Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1990, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1990, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 1990. Fréttir Kvennalisti: Hagfræði hinnar hagsýnu húsmóður Kosningastýra Kvennalistans er Sigríður Stefánsdóttir ásamt Guð- rúnu Erlu Geirsdóttur. „Við höfum opna kosningaskrif- stofu að Laugavegi 17, þar sem mik- ill fjöldi kvenna hefur unnið óeigin- gjamt starf. Dreifingu á upplýsing- um höfum við að mestu leyti séð um sjálfar eins og aðra vinnu en tvær konur eru hér í hálfu starfi. Öll ljós- ritun á okkar vegum er unnin á end- uranninn pappír. Við höfum úr litlu fjármagni að spila og beitum því hag- fræði hinnar hagsýnu húsmóður. Við höfum fjármagnaö undirbúning kosninganna að hluta með sölu á ýmsum vamingi og reynum að dreifa vinnunni á sem flestar konur í sam* bandi við fundarhöld og annað.“ Stemningin hér er mjög góð. Hér hefur komið mikið af nýjum konum til starfa. Við höfum trú á að fólk sem vill vinna gegn Sjálfstæðisflokknum meti vönduð vinnubrögð okkar og sjái í gegnum upphlaup. Síöustu daga hafa þeir notað borgarkerfiö í sinni Sjálfstæðisflokkurinn: kosningabaráttu og við treystum því að fólk sjái í gegnum slikt. Ég er sannfærð um að við höldum okkar konu og nánast sannfærð um að við náumannarriinn. pj Stefnum að góðum sigri Sjálfstæðisflokkurinn hefur 13 kosningaskrifstofur víös vegar um borgina. Kosningastjóri hans er Guð- mundur Magnússon. „Frambjóðendur okkar hafa verið á ferð og flugi um alla borgina. Á þriðja hundrað manns hafa unnið í sjálfboðavinnu á okkar vegum og verða að þar til kjörstaðir loka. Á miðvikudag voram við með útifund á Lækjartorgi og í gær var vorfagn- aður í Háaleitishverfi sem báðir voru mjög vel sóttir. Við höfum sent tals- vert efni frá okkur, m.a Bláu bókina sem hefur komiö út frá því fyrir stríð og ungir sjálfstæðismenn dreifðu pakka með smáskilaboðum. Kosn- ingaskrifstofur okkar eru opnar frá miðjum degi og langt fram á kvöld.“ „Á kjördag munum við sjá um að aka fólki á kjörstað. Við verðum með eftirlitsmenn á öllum kjörstöðum sem okkur finnst sjálfsögð virðing við kjósendur. Unnið verður á skrif- stofum okkartig okkar fólk verður við talningu eins og hjá öðram flokk- um. Allt þetta starf er unnið í sjálf- boðavinnu. „Það er hugur í okkar fólki og mik- il baráttustemning. Við stefnum að því að vinna góðan sigur og úrslitin verði í samræmi við hið mikla og góða starf sem unnið hefur verið á undanfómum vikum. pj Grænt framboð: Róttæka breytingu í umhverfismálum Kosningastjóri hjá Grænu fram- boði er Methúsalem Þórisson. Þeir reka tvær kosningaskrifstofur og er mikill hugur í þeim. „Við höfum verið með kynningar í Kringlunni og uppákomur til þess að vekja athygli á mengun m.a. með þvi að fara um bæinn með gasgrím- ur. Þá höfum við hjólað um bæinn og endum á rokktónleikum í dag þar sem áherslan verður gegn sorpbögg- un og með endurvinnslu. Viö höfum gefið út einn lítinn bækling á endur- unninn pappír. Við höfum ekki unnið upp úr kjör- skrám með skipulögðum hringing- um heldur höfum við spilað maður á mann þ.e. talað við vini og kunn- ingja. Við höfum einnig tekiö fólk tali í bænum og fundiö að fjöldinn veit ekki af framboðinu. Við höfum úr engu fjármagni að spila, höfum ekkert auglýst og munum aö sjálf- sögðu ekki keyra fólk á kjörstað. Mér finnst lítill áhugi á kosningun- um en því fleiri sem vita af framboði okkar, þeim mun meiri verður stuöningurinn. Það eru áhöld um hvort við náum manni inn en það væri það besta sem gæti komið fyrir borginaokkar.