Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1990, Blaðsíða 2
2
FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 1990.
Fréttir
Frjáls fjölmiðlun sendi stjóm Sýnar bréf í gær:
Ahugi á að ganga inn í
kaup Stöðvar 2 á
- vill nýta sér forkaupsréttinn sem einn hluthafa
Frjáls fjölmiölun hf., sem gefur
út DV, hefur lýst yfir áhuga viö
stjóm Sýnar um að ganga inn í
kaup Stöðvar 2 á hlutabréfunum í
Sýn og nýta sér þar með forkaups-
réttinn á hlutabréfunum sem félag-
ið á sem einn hluthafa í Sýn. Þetta
kom fram í bréfl Fijálsrar fjölmiðl-
unar til stjórnar Sýnar í gær.
Ástæðan fyrir þessari óvæntu
ósk Frjálsrar fjölmiðlunar er sú að
félagið telur að hlutabréf Sýnar
hafi verið of lágt metin í saman-
buröi viö verðlagningu hlutabréf-
anna í Stöð 2 þegar helstu eigendur
beggja fyrirtæki skrifuðu undir
samning um sameiningu aðfara-
nótt 4. maí síðastliðinn. Hlutabréf-
in í Sýn voru metin á 50 prósent
yfir nafnverði eða á sölugenginu
1,5. Hlutabréfm í Stöð 2 voru hins
vegar metin á pari, genginu 1,0.
Frjáls fjölmiðlun telur að það sé
hagkvæmara að kaupa hlutabréf í
Sýn á þessu verði en að selja þau.
Innborgað hlutafé í Sýn var 108
milljónir króna. Þetta 108 milljóna
hlutafé var metið á 165 milljónir í
sameiningarsamningi Sýnar og
Stöðvar 2. Af þessu 108 milljóna
króna hlutafé á Frjáls fiölmiðlun
hf. alls 10 milljónir króna. Aðrir
hluthafar eru Bíóhöllin, Þorgeir
Baldursson, forstjóri Prentsmiðj-
unnar Odda, og Hvíta húsið, gamh
Sýnarhópurinn.
Með því að Frjáls fiölmiðlun
kaupir afganginn af hlutabréfun-
um kaupir félagið hlutabréf að
nafnverði 98 milljónir króna. Fé-
lagið er tilbúið að kaupa þau á 50
prósent yfir nafnverði eða á sama
verði og gert er ráð fyrir í sölunni
til Stöðvar 2.
í bréfi Frjálsrar fiölmiðlunar hf.
til stjómar Sýnar hf. í gær segir
að vegna fregna af samningi nokk-
urra hluthafa í Sýn hf. við eigendur
Stöðvar 2 telji Frjáls fiölmiðlun sig
knúna til að benda á að óhjákvæmi-
legt er að stjórn Sýnar bjóöi hlut-
höfum í félaginu forkaupsrétt að
hinum folu hlutabréfum með þeim
hætti sem samþykktir félagsins
áskilja.
Þá segir ennfremur í bréfinu:
„Tekið skal fram, að tilefni þessar-
ar ábendingar okkar er það, að viö
höfum fullan hug á að nýta okkur
forkaupsréttinn." Undir bréfið
Sýn
skrifa þeir Sveinn R. Eyjólfsson
stjórnarformaður og Hörður Ein-
arsson, framkvæmdastjóri Frjálsr-
ar fiölmiðlunar.
í þeim samningum sem helstu
eigendur Stöðvar 2 og Sýnar gerðu
með sér um sameiningu stöðvanna
er gert ráð fyrir að fyrirtækin verði
sameinuð þannig að Stöð 2 kaupi
öll hlutabréf í Sýn hf. Innifalið í
kaupunum er fullkomið starfsleyfi,
öll tæki, viðskiptasambönd, sjóöur
og aðrar eignir hlutafélagsins.
-JGH
Kötturinn Mjása haíöi verið týnd í tvær vikur:
Fannst nær
dauða en líf i með
snæri um hálsinn
- var oröin grindhoruð og máttlaus liggjandi á víðavangi
„Það voru ung hjón sem komu með
Mjásu til okkar aftur. Þá hafði hún
verið týnd í nákvæmlega tvær vikur.
Hjónin höfðu verið í gönguferö með
börnunum sínum í Elliðaárdalnum
þegar þau fundu Mjásu liggjandi í
grasinu. Þau sáu að snæri var bund-
ið óhugnanlega strekkt um hálsinn á
henni. Hún var orðin grindhoruð,
slöpp og vægast sagt illa á sig komin.
Við fórum með hana til dýralæknis
sem sagði að hún hefði auðsjáanlega
verið pínd líka. Við skiljum ekki aö
einhver geti framið svona óþokka-
verk,“ sögðu þau Jórunn Thorlacius
og Sigtryggur Guðmundsson á heim-
ili sínu í Hjaltabakka í samtali við
DV eftir að hafa endurheimt heimil-
isköttinn sem þau höíðu saknað í
tvær vikur.
„Mjása haföi greinilega verið tjóðr-
uð föst einhvers staðar. Auk þess er
skottið illa farið - það er þó ekki brot-
ið. Snærið hafði hún nagað í sundur
en lykkjuna um hálsinn, tókst henni
ekki að losa af sér. Það var margfald-
ur hnútur á snærinu sem herti mjög
að hálsinum. Lykkjan var ótrúlega
þröng. Það var hræðilegt að sjá hana
þegar hún kom aftur. Ungu hjónin
fundu okkur vegna þess að Mjása var
merkt. Annars hefði ekkert verið
hægt að fara með hana nema á Dýra-
spítalann þar sem hún hefði senni-
lega verið svæfð,“ sögðu Jórunn og
Sigtryggur.
