Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1990, Side 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
: skrift - Dreifing: Sími 27022
Frjálst, óháð dagblað
FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 1990.
Starfsfólk Grundarkjörs:
Hvað eigum
við að gera?
- fáum ekkert að vita
„Viö sem unnum hjá Grundarkjöri
höfum ekkert fengiö aö vita. Það tal-
ar enginn viö okkur. Hvaö eigum við
aö gera? Eigum viö aö leita okkur
að annarri vinnu? Það hefur enginn
talað við okkur og við höfum engin
svör fengið þar sem við höfum leitað
eftir þeim,“ sagði kona sem starfaði
hjá Grundarkjöri.
„Jens er yndislegur og góður mað-
ur. Hann talaði við allt starfsfólkið á
laugardag og sagði að hann væri
búinn að selja Vallarási verslanirn-
ar. Hann vildi segja okkur það áður
en fréttir af sölunni kæmu í fjölmiðl-
um. Það var mjög gott að vinna hjá
honum. Við bíðum ekki aðeins eftir
svari frá honum heldur einnig frá
þeim sem hafa tekið við. Þegar Jens
sagði okkur frá sölunni kom það
fram að við fylgdum með í kaup-
samningnum. Þegar við mættum á
mánudagsmorgun var okkur sagt að
fara heim. Síöan höfum við ekkert
heyrt. Við höfum reynt að ná sam-
bandi við Vallarás en þar svarar
aldrei í síma,“ sagði konan.
Hún tók fram að margt af stars-
fólkinu væri einstæðar mæður og
fólk með íjölskyldur. Óvissa um at-
^ vinnu getur verið þessu fólki mjög
erfið.
„Það hefur aldrei oröið dráttur á
að við fengjum útborgað. Jens
greiddi út um síðustu mánaðamót.
Nú vitum við ekkert hvernig okkar
réttindum er komiö. Við vitum ekki
einu sinni hver á verslanirnar."
-sme
Björguðu konu
úr sjónum í nótt
28 ára gömul íslensk kona féll á
milli skips og bryggju við Faxagarð
í nótt er hún var að fara um borð í
þýskt rannsóknarskip. Enginn land-
gangur var við skipið. Konan var í
sjónum í töluverðan tíma og var flutt
í sjúkrabíl á slysadeild Borgarspítal-
ans.
Þegar lögregla var á eftirlitsferð
um höfnina sá hún menn vera að
stumra yfir einhverju við skipið í
höfninni. Brátt kom í ljós að kona
hafði fallið í sjóinn. Lögregluþjónn
seig niður í bjarghring og tókst hon-
um að ná í konuna og halda henni á
floti þar til frekari hjálp barst. Lág-
sjávað var í höfninni og því erfltt um
vik að koma konunni upp. Gúmmí-
bátur lögreglunnar var strax fluttur
niður að höfn og tókst þannig að
bjarga konunni á þurrt. Hún var síð-
an flutt með sjúkrabíl á slysadeild
Borgarspítalans þar sem hún fékk
aðhlynningu.
-ÓTT
LOKI
Eru Hafnfirðingar að gefa
í skyn að borg Davíðs sé
hættulegri en heilt álver?
Þessi gamalkunni Ijósviti, sem mennirnir eru að vinna við, mun brátt flytjast um set en honum á að koma fyrir á
toppi Perlunnar í baksýn. Ljósvitinn hefur snúist hring eftir hring á hitaveitutönkunum í Öskjuhlíð í áratugi og
kastað gulhvítu og grænu Ijósi yfir borgina. í fyrstu var vitinn á gömlu tönkunum, þar sem nýju tankarnir eru
núna. Síðan var hann fluttur yfir á annan tveggja tanka sem nú á að rifa. Nú liggur leiðin hins vegar upp á topp
Perlunnar þar sem hann mun væntanlega hringsóla um ókomin ár. DV-mynd GVA
Veðríð á morgun:
Víða
fyrir norðan
Á morgun verður hæg suðvest-
anátt á landinu, smáskúrir á Suð-
ur- og Vesturlandi en víða létt-
skýjað norðaustanlands. Þar
verða þá á stöku stað þokubakkar
við ströndina. Hitinn verður 5-9
stig.
Slitlagið rifnaði
upp eins og bréf
Eg vaknaði þegar flóðið féll. Þetta
var mikíll hvellur. Ég-flýtti mér út
að glugganum. Þegar ég Ieit út sá
ég að stýó- og aurskriða náði alveg
niður undir efstu hús í kauptúninu
en mikill vatnsflaumur rann niður
að sjó. Þrír eða fjórir rafmagns-
staurar brotnuðu og línurnar fóru
í sundur - rafmagnið fór því af.
Þegar ég fór út sá ég að flóðið hafði
rifið slitlag upp af Strandveginum
við höfnina, eins og bréf, Þetta var
ansi mikið flóð - vatnselgurinn er
ennþá að renna niður,“ sagði
Bjarni Sigurmundsson i Bíldudal í
samtali við DV í morgun.
