Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1990, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1990, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 1990. Spumingin Lesendur Hvernig hefur þér fundist kosningabaráttan? Valgarð Thoroddsen nemi: Ég fylgist nú ekki mikið með en það er allt of mikiö af auglýsingum. Sonja Berglind Hauksdóttir nemi: Ég hef ekkert fylgst með þessu. Hjálmar Sigmarsson nemi: Ég hef ekkert fylgst með þessu. Nýr vett- vangur og Sjálfstæðisflokkurinn eru þeir einu sem ég hef tekið eftir. Marta Siguijónsdóttir húsmóðir: Það hefur farið lítið fyrir henni. Ég hef ósköp lítið orðið vör við hana. Kristján Kristjánsson verslunarmað- ur: Voðalega leiðinleg og litlaus. Þetta er sama gamla kvabbið. Bjartmar Sigurðsson sjómaður: Mjög dauð. Ég hef ekki orðið var við nokkra kosningabaráttu. Þetta hefur oft verið fjörlegra. Erum við vanþróuð þjóð? en við vilja sem allra lengst í burtu frá sér. - Er okkur við bjargandi? Nú er rétti tíminn fyrir hinn al- menna borgara að segja; Nei, takk! íslendingur skrifar: Mikil vanþekking á sér stað um gjörvalla heimsbyggðina vegna hinnar háskalegu mengunar náttúr- unnar og nánasta umhverfls okkar. - „Buried alive“ eða grafinn lifandi, stóð yfir þvera forsíðu bandaríska tímaritsins Newsweek hinn 27. nóv. sl. - Mönnum er farið að skiljast að mengunin er að verða nánast óvið- ráðanlegt vandamál. Já, við erum að drukkna í eigin sorpi. Öllu verra mun þó vera að eitur- efni sem við sumpart sjáum ekki og sumpart eru falin augum fólks eru að læðast aftan að okkur, eitra vatns- ból, fengsæl fiskimið - og það hættu- legasta; að eitra svo andrúmsloftið, að þeim sem andann draga er búinn bani verði ekkert að gert. Við uggðum ekki að okkur þegar áburðarverksmiðja var byggð, en við megum ekki ásaka þá sem að því stóðu. Áburðarverskmiöjan var og er nauðsynleg. Hún hefur eflt rækt- un í landinu og því staðið fyrir sínu. Staðsetningin var skammsýni. En var verksmiðjan í Straumsvík það ekki líka, og þó e.t.v. alvarlegra mál? Klaufalegt atvik vegna rafmagns- loka ofan á ammoníaksgeymi, sem sumir töldu óþarfan, ætti ekki að verða til þess að þjóðfélagið færi á hvolf. Við getum gert þessa verk- smiðju þannig úr garði, að hún geti þjónaö hlutverki sínu enn um skeiö. Vinna þarf hins vegar að því að hún verði flutt þegar endurnýja þarf tækjabúnaðinn. - Allt óðagot og Sorpið sækir á - einnig á íslandi. taugaveiklun í þessu sambandi er varla sæmandi vel menntuðu fólki. En hugum að okkur sjálfum og því sem við erum að gera á því ári sem allar þjóðir heims eru að vakna til meðvitundar um að mengun og sorp eru að drekkja okkur. - í sömu andrá og við erum að breiða út þann áróður að hér sé hreint loft, hreinn sjór og ómengað gras, erum við sem óðir að reyna að fá til okkar eiturspúandi stóriðjuverksmiðjur sem allir aörir Fjárflutningur frá Skriðuklaustri Guðmundur Nikulásson, oddviti Vallahrepps, skrifar: Vegna fréttar í DV 11. maí sl. um flutning á fé frá Skriðuklaustri í Freyshóla vil ég taka fram eftirfar- andi: í des. sl. kom beiðni frá Tilrauna- stöðinni Skriðuklaustri um flutning á fé frá Klaustri í Mjóanes til að varð- veita ullareiginleika stofnsins á Klaustri ef þar kæmi riðuveiki. Sauð- fé í Mjóanesi var ekki lógað þegar öðru fé í Vallahreppi var fargað vegna þess að land hafði verið girt fyrir 10 árum. - Hreppsnefnd gerði ekki athugasemd við þá flutninga, ef sauðfjárveikivarnir, héraðsdýra- læknir og riðunefnd gæfu samþykki. Samþykkið fékkst. í vor hætti bóndinn í Mjóanesi að taka féð og ræddi tilraunastjórinn við bóndann á Freyshólum, sem er næsti bær við Mjóanes, en þar var öllu fé lógað 1987. - Tókust samning- ar vð ábúanda og leyfi sauíjárveiki- varna og dýralæknis fyrir þessari ráðstöfun. Töldu þeir þetta betri kost en áður var rætt um og yröi féð í einangrun þarna næstu árin. Kæmu fram breytingar á heilasýnum við lógun flár á Klaustri í haust yröi þessu fé slátrað strax. Þegar flárflutningurinn í Freys- hóla á 50-80 kindum kom til umræðu hjá hreppsnefnd var ákveðið að hafa þennan flutning til umræðu á vænt- anlegum sveitarfundi. Fyrirspurn kom fratn hvort málið kæmi til at- kvæðagreiðslu og hverjir hefðu at- kvæðisrétt. Hreppsnefnd ákvað fyrir fundinn að leggja málið ekki fyrir til atkvæðagreiðslu en menn gátu að sjálfsögðu lagt fram tillögu á fundin- um varðandi þessa flutninga og hefði húmþá verið tekin til afgreiðslu. - Á fundinum