Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1990, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1990, Side 15
FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 1990. 15 Fyrirheit í ferðaþjónustu 2. maí sl. birtist hér í DV grein eftir undirritaða þar sem raktir voru ókostir álvers, sem því miður virðist eina úrræði stjórnvalda í uppbyggingu atvinnu hér á landi. Landsmenn verða að skoða hug sinn rækilega um það hvort þeir vilja kaupa lítils háttar aukningu hagvaxtar því verði sem stóriðja kostar. Er það tilvinnandi að fá yfir sig stórauknar erlendar skuld- ir, skyndilega þenslu í efnahagslíf- inu, röskun á vinnumapkaðinum, úlfúð milli landshluta og umhverf- ismengun? 10 milljaröa tekjur af ferðamönnum í áróðri fyrir álverinu er sífellt vitnað í skýrslur, þar sem spáð er auknum hagvexti, meiri kaupmætti og minna atvinnuleysi en ella, ef ekkert yrði úr álveri. Engu er hins vegar spáð um árangur, ef hugað væri að öðrum atvinnukostum. Ein vænlegasta atvinnugrein okk- ar nú er ferðaþjónusta, sem hefur vaxið ótrúlega og skilaö nálægt 10% af gjaldeyristekjum okkar á síðasta ári. Beinar tekjur af ferðamönnum voru á þvi ári áætlaðar um 10 millj- arðar og má með gildum rökum fullyrða að unnt væri að tvöfalda þær tekjur með markvissri upp- byggingu án þess að oíbjóða þoh landsins, ef rétt væri að staðið. 123% aukning ársverka Fjöldi erlendra ferðamanna hér á landi hefur vaxið geysilega á síðari árum og íslendingar sjálflr ferðast æ meira um eigiö land, sem ekki er síður gleðilegt. Á síðasta ári komu um 131 þúsund útlendingar hingað til lands, sem er um 82% aukning frá 1981. Öllu merkilegri staðreynd er þó hvernig og hvar þessi aukning ferðamanna hefur nýst lands- Kjallarinn Kristín Halidórsdóttir starfskona Kvennalistans mönnum. Samkvæmt heimildum Hagstofu íslands voru skráð 554 ársverk viö hótel- og veitingarekst- ur á landsbyggðinni árið 1981 en áriö 1987 voru þau orðin 1237. Á höfuðborgarsvæðinu voru þau tal- in 1450 árið 1981 en árið 1987 voru þau talin 1998. Þannig hefur aukn- ing ársverka á landsbyggðinni orð- ið um 123% í þessum greinum á árunum 1981-1987 en 38% á sama tíma á höfuðborgarsvæðinu. Ferðaþjónusta styrkir landsbyggðina Þessi mikli vöxtur í hótel- og veit- ingarekstri á landsbyggðinni er enn merkilegri fyrir þá staðreynd að á sama árabili jókst heildarfjöldi ársverka aðeins um 13,4% utan höfuðborgarsvæðisins en innan þess um 27%. Þessi aukning hefur vitanlega einnig skilað sér í öðrum störfum tengdum ferðamennsku, svo sem í fólksflutningum, ferðaleiösögn, verslun og þjónustu af ýmsu tagi. Ferðaþjónusta bænda á ekki lít- inn þátt í þessari þróun, en þar hefur verið byggt upp af forsjálni og myndarskap, og er óhætt að full- yrða að fátt hefur skilað sér betur til mótvægis við samdráttinn í hefðbundnum búgreinum. Vægi ferðaþjónustu á lands- byggðinni er því umtalsvert og mikilvægt að ráðamenn, bæði í sveitarstjómum og landsstjórn, átti sig vel á fyrrgreindum stað- reyndum. Framsýn og arðbær fjárfesting Vissulega þarf að fara að öllu meö gát í þessu efni sem öðrum. Aukin ferðamennska hefur þegar markað sín spor í landinu. Vaxandi umferð veldur átroðningi og jafnvel land- spjöllum, þegar verst lætur, og svo er nú komið að nokkrir fjölsóttir staðir hggja undir skemmdum. Slíkum stöðum gæti hreinlega þurft að loka eða telja inn á þá, nema gerðar verði þær ráðstafanir sem hindrað geti spjöll af völdum ferðamanna. Á öllum sviðum umhverfismála er mjög brýnt að taka duglega til hendinni. Um það þarf þjóðarsátt og þjóðarátak. Kostnaður við slíkt átak og viðhald þess yrði aðeins lítið brot af því sem uppbygging stóriðju mundi kosta. Raunar má fullyrða að myndar- legt átak í umhverfismálum um allt land væri