Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1990, Síða 26
34
FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 1990.
Afmæli
Guðmundur Jónsson
Guðmundur Jónsson óperu-
söngvari, Kvisthaga 14, Reykjavík,
er sjötugur í dag. Guðmundur er
fæddur í Reykjavík og ólst þar upp.
Hann lauk prófi frá VÍ1937 og var
í námi í verslunarskólanum WoodsÞ
College í Hull í Englandi 1937-1938.
Hann var í söngnámi hjá Pétri Á.
Jónssyni 1941-1943, söngskóla
Samoiloggs 1 Los Angeles 1943-1944
og 1945-1946, óperudeild Kungliga
Musikaliska Akademi'ens í Stokk-
hólmi 1947-1949, Og í Vín 1959-1960.
Guðmundur var fulltrúi í tónhstar-
deild ríkisútvarpsins 1954-1966 og
framkvæmdastjóri hljóðvarpsins
1966-1985. Guðmundur hefur um
áratuga skeið verið í hópi fremstu
og vinsælustu óperusöngvara hér á
landi en hann hefur fariö með á
fiórða tug hlutverka í óperum og
óperettum hjá Þjóðleikhúsinu og
íslensku óperunni, þ.á.m. titilhlut-
verk í fyrstu óperusýningu Þjóðleik-
hússins Rigoletto eftir Verdi 1951.
Auk þess hefur hann farið með ótal
önnur söng- og leikhlutverk á sviði
og í útvarpi og tekið þátt í miklum
Qölda tónleika, m.a. meö Karlakór
Reykjavíkur, innanlands og utan,
með Sinfóníuhljómsveit íslands,
Þjóðleikhúskórnum, Söngfélaginu
Hörpu og Söngsveitinni Fílharmón-
íu.
Fy rri kona Guðmundar var Þóra
Haraldsdóttir, f. 24. apríl 1925, d. 11.
júlí 1982. Foreldrar Þóru eru: Har-
aldur Þórðarson, stýrimaöur í Hafn-
arfirði og kona hans, Ástríður Ein-
arsdóttir. Guðmundur kvæntist síð-
an 3. september 1983, Elínu Sólveigu
Benediktsdóttur, f. 19. júní 1937, rit-
ara. Foreldrar Elínar eru: Benedikt
Jakobsson íþróttakennari sem er
látinn, og kona hans Vivian Svav-
arsdóttir. Guðmundur og Þóra eign-
uðust þrjú börn. Þau eru Ástríður
f. 30. mars 1947, kennari í Rvík og á
hún tvö börn, Þorvarður Jón f. 15.
september 1953, húsasmíöameistari
í Reykjavík, kvæntur Áslaugu Guð-
mundsdóttur og eiga þau tvö börn
og Halldóra f. 29. apríl 1958, húsmóð-
ir í Rvík, gift Mána Radmawesh og
eigaþauþijúböm.
Systkini Guðmundar: Steinunn
Bjarnason, ekkja í Reykjavík; Jón
Halldór, búsettur í Keflavík, kvænt-
ur Sofííu Karlsdóttur; Ragnheiöur,
búsett í Hafnarfirði, gift Olafi Páls-
syni; Gunnar, búsettur í Hafnar-
firði, kvæntur Elisu Wium og Þor-
varður sem er látinn.
Foreldrar Guðmundar voru Jón
Þorvarðarson, f. 7. mars 1890, kaup-
maður í Reykjavík, og kona hans,
Halldóra Guðmundsdóttir, f. 26.
september 1894. Jón er sonur Þor-
varöar, b. í Stóra-Gerði í Rvík Daní-
elssonar b. í Bráðræði á Akranesi
Þorsteinssonar b. í Arkarlæk í
Skilamannahreppi Daníelssonar b.
á Neðraseli í Stafholtstungum Jóns-
sonar biskups á Hólum Teitssonar.
Móðir Daníels Þorsteinssonar var
Sigríður Sigurðardóttir b. á Hrísum
Auðunssonar. Móðir Jóns var Ragn-
heiður Einarsdóttir b. í Nýjabæ í
Rvík Einarssonar b. á Bútsstöðum
í Seltjarnarneshreppi Einarssonar.
Halldóra er dóttir Guðmundar,
sjómanns á Sigurvöllum á Akranesi
Þorsteinssonar b. á Efraskarði Ól-
afssonar. Móðir Halldóru var Guð-
Guðmundur Jónsson.
rún Jónsdóttir b. á Bekansstöðum
Sigurðssonar b. í Katanesi Gríms-
sonar. Móðir Guðrúnar var Hall-
dóra Magnúsdóttir í Lambhúsum
Gunnarssonar b. á Litlaskúta á
Akranesi Vigfússonar.
