Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1990, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1990, Side 12
12 MÁNUDAGUR 7. MAÍ 1990. Spumingin Hvernig finnst þér þingið hafa starfað í vetur? Ásbjöm Guðmundsson borgarstarfs- maður: Það var meira rifist en vana- lega en árangur ekki í samræmi við það. Helgi Magnús Gunnarsson húsa- smiður: Ég hef nú lítið fylgst með því, þó skömm sé frá að segja. Hrönn Antonsdóttir gjaldkeri: Ég hef htla skoðun á því enda fylgist ég lítið með þingstörfum. Ólafur Gissurarson 'ellilífeyrisþegi: Bara nokkuð vel, held ég. Magnús Egilsson nemi: Mjög illa, al-! veg hörmulega. Viðar Egilsson bakari: Ég hef ekkert' fylgst með því. Lesendur Reiðhross Reyknes- inga og gróðureyðing Félagi í Hestamannafélaginu Fáki skrifar: í DV hinn 27. apríl gerir gróður- vemdarmaður reiðhross Reyknes- inga að blóraböggli vegna gróður- eyðingar. í skrifum hans virðist gæta nokkurs misskilnings. Sárafá reiðhross eru í sumarhög- um á Reykjanesi. Ýmis hestamanna- félög eiga jarðir eða hafa aðgang að jörðum fyrir félagsmenn sína í nær- sveitum. Hestmannafélagið Fákur er t.d. með Geldinganesið, Korpúlfs- staði, Blikastaði og Ragnheiðarstaði í Gaulverjabæjarhreppi o.fl. fyrir fé- laga sína á sumrin og haustbeit á nokkrum jörðum. A þetta land er yfirleitt borinn áburður. Reiðhross em almennt á húsi út maí og fram í júní. Traðk á vorin er ekki eftir reiðhross. Bannað er aö reka hross á afrétt víðast hvar. Orkar því tvímælis að reiðhross Reyknes- inga gangi laus á Mosfellsheiði eða Bréfritari segir sárafá reiðhross vera í sumarhögum á Reykjanesi. Jón eða séra Jón? Guðmundur Jónsson: Stundum verður manni á að hugsa sem svo: Hvernig er komið í okkar þjóöfélagi? í hvaða ástandi er sið- ferði, réttarfar og hugsanagangur þeirra er komist hafa í þá aðstöðu að gæta laga, öryggis og velfarnaðar okkar samborgaranna? Eða er þjóð- félagið allt orðið kolruglað? Hvaða ályktun eigum við kannski að draga af eftirfarandi? Svo bar við að nokkrir unglingar ákváðu að fara í smáökuferð í nálæg- um kaupstað. Ekki höfðu þeir ekið ' lengi er leið þeirra lá fram hjá fjölbýl- ishúsi með utanáliggjandi svölum. Það vakti strax athygli þeirra að á svölum annarrar hæðar stóö maður nokkur í áberandi klæðnaði með byssu í hendi. Hvað getur nú veriö að gerast? Hugsanir sem þessar flugu um hugann. Bílhnn hægði ferð og þau litu út um gluggann. Það skipti engum tog- um, á svipstundu var byssunni lyft, miðað á bílinn og hleypt af skoti. Þau beygðu sig niður í sætunum um leið og höglin úr byssunni dundu á bíln- um. Ökumaður gaf skjótlega í og þeim tókst að flýja ósködduð áður en tími gafst til að skjóta aftur. „Þekktu þau manninn?“ sagði öku- maður. „Þetta var ábyggilega ein löggan sem var skjóta á okkur. För- um niður á lögreglustöð." Þegar þangað var komið voru lok- aðar dyr en ljós inni. Langa stund reyndu þau að vekja á sér athygli en án árangurs. Loks var þó opnað svo að þau gátu greint frá erindi sínu. Því var heldur fálega tekið og sagt sem svo: „Málið er í athugun, þið getið komið seinna. Það hggur ekkert á að kæra svona lagað." Þarna var sem sagt um að ræða fjögur ungmenni sem urðu fyrir þeirri óþægilegu lífsreynslu að á þau var ráðist með skotvopni og var ein- ungis heppni að ekki varð af stór- slys. Ekki var af þessum atburði sagt í fréttum eða fjölmiðlum utan þess að í einu dagblaöi kom um það smá- grein með myndum. Ekki skal þessi saga rakin lengur en svo gerist það síðasta dag apríl- mánaðar að í hádegis- og kvöldfrétt- um útvarps auk umfjöllunar sjón- varps var sagt frá mjög svipuðum atburði er gerðist í kaupstað norðan- lands en þar brást lögreglan öðru Léleg afgreiðsla á skattstofunni Arnar hringdi: Mig langar til að vekja athygli á því hversu frámunalega léleg af- greiðsla er á skattstofunni. Þegar ég kom þangað inn um daginn voru það allavega tíu sem biðu eftir af- greiðslu en aðeins ein