Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1990, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1990, Page 10
10 FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 1990. Útlönd ísraelsmaður hrópar ókvæðisorð að Palestínumanni í Jerúsalem Simamynd Reuter Andvígir komu eftirlitsmanna ísraelsk yfirvöld eru mótfallin því að eftirlitsmenn á vegum Sameinuðu þjóðanna verði sendir til herteknu svæðanna. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna kemur saman til fundar í dag í Genf til að ræða ástandið á herteknu svæðunum. Búist er við því að Yasser Arafat, leiðtogi Frelsis- samtaka Palestínu, fari þá fram á alþjóðlega vernd til handa Palestínu- mönnum. Forseti ísraels, Chaim Herzog, sem áður var fastafulltrúi hjá Sameinuðu þjóðunum, sagði í sjónvarpsviðtali í gær að hann sæi ekkert jákvætt við fund Öryggisráðsins og Yitzhak Shamir, forsætisráöherra ísraels, sagði aö ísraelar myndu standa í vegi fyrir komu eftirlitsmanna ef ákvörðun um að senda slíka yrði tek- in. Utanríkisráðherra Bandaríkjanna, James Baker, tilkynnti að hann væri fús til aö ræða um að senda eftirlits- menn Sameinuðu þjóðanna til her- teknu svæðanna en til að foröast ágreining við ísraelsk yfirvöld til- kynnti bandaríska utanríkisráðu- neytiö í gær að það væri mótfallið því að senda eftirlitsmenn til fram- búðar. Það væri hins vegar hlynnt Palestinumaöur i Beirút meö val- slöngvu á lofti mótmælir ofbeldi ísraelskra hermanna á herteknu svæðunum. Símamynd Reuter því að senda menn til eftirlits í skamman tíma. ísraelsk yfirvöld óttast að morðin á palestínsku verkamönnunum sjö á sunnudaginn geti leitt til kaflaskila í uppreisninni. Óeirðir meðal Palest- ínumanna hafa verið víðtækar þessa viku og meöal annars breiðst út til Jórdaníu. Hjá varnarmálaráðuneyti ísraels segja menn að sú staðreynd að Öryggisráðið komi saman sé áfangasigur Frelsissamtaka Paiest- ínumanna sem styðja uppreisnina á herteknu svæðunum. ísraelskir leiðtogar segja að eftir- litsmenn séu óþarfir þar sem ísrael- skar öryggissveitir veiti Palestínu- mönnum næga vernd. En Palestínu- menn segjast vilja alþjóðlega eftir- litsmenn í stað byssukjafta. ísrael- skir leiðtogar fullyrða einnig að al- þjóðlegir eftirlitsmenn verði ekki hlutlausir. Hjálparstarfsmenn á vegum Sam- einuðu þjóðanna og Rauða krossins eru nú á Vesturbakkanum og Gaza- svæðinu og eru á vissan hátt nokk- urs konar eftirlitsmenn. Nærvera þeirra hefur oft dregiö úr átökum milli ísraelskra hermanna og araba. Reuter Húsbyggjendur * verktakar * hönnuðir MONO-SILAN síðan 1960 * 0 Eykur vatnsþol steinsteypu Eykur endingu málningar Hindrar alkalískemmdir Efni rannsakað hjá Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins rannsókn nr. H85/216, type A " " type B KISILL Lækjargötu 6b, Reykjavík, sími 15960 Morðalda 1 Nuuk: Ekki bann við sölu áfengis Heimastjórnin á Grænlandi vill ekki banna áfengissölu í Nuuk, höf- uðborg landsins. Lögregluembættið í Nuuk hafði farið fram á það við heimastjórnina að bann yrði sett við sölu áfengis vegna þeirrar ofbeldis- öldu sem gengið hefur yfir höfuð- borgina. Síðastliðinn einn og hálfan mánuð hafa verið framin fimm morð í Nuuk og tvær morðtilraunir hafa verið gerðar. Yfirmenn lögreglunnar segja að ofbeldið sé svo mikið að ekki sé hægt að leysa vandann með því að ráða fleiri til lögreglustarfa. Síðustu tíu árin hafa verið framin hundrað tuttugu og fimm morð á Grænlandi. Flestir þeirra sem af- plána fangelsisdóma á Grænlandi hafa verið dæmdir vegna grófs of- beldis. Og fangelsin eru alltaf yfir- full. Þaö sem af er þessu ári hafa sautján morð verið framin á Græn- landi. Tólf morðtilraunir hafa verið gerðar. í fyrra voru