Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1990, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1990, Side 3
FIMMTUDAGUR 10. MÁ! 1990. 3 Fréttir Deilan hja Aðalverktökum: Snýst ekki um peninga Þjóðarþotan: Öll gögn um þotuna týnd í samningi milli ríkissjóðs og Atlanta hf. um kaup félagsins á þjóðarþotunni var ákveðinn tveggja mánaða frestur á af- hendingu. Það var gert til að Atl- anta gæfist kostur á sem hag- stæðustum íjármögnunarleiðum. Þotan var seld á 7,1 milljón Bandaríkjadala. Kaupverðið var miðað við staðgreiðslu. Atlanta hefur lent í vandræðum með fjármögnun þar sem skoðun- ar og viðhaldsgögn þotunnar finnast hvergi - hvorki hjá Arn- arflugi né fyrri eigendum. í fréttatilkynningu frá fjár- málaráðuneytinu segir að verið sé að rannsaka nákvæmlega hvar gögnin eru niðurkomin vegna þess að möguleikar Atlanta til hagstæðrar fjármögnunar eru meðal annars komnir undir því að upplýsingar um sögu vélar- innar og ástand á hveijum tíma séu sem traustastar. Afhending- arfrestur hefur verið framlengd- ur þar til þetta mál er upplýst, og þar með greiðsla kaupverðs, þar sem áðurnefndur gagnas- kortur er ekki á ábyrgð kaup- anda. Fjármálaráðuneytið vill taka fram að samskiptin við Atlanta hafi verið góð og að fyrirtækið hafi staðið fyllilega við sinn hlua og greitt á réttum og tilskildum tíma. Við undirskrift samningsins greiddi Atlanta 150.000 dah - sem samsvarar 9 milljónum króna. Þar til vélin verður afhent greiðir félagið 7,2 mUljónir á mánuði vegnadráttarins. -sme Skagaströnd: Fimm listar Þórhallui Ásmundsson, DV, Norðl. v.: Fimm Ustaframboö komu fram til hreppsnefndarkosninganna á Skagaströnd 26. maí. Sex efstu sætin á Ustunum skipa: A-Usti Alþýðuflokks: 1. Þor- valdur Skaftason sjómaður 2. Gunnar H. Stefánsson verkamað- ur 3. Guðmunda Sigurbrands- dóttir verslunarmaður 4. Dóra Sveinbjörnsdóttir húsvörður 5. Jóhanna Lára Jónsdóttir versl- unarmaður og 6. Kristín Krist- mundsdóttir starfsstúlka. B-listi Framsóknarflokks: 1. Magnús B. Jónsson bankamaður 2. Sigríður Gestsdóttir húsmóðir 3. Guðjón Guðjónsson stýrimað- ur 4. Kristín Hrönn Árnadóttir húsmóðir 5. Sigrún Guðmunds- dóttir húsmóðir og 6. Einar Hauk- ur Arason húsvörður. D-Usti Sjálfstæðisflokks: 1. Adolf Berndsen umboðsmaður 2. Elín Jónsdóttir bankamaður 3. Kári Lárusson skipasmíðameist- ari 4. Steinunn Steindórsdóttir skrifstofumaður 5. Þórey Jóns- dóttir húsmóðir og 6. Björn Ingi Óskarsson verkamaður. G-listi Alþýðubandalags: 1. Ingibjörg Kristinsdóttir skrif- stofumaöur 2. Björgvin Karlsson vélfræðingur 3. Súsanna Þór- haUsdóttir verkakona 4. Eðvarð HaUgrímsson húsasmíðameistari 5. Guðný Björnsdóttir verkakona og 6. Þór Arason húsasmiður. H-Usti framfarasinnaðra borg- ara: 1. Sveinn Ingólfsson fram- kvæmdastjóri 2. Páll Leó Jónsson skólastjóri 3. Steindór R. Haralds- son framleiðslustjóri 4. Sveinn Ingi Grímsson verkamaður 5. Þorgeir Jónsson eftirhtsmaður og 6. Pálfríður Bjamadóttir hús- móðir. „Það er ekki rétt að viö séum að fara fram á hærri laun eins og mátti skUja af starfsmannastjóranum," sagði Jón Halldórsson, trúnaöar- maður vinnvélstjóra hjá íslenskum aðalverktökum. Eins og kom fram í DV á þriðjudag eiga vinnuvélstjórar og íslenskir að- alverktakar í vinnudeilu. „Þetta snýst um samning sem var gerður milli iðnaðarmanna og Aðal- verktaka. Þeir taka enga kafTitíma og hálftíma í mat. Á móti hætta þeir að vinna klukkan fimm í stað sex. Við vildum fá sams konar samninga en því var hafnað. Þó starfsmanna- stjórinn segi aö fyrirtækið hafi aldrei þolað deilu eins vel og nú þá vitum við að það er ekki rétt. Þeir eru á eftir áætlunum með verk og það Ugg- ur mikið á að klára ýms verk hér,“ sagði Jón Halldórsson. Vinnuvélstjórar hafa neitað að vinna eftir klukkan sex á daginn - og eins um helgar. -sme Síðasti pöntunardagur í næsta hluta nýs ríkissamnings til kaupa á Macintosh tölvubúnaði með verulegum afslætti er é Apple-umboðið Radíóbúðin hf. Innkaupastofnun ríkisins

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.