Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1990, Blaðsíða 17
FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 1990.
25
Iþróttir
í morgun:
afa
ia“
teNieuws
itaborg i gærkvöldi. Símamynd/Reuter
yrði farið yfir, sama hver ætti í
hlut.
Þegar belgískir blaðamenn sögðu við
ítalska kollega sína í Gautaborg í gær
að hæst launuðu leikmenn í Belgíu
væru með um 16 miltjónir islenskra
króna í árslaun hlógu þeir ítölsku og
sögðu að það væri svipað og 2. deild-
ar félögin í þeirra heimalandi borg-
uðu!
Úrslitaleikurinn á Reykjavíkurmótinu í knattspyrnu
verður á gervigrasinu í Laugardal í kvöld kl. 20.30. Það eru
liö Fram og KR sem eigast viö í úrslitum og er þetta þriðja
árið í röð sem þessi félög mætast í úrslitum. KR-ingar hafa
haft betur í síðustu tvö skipti og unnið báðar viðureignirn-
ar. Fraraarar hafa leikið í úrslitum mótsins sex ár í röð.
Það er kærkomið tækifæri fyrir knattspymuáhugamenn
að fiölmenna á úrslitaleikinn í kvöld og fylgjast með fyrsta
stórleik ársins. Bæði liðin munu liklega tefla fram sínum
sterkustu leikmönnura að því undanskildu að Kristinn R.
Jónsson úr Fram er nefbrotinn.
-JKS
• Diego Maradona
sést hér puða á æf-
ingahjóli en hana
hefur lagt mikið á sig
undanfarnar vikur
við erfiðar æfingar
samfara ströngum
megrunarkúr. Hefur
streðið þegar skilað
miklum árangri og
kappinn lést um 8
kiló.
Simamynd/Reuter
en hann skoraði bæði mörk Sampdoria
Símamynd/Reuter
Sport-
stúfar
Kristján Bemburg, DV, Belgíu:
Amór Guðjohnsen er ekki eini
leikmaður Anderlecht sem kann-
ar þessa dagana hvað önnur félög
hafa upp á að bjóða. Daninn Hen-
rik Andersen er einnig að ljúka
samningi sínum við félagið og er
með tilboð frá Köln upp á vasann
og annað frá ónefndu frönsku
liði. Patrick Vervoort er með til-
boð frá Liege en vill helst komast
suður á bóginn.
Preud’homme yrði of dýr
Kristján Bemburg, DV, Belgíu:
KV Mechelen hefur sett 340
milljóna króna verðmiða á lands-
liðsmarkvörðinn Michael Preud-
’homme sem er talinn einn besti
markvörður heims í dag. Þetta
gerir félagið til vonar og vara ef
hann verður eftirsóttur að lok-
inni heimsmeistarakeppninni á
Ítalíu en öruggt ætti að vera að
hann seljist ekki á þessu verði.
Preud’homme segir sjálfur að það
sé enginn svo vitlaus að kaupa
31 árs gamlan markvörð fyrir
þessa upphæð og hann sé fyllilega
sáttur við að leika með Mechelen
næstu fjögur árin.
Félagi Sigurjóns lést
Kristján Bemburg, DV, Belgíu:
Patrick Vermeiren, sem lék við
hlið Sigurjóns Kristjánssonar
með FC Boom í belgísku 2. deild-
inni í knattspymu í vetur, lést í
bílslysi fyrr í vikunni. Vérmeiren
var 28 ára gamall og lék áður með
KV Mechelen og Antwerpen.
Standard græðir
Kristján Bemburg, DV, Belgíu:
Belgíska félagið Standard Liege
hefur hagnast vel á góðu gengi
ísraelska knattspyrnumannsins
Ronnie Rosenthal, sem það seldi
til Liverpool fyrir nokkrum vik-
um. Liverpool greiddi um 30
milljónir króna fyrir Rosenthal
og síðan átti sú tala að hækka við
hvert mark sem hann myndi
skora fyrir enska félagið - allt að
60 milljónum króna. Rosenthal
hefur verið mjög markheppinn í
ensku knattspyrnunni og er
kaupverðið þegar komið að há-
markinu og ljóst að Standard fær
60 milljónimar fyrir hann.