manneskja var við afgreiðslu. Þegar ég var búinn að bíða í hálf- tíma var hluturinn sem ég hafði pantað nokkrum dögum áður ekki enn tilbúinn. Það vantar skipulagðri afgreiðslu á skattstofuna, t.d. númerakerfi sem er orðið mjög algengt í bönk- um og í Hagkaupum. Það myndi allavega hjálpa til að bæta móral hjá þeim sem þurfa á þjónustu skattstofunnar að halda. vísi við er haglabyssumaður skaut á lögreglubíl með einum laganna manna innan borðs. Þar var tilkölluð sjálf víkingasveit höfuðborgarinnar, einnig björgunarsveit staðarins, göt- um lokað, öll umferð stöðvuð um nærliggjandi svæði vegna stórhættu- legs ástands sem skapast hefði. Hvaða ályktun má nú draga af við- brögðum við þessum tveimur at- burðum, annars vegar að gera sem minnst úr mjög svo alvariegum at- burði, skotárás á fjögur ungmenni, auk þess sem íbúar í fjölbýlishúsi voru í stórkostlegri hættu, ungir sem gamlir, hins vegar hlutlaus umfjöll- um allra fjölmiðla um svipaðan at- burð sem gæti kannski vakið fólk til umhugsunar þegar einn laganna vörður verður fyrir skotárás í bíl sín- um? Eigum við nú, lesendur góðir, að trúa því að viöbrögð við framkvæmd öryggisgæslu samborgaranna fari eftir því hver hlut eigi að máli og að enn sé við lýði gamla máltækið sem segir að það sé ekki sama hvort um er að ræða Jón eða séra Jón? Hringið í síma verður að fylgja bréfum. Hellisheiði. Búsetan er talin höfuðorsök land- eyöingar. Erfitt er að ímynda sér að hrístekjan ein sé höfuðorsök land- eyðingar því til þess hefði orðið að hreinsa allan skóg af tvö til þrjú þús- und hekturum með handafli á hverju ári síðan land byggðist án þess að nokkuð sprytti upp aftur. Beit og ekki síst vetrarbeit hefir síðan komið í veg fyrir að skógurinn næði að endurnýja sig þar sem skepnur virðast'sérstaklega sólgnar í nýjabrumið og rótarskot. Sunn- lenska birkið er talið skammhft, þannig að það er fljótt að láta undan síga fyrir svona meðferð og hverfur á nokkrum áratugum ef það nær ekki að endurnýja sig. Ekki liggur ljóst fyrir hversu mikið er af reiðhrossum í landinu en arð- litlum stóðhrossum mætti eflaust fækka. Sú tíð er væntanlega hðin að útigangshross séu sett á guð og gadd- inn og ekki gefin tugga nema í alger- um jarðbönnum. Ástæðulaust er að deila um hvort eigi meiri þátt í gróðureyðingu sauð- fé eða hrossin heldur ber að skipu- leggja beit hvors um sig þannig að landinu verði ekki misboðið. Ef ár- angur á að nást í þessum efnum þyrftu að starfa landgræðslunefndir í hveijum hreppi en á þann hátt hef- ur Bandaríkjamönnum, Áströlum og Nýsjálendingum tekist að snúa vörn í sókn. Jakka stofið í Tunglinu Stefán Marteinsson hringdi: Aðfaranótt föstudagsins 27. april, er ég var að skemmta mér i Tunglinu, varð ég fyrir því óláni að jakkinn minn var tekinn í misgripum eða ófrjálsri hendi, nánar tiltekið þá hvarf hann sj ón- um minum í Bíókjallaranum svo- kahaða. Hér er um ræða brúnan og loð- fóðraðan flugmannaleðurjakka sem hefur mikið tilíinningalegt ghdi fyrir mig. Þeir sem geta gef- ið mér einhverjar upplýsingar um það hvar jakkinn minn er niðurkominn geta haft samband i síma 617379. Ég vil taka það fram að góð fundarlaun eru í boði. Slæm (engin) þjónusta Sigríður hiángdi: Ég fór í verslunina Evu við Laugaveg fyrir nokkru og var vægast sagt mjög óhress með af- greiðslustúlkurnar því þær kjöft- uöu hvor upp í aðra. Eg var að skoða flík sem mér líkaði og hefði sjálfsagt keypt hana ef ég hefði fengið einhverja þjónustu. Þarna missti eigandinn af „business“. Ég hef heyrt fleiri konur tala um það hversu slæm þjónustan sé orðin þarna, og þá sérstakiega í vetur. Það lilýtur aö vera mikill skaði fyrir verslunina að hafa ekki almennilegt afgreiðslufólk. Til hvers er afgreiðslufólk ef ekki til að sinna kúnnunum. Ég vil samt taka þaö fram aö ég hef verslað talsvert við Evu í gegnum árin og þá verið ánægð með þjónustuna. 4

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.