Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1990, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1990, Blaðsíða 26
34 MÁNUDAGUR 7. MAÍ 1990. Smáauglýsingar - Sími 27022 Ymislegt Framleiði hliðarfellihurðir, áratuga reynsla, hafa staðist alla ísl. veðráttu. Framl. einnig handrið, hringstiga, pallastiga o.fl. Járnsmiðja Jónasar, s. 91-54468, einnig á kvöldin og um helg- ar (símsvari). Mjög sterk gróðurhús til sölu, stærðir frá 6,8-40 fm, með 4,2 mm gleri. Hafa staðið af sér öll veður í vetur. Tilvalið yfir hitapotta. Fáanleg í litum. Garð- skálar hf., Lindarflöt 43, s. 657737. Líkamsrækt Golfarar. Æfmgatækið komið aftur, _ pantanir óskast sóttar. Æfið í bíl- skúrnum í vetur, í garðinum í sumar. Sendum i póstkröfu. Verð 9.950. Raf- borg sf., Rauðarárstíg 1. S. 622130. Vermireitir á góðu verði, ^ stærð 180x80 cm. Uppl. í síma 91-675529. Ferðaklúbburinn 4x4 Fundur i kvöld í Kristalsal Hótel Loft- leiða. Sýna þarf félagsskírteinin við innganginn. Stjórnin. Sumartilboð: „Ultra flex“. fullkomn- asti pressubekkur sem við höfum boð- ið upp á, með 100 punda (44 kg) lyft- ingasetti. Verð aðeins kr. 35.420 eða kr. 32.940 stgr. Sendum í faxkröfu. Hreysti hf., Skeifunni 19, 108 Rvík, s. 681717. / Bifhjólamenn \ hafa enga heimild til að aka hraðar en aðrir! Sviðsljós Örfá sæti laus næsta haust Að undanfórnu hafa Spaugstofu- mennirnir fimm sem hvert manns- barn þekkir setið með sveittan skall- ann við að semja og æfa kolkhkkaðan farsa sem þeir nefna Örfá sæti laus. Ætlunin var að taka farsann tii sýn- ingar á þessu ári en því hefur nú verið frestað fram til næsta hausts vegna húsnæðisvandræða. Auk fimmmenninganna Karls Ágústs Úlfssonar, Pálma Gestssonar, Randvers Þorlákssonar, Sigurðar Sigurjónssonar og Arnar Árnasonar koma fram í sýningunni leikararnir Anna Kristín Arngrímsdóttir, Bessi Bjamason, Jóhann Sigurðarsson, Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, Lilja Þórisdóttir, Rúrik Haraldsson og Tinna Gunnlaugsdóttir. Leikstjóri er Egill Eðvarðsson, tóniistina semur Gunnar Þórðarson og leikmynd gerir Jón Þórisson. Að sögn er Örfá sæti laus hugljúfur hvunndagsleikur með dularfulllu ef ekki beinlínis dulrænu ívafi, að hluta til byggður á sönnum heimiidum en að öðru leyti argasta lygi frá rótum. Sögusviðið er leikhús og umhverfi þess. Á meðan á misheppnaðri sýn- ingu á spennuleikriti stendur verða ólíklegustu uppákomur innan sviðs sem utan. Sýningin á að vera fullæfð í vor og er ætlunin að fmmsýning verði í september og það ætti engum að koma á óvart þóttfarsinn yrði sýnd- ur allan næsta vetur. Þessi mynd er tekin á sviði Þjóðleikhússins þar sem hluta af stólkosti hússins hefur verið komið fyrir til bráða birgða. Leikarar og aðstandendur sýningarinnar eru á myndinni og hafa sumir komið sér vel fyrir í stólum hússins fjiil \ w mmé ^ J_Is 0$|^|p| J | Sgý’, Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum: Hvert sæti var skipað í leiguflugvél frá spænska flugfélaginu Oasis Int- ernational frá Keflavíkurflugvelli fyrir páska þegar flogið var með far- þega á vegum ferðaskrifstofunnar Veraldar til Costa del Sol og Beni- dorm á Spáni. Næsta ferð verður eft- ir viku og síðan vikulega til 22. maí. Eftir það verður flogið tvisvar í viku til 31. október. Starfsmaður Veraldar verður um borð í flugvélinni í hverri ferð. Að sögn Andra Más Ingólfsssonar, framkvæmdastjóra Veraldar, hefur eftirspurn verið mikil í þessar ferðir. Farkosturinn er flugvél af gerðinni MD-83, ný vel frá McDonnel Douglas verksmiðjunum sem tekur 163 far- þega í sæti. Spænska flugvélin á Keflavikurflugvelli. Spænskar flugfreyjur buðu gestum upp á girnilegar kræsingar. DV-myndir Ægir Már Nýlega flufti Axis húagögn hf. - ■ -3- iHKni nyiuiiyar i laiasxapum og SKritstofu- húsgögnum, auk þess sem sett var upp sýnlng á nýjum steinþrykkum eftir Tolla. Var mynd þessi tekin við opnunina. Á myndinni er myndlistar- maðurinn Þorlákur Kristinsson (Tolli), Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra, Eyjólfur Eyjólfsson og Eyjólfur Axelsson, en þeir eru forstjórar Axis húsgagna. Dorgarar verð- launaðir fyrir stærstu fiskana Verðlaun fyrir stærstu fiskana í dorgveiðikeppni Laxlóns, Veiðivon- ar og Sportveiðiblaðsins voru aíhent fyrir fáum dögum. Sigurður Bene- '*rdiktsson veiddi stærsta fiskinn, sem var 5 pund, í eldri flokki og Ingi Sturluson veiddi þann stærsta í yngri flokki, 3 punda fisk. Það voru Ólafur Skúlason og Aðalsteinn Pétursson sem afhentu verðlaunin, stöng og hjól, veiðikort og blaðaáskrift. -G.Bender Olafur Skúlason, Sigurður Benediktsson, Ingi Sturluson og Aöalsteinn Pétursson hressir [ bragði eftir verðlaunaaf- hendinguna. DV-mynd G.Bender

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.