Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1990, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1990, Síða 14
14 MÁNUDAGUR 7. MAÍ 1990. Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÖLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÖNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aöstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÚNSSON Fréttastjóri: JÖNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÚLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11,105 RVlK.SlMI (91 )27022 - FAX: (91 )27079 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Askriftarverð á mánuði 1000 kr. Verð I lausasölu virka daga 95 kr. - Helgarblað 115 kr. Andstaða við álver Athygli vakti í eldhúsdagsumræðunum á fimmtudag- inn hversu ákaft kvennalistakonur gagnrýndu áformin um byggingu nýs álvers hér á landi. Má segja að ræðu- menn Kvennalistans hafi varið mestu af sínum ræðu- tíma til að vara við álverinu og er það heldur óvanaleg- ur málfutningur af þeirra hálfu, eftir að hafa lagt allt kapp á að lýsa stöðu kvenna þann tíma sem kvenna- listakonur hafa átt sæti á alþingi. Röksemdir þeirra gegn nýju álveri eru þær helstar að álverið muni valda mikilli mengun og umhverfis- spjöllum. Einnig er varað við því að álverið sogi til sín mikið vinnuafl á kostnað uppbyggingar í hefðbundnum atvinnugreinum. Kvennalistakonur vilja leggja áherslu á þjóðlegri atvinnugreinar og telja að ráðamenn leggi ekki við hlustirnar þegar ábendingar um nýjungar og önnur atvinnutækifæri koma fram. Gagnrýnin beinist ekki að raforkuverði, eignarumráðum útlendinga né heldur þeirri byggðaröskun sem staðsetning álvers get- ur haft í för með sér. Þetta hafa þó verið aðal mótbárur andstæðinga stóriðju í gegnum tíðina. Kvennalistakon- ur vilja fyrst og fremst vara við stóriðjunni sem slíkri. Rökin með samningum um byggingu álvers eru flest- um kunn. íslendingum verður kleift að selja óbeislaða orku fallvatnanna, reisa nýtt orkuver eða jafnvel fleiri, skjóta fleiri stoðum undir svipult atvinnulíf og auka útflutningstekjur okkar. Talsmenn Alþýðuflokksins halda því fram að tvö hundruð þúsund tonna álver jafn- gildi tvö hundruð þúsund tonna þorskafla. Það er ekki lítil búbót ef rétt er. Enda hefur enginn stjórnmálaflokk- anna treyst sér til að beita sér gegn stóriðjuáformunum nema þá með minniháttar fyrirvörum af hálfu Alþýðu- bandalagsins. Kvennalistakonur hafa einar lýst andstöðu við álver- ið, í þeim málatilbúnaði, sem uppi er hafður við undir- búning þessa máls, má margt gagnrýna. Sá ákafi sem augljós er af hálfu íslenskra stjórnvalda bætir ekki samningsstöðu okkar þegar kemur að samningum um orkuverð, staðsetningu og ýmsa aðra fyrirvara sem ís- lendingar kunna að vilja setja. Eins verður að gera strangar kröfur um mengunarvarnir og þess vegna er það óvarlegt af íslenskum stjórnvöldum að básúna alla þá kosti sem fylgja stóriðjunni áður en búið er að hnýta þá hnúta sem binda hendur viðsemjenda okkar. Það er í þessum efnum sem andæfa má gegn þeirri barnalegu uppljómun á andlitum ráðamanna í hvert skipti sem álverið er nefnt. Afstaða kvennlistaþing- manna er hins vegar af tilfmningalegum toga. En hversu vænt sem okkur kann að þykja um hreint og ósnortið land þá er ekki hjá því komist að verksmiðjur rísi og stóriðja haldi innreið sína. Ef og þegar íslendingar heyja samkeppni innan Evrópubandalagsmarkaðarins og ef íslendingar vilja búa við sömu lífskjör og aðrar vestræn- ar þjóðir er óhjákvæmilegt að auka hagvöxt og þjóðar- tekjur. Þegar álverið í Straumsvík var reist heyrðust efa- semdarraddir, líkt og nú. Járnblendiverksmiðjan á Grundartanga mætti harðri andstöðu umhverfisvernd- arsinna. Þær raddir eru þagnaðar. Nýtt álver mun hafa sömu þýðingu og meiri skilningur á umhverfisvernd, reynslan af nálægð stóriðjunnar og vaxandi alþjóðlegt samstarf