„Mjása var alsæl þegar hún kom
aftur. Þó hún sé kraftlítil er hún allt-
af utan í ökkur. Hún hafði greinilega
ekkert fengið að éta og ég veit ekki
hvað hún heföi getað lifað lengi í við-
bót. Hún drakk og drakk þegar hún
kom aftur og viö urðum aö passa
okkur á því að hún fengi ekki of
mikið," sagöi Sigtryggur.
Jórunn sagði að Mjása hrykki
stundum veinandi upp úr svefni eftir
þessa hræðilegu meðferö. Mjása fékk
sprautu hjá dýralækni og pillur fær
hún síðan með matnum sínum. Hún
er nú óðum að ná sér.
Þegar Jórunn og Sigtryggur fengu
Mjásu fyrst sem nýfæddan kettling
hafði hún verið hirt upp ásamt
tveimur öðrum kettlingum einhvers
staðar í Holtunum. Kona hafði fund-
ið Mjásu eina lifandi - hinir kettling-
arnir höfðu frosið í hel. Konan fór
meö Mjásu á skrifstofu DV í Þver-
holti. Þaðan var þessum lífseiga ketti
komið þangað sem hann ér núna.
-ÓTT
Óvenjulegur matseðill:
Furðufiskar
besti matur
Togarinn Ýmir frá Hafnarfirði hef-
ur verið aö veiðum langt suður af
landinu. í trollið hafa komið nokkrir
fáséöir fiskar. Áhafnarmeðlimir
hirtu hluta þessara furöufiska. í gær-
kvöld voru þeir matreiddir í Café
Óperu. Fiskamir eru hver öörum
ljótari í útliti. Þeir heita trjónufiskur,
broddbakur, langhali og geirnefur
eöa álsnípa.
Blaöamaður DV og tveir aðrir
menn smökkuðu á fiskunum eftir að
matreiðslumenn hofðu farið höndum
um þá. Það var samdóma álit allra
að tveir fiskanna fengju falleinkunn.
í þeim flokki eru broddfiskur og geir-
nefur eða álsnípa. Þaö er ekki vitað
hvorrar tegundar fiskurinn er.
Trjónufiskurinn .þótti mjög góður
og fékk einkanir á bilinu 7 til 8. Lang-
halinn fékk sömu einkunn hjá öllum,
eöa 10. Hann reyndist vera hinn besti
matur. Langhalinn er til í einhverju
magni á íslandsmiðum. Hinir fisk-
arnir eru fátíðir.
Kötturinn Mjása heimt úr helju eftir að hafa verið týnd i tvær vikur. Hún fannst með þrönga snærislykkju, sem sést
á myndinni, bundna um hálsinn. Einhver hafði tjóörað köttinn en honum greinilega tekist að naga bandið i sund-
ur. Lykkjuna, sem hertist að hálsinum, tókst Mjásu hins vegar ekki að losa. Þegar hún fannst í Elliðaárdalnum var
hún aðframkomin af máttleysi. Hún var merkt og tókst því að finna eigendurna. - sjá bls. 2 DV-mynd Hanna
Tíö eigendaskipti og gjaldþrot á matvörumarkaðnum:
Bakarar hafa tapað
30 til 50 milljónum
- á síöustu tveimur árum
„Það kom fram á félagsfundi hjá
okkur fyrir skömmu að bakarar
hafa tapað 30 til 50 milljónum
króna á síðustu árum vegna gjald-
þrota og eigendaskipta á matvöru-
verslunum. Nú virðist vera að
myndast samstaöa um að selja ekki
hverjum sem er brauö. Það hafa
ekki verið mynduð nein baráttu-
samtök um þetta heldur viröast
menn vera búnir að fá nóg,“ sagði
Ingólfur Sigurösson í Bakaríinu
Krás.
Ingólfur sagði aö vegna þess sem
á undan væri gengið væri nú svo
komið að Grundarkjör við Furu-
grund fengi engin brauð.
„Bakari seldi þeim brauð á
mánudag. Síðar voru nokkrir bak-
arar sem töluðu við þann mann og
bentu honum á, mjög vinsamlega,
hvernig staðan væri orðin á þessu
markaði. Það varð til þess að bak-
arinn hætti að selja þeim brauð.
Verslunin er enn innan sömu fiöl-
skyldu. Ég veit ekki hvað vanskil
Grundarkjörs eru mikil.
Það virðist loks vera að myndast
einhver hreyfing milli manna um
að reyna að sporna við þessu. Það
hefur stundum verið þannig að það
hafa verið þrír eigendur aö sömu
versluninni í einum og sama mán-
uðinum. Bakarar, og aðrir sem
selja þessum mönnum vörur, hafa
oft farið illa út úr þessu. Þetta hef-
ur verið lærdómsríkt fyrir þá sem
hafa staöið í þessu,“ sagði Ingólfur
Sigurðsson.
Ingólfur sagði að nú virtust menn
frekar vera á því að selja ekki
hverjum sem er brauð, í von um
skyndigróöa. Þá sagði Ingólfur aö
mörg bakarí hefðu nánast orðið
gjaldþrota vegna þess mikla taps
sem hefur orðiö vegna gjaldþrota
og eigendaskipta á matvörumark-
aðnum. -sme
-sme