framin þrettán morð á landinu öllu en árið 1988 átján morð. Það er skoðun aðstoðarlögreglu- stjórans í Nuuk, Jens Henrik Höj- bjerg, aö flestir afbrotamannanna fari út á þessa braut vegna lélegra uppvaxtarskilyrða. Þeir hafi verið aldir upp við slæmar þjóðfélagslegar aðstæður og í umhverfi þar sem gíf- urleg misnotkun áfengis hefur átt sér stað en hún er aðalorsök afbrota, að sögn aðstoðarlögreglustjórans. Ritzau Fyrirhugaðar forsetakosningar í Kólumbíu: Of beldi setur svip sinn á baráttuna - Qórir láta lifið í sprengingu Að minnsta kosti fjórir létust þegar bílasprengja sprakk í borginni Me- dellín í Kólumbíu í gær, aðeins ör- fáum dögum áður en forsetakosning- ar fara fram í landinu. Lögregla seg- ir að eiturlyfjabarónar, sem staðið hafa að baki mörgum sprengjutil- ræðum, séu að reyna að hafa áhrif á fyrirhugaðar kosningar, næstkom- andi sunnudag. Sprengingin varð fyrir utan hótel í borginni í gærdag. Eldur kviknaði í þremur bifreiðum og stór gígur myndaðist í götuna þar sem spreng- ingin varð, auk þess sem rúður í hótelinu brotnuðu. Sprengjan var gífurlega öflug, milli sextíu og áttatíu kíló af sprengiefni, að því er lögregla hefur skýrt frá. Meðal þeirra sem létust var ökumaöur bifreiðarinnar sem sprengjan var í. Það var ökumaður bifreiðarinnar sem setti sprengjuna af stað. Bifreið- in var stöðvuö af lögreglu um miðjan dag er hún var á ferð fyrir utan Int- ercontinental hótelið í úthverfi Me- dellín, helstu eiturlyfjamiðstöð landsins. Lögregluþjónn var í þann veginn að leita í bifreiðinni þegar sprengjan sprakk. Lögreglumaður- inn og ökumaðurinn létust sam- stundis. Tveir aðrir létu einnig lífið í sprengingunni og tíu slösuðust, að sögn lögreglu. Bílasprengjan í gær var sú tíunda i Kólumbíu frá mars- lokum en þá hertu eiturlyfjabarónar stríð sitt við kólumbísk yfirvöld. Rúmlega sextíu manns hafa látist í Að minnsta kosti fjórir létust i bila- sprengju i Medellín í Kólumbíu í gaer. Símamynd Reuter þessum sprengingum. Kosningabaráttan í Kólumbíu hef- ur einkennst af ofbeldi. Þessar kosn- ingar munu ráða úrslitum um her- ferð Barcos forseta gegn eiturlyfa- barónum og auknu eiturlyfjasmygh úr landinu. Mikil öryggisgæsla verð- ur á kjörstöðum til að tryggja að kjós- endur geti neytt réttar síns og lög- regla hefur tekið í sína vörslu hundr- uð manna til að reyna að forða árás- um á kosningadag. Einn embætt- ismaður í Kólumbíu segir að tvö hundruð manns hafi þegar verið tek- in í vörslu yfirvalda. Reuter Aukakosningar í Bretlandi: Stórsigur Verka- mannaflokksins Breski Verkamannaflokkurinn, sem er í stjórnarandstöðu, vann yfir- buröasigur í aukakosningum í Bootle kjördæminu í Liverpool sem fram fóru í gær. Frambjóðandi flokksins, Mike Carr, hlaut aíls 26.737 atkvæði en frambjóðandi íhaldsflokks Thatc- her forsætisráðherra hlaut alls 3.220 atkvæði. Þessi úrslit komu fáum á óvart því íbúar Bootle hafa allajafna verið hlynntir Verkamannaflokkn- um og þetta þingsæti því taliö öruggt sæti flokksins. Kosningaþátttaka var dræm eða aðeins fimmtíu prósent. Þrátt fyrir ósigurinn í kosningun- um í gær gátu íhaldsmenn alltént fagnað niðurstöðum nýrrar skoðana- könnunar um fylgi flokkanna. Sam- kvæmt niðurstöðum könnunar BBC hefur forskot Verkamannaflokksins á íhaldsflokkinn minnkað nokkuð frá síðustu könnunum. Ef gengið yrði til kosninga nú fengi Verka- mannafiokkurinn_ 47 prósent at- kvæða samkvæmt könnuninni en íhaldsflokkurinn 34 prósent. Þá hafa vinsældir Thatchers aukist, ef marka má niðurstöður könnunarinnar. Hún hlaut atkvæöi þrjátíu prósenta aðspurðra en Neil Kinnock, leiðtogi Verkamannaflokksins, þrjátíu og níu prósenta. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.