Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1990, Blaðsíða 9
MÁNUDAGUR 7. MAÍ 1990.
9
Án hjálpar á
Norðurpólinn
Tvéir Norömenn, Erling Kagge
og Boerge Ousland, uröu fyrstu
mennirnir til aö ganga á Norður-
pólinn án nokkurrar hjálpar á
laugardaginn. Breskur leiðangur
sem einnig var að reyna það sama
varð aö gefast upp fyrir viku.
Mennirnir, sem notuðu göngu-
skíði, uröu að snúa frá pólnum í
gær þar sem ísinn virtist ótraust-
ur og ætlaði kanadísk flugvél að
sækja þá í dag.
Bræður Ceau-
sescu seldu
upplýsingar
í sunnudagsblaði bandaríska
stórblaðsins Washington Post er
þess getiö að tveir bræður rúm-
enska harðstjórans Nicolae Ce-
ausescu hafi selt Bandaríkja-
mönnum háþróaða sovéska
tækniþekkingu. Mun CIA hafa
staðið aö baki kaupunum og hafa
eytt til þeirra um 40 milljónum
dollara en 20% þeirrar upphæðar
mun hafa endað á svissneskum
bankareikiúngum Ceausescu
fjölskyldunnar.
Tólf tonn
af kókaíni
Kólombískir hermenn fúndu á
laugardaginn um 12 tonn af kóka-
ini í versksmiðju lengst inni i
frumskógum landsins og er taliö
að fundurinn sé um 860 milljóna
dollara virði. Þettaernæststærsti
kókaínfundur í landinu frá því
að hermenn fundu tæplega 14
tonn árið 1984.
í gær var svo vörubíll hlaðinn
sprengiefni sprengdur í loft upp
i Bogota, höfuðborg landsins, og
telur lögreglan að sprengingin sé
þáttur í stríöinu milli valdamestu
kókaínbaróna landsins.
Kólombtskir hermenn fundu 12
tortr) af kókaíni inni í frumskógum
landsins á laugardaginn.
Flóð í Sovét-
ríkjunum
Gífurleg flóð í Úralíjöllunum í
Sovétríkjunum hafa neytt um
þúsundir íbúa til að flýja heimili
sín en flöldi heimila hafa eyði-
lagst og tveggia er saknað. Um
23 bæir og þorp á Bashkir svæð-
inu munu nánast þvi vera í kafi
og íbúarnir höfðu ekki einu sinni
tíma til að taka þaö allra nauð-
synlegasta með sér.
Mikil efnamengun varð í
drykkjarvatninu á svæðinu í
apríl og á síðasta ári sprakk gas-
leiðsla með þeim afleiðingum að
tvær lestir sprungu í loft upp og
500 farþegar létust.
Flugslys í
Guatemala
Að minnsta kosti 16 manns lét-
ust á laugardaginn er flutninga-
vél af gerðinrú DC-6 hrapaði nið-
ur í íbúaðahverfi stuttu eftir flug-
tak frá flugyellinum í Guatemala-
borg.
Þrír voru í áhöfn vélarinnar og
létust þeir aflir en einnig létust
13 manns á jörðu niðri er vélin
ienti á húsi þar sem fjöldi manns
var að skemmta sér. Talið er aö
vélin hafi hrapaö vegna bilunar
í tækjum.
Utanríkisráöherrar Bandarikjanna, James Baker, Sovétrikjanna, Eduard Sévardnadze, Austur-Þýskalands, Markus
Meckel, Vestur-Þýskalands, Hans Dietrich-Genscher, Bretlands, Douglas Hurd og Frakklands, Roland Dumas, hitt-
ust i Bonn um helgina til að raeða sameiningu þýsku rikjanna. Simamynd Reuter
Sameiningi þýsku ríkjanna:
Sovétríkin ryðja
brautina
Sovétmenn hafa látið í ljósi vilja
sinn til að fallast á að sameining
þýsku ríkjanna eigi sér stað fljótlega
svo fremi sem fulltrúar þeirra aðild-
arríkja sem sátu um helgina viðræð-
ur um sameiningu Þýskalands fallist
á að fresta að sinni ákvörðun um
hernaöarlega stöðu þjóðarinnar að
sameiningu lokinni. Frá þessu var
skýrt í bandaríska dagblaðinu Was-
hington Post í morgun. Þessi afstöðu-
breyting Sovétmanna til sameining-
ar þýsku ríkjanna haföi þegar komið
fram í máli heimildarmanna í Bonn
þar sem viðræður sex-þjóðanefndar-
innar um sameiningu Þýskalands
standa yfir.