Brynjólfur E. Ingólfsson
Brynjólfur Eiríkur Ingólfsson,
fyrrverandi ráðuneytisstjóri,
Miklubraut 18, Reykjavík er sjötug-
ur í dag. Brynjólfur Eiríkur er fædd-
ur á Vakursstöðum í Vopnafirði og
ólst upp á Seyðisfiröi. Hann lauk
lögfræðiprófi frá HÍ1947 og varð
hdl. 1952. Brynjólfur var fulltrúi í
samgönguráðuneytinu 1947-1958 og
starfaði einnig í viðskiptaráðuneyt-
inu 1947-1948. Hann var deildarstjóri
í samgöngu-og iðnaöarráðuneytinu
1958-1961 og ráðuneytissstjóri þar
1962-1970. Brynjólfur var ráðuneyt-
isstjóri í samgönguráðuneytinu
1970-1984. Hann var formaður veit-
ingalöggjafarnefndar 1949-1951 og í
flóabátanefnd 1951. Hann var ráðinn
ritari milliþinganefndar í sam-
göngumálum 1956-1958 og var vöru-
merkjaskrárritari 1962-1973. Bryn-
jólfur var formaður sparnaðar-
nefndar flugmála 1958, nefndar sem
samdi frumvarp til laga um verk-
stjóranámskeið 1958, endurskoðun-
arnefndar laga um lögskráningu
sjómanna 1959-1960, veitinganefnd-
ar 1961-1962, vegalagninganefndar
1960-1962, ferðamálalaganefndar
1962-1963 og 1972-1973, bygginga-
nefndar strandferðaskipa 1967-1972,
nefndar um samgöngumál Vest-
mannaeyja 1972 og bygginganefndar
Suðurlandshafna 1973-1974. Hann
sat í sérfræðinefnd Evrópuráðs um
einkalöggjöf 1955-1969, launasamn-
inganefnd ríkisins 1963-1984, samn-
inganefnd um byggingu og rekstur
álverksmiðju í Straumsvík 1965-
1967, byggingarnefnd Straumsvík-
urhafnar 1967-1974, samninganefnd
um flugréttindi íslendinga við Norð-
urlönd 1967-1971, Bandaríkin 1970
og Bretland 1971-1972. Hann var
skipaður af ríkisstjórninni í nóv.
1972 til þess að stjórna samvinnu-
viðræðum Flugfélags íslands og
Loftleiða sem lauk með sameiningu
félagannaí júlílok 1974. Brynjólfur
var einn fremsti afreksmaður á
landinu í 200-800 m hlaupum 1940-
1946. Hann var formaður Fijáls-
íþróttasambands íslands 1954-1960
og fararstjóri íslensku ílokkanna á
Evrópumeistaramót í frjálsum
íþróttum í Bem 1954 og Olympíu-
leikum í Róm 1960. Hann var rit-
stjóri íþróttablaðsins 1956-1957 og
meðritstjóri Árbókar fijálsíþrótta-
manna 1942-1943.
Brynjólfur kvæntist 31. desember
1947, Helgu Sigurðardóttur, f. 31.
júlí 1924, starfsmanni Bæjarsímans
í Rvík. Foreldrar Helgu voru: Sig-
urður K. Pálsson, verkstjóri í Rvík
og kona hans Jóhanna Einarsdóttir.
Börn Brynjólfs og Helgu eru: Sig-
urður Örn, f. 19. september 1947,
auglýsingateiknari í Rvík, kvæntur
Fjólu S. Rögnvaldsdóttur, mynd-
listakennara og eiga þau þrjú börn.
Eiríkur, f. 19. maí 1951, BA í ís-
lensku, kennari og rithöfundur í
Rvík, kvæntur Ingibjörgu Einars-
dóttur, hjúkrunarfræðingi, þau
skildu og eiga þau þrjú börn. ívar,
f. 13. maí 1960, ljósmyndari í Rvík,
er stundaði lista- og ljósmyndanám
í San Fransisco Art Institude og
Guðrún, f. 13. maí 1960, verslunar-
maöur í Rvík. Systkini Brynjólfs
eru: Bergljót, f. 2. september 1914,
d. 25. júní 1921, Arnþrúður, f. 14.