Snjó- og aurflóð með miklum
vatnselg féll í Búðargili í Bíldudal
á sjöunda tímanum í morgun og
olli það töluverðum skemmdum í
kauptúninu.
„Ejalliö er flatt hér fyrir ofan og
þar myndast gjaman stöðuvatn í
leysingum. Þegar það verður fullt
brýst vatnið fram og niður i Búð-
argil og þar tekur vatnselgurinn
snjóskaflana raeð sér. Ég sé að
helmingurinn af stórum skafli efst
í gilinu er farinn. Ef vatnið hefði
tekið allan skailinn meö sér niöur
heíði spennistöðin sennilega farið
líka en hún er fyrir neðan. Vatns-
flaumurinn rann í gegn á milli
verslunarinnar Edinborgar og veit-
ingahússins Vegamóta. Síðan
flæddi að húsi sem er þar fyrir
neðan. Slitlagið flettist af Strand-
veginum á 6-8 metra kafla og krap-
elgurinn rann niður að smábáta-
bryggju og fram í sjó,“ sagði Bjarni.
„Þegar ég kom niður að barna-
skólanum sá ég að flóðiö var svo
mikiö að það fór yfir garð, ruddi
burtu hindrun þar, helltist yflr veg-
inn og ruddi fram skurði. Flóðið
gróf líka í sundur jörðina við tanka
hjá bensínstööinnísagði Bjarni.
Hann sagði að rafmagn hefði kom-
ist fljótt á aftur í kauptúninu eftir
að vararafstöð var sett í gang.
-ÓTT
Mengun við Straumsvík:
Meiri mengun
af byggð
en álveri
Mengun á Hvaleyrarholti við Hafn-
arfjörð getur orðið meiri þegar vind-
ur stendur frá höfuðborgarsvæðinu
en þegar vindur stendur af álverinu
í Straumsvík. Umferð og atvinnu-
starfsemi á höfuðborgarsvæðinu er
því meiri mengunarvaldur á Hval-
eyrarholtinu, sem er skammt frá
Straumsvík, en verksmiðjan í næsta
nágrenni.
Þetta má lesa af niðurstöðum mæl-
inga heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarð-
ar á loftmengun á Hvaleyrarholti.
Mengunin reyndist undir viðmiðun-
armörkum. Meðalgildi í vetur hefur
verið um 2,5 míkrógrömm á rúm-
metra en viðmiðunarmörk eru 30
míkrógrömm. Versta einstaka dag-
inn mældust 12,6 míkrógrömm í
rúmmetra en mörk Alþjóðaheil-
brigðisstofnunarinnar um mengun á
einum degi eru 125 míkrógrömm.
Af 18 verstu sólarhringunum stóð
vindátt af byggðinni í höfuðborgar-
svæðinu í þrettán daga en frá
Straumsvík í fimm daga. Sérfræðing-
ar heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar
telja ástæðu þess hversu lítil mengun
mæhst svo skammt frá Straumsvík
annars vegar þá að fátítt er að vindur
standi af verksmiðjunni og hins veg-
ar að blöndunarskilyrði í þeim áttum
sé góð; það er mengunin dreifist og
blandist loftinu fljótt og vel. -gse
Stokkseyri:
Fengu 90 miiljj.
Atvinnutryggingarsjóður hefur af-
greitt 90 milljónir til Hraðfrystihúss
Stokkseyrar. Eins og DV skýrði frá
í gær vonuðust forráðamenn fyrir-
tækisins eftir 120 milljónum. Af þess-
um 90 milljónum eru 15 miUjónir lán
tU sveitarfélagsins og einstakUnga til
að kaupa hlutabréf í fyrirtækinu en
75 mflljónir eru til skuldbreytinga á
eldri skuldum fyrirtækisins. -gse
ísraelsmenn:
Mótmæla
Sendiherra ísraels á íslandi, Yehiel
Yativ, sem er meö aðsetur í Stokk-
hólmi, hringdi í Jón Baldvin Hanni-
balsson utanríkisráðherra á þriðju-
dagskvöldið og mótmælti fundi
Steingríms Hermannssonar forsæt-
isráðherra við Yassir Arafat, leiðtoga
Palsetínumanna, en fundurinn verð-
ur í Túnis á laugardaginn.
Lýsti sendiherrann yfir undrun
Isrelsmanna á þessu ferðalagi en
enginn vestrænn leiðtogi hefur
heimsótt Arafat í Túnis eftir að hann
lýsti sig forseta sjálfstæðs ríkis. -SMJ
-E ffl bb ffl ffl m :::
SAFARÍKAR
GRILLSTEIKUR
/uyj
Jarlinn
TRYGGVAGÖTU ■ SPRENGISANDI
BÍLALEIGA
v/FIugvallarveg
91-61-44-00