Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1990, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 1990.
5
Fréttir
Ný skýrsla landlæknis og meðferðarsamtaka um dæmigerð tilfelli:
Fíkniefnaneytandi kostar
vel á aðra milljón á ári
- kostnaðurinn er hóflega reiknaður, segir yfirmaður fíkniefnadeildar
Aætlaður kostnaður þjóðfélagsins
á hvern virkan fíkniefnaneytanda
nemur um 1,3 milljórium króna á
ári, samkvæmt nýjum útreikningum
frá Landlæknisembættinu og með-
ferðarsamtökunum Krossgötum.
Arnar Jensson, yfirmaður fíkniefna-
deildar lögreglunnar, segir þessar
tölur endurspegla niðurstöður úr
skýrslutökum vegna skjólstæðinga
fíkniefnadeildarinnar. Hann telur þó
hóflega farið í þessa útreikninga.
Magnús Gunnarsson hjá Kross-
götum hefur haft forgöngu í því að
vinna nýútkomna skýrslu ásamt
landlækni. Þriggja ára ferill eitur-
lyfjaneytanda er skoðaöur. og kostn-
aður hins opinbera reiknaður út. Þar
kemur fram að lágt reiknað sé áætl-
aður kostnaður vegna dæmigerðs
fíkniefnaneytanda tæparfjórar millj-
ónir króna á þremur árum. Að sögn
landlæknis má frá þessum tölum
álykta að töluverðum fjármunum
megi verja til að koma í veg fyrir slík-
an feril og endurhæfa þá er hafa orð-
ið vímuefnum að bráð.
í skýrslunni er tekið dæmi um
ákveðið dæmi eins neytandá og selj-
anda. Þar kemur fram að kostnaður
vegna vímuefnameðferðar og sjúkra-
hússdvalar var aðeins um 250 þús-
und krónur en aðstoð frá Félags-
málastofnun nam 155 þúsundum.
Dvöl í fangelsi í sjö mánuði kostaði
þjóðfélagið rúma eina og hálfa millj-
ón, önnur fjárhagsaðstoð var um 600
þúsund og vangoldin opinber gjöld
ásamt öðrum skuldum voru um 200
þúsund krónur. Tjón vegna stolinna
verðmæta og ávísanafals kostaði
aðra um 130 þúsund. Þetta eru sam-
tals tæpar þrjár milljónir. Kostnað-
artölur vegna auðgunarbrota eru
mjög hóflega áætlaðar þar sem sann-
að er að fíkniefnaneyslu tengjast
verulega mörg afbrot til að fjár-
magna fíkniefnakaup.
Töpuð vinnulaun, sem telst fram-
leiðslutap, eru reiknuð á röskar 1,6
milljónir á þremur árum. Þessu til
frádráttar eru 600 þúsund krónur
sem neytandinn varði til áfengis-
kaupa og greiddi því til ríkisins. Út-
koman verður því 3,9 milljónir, sem
fíkniefnaneytandinn kostar þjóðfé-
lagiö. Undanskilið í útreikningunum
eru kostnaðarþættir vegna dóms- og
löggæslu og sjúkrasamlagskostnað-
ar. Ofan á bætist það tjón sem ein-
staklingurinn hefur valdið öðrum
ungmennum með innfíutningi og
sölu á fíkniefnum - en það vérður
ekki metið til fjár.
Magnús Gunnarsson er forstöðu-
maður samtakanna Krossgötur en
það er sjálfseignarstofnun sem sér
um rekstur og fjáröflun áfangaheim-
ilis Krossins. Magnús sagði í samtali
við DV að tíu einstaklingum væri
hjálpað á ári í svokallaðri eftirmeð-
ferð - að lokinni dvöl hjá SÁÁ. Land-
læknir og forvarnarfulltrúar lögregl-
unnar telja samtökin spara þjóðfé-
laginu margar milljónir á ári. Sam-
tökin hafa þrisvar sinnum óskað eft-
ir að komast inn á fjárlög ríkisins en
þeim óskum hefur aldrei verið svar-
gð.
-ÓTT
Breiðafjarðarferjan Baldur við bryggju í Stykkishólmi.
DV-myndir Valdimar
Koma nýju BreiöaQaröarferjunnar Baldurs:
Gjörbreytir
samgöngum
við Vestfirði
Valdimar Hreiðarsson, DV, Stykkishólmi:
Það var dagurinn langþráði er nýi
Baldur kom til Stykkishólms. Bær-
inn skartaði sínu fegursta, fánar
voru dregnir að hún og bæjarbúar
fjölmenntu niður að höfn til að fagna
nýja skipinu. Veðurguðirnir virtust
samfagna bæjarbúum því að þetta
var einn fegursti dagurinn sem hér
hefur komið í langan tíma.