ágúst 1916, d. 25. júní 1964, gift Steini
Stefánssyni, fyrrv. skólastjóra á
Seyðisfirði, Hrólfur, f. 20. desember
1917, d. 31. mai 1984, sveitarstjóri í
Mosfellssveit, fyrri kona hans var
Ólöf Jóhannesdóttir, seinni kona
hans var Hrefna Sveinsdóttir, Berg-
ljót, f. 24. júlí 1925, gift Ágústi Jó-
hannessyni, d. 1989 fyrv. hafnar-
stjóra í Keflavík og Jón Kristján, f.
8. október 1932, d. 31. mai 1977,
skólastjóri síðast á Hallormsstaö,
kvæntur Elínu Óskarsdóttur.
Foreldrar Brynjólfs voru: Ingólfur
Hrólfsson, b. á Vakursstöðum í
Vopnafirði, síðast verkamaður á
Seyðisfirði og kona hans Guörún
Eiríksdóttir. Ingólfur var sonur
Hrólfs húsmanns á Stijúgsá, Guð-
mundssonar, b. á Litluströnd í Mý-
vatnssveit, Jónssonar, b. á Gaut-
löndum, Þorgrímssonar, bróður
Marteins, forföður Hraunkotsættar-
Brynjólfur Eirikur Ingólfsson.
innar. Móðir Hrólfs var Guðný
Daníelsdóttir, b. í Kílsnesi, Illuga-
sonar. Móðir Daníels var Kristrún
Indriðadóttir, b. á Sílalæk, Árnason-
ar, ættfóður Sílalækjarættarinnar.
Guðrún var dóttir Eiríks, b. á Ás-
laugarstöðum í Vopnafirði, bróður
Jóns á Sævarhólum, afa Svavars
Guönasonar listmálara og Steins
Stefánssonar manns Arnþrúöar
Ingólfsdóttur. Eiríkur var sonur
Þorsteins, b. á Sævarhólum, bróður
Hildar, langömmu Gauks Jörunds-
sonar, umboðsmanns Alþingis. Þor-
steinn var sonur Brynjólfs, b. í Hlíð
í Lóni, Eiríkssonar og konu hans,
Þórunnar Jónsdóttur, prests á
Kálfafelli, Jónssonar. Móðir Þór-
unnar var Guðný Jónsdóttir, eld-
prests, prófasts á Prestbakka, Stein-
grímssonar. Móðir Eiríks var Rann-
veig Jónsdóttir, b. í Bjarnanesi,
Magnússonar, bróður Matthíasar,
langafa Vilmundar Jónssonar land-
læknis. Móðir Guðrúnar var Jónína
Jónsdóttir, b. í Hriflu, Þórarinsson-
ar og konu hans, Hólmfríðar Ara-
dóttur, b. á Fljótsbakka, Árnasonar.
Móðir Hólmfríðar var Hólmfríður
Aradóttir, systir Kristjönu, móður
Jóns Sigurössonar, alþingisforseta á
Gautlöndum, langafa Sigurðar, föð-
ur Jóns viðskiptaráðherra.
Afmælisbarnið veröur aö heiman
ídag.
Friðleifur Bjömsson
Friðleifur Bjömsson, rafvirki hjá
vamarliðinu á Keflavíkurflugvelli,
FeOsmúla 6, Reykjavík, er fimmtug-
urídag.
Friðleifur fæddist á Siglufirði og
ólst þar upp. Hann lauk grannskóla-
prófi og síðan prófi frá Iðnskóla
Siglufjarðar. Friðleifur sat í stjórn
Félags íslenskra rafvirkja í nokkur
ár.
Friðleifur kvæntist 24.12.1961
Elvu R. Guðbrandsdóttur, f. 30.7.
1941, starfsmanni við Laugames-
skóla, dóttur Guðbrands Þ. Sigur-
bjömssonar, verkamanns á Siglu-
firði, og konu hans, Huldu R. Jóns-
dótturhúsmóður.
Friöleifur og Elva eiga tvo syni.
Þeir eru: Gunnar Þór, f. 10.6.1962,
tölvunarfræðingur og starfsmaöur
hjá Einari J. Skúlasyni, og Ómar
Ingi, f. 19.3.1970, starfsmaður í Off-
setíjölritun hf, Bíóborg og útvarps-
stöðinni Stjörnunni.
Friöleifur átti tvö hálfsystkini
samfeðra. Þau eru Guðný S. Ásberg
Bjömsdóttir, f. 24.12.1942, húsmóð-
ir, gift Árna Samúelssyni forstjóra
ogeigaþauþijúbörn, ogEyjólfur
ÁsbergBjörnsson, f. 13.8.1947, en
hanner látinn.