Fréttastöðvar hafa haft eftir ónafn-
greindum vestur-þýskum og banda-
rískum heimildarmönnum við við-
ræðurnar að sovéski utanríkisráð-
herrann, Eduard Sévardnadze, hafi
lagt til að umræðum um hugsanlega
aðild sameinaðs Þýskalands að Nato,
Atlantshafsbandalaginu, verði frest-
að um nokkur ár. Þetta lagði ráð-
herrann til á laugardag þegar samn-
ingaviðræður utanríkisráðherra
sex-þjóðanefndarinnar - Bandaríkj-
anna, Sovétríkjanna, Frakka, Breta
auk þýsku ríkjanna - hófust. Með
þessari tillögu hafa Sovétmenn í
raun komið fulltrúum á ráðstefnunni
hjá því að ræða málefni sem reynast
mun erfitt að leysa.
Heimildarmenn segja að sovéski
ráðherrann hafi sagt að ekki þurfi
að leysa öll málefni varðandi utan-
ríkisstöðu og utanríkismál þýsku
ríkjanna á sama tíma og innaríkis-
málin sem er þýsku þjóðanna að
ákvarða. Heimildir herma að í tillög-
um Sévardnandze felist að þar til öll
málefni er varða utanríkismál sam-
einingar hafa verið ákveðin - svo-
kallaður aðlögunartími sameiningar
- gildi yfirráðaréttur Bandamanna
úr síðari heimsstyrjöldinni, Banda-
ríkjanna, Sovétríkjanna, Frakklands
og Bretlands. Einn vestur-þýskur
heimildarmaöur sagði að í samræmi
við þessa tillögu gætu innanríkismál
sameiningar þýsku ríkjanna nú ver-
ið leyst.
Sovétmenn hafa lýst andstöðu
sinni við að sameinað Þýskaland eigi
aðild að Nato á þeim forsendum að
slíkt myndi ógna öryggishagsmun-
um Sovétríkjanna í Evrópu. Ekki er
tahð líklegt að tillaga Sévardnadze
falli utanríkisráðherrum Bandaríkj-
anna, Bretlands og Frakklands vel í
geð en Vesturlönd hafa lagt á það
ríka áherslu að sameinað Þýskaland
verði innan vébanda Nato. Vestur-
Þjóðverjar kynnu hins vegar aö taka
vel í þessa tillögu þar sem talið er
að hún geti hraðað sameiningu. Til-
lagan gæti þýtt að sameining sæi
dagsins ljós á þessu ári. Kohl, kansl-
ari Vestur-Þýskalands, sagði í gær
að ekki væru frekari tálmar í vegi
þess að allir Þjóðverjar gætu neytt
réttar síns til sjálfsforræðis.
Samkvæmt þessari tillögu yrði
deilan um hernaðarlega stöðu og
aðild Þýskalands að hernaðarbanda-
lögum leyst með samningaviðræðum
sem færu fram á á aðlögunartíman-
um fyrrnefnda en að honum loknum
yrði formlegri og fullri sameiningu
ríkjanna lokið.
Reuter
Lettar reiðubúnir til viðræðna
- Gorbatsjov fordæmir sjálfstæöisyfirlýsinguna
Anatolis Gorbunovs, forseti Lett-
lands, sagði í gær í ræðu, sem sjón-
varpað var um stóran hluta Sovét-
ríkjanna, að yfirlýsingþings lýðveld-
isins sl. fostudag um sjálfstæði í
áfongum, hvetti til viðræðna við þá
sem væru andsnúnir því að Lettland
fengi sjálfstæði aftur. Hann sagði að
yfirlýsingin lokaði hvorki dyrunum
á viðræður innan lýðveldisins né við
yfirvöld í Moskvu.
