Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1990, Page 11
FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 1990.
11
Athugasemd við grein Páls Kr. Pálssonar:
samstarfsverkefni
Slitá
Nýlega birtist við hlið forystu-
greinar ritstjóra DV grein eftir for-
stjóra Iðntæknistofnunar íslands,
Pál Kr. Pálsson, um sjónarmið
hans og að því er virðist starfs-
manna stofnunarinnar vegna slita
á samstarfi milli Blönduósbæjar og
Iðntæknistofnunar um verkefnið
„Blönduós - ný atvinnutækifæri".
Þar sem í mörgu er hallað réttu
máli og undirrituðum gerðar upp
skoðanir er óhjákvæmilegt að
stinga niður penna og gera í stuttu
máh grein fyrir staðreyndum máls-
ins.
Aðdragandinn
Þann 12. júlí 1989 gerði ég sam-
komulag við kaupfélagsstjóra
Kaupfélags Húnvetninga um að
verja kr. 300.000 hvor aðili, bær og
kaupfélag til að heíja undirbúning
að fjölgun atvinnutækifæra í hér-
aðinu. Síðar gerðist verkalýðsfélag
Austur-Húnvetninga fjárhagslegur
ábyrgðaraðili að verkefninu og ná-
grannasveitarfélög lýstu vilja sín-
um til að standa að því.
Stefnumótun fram-
kvæmdarinnar
Með bréfi dags. 4. sept. 1989 gerði
fulltrúi Iðntæknistofnunar, sem
fenginn var til að veita verkefninu
forstöðu, grein fyrir því hvemig
hann vildi stilla upp verkefninu
sem hann nefndi „Blönduós - ný
atvinnutækifæri". Jafnframt lagði
hann fram kostnaðaráætlun vegna
verkþáttanna. Einnig tímaáætlun
hvers áfanga fyrir sig, þannig leit
dæmið út. 1. Undirbúningur og
kynning - Lokið 22.09.’89 - Kostn-
aður kr. 159.600.2. Upplýsingaöflun
og úrvinnsla - Lokið 24.11.’89 -
Kostnaður kr. 584.400. 3. Stefnu-
mótun - Lokið 15.01. '90 - Kostnaður
kr. 230.400. Veita átti 10% afslátt
kr. 97.440. Á verkið var lagður 12%
söluskattur. - Eða samtals kr.
973.368 til greiðslu. Þessi áætlun
var samþykkt enda féll hún að því
fjármagni sem var til ráðstöfunar.
Framkvæmdin
Vinna við 1. áfanga verkefnisins
fór vel af stað. Þegar leið á haustið
fóru að koma fram alls konar sjúk-
dómar á framkvæmdinni.
Kjallaiinn
Ófeigur Gestsson
bæjarstjóri
1. Tímaáætlun Iðntæknistofnunar
hrundi.
2. Lofuðum tímasettum viðtölum
við fulltrúa atvinnulífs var ekki
sinnt.
3. Fundir illa eða óundirbúnir og
ákvarðaðir fyrirvaralítið.
4. Fundur boðaður meö utanað-
komandi aðilum sem komu
langt að, á þann fund komu þrír
fulltrúar frá Iðntæknistofnun,
allt óundirbúið. Fundurinn ekki
skilgreindur fyrirfram hvorki
einstök verkefni hans eða mark-
miö (niðurstaða, væntingar).
Það er rangt hjá Páli Kr. ... að
þessi mál hafi ekki verið rædd.
Þau voru rædd ítarlega en
heimamönnum ofbauð.
Hér stóðu heimamenn frammi fyrir
því að greiða næsta áfanga, um 600
þús. Fleiri ómarkvissir fundir,
óundirbúnir. Hreinn tíma- og pen-
ingaaustur.
Fullt samráð var haft við þá aðila
í verkefnisstjórninni sem báru fjár-
hagslega ábyrgð á verkefninu, alla
ábyrgðaraðilana.
Það má einnig koma fram úr því á
annað borð kosið er að skattyrðast
á síðum DV, að gagnrýni og athuga-
semdir samstarfsaðilanna voru
ekkert síðri en mínar um fram-
gangsmáta verkefnisins af hálfu
Iðntæknistofnunar. Með bréfi Páls
Kr. til undirritaðs 23. feb. 1990 kem-
ur fram sú skoðun hans að röö
mistaka hafi valdið því að upp úr
samstarfmu slitnaði. Ekki var gerð
grein fyrir þeirri mistakaröð.
Gefið er í skyn að ein af ástæðunum
fyrir því að upp úr slitnaði, hafi
verið mismunandi skoöanir á því
hvers konar nýsköpún sé nauðsyn-
legt að leggja áherslu á, í fyrr-
nefndu bréfi eru mér gerðar upp
skoðanir og þær endurteknar í
grein Páls Kr. sl. fimmtudag. Þessi
skoðanatilbúningur forstjórans er
fráleitur og má honum vera það
fullljóst eftir að hafa lesið svarbréf
mitt til hans (sem áður er getið).
Þá er jafnfráleitt að halda því fram
að ólík sjónarmið um eflingu at-
vinnulífs hafi ráðið einhverjum
slitum verkefnisins því aðeins í
upphafi þessa verkefnis voru mín
sjónarmiö viðruð, þau eru þessi,
(komu fram í fyrrnefndu svar-
bréfi):
1. Efla skal það sem fyrir er.
2. Bæta skal við það sem fyrir er.
3. Kaupa inn fyrirtæki sé þess kost-
ur.