gerir álverið viðráðanlegri og ákjósanlegri kost. Við þurfum ekki að hræðast útlendinga, við eigum ekki að einangra okkur frá umheiminum. Ellert B. Schram „Fiskurinn í sjónum er ekki lengur frjáls gæöi þar sem menn eru tilbúnir að greiða fyrir veiðiheimildir." Lágvaxtagildra Talið er aö hin iðnvæddu ríki Vesturlanda séu fallin í svokallaða lágvaxtagildru, sem á rætur sínar að rekja til þess að halli á fjárlögum þessara ríkja eykur eftirspurn eftir íánsfé af hálfu ríkissjóða og hefur í fór með sér að vextir haldast há- ir. Fjárfesting og hagvöxtur minnka og þessi ríki eiga erfitt með að standast samkeppni frá ýmsum iðnvæddum ríkjum Asíu. Atvinnu- leysi hefur verið viðvarandi. Erfitt hefur reynst aö draga úr því án þess að aukin verðbólga fylgdi í kjölfariö. Þjóðartekjur minnka Eftir gífurlegan hagvöxt áranna 1986 og 1987 sjáum við fram á að þjóðartekjur á íbúa á íslandi fara minnkandi þriðja árið í röð. Full ástæða er því aö ígrunda hvað farið hefur úrskeiðis við hagstjóm. Þrátt fyrir fámenni eru íslendingar fólk sem býr í landi og hér gilda almenn efnahagslögmál eins og annars staðar á Vesturlöndum. Tilskip- anahagkerfi Austur-Evrópuríkja, þar sem handaflið réð ríkjum, er að renna sitt skeiö á enda eftir að hafa verið þrautreynt af þrjósku einni saman í fjörutíu til sjötíu ár, löngu eftir aö séð varð í hvert óefni stefndi. Framundan er ómælt starf viö að rífa hagkerfi þessara ríkja upp úr rústum óstjórnar. Að óbreyttu hvílir skuggi lág- vaxtagildrunnar yfir íslensku efna- hagslífi. Sjávarútvegurinn, sem verið hefur aflvaki vaxtar í þjóð- félaginu, býr við ákveðna við- gangskreppu, sem er að langmestu leyti heimatilbúin og á rætur sínar að rekja til handaflsins. Hagræn markmið með rekstri sjávarútvegs hafa orðið að lúta í lægra haldi fyr- ir félagslegum þótt löngu sé viður- kennd staðreynd að forsenda fé- lagslegra markmiða eru þau hag- rænu. Mjúku málin eru skilgetin afkvæmi hinna hörðu en ekki öfugt. Hér Verður ekki deilt um hvort varð til fyrr, hænan eða egg- iö. Ríkar þjóöir eiga ólíkt léttara með að halda uppi góðu heilbrigðis- kerfi, menntakerfi og sinna sjúkum og sorgmæddum en fátækar. Varað við afkastagetu flota Baráttan fyrir útfærslu fiskveiði- lögsögu og landhelgi hefur yfirleitt verið háð undir merkjum vemd- unar fiskstofna og sjávarspendýra. Stríðið vannst gegn Bretum og Þjóðverjum en tvímælis orkar hvort landhelgisstríðið gegn okkur sjálfum sé unnið eða tapað. Fyrir meira en hálfum öörum áratug voru þær raddir farnar að heyrast sem vöruðu við frekari aukningu á afkastagetu flota, hún væri þá þeg- ar orðin yfrin. Norðvestur-Atlants- hafsfiskveiðinefndin taldi að fisk- veiöidánarstuöull þorskstofnsins væri fimm sinnum hærri en svar- aði til bestu sóknar. íslendingar voru ábyrgir fyrir 70% af sókninni á þeim árum. Þar með er ekki sagt að þriðji hluti flota íslendinga hefði nægt til að nýta helstu stofna nytja- fiska á sem hagkvæmastan hátt. Nokkrum árum áður var farið út í sérstakar aðgerðir til að örva fjár- festingu í fískiskipum, t.d. með lækkun vaxta, lengingu lánstíma og auknum lánum. Þessar aðgerðir hefðu veriö í lagi ef í kjölfarið hefði fylgt stóraukin úrelding þess flota KjaHariim Kristjón Kolbeins viðskiptafræðingur sem fyrir var því að aukning af- kastagetu var óþörf. Stimplaðir voru menn úrtölumenn er töldu aðgátar þörf eins og ungi maður- inn, sem komst að því eftir mikla útreikninga á arðsemi, núvirði, og afkastavöxtum að hitaveitufram- kvæmdir í ákveðnu vestfirsku sjávarþorpi væru óráðlegar þar eð vatnið, sem væri fyrir hendi, væri bæði lítið og kait. Heimamenn þurftu enga útreikninga en töldu manninn á móti hinum dreifðu byggðum landsins. Vatnið reyndist lítið og kalt og hefur eflaust runnið á milli skinns og hörunds staðar- manna er þeir gerðu sér grein fyrir því hversu glórulaus rekstur þessa