Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1990, Page 29
FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 1990.
37
DV
Spurt í Njarðvík:
Hver verða úrslit
kosninganna?
Berglind Karlsdóttir afgreiðslu-
stúlka: Ég er ekkert farin að spá í
þau mál.
Grímur Karlsson sjómaður: Ég held
að þetta verði svipað og verið hefur
en trúi því að A-listinn komi hest út,
hann á það skihð.
Viðar Ólafsson trésmiður: Sjálfstæð-
isflokurinn vinnur á.
Valgeir Þorláksson bakarameistari:
D-listi fær þrjá menn, A-listi tvo, F-
listi einn og N-listi einn.
Guðbjört Ingólfsdóttir skrifstofu-
maður: Sjálfstæðisflokkurinn kemst
í meirihluta.
Þórður Eiríksson sjómaður: Ég hef
ekki hugmynd um það.
Stjómmál
Njarðvík:
Séð fram á snarpa kosningabaráttu
Fjórir listar bjóða fram í Njarðvík
í kosningunum 26. maí. A-listi Al-
þýðuflokks, B-fisti Framsóknar-
ffokks, D-fisti Sjálfstæðisffokks og
N-listi féfagshyggjufófks. Fyrir fjór-
um árum buðu sex listar fram, þrír
hinna fyrstnefndu, Bandafag jafnað-
armanna, Alþýðubandalag og Flokk-
ur mannsins. Nú hefur N-Iistinn boð-
ið fram í stað þessara fista, að
nokkru.
Þetta kjörtímabif hefur meirihluta-
samstarf verið miili A-lista og B-Iista.
Kjörtímabilið 1982-1986 hafði D-hsti
hins vegar meirihluta í bæjarstjórn
Njarðvíkur, eða 4 fulltúa gegn þrem-
ur. Sú spurning brennur á vörum
margra Njarðvíkinga hvort D-listinn
nái aftur meirihlutanum. Nýtt fram-
boð N-hstans skapar aftur á móti
nokkra óvissu í spám um kosninga-
úrslitin og séð er fram á snarpa kosn-
ingabaráttu.
Njarðvík er nánast samvaxin
Keflavík og hefur spurningin um
sameiningu þessara bæjarfélaga og
fleiri oft skotið upp kollinum. Jafn-
framt því sem Njarðvíkingar kjósa
sér bæjarstjórn verður skoðana-
könnun þar sem kannað verður við-
horf kjósenda til sameiningar sveit-
arfélaga á Suðurnesjum. Ef kjósandi
er samþykkur sameiningu er hann
beðinn um að thnefna hvaða sveitar-
félagi eða sveitarfélögum hann vill
að Njarðvík sameinist.
í Njarövík búa um 2400 manns. Á
kjörskrá 8. maí voru 1568 manns, 794
karlarog774konur. -hlh
Steindór Sigurðsson, Framsóknarflokki:
Atvinnumálin
efst á blaði
„Atvinnumáhn eru efst á blaði.
Hér hefur nokkuð af fyrirtækjum
farið á hausinn. Það þarf að reisa
atvinnuhf Njarðvíkur við en atvinna
hefur minnkað töluvert á svæðinu. í
umhverfismálum höldum við áfram
við fegrun bæjarins eins og á þessu
kjörtímabili. Við höfum eytt tölu-
verðum peningum í að kaupa upp
gömul mannvirki frá stríðsárunum
til að þétta byggðina og við eigum
enn eftir að losa okkur við fleiri shk
lýti á bænum. Þá þarf að gera stórá-
tak í að laga frárennshsmál fyrir
Njarðvík, Keflavík og flugvöllinn,“
sagði Steindór Sigurðsson fram-
kvæmdastjóri sem skipar efsta sæti
á B-lista Framsóknarflokks.
„Við ætlum að taka á málefnum
afdraðra, sérstaklega húsnæðismál-
unum. Við vhjum sporna við þeirri
þróun að gamalt fólk flytji úr heima-
byggð. Það á að gera því kleift að
eyða elhnni í Njarðvík.