Mikhail Gorbatsjov, forseti Sovét-
ríkjanna, sem hingað til hefur for-
dæmt sjálfstæðisyfirlýsingar Lithá-
en og Eistlands, mun hafa sagt að
yfirlýsing Lettlands bryti í bága við
stjórnarskrána. Hann hefur ítrekað
að lýðveldin þrjú hefðu nú rétt vegna
nýrra laga til að segja sig úr ríkja-
sambandi við Sovétríkin en þá yrði
þaö lagt fyrir íbúa lýðveldisins og
tveir þriðju hlutar íbúanna þyrftu
að samþykkja úrsögnina.
Gorbunovs, sem beindi máli sínu
einnig til rússneska minnihlutans í
Lettlandi, sagði að engum breyting-
um yrði hrundið í framkvæmd án
Anatolis Gorbunovs meðal fagnandi
Letta eftir að þingið samþykkti sjálf-
stæðisyfirlýsinguna.
Simamynd Reuter
samráðs við íbúa lýðveldisins. Hann
sagði að betra væri að byrja á því að
hlusta á hin ólíku sjónarmið en að
hóta fólki með þvingunum.
Valdis Berzin hjá lettneska dag-
blaöinu Rigas Balss sagði að kjarni
ræðu Gorbunovs hefði verið að eng-
inn þyrfti að óttast neitt. Hann sagði
að enn væri allt fremur rólegt en að
margir væru á varðbergi og fólk
væri byrjað að hamstra ýmsar vör-
ur, minnugt vöruskömmtunarinnar
í Litháen. Blaðamenn hafa spáð því
að Gorbatsjov muni á endanum beita
Lettland efnahagsþvingunum eins og
Litháen en nú þegar hafa 12.000
manns þar misst atvinnuna vegna
þeirra.
Anton Gustaitis, starfsmaður dag-
blaðs Þjóðarfylkingarinnar, Atmoda,
sagði að Lettland myndi þola efna-
hagsþvinganirnar verr en nágranni
þess í suðri, Litháen. En það hefur
einnig áhrif hversu mikill fiöldi
Rússa og annarra þjóðarbrota vinn-
ur í aðaliðnaði Lettlands. Um helm-
ingur íbúa Lettlands er Rússar eða
önnur þjóðarbrot. Á síðasta ári efndu
Rússar til verkfalla i Moldavíu og
Eistlandi til að mótmæla lagaákvæð-
um sem gáfu innfæddum réttindi
fram yfir aðra og takmörkuðu kosn-
ingarétt við þá er höfðu búið lengst
í lýðveldinu. Reuter
Utlönd
BandaríMn:
Leggja niður
Straumfirði
Bandaríkjamenn standa nú
fastir á þeirri ákvörðun sinni að
leggja niður herstöðina í
Straumfirði á Grænlandi og því
geta Danir ekki breytt. Danska
stjórnin hefur kosiö að lita á lok-
unina sem jákveeðan hlut, nefni-
lega sem innlegg í þá þíðu sem
er nú á milli austurs og vesturs.
Ákvörðun Bandaríkjamanna
var gerð heyrinkunnug eftir fund
Uffe Ellemann-Jensen, utanríkis-
ráölierra Dana, við félaga sinn
James Baker, utanríkisráöherra
Bandaríkjanna. Ellemann-Jens-
en sagði að Bandarikjamenn
hefðu skilning á því að herstöðin
hefði mikla þýðingu fyrir græn-
lenska samfélagiö en þeir væru
að leggja niður herstöðvar alls
staðar í heiminum og það yrðu
Danir og Grænlendingar að sætta
sig við og reyndar gleðjast yfir.
Lokunin er þáttur í niðurskurð-
inum á hermálum og Bandaríkja-
menn hefðu hreinlega ekki not
fyrir stöðina lengur.
Baker mun hafa lofað Uffe-
Ellemann aö hann myndi reyna
að finna lausn á þeim efnahags-
vanda sem lokun herstöðvarinn-
ar gæti haft í fór með sér fyrir
Grænlendinga en ekki var upp-
gefið hversu háar fiárhæöir hér
er um að ræða.
Ritzau
Fyrir
sumar-
bústaði.
Verð frá kr.
8.650,-
PÓIAR HF.
Einholti 6
sími 618401