komu ekki fram nein þau rök að sérstök sýkingarhætta væri af þessum flutningum. Þáð varð því ákvörðun meirihluta hreppsnefndar á sérstökum fundi eftir umræddan sveitarfund að leyfa þessa flutninga. Talið var brýnt að reyna aö bjarga hinum einstöku ull- areiginieikum sem ræktast hafa upp á Klaustri. - Til að útiloka það að aðrir bændur í Vallahreppi, sem eru að taka fé aftur, verði settir í hættu, ef riða reyndist í þessu fé, var sett það skilyrði að féð yrði innan tvö- faldrar girðingar. Hjósá Guðmundur Sigurðsson skrifar: Ef beðið væri um umsögn hjá t.d. bresku fyrirtæki um viðskiptavin sem erfitt væri að mæla með yrði svarið oftast eitthvað á þá leið að því miður væri ekki hægt að veita um- beðnar upplýsingar. - Hjá fyrirtækj- um, sem vilja láta taka sig alvarlega, gilda nefnilega vissar umgengnis- venjur og í aðalatriðum byggðar á almennri kurteisi. Hjá okkur íslendingum er annaö uppi á teningnum. Við erum ennþá eftirbátar annarra þjóða á mörgum sviðum mannlegra samskipta. Dæmi úr íslensku viðskiptalífl sýnir þetta berlega: - Arnarflugsmenn róa lí- fróður um þessar mundir til þess að bjarga fyrirtæki sínu. Framkoma sumra viöskiptaaðila Arnarflugs í garð félagsins af þessu tilefni er væg- ast sagt forvitnileg. Þannig hafa t.d. forráðamenn Flug- leiða farið offari í yfirlýsingakæti sinni við flölmiðla um viðskipti sín við Arnarflug. - Arnarflug fær ekk- ert hjá Flugleiðum nema gegn stað- greiðslu... og; Arnarflugsmenn verða að borga fyrirfram fyrir leiguflugið sem fara á kl. 17, annars verður ekk- ert flogið. - Flugleiðir eru hættar að taka farseðla Arnarflugs gilda... Fleiri þess háttar yfirlýsingum hefur verið komiö á framfæri á færibandi frá Flugleiðum i gegn um fiölmiðlana að undanfórnu. er hlífa skyldi? „Forréttindi í íslenskum flugsamgöngum hafa sært réttiætiskennd margra,“ segir hér m.a. ’ Nú er í sjálfu sér ekkert athugavert við það, þótt krafist sé fyrirfram- greiðslu frá illa stöddum fyrirtækj- um. En það, að því til viðbótar skuli viðskiptavinur þurfa að bíða álits- hnekki í flölmiðlum í kaupbæti fyrir viðskipti (staðgreiðsluviðskipti, vel að merkja) getur varla átt sér nokkra hliðstæðu. - Sé haft í huga að hér er aðeins verið að flalla um hluti sem blasað hafa við á yfirborðinu hljóta að vakna áleitnar spurningar um það hvað geti þá átt sér stað að tjaldabaki. Sú auömýking sem Arnarflug hef- ur mátt þola frá Flugleiðum með þessum og álíka hætti segir í raun miklu meiri sögu um síðarnefnda félagið en Arnarflug. Flugleiðamenn virðast nefnilega alveg hafa gleymt því að fyrir aðeins tíu árum áttu þeir sjálfir í miklum rekstrarerfiðleikum. Urðu þeir þá auðmjúkir að fara bón- arveg til þjóðarinnar eftir flárstuðn- ingi. Þeir voru bænheyrðir og flár- stuðningur veittur. Og Flugleiðir náðu sér aftur á strik. Það er því mikil reisn yflr framkomu þeirra við Arnarflug nú! Sú danska einokun, sem hefur ver- ið látin viðgangast í samgöngumál- um íslendinga, hefur sært réttlætis- kennd margra. Reynslan hefur ótvír- ætt sýnt að skjólstæðingar einokun- ar hafa ekkert gott af þeirri vernd. Vegna forréttindanna hættir þeim til aö fyllast hroka þess sem ekkert að- hald þekkir og engin takmörk kann. Forréttindi ætti að afnema sem allra fyrst. Lækkun á fasteigna- skatti? Sigurveig Guðmundsdóttir skrifar: Getur hugsanlega einhver fært mér upplýsingar um hvort Ör- yrkjar og aðrir með tekjur undir skattleysismörkum og eru að basla í íbúðakaupum fái lækkun á fasteignaskatti hér í Reykjavík? Nú er þessi skattur fallinn í gjalddaga og þeir sem geta hafa greitt hann. Verður þá um endur- greiðslu að ræða og væri ekki einfaldara að ákveða þetta fyrr eins og ég held að gert sé í öðrum sveitarfélögum? Lesendasíða DV hafði samband við Skrásetningardeild fasteigna vegna þessarar fyrirspurnar. í svari hjá deildinni kom fram að framtaisnefnd sem miðar við tekjur viðkomandi samkvæmt skattaframtali tekur ákvörðun um hvort endurgreiösla skuli framkvæmd. - Þessu starfi á nú að vera lokið og á greiðsla að koma sjálfkrafa inn á reikning viðkomandi aðila ef um endur- greiðslu er að ræða. Sé um ein- hver vafaatriöi aö ræöa sem bréf- ritari þarf frekari skýringar á ætti hann því að snúa sér beint til Skattstofunnar og fá endanleg- an úrskurð hvað endurgreiðslu varðar. Hringið í síma 27022 milli kl. 14 og 16 eða skrifið ATH.: Nafn og sími verður að fylgja bréfum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.