Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1990, Síða 9
FÍMMTUDÁGUR 10. MaÍ 19£
g
9
Útlönd
Frá mótmælum stúdenta í Kína á síðasta ári en nú hefur 211 mönnum
verið sleppt. Símamynd Reuter
Andófsmenn
leystir úr haldi
Kínversk stjórnvöld tilkynntu í
dag að þau hefðu sleppt 211 mönnum
úr fangelsi, þ. á m. þekktum andófs-
mönnum sem handteknir voru fyrir
að hafa tekið þátt í lýðræðishreyfing-
unni á síðasta ári.
Kínverska fréttastofan sagði að
fangarnir hefðu fengið væga meðferð
og fengið frelsi sitt aftur þegar rann-
sókn var lokið en hún varaði jafn-
framt við því að þeim yrði harðlega
refsað ef þeir héídu áfram að haga
sér illa og sæju ekki að sér.
Vestræn mannréttindasamtök
áætla að þúsundir manna hafi verið
fangelsaðar þegar yfirvöld hófu her-
ferð til að finna gagnbyltingarsinna
eftir atburðina í júní á síðasta ári.
Nokkrum leiðtogum lýðræðis-
hreyfingarinnar tókst að flýja frá
Kína og komast til landa eins og
Bandaríkjanna, Frakklands og ann-
arra vestrænna landa. Nafn aðalleið-
toga lýðræðishreyfingar stúdenta,
Wang Dan, var ekki meðal þeirra
sem látnir voru lausir og er talið að
hann sé enn í fangelsi.
Talið er að með því að láta alla
þessa fanga lausa sé Kína að reyna
að ná sáttum aftur við vestrænar
þjóðir, sérstaklega Bandaríkin sem
munu innan mánaðar ákveða hvort
þau muni halda áfram að veita Kín-
verjum hagstæð viðskiptakjör. Ef
Bandaríkjamenn ákveða að gera það
ekki mun innflutningur á kínversk-
um vörum til Bandaríkjanna minnka
talsvert vegna viðskiptahindrana.
Reuter
Stjórnmálakreppa
á ný í Færeyjum
Sveiney Sverrisdóttir, DV, Færeyjum;
Nú er aftur kominn skjálfti í sam-
starf stjórnarflokkanna í Færeyjum
vegna tillögu um breytingu á nýjum
lögum um skiptingu aflans.
Fyrr í vor voru samþykkt lög um
að frystihúsin skyldu fá ákveðið pró-
sentuhlutfall af aflanum.
Um mánaðamótin lagði þriggja
manna nefnd, sem í átti sæti sjávar-
útvegsráðherrann Jogvan I. Olsen
úr Sambandsflokknum, tillögu um
breytingu á lögunum sem felur í sér
að horfið verði núverandi skiptingu
en ákveðnum tonnafjölda úthlutað
til frystihúsanna í staðinn.
Pauli Ellefsen, formaður Sam-
bandsflokksins, eins af þremur
stjórnarflokkunum, krefst þess aö
tillagan verði dregin tilbaka. Óþarfi
er að segja að hann var einn helsti
hvatamaöur að lögunum frá því fyrr
í vor. Hinir stjórnarflokkarnir eru
ósamþykkir því að tillagan verði
dregin til baka og hótar Pauli Ellefs-
en því nú að Sambandsflokkurinn
muni slíta stjórnarsamstarfinu.
Ekki er víst að hægt verði að taka
málið fyrir áður en þingi verður sht-
ið því að tillagan er ekki tilbúin. Þing
kemur næst saman á Ólafsvöku, um
mánaðamótin júlí/ágúst.
Lögmaður Færeyja, Jogvan Sund-
stein, hefur boðað fund með for-
mönnum stjórnarflokkanna til að
reyna að leysa deiluna.
Ágreiningur
einkenndi
hátíðahöldin
Sovéski herinn hélt í gær upp á
uppgjöf Þjóðverja í síðari heimsstyrj-
öldinni en hátíðahöldin einkenndust
þó af þeim deilum sem snúist hafa
kringum herinn.
