Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1990, Síða 6
6
FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 1990.
Fréttir
Frá vmnustaðafundum frambjóðenda 1 Reykjavlk:
„Ég vildi nú helst
fá að borða í ffiði“
Guðrún Agnarsdóttir kynnti Kvennalistann meöal eldri borgara á Droplaug-
arstööum. DV-mynd Brynjar Gauti
„Þetta hefur mjög djúptæk áhrif á
mig,“ sagöi starfsmaður einnar
stofnunar í Reykjavík í hádeginu á
miövikudaginn. Hann glotti og ekki
var laust viö kaldhæöni í röddinni.
Hann bætti því við að hann hefði
fyrir löngu ákveðið hvað hann ætlaði
að kjósa og þessir frambjóðendur
mættu tala sig hása hans vegna.
Hann var að koma úr mötuneytinu
þar sem hann hafði matast undir
miklum kosningaræðum tveggja
fulltrúa eins framboðslistans í
Reykjavík.
Frambjóðendur í Reykjavík hafa
þrætt vinnustaði borgarinnar aö
undanfórnu og haldiö þar fundi yfir
starfsfólkinu. Hafa þessar uppákom-
ur aðallega átt sér stað í hádeginu
meðan fólk hefur verið að snæða.
Sigrún Magnúsdóttir frá Fram-
sóknarflokki heimsótti starfsfólk
Búnaðarbankans í Austurstræti í
gær, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson frá
Sjálfstæðisflokki hélt fund í matsal
Toll- og skattstofu, Guðrún Agnars-
dóttir frá Kvennalista heimsótti aldr-
aða á Droplaugarstöðum, Guðrún
Ágústsdóttir og Astráður Haraldsson
frá Alþýðubandalagi heimsóttu
mötuneyti Orkustofnunar og Guð-
rún Jónsdóttir og Reynir Ingibjarts-
son frá Nýjum vettvangi heimsóttu
Múlabæ við Ármúla. Kjartan Jóns-
son, Metúsalem Þórisson og fleiri af
lista Græna framboðsins stóðu í
Austurstræti og dreifðu bæklingum.
Áshildur Jónsdóttir og Helga Gísla-
dóttir frá Flokki mannsins heimsóttu
starfsmenn Vatnsveitunnar á Höfða
og dreifðu bæklingum á götunni.
Fólk frá fleiri listum dreiföi einnig
bæklingum á götunni.
Meiri bragur í gamla daga
Móttökur hafa verið á alla vegu en
Hér er einn af kosningasmölum Nýs vettvangs að rétta vegfarendum niðri
i bæ bækling meö boðskap H-listans. DV-mynd BG
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og viö-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge.
Skammstafanir: Ab Alþýðubankinn,
Bb = Búnaðarbankinn, Ib = Iðnaðarbank-
inn, Lb = Landsbankinn, Sb=Samvinnu-
bankinn, Úb= Útvegsbankinn, Vb =
Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóðirnir.
Nánari upplýsingar um peningamarkaö-
inn birtast i DV á fimmtudögum.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, af lista Sjálfstæðisflokks, kynnti stefnumál flokks-
ins fyrir starfsfólki Tollstofu og Skattstofu. DV-mynd GVA
Sigrún Magnúsdóttir á lista Framsóknarflokks afhenti starfsfólki Búnaðar-
bankans í Austurstræti lykla að betri borg og hélt tölu. DV-mynd GVA
almennt má segja að skortur á áhuga
hafi verið mest áberandi.
„Ég vildi nú helst fá að borða í
friði,“ sagði karl í einu mötuneytinu
og var ekki sérlega hrifinn af ræðu-
höldunum. Hann sat þó, og hlustaði,
sem er meira en hægt er aö segja um
starfsmann á öðrum stað. Þegar
frambjóðandi eins listans sló skeið í
glas og tilkynnti að nú ætlaði hann
að kynna stefnuskrá síns flokks stóð
maður við borð næst honum á fætur
og sagði með þjósti: „Ætli það,“ og
nánast olnbogaði sig út úr salnum.
„Fólk hefur fengið yfir sig nóg af
stjórnmálum. Svo er þessi kosninga-
barátta svo líflaus og leiðinleg að
maður missir alveg áhugann á að
fylgjast með. Það var meiri bragur á
þessu í gamla daga,“ sagði eldri mað-
ur.
„Það er alltaf sama tuggan hjá
þessum frambjóðendum, sama frá
hvaða hsta þeir koma. Þeir eru fara
fram á ólíkustu hluti hjá borginni og
hjá kjósendum en gera sjálfir ekkert
annað en þvaðra. Það var einn að
segja að við ættum að hjóla í stað
þess að aka bíl. Ég á nú eftir að sjá
þessa frambjóðendur sleppa stýrinu.
Þeir eru síðastir manna til að ganga
á undan með góðu fordæmi," sögðu
konur við eitt matarborðið.