í ræðu sem bæjarstjórinn, Sturla
Böðvarsson, hélt við móttöku ferj-
unnar kom m.a. fram að koma Bald-
urs markaði nýjan tíma í flutningum
og ferðum á Breiðafirði og táknaði
það að Stykkishólmur yrði enn þýð-
ingarmeiri sem samgöngumiðstöð.
Hann lýsti því að bæjarbúar og stjórn
bæjarins hefðu trú á þessu fyrir-
tæki, sem gjörbreytti samgöngum
við Vestfirði, og þvi hefði verið ráðist
í kostnaðarsama hafnargerð sem var
nauðsynleg til að ferjan gæti athafn-
að sig hér í Stykkishólmi. Ferða-
mannaþjónusta hefur verið mjög
vaxandi hér og er Baldur mikilvægur
liður í þeirri uppbyggingu sem tengir
Vesturland og Vestfirði. Þess er að
vænta að samstarf muni aukast milli
þessara landshluta sem nú tengjast
með nýrri ferju sem gjörbreytir allri
aðstöðu fyrir ferðamenn jafnt sem
þá sem sinna vöruflutningum á
landi.
Alþjóðleg f rímerkjasýning á Dalvík
Geir A. Guðsteinsson, DV, Dalvflc
Nýlega var opnuð í íþróttahúsinu á
Dalvík alþjóðleg frímerkjasýning
sem bar heitið Dalsýn 1990.
Að sýningunni stóð AKKA, félag
frímerkjasafnara á Dalvík og ná-
grenni. Þetta er stærsta frímerkja-
sýningin, sem haldin hefur verið hér
á landi, þegar frá er talin alþjóðleg
frímerkjasýning sem bar heitið
NORDIA1984 sem var haldin í Laug-
ardalshöOinni í Reykjavík.
Sýnendur voru milli 40 og 50, bæði
innlendir og erlendir og rammafjöldi
nálægt 190. Sýningin skiptist í heið-
ursdeild, kynningardeild og sam-
keppnisdeild. Sýningardagana var
opið pósthús og þar notaður sérstak-
ur póststimpill sem tengdist sýning-
unni. Á laugardag var landsþing LÍF,
landssambands ísl.frímerkj asafnara,
haldið og var Hálfdán Helgason
Reykjavík kjörinn formaður samtak-
anna.
Leiðrétting við Kosningar í Neskaupstað
Smári Geirsson, sem skipar efsta tali viö Smára. í viðtalinu stóð; „Við \jera slæm.“ Smári Geirsson er beð-
sæti framboðslista Alþýðubanda- skuldum of mikið án þess að staðan inn velvirðingar á þessum mistökum
lagsins í Neskaupstað, hefur óskað sé fjarri því að vera slæm.“ Rétt er blaðamanns.
eftir að leiðrétt verði mistök sem setningin á þessa leið: „Við skuldum -sme
blaðamaður gerði við frágang á við- of mikið þó staðan sé fjarri því að
PANOSONK
OPEN
1990
VERÐUR HALDIÐ 12. MAÍ Á HVALEYRARVELLI
KEPPNISFYRIRKOMULAG:
Stableford punktakeppni (7/8)
1. VERÐLAUN:
Panasonic SG-HM10 hljómtækjasamstæða
2. VERÐLAUN:
Panasonic KXT-2386 sími með símsvara
3. VERÐLAUN:
RXF-T500 ferðaútvarp með tvöföldu kassettutæki
Fyrir að vera næslur holu á 6., 11., 14., 16 og 17 braut
6. braut: Panasonic RF-502 ferðaútvarpstæki
11. braut: RF-502 ferðaútvarpstæki
14. braut: ES-862 rakvél
16. braut: RF-1630 ferðaútvarpstæki
17. braut: KXT-2342 sími
Aukaverðlaun fyrir að fara holu i höggi á 17. braut:
Panasonic NV-MC20 fullkomin videomyndavél fyrir golfara.
Ræst verður út frá kl. 08.00.
w
Skráning og upplýsingar verða föstudaginn 11
skálanum, simi 53360.
mai i
o
JAPIS HF. - PANASONIC - HEKLA HF. - GOLFKLÚBBURINN KEILIR