Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1990, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1990, Page 15
MÁNUDAGUR 7. MAÍ 1990. 15 Frelsi og ábyrgð fréttamanna Athyglisverö deila reis nýlega á milli Utvarpsráðs og nokkurra fréttamanna í Ríkisútvarpinu. Til- drögin eru þau, aö Atli Rúnar Hall- dórsson samdi frétt í hljóðvarpiö, þar sem gefið var sterklega í skyn, að VT-teiknistofan á Akranesi hefði hnuplað hugmynd að húsa- teikningu frá Svíþjóð. Þessu vildi teiknistofan ekki una og sendi at- hugasemd til upplestrar í hljóð- varp. Fréttastofan neitaði að birta athugasemdina. Þá ályktaði Útvarpsráö að frétta- stofan skyldi birta hana og var það gert fostudaginn 27. apríl. Því var hins vegar hnýtt aftan við athuga- semdina aö fréttastofan stæði við frétt sína. Útvarpsráð brást hart við og sam- þykkti næsta dag að þau orð skyldu ómerk og var fréttastofunni skipað að flytja samþykktina þá um kvöld- ið. Héldu fréttamenn síðan fundi næstu daga, hótuðu uppsögnum og höfðu stór orð um gerræði Út- varpsráðs. Ríkari ábyrgð ríkisfjölmiðla Enn verður að minna á það, að Ríkisútvarpið á að vera það sem það segist vera í auglýsingum, - útvarp allra landsmanna. Það ber meiri ábyrgð en einkafjölmiðlar af þeirri einfóldu ástæðu, að okkur er öllum skylt að greiða til þess afnotagjöld. Það getur þess vegna ekki verið tæki í höndum manna í valdabaráttu þeirra (eins og einka- fjölmiðill má vera) og því síður leikfang fréttamanna, sem þurfa að sýna umheiminum, hversu harð- skeyttir þeir eru. Það á að vera sameiningarafl. Ef það bregst þeirri skyldu sinni KjaUarinn Hannes Hólmsteinn Gissurarson lektor í stjórnmálafræði eru forsendur brostnar undan skyldu landsmanna til þess að halda því uppi. Hvers vegna ættu eigendur og starfsmenn VT-teikni- stofunnar á Akranesi að greiða af- notagjöld til stofnunar, sem reynir að ræna þá ærunni? Munurinn á Þjóðviljanum og Ríkisútvarpinu er, að við þurfum ekki að vera áskrifendur að Þjóð- viljanum og getum sagt blaðinu upp, mislíki okkur það. Hvernig þætti þér það lesandi góður, ef þú þyrftir ekki aðeins að vera áskrif- andi að Þjóðviljanum, heldur líka að sæta því, að Þjóðviljinn neitaði að birta frá þér athugasemdir við fréttir blaðsins, sem væru fjand- samlegar þér? Sannleikurog lygi Þessu munu fréttamenn Ríkis- hljóðvarpsins svara svo, að þeir séu einmitt að gera skyldu sína með því að halda uppi einörðum frétta- flutningi. Nú sé sú tíö komin, að fréttamenn verði að taka að sér að vera samviska þjóðarinnar, ötulir verðir laga og siðgæðis, hvergi smeykir við yfirvöld og einkafyrir- tæki. Ég hef kynnst nokkrum af og veit að þeim gengur flestum gott eitt tíl. Þeir eru, eins og langflestir íslendingar, heiðarlegt og sam- viskusamt fólk. En ég hygg, að fólk geri sér ekki fulla grein fyrir að- stöðu sinni og ábyrgð. Ég á ekki aðeins við það, að þaö má ekki leyfa sér eins margt og starfsfólk einkafjölmiðla. Tvennt skiptir annaö máli. Það áttar sig ef til vill ekki á því fremur en aðrir fjölmiðlamenn, hversu miklu máli ein frétt getur skipt einstaklinga úti í bæ. Fyrir fréttamanninn er hún aðeins þáttur í daglegu starfi, gleymd næsta dag. Fyrir fórnar- lambið kemur fréttin hins vegar eins og þruma úr heiöskíru lofti. í annan stað varðar ekki mestu, hvort allt sé satt í frétt, heldur í hvaða samhengi fréttin er. Það er rétt, að VT-teiknistofan studdist við sænskar hugmyndir (eins og marg- ir fréttamenn og félagsfræðingar gera raunar í stjórnmálum), en hún dró aldrei neina dul á þaö. Þetta kom ekki skýrt fram. Hálfsannleik- ur getur verið óhrekjandi lygi, eins og Stephan G. Stephansson kvað. Málskotsréttur Fréttamenn Ríkishljóövarpsins vilja greinilega ekki lúta neinum húsaga. Vafalaust tala þeir í þessu sambandi um frelsisskerðingu. En