4. Leita nýrra tækifæra.
Þessi voru sjónarmið mín í upphafi
og eru enn.
Eftirmáli:
í niðurlagi greinarinnar 24. apríl
segir Páll Kr. að lítið hafi gerst í
áformum um aö efla ný atvinnu-
tækifæri á Blönduósi síðan sam-
starfsverkefninu var slitið og í
mydnatexta meö greininni segir.
„Lítið gert í að efla ný atvinnu-
tækifæri á Blönduósi”. Hér er sleg-
ið upp fullyrðingum af einstakri
óskammfeilni sem furðulegt er að
forstjóri Iðntæknistofnunar skuli
leyfa sér að láta frá sér fara. Þessi
ummæli bera vott um vanþekkingu
þess manns sem betur ætti að vita.
A.m.k. hlýtur myndatexti að vera
frá öðrum kominn.
Á Blönduósi hefur verið unnið
að margvíslegum verkefnum, bæði
fyrr og síðar. Einnig eftir að sam-
starfinu við Iðntæknistofnun var
slitið. Nei, fullyrðingar af þessu
tagi eru til þess að skemmta skratt-
anum, Páll minn, þær skila engum
árangri.
Niðurstaða
Forstjóri Iðntæknistofnunar ís-
lands, Páll Kr. Pálsson, býður til
samstarfs aö nýju á síðum DV, um
leiö gerir hann mönnum upp skoð-
anir og skrökvar til um meðferð
mála. Hér er skólabókardæmi um
það hvernig ekki á að standa að
málum. Ég læt málatilbúnað þenn-
an liggja milli hluta. Við skulum
horfa á það sem aðalatriöi aö boðið
er til samstarfs sé þess óskað af
hálfu heimamanna.
Þrátt fyrir ýmislegt sem betur
hefði mátt ósagt í títtnefndri
fimmtudagsgrein. eru heimamenn
tilbúnir aö taka málið upp að nýju,
að vísu er óeðlilegt að gera það á
síðum DV en úr því forstjórinn tel-
ur þaö heppilegan vettvang get ég
einnig sagt á þessum sömu síðum
að hann er velkominn til Blönduóss
að spjalla um atvinnumálaverkef-
nið, ekki fortíðina heldur framtíð-
ina.
Það skulum við gera yfir kaffi-
bolla með fulltrúa verkalýðsfélags
Austur-Húnvetninga og Kaupfé-
lags Húnvetninga. Ef til vill lítum
viö saman á fjölbreytt atvinnulíf
Blönduóss á eftir og veltum vöng-
um yfir aðgerðum sem til bóta
mega vera fyrir fyrirtæki og gott
mannlíf á Blönduósi. Vertu hjart-
anlega velkominn!
F.h. samstarfsaðila á Blönduósi,
Ófeigur Gestsson.
Lyktarlaus
hvítlaukur
Eina lyktarlausa
hvítlauksafurðin
með allicini.
Varist eftirlíkingar
©
ÍSLENSKA
VÖRUSALAN
BORGARTÚNI28-104 REYKJAVÍK
SlMI: 624522
Úrval
tímarit fyrir alla
„Hér stóðu heimamenn frammi fyrir
því að greiða næsta áfanga, um 600
þús. Fleiri ómarkvissir fundir, óundir-
búnir. Hreinn tíma- og peningaaustur.“
VÍSINDASTYRKIR
ATLANTSHAFSBANDALAGSINS 1990
Atlantshafsbandalagið leggur árlega fé af mörkum til
að styrkja unga vísindamenn til rannsókna eða náms-
dvalar við erlendar vísindastofnanir í aðildarríkjum
Atlantshafsbandalagsins á einhverjum eftirtalinna
sviða: Náttúruvísindum, líf- og læknisfræði, hug- og fé-
lagsvísindum og verkfræði.
Umsóknum um styrki af fé þessu - ,,Nato Science
Fellowships“ - skal komið til Vísindaráðs, Bárugötu 3,
101 Reykjavík, fyrir 10. júní nk. Þeim skulu fylgja stað-
fest afrit prófskírteina og meðmæla, svo og upplýsingar
um starfsferil og ritverkaskrá.
Umsóknareyðublöð fást hjá Vísindaráði, Bárugötu 3.
Afgreiðslutími þar er kl. 10-12 og kl. 14-16 daglega.
VINIMUSKÓLI
REYKJAVÍKUR
Vinnuskóli Reykjavíkur tekur til starfa í byrjun júní
nk. I skólann verða teknir unglingar fæddir 1975 og
1976 sem voru nemendur í 7. og 8. bekk grunn-
skóla Reykjavíkur skólaárið 1989-1990.
ERÐFRA
Hátalarar verð frá kr. 1.980,- stgr. parið.
Einnig kraftmagnarar og tónjafnarar á verði sem seint verður slegið út.
Umsóknareyðublöð fást í Ráðningarstofu Reykjavík-
urborgar, Borgartúni 3, sími 62 26 48 og skal um-
sóknum skilað þangað fyrir 18. maí nk.
Nauðsynlegt er að gefa upp kennitölu.
Vinnuskólinn býður ennfremur störf á Miklatúni fyrir
fatlaða einstaklinga sem þurfa mikinn stuðning í
starfi. Takmarkaður fjöldi í hóp.
VINNUSKÓLI REYKJAVÍKUR
SJÓNVÖRP, MYNDBANDS-, HLJÖMFUJTNINOS-, FIRÐA-, BÍLTJUQ O.FL.
Faxafeni 12, sfmi 670420