Loforð og skítkast
Þær bættu við að frambjóðendur
ættu frekar að láta sjá sig reglulega
á kjörtímabilinu og kynna fram-
kvæmdir og fleira fyrir fólki en að
vera að koma rétt fyrir kosningar.
„Hvað heldurðu að maður taki
mark á þessu fólki rétt fyrir kosning-
ar. Þetta eru tóm loforð og skítkast
út i hina. Ég hef löngu ákveðið hvað
ég ætla að kjósa og því hafa þessi
ræðuhöld engin áhrif á mig,“ sagði
ein kvennanna við borðið.
Síðustu orð konunnar féllu af vör-
um fleiri mötuneytisgesta og því ekki
víst að frambjóðendumir hafi haft
erindi sem erfiði í vinnustaðaheim-
sóknum sínum.
Á götunni gekk fólk annaðhvort
framhjá frambjóðendum sem buðu
bæklinga eða tók við þeim. Aðspurð-
ir sögðu tveir menn á gangi að þeir
læsu nú yfir bæklingana en þeir
hefðu þegar ákveðið hvaða lista þeir
ætluðu að kjósa. Aðrir vegfarendur
tóku í svipaðan streng. Árangurinn
af götustarfinu virðist því heldur
ekkihafaveriðafgerandi. -hlh
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR Innlán óverðtryggð (%) hæst
Sparisjóðsbækur ób. Sparireikningar 3.0 Allir
3ja mán. uppsögn 3-4 Ib.Sb,-
Sp
6 mán. uppsógn 4-5 Ib.Sb
12mán. uppsögn 4-5,5 lb
18mán. uppsögn 11 Ib
Tékkareikningar, alm. 0,5-1 Allir nema Ib
Sértékkareikningar Innlán verðtryggð 3.0 Allir
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1,5 Allir
6 mán. uppsögn 2,5-3,0 Lb.Bb,- Sb
Innlán með sérkjörum Innlángengistryggð 2,5-3,25 Ib
Bandarikjadalir 7-7.25 Lb.Sb
Sterlingspund 13,6-14,25 Sb
Vestur-þýsk mörk 6,75-7,5 Lb
Danskar krónur 9,25-10,75 Sb
ÚTLÁNSVEXTIR Útlán óverðtryggð (%) lægst
Almennirvixlar(forv) 13,5-13,75 Bb.Sb
Viðskiptavixlar(forv.) (1) kaupgengi
Almennskuldabréf 14,0 Allir
Viöskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir
. Hlaupareikningar(yfirdr.) Útlán verðtryggð 16,5-17,5 Bb
Skuldabréf 7,5-8.25 Lb.Bb
Útlántilframleiðslu
Isl. krónur 13,75-14,25 Bb
SDR 10.75-11 Bb
Bandaríkjadalir 10.10-10.25 Bb
Sterlingspund 16,8-17 Sp
Vestur-þýsk mörk 9,9-10,5 Bb
Húsnæðislán 4,0
Lifeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 23,0
MEÐALVEXTIR
Óverðtr. mai 90 14,0
Verðtr. maí 90 7,9
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitala júní 2887 stig
Lánskjaravísitala mai 2873 stig
Byggingavísitala maí 541 stig
Byggingavisitala mai 169,3 stig
Húsaleiguvisitala 1.8% hækkaði 1. apríl.
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjó^a Einingabréf 1 4,858
Einingabréf 2 2,656
Einingabréf 3 3.200
Skammtímabréf 1.648
Lífeyrisbréf Gengisbréf 2,127
Kjarabréf 4,832
Markbréf 2.568
Tekjubréf 1,975
Skyndibréf 1,445
Fjölþjóðabréf 1,270
Sjóðsbréf 1 2,346
Sjóðsbréf 2 1.761
Sjóðsbréf 3 1.640
Sjóðsbréf 4 1,391
Vaxtasjóðsbréf 1,6570
Valsjóðsbréf HLUTABRÉF 1.5605
Söluverð að lokinni jofnun m.v. 100 nafnv.:
Sjóvá-Almennar hf. 650 kr.
Eimskip 420 kr.
Flugleiðir 168 kr.
Hampiðjan 159 kr.
Hlutabréfasjóður 180 kr.
Eignfél. Iðnaðarb 159 kr.
Skagstrendingur hf. 367 kr.
Islandsbanki hf 155 kr.
Eignfél. Verslunarb. 126 kr.
Oliufélagið hf. 449 kr.
Grandi hf. 166 kr.
Tollvörugeymslan hf. 105 kr.
Skeljungur hf. 441 kr.
Guðrún Ágústsdóttir, aðstoðarmaður menntamálaráðherra og borgarfulltrúi
G-listans, kynnir hér málflutning þeirra i matsal Orkustofnunar.
DV-mynd BG
Metúsalem Þórisson kynnir Græna framboðið fyrir vegfaranda í Austur-
stræti. DV-mynd GVA