Ágreiningurinn kom greinilega
fram í ræðu varnarmálaráðherrans,
Dmitri Jazovs, á Rauða torginu í
Moskvu. Annars vegar minntist
hann á þá hættu sem væri yfirvof-
andi en hins vegar þörfina á breyt-
ingum innan hersins. Ráðherrann
sagði hernaðarlega hættu enn vera
yfirvofandi og að Sovétríkin þyrftu
að varðveita herstyrk sinn en tók það
jafnframt fram að mikil og jákvæð
breyting hefði orðið í alþjóðlegum
samskiptum.
Það þótti greinilegt að Jazov var
að reyna að fara milliveginn. Heyrst
hafa háværar gagnrýnisraddir vegna
aukinna hemaðarútgjalda en innan
hersins gætir einnig óánægju með
umbótastefnuna í Sovétríkjunum.
Síðast um helgina kom það greini-
lega fram á fundi gamalla herfor-
ingja og Sovétleiðtogans að óánægja
ríkir með umbótastefnuna. En þrátt
fyrir það lagði Gorbatsjov á það
áherslu í fyrradag, daginn fyrir her-
sýninguna á Rauða torginu, að her-
inn gæti ekki látið sig engu skipta
þær umbætur sem boðaðar hafa ver-
ið í þjóðfélaginu.
Sjálf hersýningin tók aðeins hálfa
klukkustund og var hún frábrugðin
öðrum hersýningum 10. maí í Sovét-
ríkjunum að því leyti að engir gaml-
ir hermenn gengu yfir torgið. Mest
bar á þeim brynvörðu herbílum sem
taldir eru gegna mikilvægu hlut-
verki. En einnig mátti sjá herbíla frá
tímum seinni heimsstyrjaldarinnar.
í sjónvarpsútsendingu af hersýn-
ingunni var nokkrum sinnum
Stillum hraða í hóf
og HUGSUM FRAM
Á VEGINN!
yUMFERÐAR
RAÐ
HÁMARKSGREIÐSLUR
vegna sérfræðilæknishjálpar
Frá 1. maí 1990 til ársloka skulu hámarksgreiðslur sjúkra-
tryggðra, armarra en elli- og örorkulífeyrisþega, vegna
sérfræðilæknishjálpar, röntgengreininga og rannsólma,
miðast við kr. 8.000.
Gegn framvísun kvittana fyrir greiðslum þessum hjá skrif-
stofu Tryggingastofnunar ríkisins, Tryggvagötu 28,
Reykjavík, fá sjúkratryggðir skírteini, sem undanþiggja
þá frekari greiðslum til áramóta.
Kvittanirnar skulu auk nafns útgefanda bera með sér teg-
und þjónustu, fjárhæð, greiðsludag, nafn og kennitölu
hins sjúkratryggða.
Tryggmgastofnun ríkisins.
Sovéskir hermenn ganga yfir Rauða torgið
ígær.
Moskvu á hersýningunni þar
Simamynd Reuter
minnst á þær væntingar sem menn
hafa vegpa fyrirhugaðs fundar Bush
Bandaríkjaforseta og Gorbatsjovs en
samtímis var bent á það að eldflaug-
ar og flugskeyti væru kjarninn í
vörnum Sovétríkjanna jafnvel þótt
aðstæðurnar væru breyttar.
Hátíðahöldin í gær veittu Rauða
hemum ágætt tækifæri til að láta í
ljósi skoðanir sínar á ríkjandi
ástandi og vilja til umbóta. Á síðustu
árum hafa bæði ungir liösforingjar
og óbreyttir borgarar lýst yfir auk-
inni óánægju með aukin hernaðar-
umsvif. Kröfurnar um minni at-
vinnumennsku í hernum heyrast æ
oftar og óánægjan með aðbúnað her-
mannanna hefur breiðst út. Sífellt
fleiri liðsforingjar eru sagðir hafa
haft samband við þá róttæku þing-
menn sem lýst hafa eftir nýju hlut-
verki hersins. FNB