fyrirtækis var. Eflaust hefir því verið haldið gangandi með aðgerð- um sem eru sérstaklega vinsælar um þessar mundir og kallast fjár- hagsleg endurskipulagning, s.s. skuldbreytingu, lánalengingu, víkjandi lánum, niðurfellingu skulda og beinum framlögum. Orð í tíma töluð Þaö hefur aldrei veriö skoðun þeirra sem halda vildu afkastagetu flotans í skefjum að hætta bæri allri nýsmíði heldur að stefnt yrði að því aö endurnýja aðeins hluta þess flota sem úr sér gengi. Annaö hefði þýtt að skipakosturinn hefði orðið tæknilega úreltur. Nú mót- mælir því vart nokkur að þau varn- aðarorð sem mælt voru fyrir hálf- um öðrum áratug eða jafnvel fyrr og virt voru aö vettugi, voru orð í tíma töluð og hefði verið tekið tillit til þeirra þá með raunhæfum að- gerðum væri ástand sjávarútvegs nú annað og betra en raun ber vitni. Barnið hefir vaxið en brókin ekki. Brókin hefir reyndar hlaupið því gengið hefur verið á stofna helstu nytjafiska og þeir gefa því af sér minni afla en vera ætti. Þorskárgangurinn frá árinu 1983 var talinn lofa góðu en samkvæmt fréttum er aðeins tíundi hluti hans eftir nú. Með helmingi minni sókn heföi hann gefiö af sér meiri afla og þá væri enn eftir að landa a.m.k. þriðja hluta þess sem hann gæti gefið af sér. Því miður eru yngstu árgangar þorskstofnsins álitnir slakir. Vandinn, sem sjávarútvegurinn á við aö etja, er margþættur. Skuldir greinarinnar hafa stóraukist á undanfornum árum á fóstu verði ásamt tilheyrandi vaxta- og greiðslubyrði. Undirstaðan sem greinin hvílir á er ótraust. Flotinn heldur uppi of mikilli sókn þannig aö nýting margra stofna er óhag- kvæm og aflinn minni en eðlilegt getur talist. Slíkt leiðir til þess að stór hluti flotans er verkefnalaus mikinn hluta ársins. Til þess að hægt sé að auka afrakstur fisk- stofna þarf fyrst að draga úr sókn, sem þýðir óhjákvæmilega tekju- missi um nokkurn tíma en óvíst er að greinin geti eöa þoli að taka á sig eins og skuldastaðan er nú. í þessu felst lágvaxtagildra sjávarút- vegsins sem vart verður komist út úr án verulegrar sameiningar afla- heimilda og úreldingar óhag- kvæmra skipa. Tækninýjungar hafa gjörbreytt stöðu margra fyrir- tækja og rýrt grundvöll vinnslunn- ar. Sjófrysting, landanir erlendis og útflutningur á fiski í gámum draga úr framboði á hráefni til frystingar og söltunar í landi. Samræmi milli flota og fiski- stofna Kjörstaða sjávarútvegs er óum- deilanlega sú staða að sem best samræmi sé á milli afkastagetu flota og vinnslustöðva og afrakst- ursgetu fiskstofna. Þannig aö allur flotinn gæti stundað óheftar veiöar þegar gæftir leyfa. Eitt af markmið- um frumvarps til laga um stjóm fiskveiða, sem liggur fyrir Alþingi þegar þetta er skrifaö, er að þessu markmiöi verði náð. Þegar skaðinn er skeður er oft erfitt að laga þaö sem úrskeiðis hefir farið, því er alls óvíst að hin hagrænu markmið frumvarpsins náist heldur verði niöurstaðan félagsleg dúsa í munn þeirra sem ólíkra hagsmuna eiga að gæta, rétt til að seðja sárasta hungrið. Andrúmsloft er frjáls gæði, því er það ekki markaðsvara. Fiskur- inn í sjónum er ekki lengur frjáls gæði þar sem menn eru tilbúnir að greiða fyrir veiðiheimildir. Fjár- hagslegar aðgerðir voru notaðar til að auka sókn í fiskstofna umfram heilbrigða skynsemi. Fjárhagsleg- ar aðgerðir eru því eðlilegar til að koma á samræmi á milli afkasta- getu flota og afrakstursgetu fisk- stofna og jafnframt að tryggja öll- um íslenskum þegnum óheftan að- gang að miðunum, sé það gjald greitt sem óhjákvæmilega hefur myndast vegna skortsins. Grá- sleppukarl á Grenivík ætti þá að hafa jafna aðstöðu og frystihúsið á Fáskrúðsfirði. „Kjörstaða sjávarútvegs er óumdeilan- lega sú staða að sem best samræmi sé á milli afkastagetu flota og vinnslu- stöðva og afrakstursgetu fiskstofna.“ Kristjón Kolbeins

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.