arðbærari og fram- sýnni fjárfesting en margt það sem menn kasta hundruðum milljóna í undir merkjum byggðastefnu. Af öðrum verkefnum til upp- byggingar ferðaþjónustu má nefna aukna og samræmda menntun starfsfólks í ferðaþjónustu, aukna öflun og miðlun upplýsinga og ráð- gjöf fyrir þá sem vilja hasla sér völl í þessari grein. Á öllum þessum sviðum er mikið verk óunnið, en ástandinu mætti gjörbreyta ef stjórnvöld leyfðu lög- boðnum tekjustofni aö renna óskertum til ferðamála. Því miður hefur skammsýnin ráðiö ferðinni til þessa. Ævintýri og svaðil- farir óskast Margt bendir til að þróunin í ferðamennsku sé íslandi í hag. Við getum aldrei keppt við önnur lönd um hylli sóldýrkenda né áhuga þeirra sem vilja líta markverð mannanna verk. Nú er hins vegar vaxandi áhugi á einhverju óvenju- legu og ævintýralegu, jafnvel hæfi- legum svaðilfórum. Og í heimi vax- andi mengunar er íslenskt um- hverfi ómetanlegt. Vandinn er að varðveita það og bæta fyrir þau spjöll sem orðin eru. Það þurfum við að .gera áður en við förum að kynna landið sem ímynd hrein- leika og umhverfisverndar. Við eigum einnig mikla mögu- leika ónýtta á sviði heilsuræktar þar sem hitinn í iðrum jarðar er sú auðlind sem sækja ber í. Þar er fólginn helsti möguleikinn til upp- byggingar sem getur nýst á öllum tímum ársins. Óskiljanlegt áhugaleysi Ferðaþjónustan hefur svo marga kosti að áhugaleysi ráðamanna um uppbyggingu hennar er óskiljan- legt. I raun hafa stjórnvöld hindrað eðlilega uppbyggingu á ýmsan máta, ekki aðeins með árvissum niðurskurði lögboðins tekjustofns til ferðamála, heldur einnig með óeðlilegri álagninu skatta. Flug- vallarskattur er hér geysilega hár, og matarskatturinn illræmdi ofan á hátt grundvallarverð matvöru hefur reynst veitingaþjónustunni þung byrði. Þrátt fyrir allt þetta hefur ferða- þjónustan dafnaö ótrúlega vel, og við hljótum að vera bjartsýn með tilliti til alls sem að framan er sagt. Ekki síst á það við um þá sem vilja vöxt og viðgang byggðar utan höf- uðborgarsvæðisins sem mestan. Aukning starfa í tengslum við ferðaþjónustu hefur nýst best á landsbyggðinni, einmitt þar sem hennar var frékast þörf, og ekki er síður mikilvægt að þessi störf dreif- ast nokkuö jafnt og vel um landið og valda því hvergi óheppilegri röskun. Loks má nefna að feröa- þjónustan býður upp á fjölmörg störf, sem henta konum vel, en óhjákvæmilegt er að taka tillit til þarfa kvenna þegar hugað er að uppbyggingu í atvinnulífinu. Samanburðurinn á uppbyggingu í ferðaþjónustu og stóriðjumálum er því allur ferðaþjónustu í hag. Kristín Halldórsdóttir „Við eigum einnig mikla möguleika ónýtta á sviði heilsuræktar, þar sem hitinn 1 iðrum jarðar er sú auðlind, sem sækja ber í.“ Hersetið land í hálfa öld Það var einmitt vordag þann 10. maí að sólin vék sér frá, rétt eins og hún blygðaðist sín fyrir órétt- læti heimsins. Hver veit nema hún hafi gert það, þessi lífgjafi okkar, því einmitt þá steig hér fyrst her á íslenska grund. Þaö var breski her- inn sem braut þann múr, þrátt fyr- ir yfirlýsta hlutleysisstefnu ís- lensku þjóðarinnar sem vildi hvergi nærri koma þeim hildarleik sem geisaði í Evrópu, En þar með var fótum troðinn sjálfsákvörðun- arréttur smáþjóðar. Alls kyns tólum, sem notuð eru í styrjöldum, var komið fyrir á ílestum stöðum landsins og fór þá hrollur um margan sem aldrei hafði séð slíkt áður. Hér voru ein- göngu Bretar til að byrja með en síðar einnig Bandaríkjamenn (frá 1941). Báðir þessir aðilar lofuðu að hverfa brott að styrjöld lokinni. Keflavíkursamningurinn Bretar fóru en Bandaríkjamenn höfðu engan veginn fengið nóg af vist sinni hér því áfram vildu þeir vera á þeim forsendum að þeir þyrftu að nota Keflavíkurflugvöll sem millilendingarstöð á leið sinni