frelsi fylgir ábyrgð. Ég hygg, að Útvarpsráð gæti oft fremur hags- muna stjórnmálaflokkanna en alls almennings (eins og ég rek nokkur dæmi um í bók minni, Fjölmiðlum nútimans). En það er samt sem áður eini fulltrúi þeirra, sem greiöa starfsfólki Ríkisútvarpsins laun. Á meðan Ríkisútvarpið nýtur lög- boðinna fríðinda eða fjárframlaga, verða einstaklingar, sem telja á sér brotið, að hafa málskotsrétt. Fréttamenn eru ekki fremur en við hin óskeikulir eða hafnir yfir gagn- rýni. Á sama tíma og þeir beina gagnrýni sinni hiklaust að öðrum, draga aðra til ábyrgðar, verða þeir að taka því ofsalaust, að aðrir beini gagnrýni sinni að þeim. Hannes Hólmsteinn Gissurarson „Fréttamenn Rikishljóðvarpsins vilja greinilega ekki lúta neinum hús- aga“, segir greinarhöfundur m.a. - Fréttamenn hljóðvarps og sjónvarps RÚV á fundi. fréttamönnum Rikishljoðvarpsins „Á meöan Ríkisútvarpið nýtur lög- boðinna fríðinda eða fjárframlaga, verða einstaklingar, sem telja á sér brotið, að hafa málskotsrétt. Frétta- menn eru ekki, fremur en við hin, óskeikulir eða hafnir yfir gagnrýni.“ Lægri unglingafargjöld í Strætisvagna Reykjavíkur Marga hefur undrað sú árátta borgaryfirvalda að okra á ungling- um í strætó. Unglingar eru dygg- asti viðskiptavinahópur strætis- vagnanna, enda eiga þeir engan annan kost til ferða, jafnvel þó þjónusta strætisvagnanna sé ekki eins góð og æskilegt getur talist. Fyrir réttum fjórum árum gerðum við ungt framsóknarfólk strætó- málin aö sérstöku baráttumáli og lögðum áherslu á að upp yrðu tekin sérstök unglinga- og framhalds- skólafargjöld. Samhliða vildum við að upp yrði tekið nýtt fyrirkomulag í fargjaldamálum þannig að í stað núverandi afsláttarmiða kæmu sérstök tímabilakort eins og tíðkast í nágrannalöndum okkar. Þannig gætu fastir viðskiptavinir strætó keypt sér afsláttarskírteini er giltu í strætisvagnana ákveðið tímabil. Sjálfstæðismenn vilja okra á unglingum. Þaö var ekki síst vegna þessarar baráttu ungs framsóknarfólks að ég var kjörinn í stjórn Strætis- vagna Reykjavíkur eftir síðustu borgarstjcrnarkosningar, enda var ég þá valinn fulltrúi ungra fram- sóknarmanna í framvarðasveit Framsóknarflokksins í borgarmál- um. Hóf ég strax að berjast fyrir þessum sjálfsögðu réttindamálum unglinga. En ég þurfti ekki aö sitja lengi í stjórn Strætisvagna Reykja- víkur til þess að komast að raun um algert áhugaleysi sjálfstæðis- manna sem eru í meirihluta í stjórninni, eins og reyndar öllum stjórnum og nefndum Reykjavík- urborgar. Tillögur mínar um breytta skipan fargjaldamála voru snarlega felldar. Tímabilakort töldu sjálfstæðismenn ekki koma KjaUarinn Hallur Magnússon 3. maður á B-listanum i Reykjavík til greina þótt þau gæfust vel í ná- grannalöndunum og yrðu að ölium líkindum til þess að notkun stræt- isvagnanna ykist. Ekki höfðu þeir heldur áhuga á því að taka upp sérstök unglingafargjöld þótt þeir viðurkenndu að líklega væri óeðli- legt að 13 ára unglingur greiddi þrisvar sinnum hærra fargjald en 12 ára unglingur. Þrátt fyrir þessa útreið ákvað ég árinu seinna, þegar hækka átti far- gjöldin í strætó, að endurflytja til- lögur um unglinga- og framhalds- skólafargjöld. Þaö kom mér á óvart að sjálfstæðismennirnir voru nú aðeins opnari fyrir þessum mögu- leika. Hins vegar aftóku þeir með öllu að koma á fót þremur verð- flokkum. Var niðurstaða umræðna í stjórn strætó sú að líklega væri heppilegast að breyta fargjalda- kerfinu þannig að börn og ungling- ar á aldrinum 6 ára til 16 ára greiddu sama fargjald, sem yrði helmingur af fullorðinsfargjaldi. Nú er barnafargjald einungis þriðj- ungur fullorðinsfargjalds en 13 ára til 16 ára unglingar greiða fullt far- gjald. Ég verð að segja að mér fannst ég hafa unnið mikinn sigur með þessari málamiðlun og taldi mig hafa komið