Það hefur verið framkvæmt mikið
á þessu kjörtímabili. Reist hefur ver-
ið viðbygging við skólann og einnig
keyptar gamlar byggingar í nágrenni
Steindór Sigurðsson skipar efsta
sæti á B-lista Framsóknarflokks.
hans til að auka rýmið. Fram-
kvæmdafé er ekki eins mikið og við
vildum hafa en fjárhagsstaða Njarð-
víkur er þó ekki slæm.“ -hlh
Ingólfur Bárðarson, Sjálfstæðisflokki:
Fjármálastjórn bæjar-
félagsins verði bætt
„Sjálfstæðismenn í Njarðvík leggja
mikla áherslu á atvinnumálin og að
fjármálastjóm bæjarfélagsins verði
bætt og skuldasöfnun tafarlaust
hætt. Umhverfis- og fegrunarmál eru
mjög ofarlega á baugi og einnig sam-
göngumál milh innra og ytra hverfis
í Njarðvík. Samtenging hverfanna
verður forgangsverkefni okkar. Þá
er einnig brýnt að hlutdeildaríbúðir
verði byggðar fyrir aldraða í Njarð-
vík en að sjálfsögðu munum við
vinna öhhlega að öllum málaflokk-
um,“ sagði Ingólfur Bárðarson fram-
kvæmdastjóri sem skipar efsta sæti
D-hsta Sjálfstæðisflokks.
„Nánari útfærlsu á verkum okkar
er að finna í stefnuskránni og ég
hvet aha Njarðvíkinga th að kynna
sér hana vel. Við vhjum vekja sér-
staka athygli á Suðurnesjasvæðinu
sem góðan kost fyrir staðsetningu
stóriðjufyrirtækja. Gera þarf átak í
að laða að bæði stór og smá fyrirtæki
og jafnframt munum við treysta
þann atvinnurekstur sem fyrir er í
bænum án þess að ganga inn í rekst-
ur fyrirtækjanna. Sjálfstæðisflokk-
Ingólfur Bárðarson skipar efsta sæti
á D-lista Sjálfstæðisflokks.
urinn hefur fjölhæft athafna- og
framkvæmdafólk á lista sínum sem
er tilbúið að takast á við að bæta og
efla hag Njarðvíkur og gera góðan
bæ betri.“ -hlh
Sólveig Þórðardóttir, lista félagshyggjufólks:
Atvinna fyrir allar
vinnubærar hendur
„Aðaláherslumál okkar er að næg
atvinna sé fyrir ahar vinnubærar
hendur.Það á að vera hvetjandi val-
kostur fyrirtækja að starfrækja at-
vinnustarfsemi í Njarðvíkum og við
leggjum því áherslu á tímabundndar
fyrirgreiðslur þeim til handa. Við
viljum taka þátt í sameinuðu átaki
sveitarfélaga á Suðurnesjum til
skipulagningar og atvinnuuppbygg-
ingar. Viljum við aö komið verði á
fót hehsubótarhóteli við Bláa lónið.
Við leggjum áherslu á manneskjulegt
og heilbrigt umhverfi, að hávaða-
mengun verði minnkuð, aðstaða
verði fyrir alla til íþróttaiðkana og
útivistar, að öruggt umhverfi verði
fyrir börn og unglinga og að öll böm
eigi kost á umhyggju á dagvistun,
leikskóla og á heimilum," sagði Sól-
veig Þórðardóttir forstöðukona sem
skipar efsta sæti á N-lista félags-
hyggjufólks.
„Við viljum halda áfram uppbygg-
ingu grunnskólans, að félagsheimihð
Stapi verði gert að menningarmið-
stöð og könnuð verði bygging menn-
ingarhallar fyrir Suðurnes. Við
leggjum mikla áherslu á uppbygg-
ingu hjúkrunarheimilisins í Grinda-
Ragnar HaUdórsson, Alþýðuflokki:
Leggjum áherslu á
félagslegar íbúðir
„Njarðvíkurbær hefur stutt at-
vinnufyrirtæki í bæjarins með ýms-
um hætti, tekið þátt í hlutafjárkaup-
um og ýtt úr vör án beinnar þátttöku
í rekstrinum. Við munum halda því
áfram og reyna að laða að ný fyrir-
tæki. í umhverfismálum vhjum við
halda áfram stóráraki við fegrun og
snyrtingu Njarðvíkur. Munum við
sérstaklega beina spjótum okkar að
Innri-Njarðvík. í félagsmálum vhjum
við halda áfram byggingu verka-
mannabústaða og kaupleiguíbúða. Á
þessu kjörtímabih höfum við veitt 29
fjölskyldum húsaskjól í gegnum fé-
lagslega kerfið sem er bylting frá því
sem áður var,“ sagði Ragnar Hall-
dórsson bæjarfulltrúi sem skipar
efsta sæti á A-lista Alþýðuflokks.
„Við leggjum mikla áherslu á bygg-
ingu hlutdeildaríbúða fyrir 60 ára og
eldri sem mikhl áhugi er fyrir.
