Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1990, Síða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1990, Síða 3
3 —FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 1990. Fréttir Ekkert virðist óhult fyrir af brotamönnum I „Ákveöin hættuleg efni á að geyma undir lás og slá eins og hráefni sem eru notuð til lyfjagerðar og eru jafn- vel ekki notuð lengur. Um það gilda ákveðnar reglur. Hins vegar virðist oft sem ekkert sé óhult ef menn ætla sér á annað borð að stela einhverju, þrátt fyrir lás og slá, þjófavarnakerfi og ýmislegt íleira,“ sagði Guðrún Eyjólfsdóttir hjá Lyíjaeftirliti ríkis- ins í samtali við DV er hún var spurð um reglur um eftirht með ýmsum stórhættulegum efnum eins og þeim sem stolið var nýlega úr apóteki Ið- unnar. Eins og fram kom í DV á miðviku- dag var töluvert magn af nítróglyser- íni, sem notað er í svokallaðar sprengitöflur fyrir hjartasjúklinga, arseniki, blásýru og fleiri hættuleg- um efnum grafið upp um helgina fyrir utan Reykjavík í tengslum við morðmáhð í Stóragerði. Mennirnir tveir sem grunaðir eru um morðið höfðu brotist inn í apótek Iðunnar. ' Efnin sem þeir höföu komist yfir eru stórhættuleg og urðu margir skelfdir um hvar þýfið var niður komið enda I hurfu eiturefni sem eru stórhættuleg bæði mönnum og umhverfi. Innbrotið vekur upp spurningar varðandi geymslustaði efna sem þessara í apótekum og víöar þar sem þau eru niðurkomin, sérstaklega hráefni til lyfjagerðar sem komin eru út af lyfjaskrá. Guðrún segir að vandamál hafi Akureyri: Billinn ónýtur eftir veltu - ökumaðurgrunaðururaölvun Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Fullorðinn maður velti bifreið sinni á veginum við Kristnes skammt innan Akureyrar í gærkvöldi. I Maðurinn var fluttur til skoðunar á sjúkrahúsið á Akureyri en reyndist ekki slasaður. Hann var hins vegar grunaður um að hafa ekið undir áhrifum áfengis. Bifreiðin er gjöró- nýt eftir veltuna. Dómur í Hæstarétti: Reyndi að nauðga þroskaheft- um manni Hæstiréttur hefur dæmt mann til þriggja mánaða fangelsisvistar, skil- orðsbundið í tvö ár, fyrir að hafa reynt að nauðga þroskaheftum manni í apríl 1985. Atvik þetta gerð- ist í sjávarplássi á landsbyggðinni. Það var að loknum dansleik sem maðurinn og fórnarlambið tóku tal saman. Tvö vitni hafa borið að hafa séð þá að tali og þar sem þroskahefti maðurinn var með buxurnar niöur um sig. Framburðir þess ákærða og fórnarlambsins eru talsvert á reiki. Við sameiginlega samræður hjá lögreglu daginn eftir var ekki ágrein- ingur mhli mannanna um að ákærði hefði þrívegis gyrt niður um fórnar- lambið og reynt kynmök. Hæstiréttur tekur undir dóm hér- aðsdóms að öðru leyti en því að hér- aðsdómur skilyrti ekki refsinguna. Eftir að héraðsdómur hafði dæmt í málinu var óskað eftir að það feng- ist endurflutt. Meðal annars var því borið við að ákærði hefði ekki heyrt, en hann er heyrnardaufur, það sem fram fór og ekki gert sér þess vegna nægilega grein fyrir málsmeðferð- inni. Við þessum óskum var orðið og því var málið tvíflutt í héraði. Hæstaréttardóminn kváðu upp hæstaréttardómararnir Guðmundur Jónsson, Bjarni K. Bjarnason, Hrafn Bragason, Þór Vilhjálmsson og Gunnar M. Guðmundsson. verið að losna við ýmis eiturefni í apótekum. „Til þessa hefur enginn aðili hér á landi séð um aö eyða slíkum efnum þegar ljóst er að þau verða ekki not- uð áfram. Þetta hefur verið vanda- mál. Þess vegna hefur verið betra að geyma þau, tryggilega innilokuð, fremur en að hella þeim í klósettið, út í umhverfið eöa á annan miöur góðan máta. Nú standa þessi mál hins vegar til bóta með tilkomu eit- urmóttökustöðvar í Kópavogi," sagði Guðrún. Guðrún segir að greinilegt sé að innbrot í apótek hafi aukist á síðustu tveimur til þremur árum og nauö- synlegt sé að setja upp tryggar varn- ir og þjófavarnarkerfi. Samkvæmt upplýsingum lögreglu og annarra aðila, tengjast innbrot mjög oft fíkniefnaneyslu. Neytendur virðast gera allt til að ná sér í eitur- lyf, brjótast inn í apótek og fremja önnur auðgunarbrot. Fjöldi innbrota hefur aukist, svo og fjöldi fikniefna- neytenda. Ásetningur mannanna, sem tengj- ast morðmálinu og brutust inn í apó- tek Iðunnar í síðasta mánuði, var greinilega að verða sér úti um hrá- efni til að útbúa fikniefni. Þeir voru mjög stórtækir og höfðu tugi kílóa af flöskum og hylkjum á brott með sér. Þó er ljóst að þeir gerðu sér enga grein fyrir hve hættuleg efnin voru sem þeir létu greipar sópa um, nokkrum dögum áður en morðið var framið. -ÓTT ULTRA CAST DESIGN ...og þú kastar lengra Veiðitnaöurinn UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002 -sme

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.