Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1990, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1990, Page 8
8 FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 1990. f/ö/d/ bílasala híi, Umboðannl 'bla' ssissS^ dóðumárxn kummeo álau9ardögum'DV'BÍLA^ >V-&LARðb,U9flýsin9ari 's'óastalaniV aadL>eras te9'ZT?a^iner ,a M.00 lau9ardacia f<-6 i,n nema '40°°9sunnT09 0°til kl-18.0 OtinzoÍ^^ au9lýsingí Utlönd Mikhail Gorbatsjov Sovétforseti: Býður Litháum málamiðlun - fellur sovéska stjómin vegna efnahagstiUagnanna? Gorbatsjov Sovétforseti bauö Lit- háum í gær fullveldi innan tveggja til þriggja ára gegn því skilyrði aö þeir fresti gildistöku sjálfstæðisyfir- lýsingar sinnar frá 11. mars síðast- liðnum. Þá hafa róttækir sovéskir þingmenn farið fram á aö van- trauststillaga á stjórnlna verði lögð fram á þingi vegna nýkynntra efna- hagstillagna en það er í fyrsta sinn sem slík krafa heyrist þar í landi. í gær, í fyrsta sinn frá því að Lithá- ar lýstu yfir sjálfstæði, gætti sátta- tóns í afstöðu Moskuvaldsins til sjálf- stæðisbaráttu Eystrasaltsríkjanna. Nikolai Medvedev, einn fulltrúa í Æðsta ráðinu, skýrði frá því að Gor- batsjov hefði, á fundi með fulltrúum Litháa, boöið þá málamiðlun að Lit- háar fái sjálfstæði innan nokkurra ára gegn því að þeir fresti gildistöku sjálfstæðisyfirlýsingar sinnar. „Gor- batsjov kvaðst þarfnast tveggja til þriggja ára... til að leysa alla efna- hagslega hnúta í þjóðfélaginu," sagði Medvedev sem, í samtali við Reuter- fréttastofuna, kvaðst sjá þarna eilitla afstöðubreytingu hjá forsetanum. Medvedev kvað Gorbatjov hafa ít- rekað þá kröfu sína að fullveldisyfir- lýsingin verði fryst, þ.e. gildistöku hennar verði frestað. „Við sögðumst mundu hugsa málið,“ sagði hann. Þetta sáttatilboð Gorbatsjov kemur á sama tíma og efnahagslegar refsi- aögerðir sovéskra yfirvalda eru farn- ar að hafa alvarleg áhrif á stöðu iðn- aðar og efnahags í lýðveldinu. „Inn- an tíu daga verða ekki neinar birgðir af kjöti, brauði né mjólk,“ sagði einn talsmanna litháiskra stjórnvalda í gær. Litháar, sem eru í fararbroddi baráttu Eystrasaltsríkjanna þriggja - Litháens, Lettlands og Eistlands - Kópavoqsvöllur 2. deild Breiðablik - Víðir í kvöld kl. 20:00 Kópavogsbúar fjölmeniúð á völlinn BYKO Gorbatsjov Sovétforseti á ekki sjö dagana sæla nú. Símamynd Reuter AUK/SlA k10d11-151 fyrir endurheimt sjálfstæðis þeirra hafa mátt sæta efnahagsþvingunum af hendi Moskvu. Til að sýna van- þóknun sína á samþykkt litháiska þingsins á þremur lagafrumvörpum, sem m.a. kveða á um litháisk per- sónuskilríki, skrúfuðu sovésk stjórn- völd fyrir ohu til lýðveldisins. Lithá- ar hafa boðist til að falla frá þessum lögum setjist fulltrúar Moskvu- stjórnarinnar að samningaborðinu. Aukinn þrýstingur Pólitískur og efnahagslegur þrýst- ingur á Gorbatsjov eykst sífellt. Vegna fyrirhugaðra breytinga í efna- hagsmálum, breytinga í átt að mark- aðshagkerfi, hamstra landar hans nú sem óðast ýmsar nauðsynjavörur því þessar fyrirhuguðu breytingar munu hafa í fór með sér miklar verð- hækkanir. Áætlanirnar hafa þegar verið harðlega gagnrýndar af al- menningi og róttækum fulltrúum á löggjafarþinginu og hafa hinir síðar- nefndu farið fram á að vantrausts- tillaga á stjómina verði lögð fram í þinginu. Þetta er í fyrsta sinn sem slík krafa er lögð fram í Sovétríkjun- um. Róttækir umbótasinnar segja að efnahagstillögur Ryzhkovs forsætis- ráðherra innihaldi ekki áætlanir fyr- ir markaðshagkerfi heldur leggi alla áherslu á verðhækkanir. Búast má við að þingmenn gangi til atkvæða um vantrauststillöguna í dag. Til að tryggja fall stjómar Ryzhkovs þurfa tveir þriðju þingmanna að sam- þykkja tillöguna. I fréttum Interfas í gær sagði að róttækir hefðu tryggt sér stuðning um tvö hundruð þing- manna af 542. Reuter Forsetakosningar 1 Rússlandi: Vaxandi stuðning> ur við Jeltsin Boris Jeltsin, hinn umbótasinnaði þingmaður, var í gær útnefndur til framboðs í embætti forseta sovéska lýðveldisins Rússlands en líklega verður kosið til þessa embættis síðar í dag. Jeltsin verður einn átta framj- óðenda til þessa embættis sem er tal- ið meöal valdamestu embætta í Sov- étríkjunum. í upphafl voru þrettán sem sóttust eftir emætti forseta en fimm þeirra, þar á meðal fráfarandi forseti lýðveldisins, drógu framboð sín til baka. Stuðningur við framboð Jeltsins hefur greinilega farið vaxandi síð- ustu daga. Margir fulltrúar á rúss- neska þinginu, þar sem kosning for- seta fer fram, segja að árásir Gor- batsjovs Sovétforseta á Jeltsin og stefnu hans kunni að hafa úrslita- áhrif í kosningunum en stirt er milli Gorbatsjovs og Jeltsins. Á miðviku- dag sakaði Sovétforseti Jeltsin um að vilja „bannfæra" kommúnisma frá Sovétríkjunum og segja sumir að þessi ummæli kunni að breyta stöðu mála Jeltsin í hag. Helstu keppinautar Jeltsins eru Alexander Vlasov, sem er stuðnings- maður Gorbatsjovs, og harðlínumað- urinn Ivan Polozkov. Litið er á kosn- ingarnar um forseta þessa stærsta lýðveldis Sovétríkjanna sem próf- stein á styrk róttækra umbótasinna í Rússlandi. Jeltsin er leiðtogi sam- takanna Lýðræðislegt Rússland en þau samtök ráöa yfir um ijörutíu prósent sæta á rússneska þinginu. En þrátt fyrir það er ekki ljóst hvort Jeltsin geti tryggt sér stuðning meiri- hluta þingmanna eins og þarf til að nákjöriforseta. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.