Detroit malaði Knicks
og Lakers tapaði
Meistarar Detroit Pistons tóku
New York Knicks í bakaríið í
úrslitakeppni bandarísku NBA-
deildarinnar í körfuknattleik í
fyrrinótt. Lokatölur urðu 112-77.
Staðan er 1-0 í einvígi liðanna.
Los Angeles Lakers tapaði hins
vegar fyrsta leik sínum gegn Pho-
enix Suns, 104-102, og Portland
lagði San Antonio Spurs öðru
sinni, nú 122-112.
Maradona eins og
úrbræddur Rolls Royce
- fyrir megrun sem skilað hefur miklum árangri
£
„Maradona er eins og gamall og úrbræddur Rolls Royce - en hann
mun ljúka keppnistímabilinu á glæsUegan hátt og verður konung-
ur heimsmeistarakeppninnar í sumar.“ Þetta sagði ítalski íþrótta-
læknirinn Antonio Dal Monte eftir að hafa kannað líkamsástand
argentínsku knattspymustjörnunnar síðari hluta vetrar.
Maradona leitaði til Dal Monte,
virtasta meiðslasérfræðings í ítölsku
knattspyrnunni, þar sem hann hafði
áhyggjur af þrálátum meiðslum og
aukakílóum. Dal Monte lagði fyrir
hann sérstaka æfingaáætlun, sem
Maradona hefur fylgt til hins ítrasta,
og árangurinn er þegar kominn í ljós.
Fyrri hlutinn
þegar kominn fram
Maradona lauk keppnistímabilinu á
glæsilegan hátt, lék snilldarlega í
lokaumferðunum þegar Napoli sigldi
fram úr AC Milan og tryggði sér ít-
alska meistaratitilinn. Breytingin
var augljós, hann hafði lést um átta
kíló frá því í mars og var ekki lengur
órakaður og áhyggjufullur á svip.
Svo virðist sem Maradona sé nú
kominn í sama form og í heimsmeist-
arakeppninni 1986 þegar hann átti
stærstan þátt í að færa Argentínu
heimsbikarinn. Hann er líka búinn
að vinna á ný hug og hjörtu knatt-
spyrnuáhugamanna í Napoli og þaö
kemur argentínska landsliðinu ör-
ugglega til góða þar sem það leikur
í Napoli í forriðli heimsmeistara-
keppninnar í sumar.
„Við urðum að byrja á að sýna
honum fram á að likamíi hans væri
þrátt fyrir allt tilbúinn í átökin og
sannfærðum hann um það með
nokkrum prófum. Æflngaáætlunin
miðaðist við aö koma Maradona í
nægilega gott form til að geta leikið
heilan leik af fullum krafti, auka
hraða hans og kraft. En það eina sem
ég gerði var að benda honum á hvað
hann gæti gert - afganginn sá hann
um sjálfur," segir Dal Monte. c
Ætlar að koma
Valdano í form
Dal Monte fæst þessa dagana við
annað verkefni sem gæti einnig kom-
ið argentínska landsliðinu til góða.
Hann er að reyna að koma hinum
34 ára gamla Jorge Valdano í form
til að geta leikið með Argentínu-
mönnum á Ítalíu í sumar. Valdano,
sem varð heimsmeistari 1986, hætti
að leika knattspyrnu fyrir þremur
árum en Carlos Bilardo, landsliðs-
þjálfari Argentínu, hvatti hann til að
reyna að vinna sér landsliðssæti á
ný.
„Valdano athyglisverðasta
verkefnið til þessa“
„Frá vísindalegu sjónarmiði er Vald-
ano athyglisverðasta verkefni sem
ég hef fengist við. Það verður krafta-
verk ef hann slær í gegn á nýjan
leik,“segirítalskilæknirinn. -VS