mála- miðlunar sem austur-þýsk stjórn- völd náðu við vestur-þýska ráða- menn um sameiningu efnahags- og fjármála þýsku ríkjanna. Kommúnistar, sem breytt hafa nafni flokks síns í Lýðræðislegi jafn- aðarmannaflokkurinn, töpuðu einn- ig fylgi. Samkvæmt fyrrnefndum niöurstöðum höfðu þeir hlotið 2,2 prósentum færri atkvæði en í mars en þá fengu þeir alls 14,2 prósent. Fyrir ári héldu kommúnistar öllum völdum í kjölfar úrslita kosninga sem þeir breyttu sér í hag. Um áttatíu prósent kjörsókn var í bæjar- og sveitarstjórnarkosningun- um í gær. Alls höfðu 12 milljónir Austur-Þjóðverja kosningarétt. Reuter Svæðameðferðog létt rafmagnsnudd ásamt acupunchturmeðferð með lacer Sérhæfing við bólgu í herðum, baki og höf- uðverk. ELSA HALL, Langholtsvegi 160, síml 68-77-02. Austur-Þjóðverjar gengu að kjörborðinu í gær i bæjar- og sveitarstjórnarkosningum í hinu mesta blíðviðri. Simamynd Reuter Fundur sjö helstu iðnríkja heims: Auka aðstoð til þróunarlanda Helstu iðnríki heims lögöu ágrein- ingsefni sín á hilluna um helgina og samþykktu sextíu milljarða dollara aukningu í framlögum til Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins svo að sjóðurinn gæti af auknum krafti stuðlað að lýð- ræði í ríkjum Austur-Evrópu sem og aðstoöa uppbyggingu efnahags þró- unarlanda. Frakkland, Bretland, Kanada, Ítalía, Japan, Bandaríkin og Vestur-Þýskaland, hinn svokallaði G-7 hópur, samþykktu á fundi sínum að auka fé sjóðsins um fimmtíu pró- sent en fjármagn hans nemur nú 120 milljörðum dollara. Fréttaskýrendur eru þó ekki á eitt sáttir að þessi aukn- ing nægi til aö fullnægja þörfum þró- unarlanda hvað þá sjóðsins sjálfs. Sjóðurinn hafði farið fram á að fjár- magn hans yrði tVöfaldað. Þá lýsti G-7 hópurinn yfir stuðningi sínum við Brady-áætlunina svoköll- uðu sem miðar að því að létta skulda- byrði þróunarlanda en hún nemur nú alls 1300 milljörðum dollara. Enn á ný er óvíst hvort slík stuðningsyfir- lýsing fullnægi kröfum fátækari ríkja heims. Þau vilja að Brady- áætlunin, sem nefnd er eftir höfund- inum, bandaríska fjármálaráðherr- anum, verði tekin til vítækrar endur- skoðunar. Þau vilja einnig að fjár- magn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins verði aukiö svo að sjóðurinn geti veitt fé bæði til uppbyggingar lýö- ræðis í Austur-Evrópu sem og til hinna fátæku ríkja þriðja heimsins. Reuter Sigur þjóðernissinna Útlit er fyrir stórsigur þjóðernis- sinnaðra í júgóslavneska lýðveldinu Króatíu í síöari umferð kosninganna sem fram fóru í gær. En talið er aö innan við helmingur þeirra sem hafa atkvæðisrétt hafi kosið um þau 225 þingsæti sem eftir eru. í fyrstu umferð kosninganna, sem fram fór þann 22. apríl, fengu þjóð- ernissinnar 104 þingsæti af 356 og höfðu forystu í flestum þeim kjör- dæmum þar sem enginn frambjóð- Útlit er fyrir stórsigur þjóðernis- sinna í Króatíu. andi fékk hreinan meirihluta. Kommúnistar, sem hafa stjórnað Króatíu í 45 ár, fengu aðeins 13 þing- sæti í fyrstu umferð og aðrir flokkar 14 til samans. Þetta þýðir að þjóðernissinnar geta myndaö stjórn án hjálpar annarra flokka og þar með binda þeir enda á 45 ára valdatíma kommúnista. Búist er við endanlegum úrslitum um miöja þessa viku. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.