“ pj Nýr vettvangur: Verðum ótvíræð- ir sigurvegarar kosninganna Nýr vettvangur er með opið á tveimur kosningaskrifstofum í Reykjavík. Kosningastjóri H-listans er Ámundi Ámundason: „Hér er mikill baráttuhugur í mannskapnum. Gífurlegur fjöldi sjálfboðaÚða hefur unnið hér, allt upp undir hundrað manns sum kvöldin. Viö opnum skrifstofuna klukkan 7 á morgnana og erum að fram undir morgun. Langmest vinna er unnin í sjálíboðavinnu en að auki eru fiórir menn í launuðu starfi. Við höfum stundað stífar símhringingar og staðiö fyrir uppákomum í stór- mörkuðum þar sem við dreifum bæklingum og ræðum við fólk. Að auki höfum við haldið marga fiöl- menna fundi. Á kjördag bjóðum við fólki upp á akstur á kjörstaö en verðum ekki með eftirlit á kjörstað. Um kvöldiö verður síðan kosningavaka í Dans- höllinni, Brautarholti 20. Viö höfum fundið^ fyrir gífurlegri stemningu meðal fólks og það er engin spuming að H-listinn stendur uppi sem ótví- ræður sigurvegari kosninganna. Ég hef trú á að við fáum 25% fylgi og 4 menn kjörna. Ég vil hins vegar ekki valda öðrum kosningastjórum von- brigðum meö því að spá um fylgi annarra flokka. ‘ ‘ -pj Flokkur mannsins Röddin er okkar fjölmiðill Flokkur mannsins er með eina kosningaskrifstofu. Kosningastjóri hans er Helga Gísladóttir: „Efstu menn listans hafa veriö á þönum á vinnustaðafundum um alla borg að ræða viö starfsfólk. Þá höfum við verið mikið í miðbænum og uppi í Kringlu aö ræða við fólk og dreifa bæklingnum okkar. Hann er fiórar síður, ekki í ht en sannari en bækl- ingar margra annarra. Hjá okkur er enginn launaður starfsmaður en um 60 manns hafa unnið hér í sjálf- boðavinnu. Við opnum skrifstofuna eftir vinnu og erum að fram á rauöa nótt. Við höfum úr engu fiármagni að spila og ekki tekið þátt í þessu auglýsingabrjálæöi. Bæklingurinn og rödd okkar era okkar fiölmiðiU. Á kjördag verðum við reiðubúin að aka fólki á kjörstað. Við höfum fundið að fólk er sam- mála því sem við eram að segja. Því finnst við halda lífi í kosningabarátt- unni með ferskleika. Við viljum hins vegar koma þessari nýju pólitík inn í borgarstjórn. Fólk verður að muna að atkvæðin eru nauðsynleg til þess að svo megi verða. Miðað við þau viðbrögð sem viö höfum fengið trúi ég því að við náum einum manni inn.“ -pj Framsóknarflokkurinn: Lykill að betri borg Framsóknarflokkurinn rekur eina kosningaskrifstofu. Kosningasfióri hans er Unnur Stefánsdóttir. „Efstu menn listans hafa aðallega verið í greinarskrifum og fundum hjá vinnustöðum og félagasamtök- um. Við höfum verið meö kynningu í Kringlunni og alltaf haft tvo gest- gjafa á skrifstofunni til að sjá um veitingar og spjalla við fólk. Nýjum kjósendum sendum við fiórblöðung og unga fólkið á listanum stóð fyrir hátíð fyrir ungt fólk. Á listanum eru 14 aðilar undir 35 ára aldri og unglið- amir hafa tekið mikinn þátt í starf- inu. í gær var síöan fagnaður fyrir aldraða í Glæsibæ. Þá höfum við dreift blaði í öll hús og gefið lykil að betri borg. Á kjördag verðum við með opið hús og sjáum um að aka fólki á kjörstað. A kosninganóttina verður kosningavaka með standandi veit- ingum alla nóttina." „Það er mjög jákvæður andi í hús- inu, jákvæðari en oft áður. Ég vona að sem flestir styðji Framsóknar- flokkinn. Þá vil ég hvetja ungt fólk til að kjósa því ég hef fundið fyrir áhugaleysi meðal þess. Ég vonast eft- ir því að við höldum okkar fulltrúa og trúi raunar ekki öðra en Sigrún verðiáframborgarfulltrúi. pj Alþyðubandalagið: Berjumst til þrautar Alþýðubandalagið er með eina kosningaskrifstofu. Kosningastjóri þess er Steinar Harðarson. „Kosningabaráttan hefur farið fram á hefðbundinn hátt. Það var þungt að komast í gang. Áhugi al- mennings virðist lítill en hefur þó glæðst. Borgarbúar virðast sann- færðir um að Sjálfstæðisflokkurinn haldi meirihlutanum. Hér er stór hópur sjálfboðaliða í hringingum og dreifingu. Við höfum verið mikið í miðbænum og í Kringlunni að dreifa bæklingum og hitta fólk. Auglýsingamennska hefur veriö mikil. Ég tel lýðræðinu settar skorð- ur þegar máttur peninga er orðinn svona mikill. Það er þó erfitt að banna þetta því auglýsingar hafa mikið gildi. Hjá okkur er kostnaðin- um haldið í lágmarki með fáum aug- lýsingum og útgáfukostnaði er haldið í skefium. „Stemningin er mjög góð og við munum berjast til þrautar. Ef út- koman verður slæm er það ekki vegna þess að við höfum barist slæ- lega. í einhuga sveit okkar hefur baráttuandinn sjaldan verið betri. Ég held aö við fáum tvo fulltrúa, Kvennalisti og Framsókn einn hvor ogH-listinnfærtvotilþrjá.“ pj

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.