Foreldrar Friðleifs: Björn Snæ-
bjömsson, forstjóri í Keflavík og
Kristín S. Friðleifsdóttir húsmóð-
ir.
Til hamingju
85 ára 60 ára
Sumarrós Snorradóttir, Hríseyjargötu 9, Akureyrí. Jón Bárðarson, Efstalundi 4, Garðabæ. Kristín Sveinbjörnsdóttir, Hátúní 6, Reykjavík. Arnór Jóhannesson, Reykjanesvegi 54, Njarðvíkum. '
80 ára
Eyjólfur Ágústinusson, Steinkoti, Eyrarbakka. , Guðmundur Guójónsson, Víkurbraut 26, Höfn í Hornafirði. dr. phil. Fríða Sigurðsson, Sörlaskjóli 6, Reykjavík. Þórður Jónsson, Markholti 7, Mosfellsbæ. 50 ára
Kristjana Magnúsdóttir, Kjarrmóum 36, Garðabæ.
40 ára
Jóhanna Sigfúsdóttir, Heiðarvegi 16, Reyðarfirði,- Þórir Arngrimsson, Hratmbrún 37, Hafharftrði. Hjalti Bergmann, Keilusiðu 11H, Akureyri. Einar Sveinbjömsson, Hi-aihhólum 6, Reykjavík.
70 ára
Guðrún Einarsdóttir, Suðurgötu 18, Keilavík. Hulda Guðmundsdóttir, Stórholti 9, ísafirði.
Hulda Halldórsdóttir.
Hulda
Halldórs-
dóttir
Hulda Halldórsdóttir, Njörva-
sundi 9, Reykjavík, er sjötug í dag.
Eiginmaöur hennar var Árni Vig-
fússon en hann lést 16.4.1982. Þau
hjónin giftu sig 10.5. fyrir fimmtíu
árum.
Friðleifur Björnsson.
Friðleifur verður að heiman á af-
mælisdaginn.
Sigríður Kristín Dagbjartsdóttir
Sigríður Kristín Dagbjartsdóttir
húsmóðir, Tjamargötu 20 í Vogum,
erfertugídag.
Sigríður fæddist í Hvítárdal í
Hrunamannahreppi og ólst þar upp.
Hún var fjóra bekki í barnaskóla en
fór síðan í Húsmæðraskólann á
Laugarvatni 1968-69. Auk húsmóö-
urstarfans hefur Sigríður m.a. unn-
ið við fiskvinnslu, skúringar utan
heimilisins og fóstrustörf.
Sigríður bjó lengst af í Hvítárdal.
Hún flutti með manni sínum til
Vestmannaeyja og bjó þar til 1984
en flutti þá í Voga á Vatnsleysu-
strönd þar sem hún býr enn.
Sigríður giftist 20.4.1973, Eiríki
Heiðari Sigurgeirssyni, f. 29.2.1949,
forstjóra, syni Sigurgeirs Ólafsson-
ar, hafnarstjóra í Vestmannaeyjum,
og Erlu Eiríksdóttur fiskvinnslu-
konu.
Börn Sigríðar og Eiríks eru Dag-
björt Eiríksdóttir, f. 17.8.1972, nemi,
Heiða Eiríksdóttir, f. 13.12.1975,
nemi og Erla Eirkísdóttir, f. 25.11.
1979, nemi.
Systkini Sigríðar: Ásdís Dag-
bjartsdóttir, f. 26.6.1937, húsmóðir í
Hveragerði, gift Tómasi Antonssyni
og eiga þau sex böm; Jón Dagbjarts-
son, f. 27.7.1941, tækjastjóri á Sel-
Sigríður Kristin Dagbjartsdóttir.
fossi, kvæntur Guðrúnu Guðnadótt-
ur og eiga þau tvö börn; Gréta Mar-
ía Dagbjartsdóttir, f. 22.2.1946, hús-
móðir á Þórshöfn, gift Þórði Ólafs-
syni og eiga þau íjögur börn; Guð-
björn Dagbjartsson, f. 28.2.1949,
bóndi í Hvítárdal, kvæntur Þor-
björgu Grímsdóttur og eiga þau eitt
barn.
Foreldrar Sigríðar voru Ðagbjart-
ur Jónsson, f. 7.11.1905, d. 3.5.1972,
bóndi í Hvítárdal, og Margrét Guö-
jónsdóttir, f. 12.8.1907, d. 9.12.1988,
húsfreyja.