Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1990, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1990, Qupperneq 13
 FIMMTUDAGUR 10. MÁÍ 1990. 13 Þegar mjólkurbúðir lögðust at: Muna menn loforðin? Svava Guðmundsdóttir skrifar: í morgunútvarpi rásar 2 í morgun, föstud. 4. þ.m., var rætt við Magnús E. Finnsson um áfengisútsölu í mat- vöruverslunum. Taldi hann alla kosti við það fyrirkomulag. Og ekki myndi áfengið hækka í verði. Yrði til mikilla hagsbóta fyrir neytendur. Hann tók sem dæmi þegar mjólk- urbúðirnar voru lagðar niður og far- ið að selja mjólkina í matvöruversl- unum. Þetta var góð viðmiðun, eða hitt þó heldur! Muna neytendur ekki eftir öllum fögru loforðunum um að engar skyldu hækkanir verða við þá breytingu? -. Bara ef kaupmenn fengju mjólkina! En hvemig eru efndirnar? Starfs- menn Mjólkursamsölunnar aka allri mjólk til kaupmanna, bera hana inn í kæli og taka burt mjólk sem ekki hefur selst þannig að engan skaða bera kaupmenn. Allir sem kaupa mjólk verða að sækja hana sjálfir og oftar en ekki lengst eða innst í versl- unina svo að eitthvað annað verði nú keypt í búðinni. En ekki nóg með það. Álagningin er orðin allt of mikil, þrátt fyrir öll stóru loforðin. Hvemig væri að Ell- ert Schram ritstjóri skrifaði nú svo sem einn pistil um raunhæfan ágóða almennings af þessum „framförum“ sem hann barðist fyrir á sínum tíma á þingi? DV gæti svo gert könnun á verði til bænda þá og nú og hins veg- ar álagningu kaupmanna þá og nú. Kannski DV fyndi þá eitthvað já- kvætt fyrir bændur - svona rétt til tilbreytingar? Lesendasíða DV kannaöi þá hlið sem snýr að kaupmönnum. Hjá Kaup- mannasamtökum íslands varð fyrir svörum forstjórinn og sá aðih sem Magnaðir armbaugar Á. J. skrifar: Ég er alveg í sjöunda himni yflr segularmbandi eða „armbaug" sem ég keypti í Heilsuhúsinu í Kringlunni um daginn. Síðan ég fór að ganga með armbauginn um úlnhðinn hefur mér Uðið allt öðruvísi en áður, losn- aði við verki í öxlum og aftan á hálsi og hef verið sallaróleg og góð á taug- um þótt eitthvað hafi bjátað á. Það er áreiðanlega armbaugurinn, frekar en eitthvað annað sem hefur bætt heilsuna hjá mér því að t.d. sat ég nýlega næstum heilan dag við borð bograndi yfir vinnu sem ég þurfti nauðsynlega að ljúka við. Þetta hefur hingað -til verið alveg dæmi- gerð stelling til að fá hræðilegan axla- og hnakkaverk, jafnvel svo dögum skiptir. - En ég fann ekki fyrir neinu á eftir. Kunningjafólk mitt, sem keypti sín armbönd á Mallorca áður en farið var að selja þau hér, segir að þar fáist þau í hverju apóteki og bæði íbúarnir og ferðamenn viti um lækn- ingamáttinn. Mér finnst undarlegt að þetta skuli ekki vera betur kynnt hér. Margir eru stressaðir og með alls konar vöðva- og beinverki. Ef Lesendur Svava vitnar til í morgunútvarpi Rásar 2, Magnús E. Finnsson. í svari hans kom fram að álagning kaupmanna hefði einmitt lækkað miðað við það sem áður var þegar Mjólkursamsalan skammtaði sér 17%. Nú sé álagningin 12%. Þetta fyrirkomulag, að hafa mjólkina í al- mennum matvöruverslunum, sé til hagsbóta fyrir alla. Á sínum tíma ætlaði allt um koll að keyra vegna þessarar fyrirætlunar og töldu sumir að hér væri hið versta mál á ferð- inni, ætti jafnvel eftir að bitna á ung- börnum. Svo hafi þó farið að allir hafi löngu sæst á núverandi fyrir- komulag. Það skyldi þó ekki verða svipað uppi á teningnun ef farið væri að selja áfengt öl og létt vín í mat- vöruverslunum? eitt svona armband sem kostar kannski ekki nema um 3 þúsund krónur getur látið manni líða miklu betur því þá ekki að fá sér það? - Maður gleymir að taka pillur og gera æfingar en ef maður gengur alltaf með svona armband, og ef það leysir vandann, þá held ég að margir vildu gjarnan vita af þvi. Ég held að það séu nógu margir búnir að sannreyna hvað þau eru heilsubætandi til að hafa þau til sölu í hverju apóteki um allt land. 3 Olfufélagiðhf ADALFUNDUR Aðalfundur Olíufélagsins hf. verður haldinn á Hótel Sögu, Súlnasal, fimmtudaginn 17. maí 1990 kl. 14. DAGSKRÁ: 1. Fundarsetning. 2. Kosinn fundarstjóri og ritari fundarins. 3. Skýrsla stjórnar og framkvæmdastjóra um starf- semi félagsins s. I. starfsár. 4. Ársreikningar félagsins fyrir liðiö starfsár, ásamt skýringum endurskoðenda lagðir fram til sam- þykktar. 5. Tillögur stjórnar félagsins um arð fyrir árið 1989. 6. Ákveðin þóknun til stjórnar félagsins og endur- skoðenda. 7. Tillaga félagsstjórnar um útgáfu jöfnunar- hlutabréfa. 8. Stjórnarkosning. 9. Kosning endurskoðenda. 10. Önnur mál. LÍF í TUSKUNUM MEÐ OHusqvarna PRISMA 1100 ER HREINT ÓTRÚLEG SAUMAVÉL liiilll Kynnum í Ikea, Kringlunni, nýjasta tækni- undur Husqvarna, Prisma 1100 sauma- tölvuna. ©Husqvarna meira en venjuleg saumavél Söluumboð i Reykjavik Gunnar Ásgeirsson hf. Suðurlandsbraut 16 Umboðsmenn um allt land HEILDVERSLUNIN VOLUSTEINNhf SUÐURLANDSBRAUT 16 SfMAR 30380 og 39135

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.