Við höldum stuðningi við iþrótta-
og æskulýðsstörf áfram. Bygging
leikvallar í Móahverfi er að hefjast.
Við munum síðan halda áfram af
festu og öryggi við fjármálastjórn
bæjarins.
Úrbætur í holræsamálum á Fitja-
svæði er stórverkefni næstu ára. Við
Ragnar Halldórsson skipar efsta
sæti á A-lista Alþýðuflokks.
gerum kröfu um að Varnarliðiö
gangi frá sínum útrásarmálum og
stefnum að því að bærinn geri slíkt
hið sama.“ -hlh
KOSNINGAR 1990
Haukur L Hauksoon og Slgurjón Egllsaon
NJARÐVÍK
Núverandi bæjarstjórn
Urslitin 1986
•v
Sex listar buöu fram í kosningun-
um 1986. A-listi Alþýðuflokks fékk
507 atkvæði og þrjá fulltrúa kjörna,
bætti við sig einum. B-hsti Fram-
sóknarflokks fékk 145 atkvæði og
einn mann, missti tvo. D-listi Sjálf-
stæðisflokks fékk 420 atkvæði og þrjá
fulltrúa, missti einn. G-hsti Alþýðu-
bandalags fékk 130 atkvæði og engan
mann, hafði einn. C-hsti Bandalags
jafnaðarmanna fékk 130 atkvæði og
engan mann og heldur ekki M-listi
Flokks mannsins sem fékk 17 at-
kvæði. C- og M-listar buðu ekki fram
1982.
Þessi voru kjörin í bæjarstjórn
1986:
Ragnar Halldórsson (A), Eðvald Bó- 9
asson (A), Guðjón Sigbjörnsson (A),
Steindór Sigurðsson (B), Ingólfur
Bárðarson (D), Ingi F. Gunnarsson
(D) og Guðmundur Sigurðsson (D).
Sólveig Þórðardóttir skipar efsta
sæti á N-lista félagshyggjufólks.
vík, D-álmu sjúkrahússins og endur-
hæfingaraðstöðu á svæðinu og að
sjúkrahúsinu verði gert kleift að
veita bráðaþjónustu allan sólar-
hringinn. Þá á bæjarfélagið að sníða
sér stakk eftir vexti svo erfingjarnir
þurfi ekki að taka við skuldum og
niðurlægingu." -hlh
A-listi Alþýðuflokks.
1. RagnarHalldórsson
bæjarfuhtrúi.
2. Þorbjörg Garðarsdóttir
kennari.
3. Skúh Snæbjörn Ásgeirsson
framkvæmdastjóri.
4. Hilmar Hafsteinsson
húsasmíðameistari.
5. Bergþóra Ósk Jóhannsdóttir
bankamaður.
6. Haukur Guðmundsson
yörubílstjóri.
7. Ólafur V. Thoroddsen
framkvæmdastjóri.
8. BorgarL. Jónsson
afgreiðslumaður.
B-listi Framsóknarflokks.
1. SteindórSigurðsson
framkvæmdastjóri.
2. Sveindís Ámadóttir
húsmóðir.
3. Jónas Pétursson
slökvhiðsmaöur.
4. Jónas Jóhannesson
húsasmiður.
5. KrisijanaGísladóttir
atvinnurekandi.
6. ÓlafurGuðbergsson
bifreiðastjóri.
7. Gunnar Guðmundsson
atvinnurekandí.
8. Valur Guðmundsson
húsasmiður.
D-listi Sjálfstæðisflokks.
1. Ingólfur Bárðarson
rafverktaki.
2. Kristbjöra Albertsson
kennari.
3. Valþór Söring Jónsson
yfirverkstjóri.
4. Arni Ingi Stefánsson
framkvæmdastjóri.
5. Hafdís Garðarsdóttir ritari.
6. Rebekka E. Guðfinnsdóttir
bókavöröur.
7. Jón Aðalsteinn Jóhannsson
læknir.
8. Guðrún Greipsdóttir
skrifstofustjóri.
N-listi félagshyggjufólks.
1. SólveigÞórðardóttir
forstöðukon.1.
2. Jón Bjarni Helgason
verslunarmaður.
3. Gróa Hrmnsdótth'organisti.
4. Gunnar Ólafsson bhstjóri.
5. Óskai’Bjai’nason húsasmiður.
6. Fi-iðrik Ingi Rúnarsson nemi.
7. Ásdís Friöriksdóttir
tannsmiður.
8. Þórarinn Þórarinsson
lögregluþjónn.