til Þýskalands og fengu það. Síðan árið 1945 fóru þessir sömu Banda- ríkjamenn fram á herstöðvar hér til 99 ára. Þessu var þá hafnað af ríkisstjóminni. En þar sem herhðið sat sem fastast settist uggur að landsmönn- um. Fjöldi félagasamtaka og fólk hvaöanæva af landinu krafðist þess KjaHaiinn Ástríður Karlsdóttir hjúkrunarfræðingur og i miðnefnd Samtaka herstöðvaandstæðinga að erlent herlið færi brott af landinu og engu erlendu ríki yrði veitt hernaðaraðstaða hér. Gegn vilja almennings var gerður hinn svokallaði Keflavíkursamningur þann 5. október 1946 eftir miklar deilur. Ríkisstjórnin gerði þann samning vafalaust vegna hótana stjórnvalda í Bandaríkjunum. í þeim samningi fólst m.a. að dulbúið herlið yrði næstu fimm ár á Keflavíkurflug- velh. Þar með var skrattanum rétt- ur litliputti en hann greip höndina alla því hermennirnir eru ekki farnir enn. Það skýtur því skökku við að þegar sjálfstæði íslands var viður- kennt 1918 lýsti það yfir ævarandi hlutleysi, auk þess vopnlaus þjóð. Hefur því margt farið á annan veg en ætlað var þegar þjóðin stóð sam- einuð í frelsisbaráttunni og menn litu vonglaðir fram á veginn. Fjöldi stjómmálamanna lofaði að aldrei skyldi erlendur her vera hér á friðartímum en orðið „friðar- tímar“ hafa þeir túlkað að eigin geðþótta. Síðar þann 30. mars 194S var samþykkt á Alþingi innganga íslands í. Atlantshafsbandalagið (NATÓ). Þótti þá sem vegið væri aftan að landsmönnum því að þjóð- „Fjöldi stjórnmálamanna lofaði að aldrei skyldi erlendur her vera hér á friðartímum, en orðið ,,friðartímar“ hafa þeir túlkað að eigin geðþótta.“ \ 1 \ 1 Wl ' 1 „Hér voru eingöngu Bretar til að byrja með en síðar einnig Bandaríkja- menn (frá 1941). Báðir þessir aðilar lofuðu að hverfa brott að styrjöld lokinni." - Hermenn á ferð í Reykjavik. in var aldrei spurð. Fleira fylgdi fast á eftir því vorið 1951 steig bandarískur her opinberlega á land og hefur hann hreiðrað um sig að vild síðan. Hermangsgróðinn Eftir á að hyggja, var ekki eitt- hvað að gerast hjá oddvitum lands- ins? Voru ekki bandarískir ráða- menn að kaupa sér landsréttindi hjá utanríkisráðherrum á þeim tíma allt til þessa dags? Það var engin tilviljun að sú rík- isstjórn, sem sat að völdum í byij- un landsölu, eygði gróðavon og kæmi málum sínum þannig fyrir að helstu fjáreigendaíjölskyldur, sem stofnuðu íslenska aðalverk- taka, fengu helmings eignarhluta að einokunarfyrirtækinu, þ.e.a.S. 50%, Reginn hf. 25% og síðan Ríkis- sjóður Islands 1/4 - 25% af fyrir- tækinu - til að baktryggja póhtíska stöðu eða heit þessara skríðandi kaupsýslumanna. Þar með var hersetan samofin keðja auðmagns og gróða = her- mangsgróða dælt inn í landið og ekki þarf að tíunda gjaldeyrisöfiun- ina. Allt of margir líta fram hjá þeirri áhættu sem landið tekur á sig með þessari skömm og þar með þeir landsmenn, sem vilja' ekki her- magnsgróða, og vita að Bandaríkja- menn eru ekki hér til að verja landið en hafa það sem víghreiður, sem þeir halda sífellt áfram að fylla í. Sá háski, sem fylgir hérvist hers- ins, mætti vekja menn til vitundar og væri vel ef hyer og einn lands- manna íhugaði þetta alvarlega mál. Víst hefur ryki verið kastað í augu fólks þegar talað er um vam- arhð. Þessir menn, sem hafa leyft her og helstefnu að ríöa yfir hvern landsfjórðung, skilja eftir sig ómælda mengun og drasl sem óvíst er að eyðist í tímanna rás og gæti orðið enn meira böl og þjóðinni dýrkeypt. Viljið þið einhver hafa herinn hálfa öld í viðbót þar sem niðjar ykkar þekkja ekki annað en her og helstefnu? Við íslendingar höfum lengi beðið eftir að verða sjálfstæð þjóð því að enn er th fólk, sem vih herlaust, hlutlaust, hreint land. Ástríður Karlsdóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.