sanngjörnu baráttu- máli í farsæla höfn. En viti menn. Þegar ég lagði fram tillögu um breytta fargjaldaskipan í anda þess sem sjálfstæðismenn höföu svo gott sem samþykkt var hún aftur snar- felld. Tillaga mín geröi ráð fyrir að börn 6 ára til 16 ára myndu greiöa hálft fargjald, einnig aldraðir og örorkulífeyrisþegar en aðrir fulit fullorðinsfargjald. Vegna vissu minnar um andstöðu sjálfstæðis- manna gerði ég ekki ráð fyrir að framhaldsskólanemar nytu sér- staks námsmannaafsláttar eins og ungt framsóknarfólk hefur barist fyrir. Framsóknarflokkurinn vill lægri fargjöld fyrir unglinga Að ofansögðu má það ljóst vera að Framsóknarflokkurinn vill lægri fargjöld fyrir unglinga, enda er það óeðlilegt og óréttlátt að þeir greiði sama gjald og fullorönir. Það var því ekki að undra að ungling- arnir sjálfir settu breytta skipan í fargjaldamálum strætisvagnanna á oddinn sem sérstakt baráttumál í kjölfar pallborðsumræðna ungl- inga sem haldnar voru í Tónabæ 13. mars á síðasta ári. Pallborðsum- ræðurnar voru haldnar á vegum verkalýðshreyfmgarinnar og íþrótta- og tómstundaráðs Reykja- víkur. Ræddu unglingarnir þar sín helstu hagsmunamál og ályktaði fundur þeirra eftirfarandi um strætisvagnamál: „Ur.glingum finnst óréttlátt að borga fullorðinsgjald í strætisvagn- ana áður en þeir verða 16 ára. 50 kr. eru margar krónur fyrir ungl- ing sem er í skóla. Unglingar eru einn stærsti hópur strætisvagna- farþega og telja sig borga niður far- gjald þeirra fáu fullorðnu er ferðast nú orðið með strætisvögnum." Sjálfstæðismenn hafa látið bæn- arskjöl unglinganna um sérstök unglingafargjöld sem vind um eyru þjóta, enda hafa unglingar ekki kosningarétt og eru því flokkaðir sem þriðja flokks borgarbúar af núverandi meirihluta borgar- stjórnar. Hins vegar er ljóst að fargjöld unglinganna eru greidd fyrst og fremst af foreldrum þeirra og geta fargjöld orðið vænn póstur í heim- ilishaldi barnmargra fjölskyldna. Lægri unglinga- og framhalds- skólafargjöld eru því mikið hags-' munamál íjölda fjölskyldna, sérs- taklega þó þeirra er lægstar hafa tekjurnar. Strætó verði raunhæfur valkostur En Framsóknarflokkurinn vill ekki aðeins breyta fargjaldaskipan strætisvagnanna þeim er minna mega sín í hag. Framsóknarflokk- urinn vill bæta almenningssam- göngur og gera strætó að raun- hæfum valkosti við einkabílinn. Eins og staðan er í dag er ekki hægt að tala um frjálst val milli einkabílsins og strætisvagnanna. Þeir íjölmörgu, sem gjarnan vildu nota strætisvagnana til að komast leiöar sinnar á hagkvæman og þægilegan máta, geta það ekki þar sem þjónusta þeirra er ekki nógu góð. Ástæða þess er meðal annars sú að sjálfstæðismenn hafa notað öll möguleg tækifæri til að draga úr þjónustu strætisvagnanna, fækka ferðum og bíða í lengstu lög með að bæta inn nýjum leiðum. Það er löngu sannað að almenn- ingssamgöngur eru þjóðhagslega hagkvæmar. Ef að þeim er hlúð, þannig að fólk fari aftur að nota strætó og skilja einkabílinn eftir heima, dregur verulega úr mengun sem borgarbúar eru farnir að sjá í auknum mæli meðfram stóru um- ferðaræðunum. Betri strætó, betra loft. Þá vill Framsóknarflokkurinn horfa til framtíðar og láta kanna hvort fleiri kostir en strætisvagnar komi til greina í almenningssam- göngum í borginni. Úti í hinum stóra heimi er sífellt lögð meiri áhersla á bættar almenningssam- göngur sem svar við umhverfis- spjöllum og því er verið að vinna að hagkvæmum nýjungum í al- menningssamgöngum, nýjungum sem ekki menga umhverflð. Með þeirri þróun verðum við að fylgjast. Hallur Magnússon „Að ofansögðu má það ljóst vera að Framsóknarflokkurinn vill lægri far- gjöld fyrir unglinga, enda er það óeðli- legt og óréttlátt að þeir greiði sama gjald og fullorðnir.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.