Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1990, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1990, Page 15
FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 1990. 15 Málefni fatlaðra í stjórnarráisfrumvarpi Fyrir framan mig liggur frum- varp til laga um Stjórnarráö ís- lands sem felur aö meginefni til í sér uppstokkun ráðuneyta og mun eflaust margt vísa á réttan veg, enda ekki ætlan mín að fjalla um frumvarpið út af fyrir sig. Það bíð- ur síns tíma við nánari umfjöllun Alþingis á næsta þingi að senda þar inn beinar athugasemdir af hálfu hagsmunasamtaka fatlaðra. En annað og alvarlegra tilefni þessu tengt knýr og kallar á at- hugasemdir nú þegar og er þó at- hugasemd afar vægt orð yfir það tilefni. Lengi mátti ég leita Með frumvarpinu sjálfu sem fylgigagni til nokkurrar vegvísun- ar fyrir Alþingi og stjórnvöld eru tillögur nefndar þeirrar er frum- varpið samdi að reglugerð um við- fangsefni hinnar nýju endurskipu- lögðu ráðuneyta og þar staldra ég heldur betur við. Svo margt ágætra manna hefur þar um vélað að full ástæða er til að taka mark á tillögum þessum og reikna um leið með því að sjálf- sögðu að það muni verða gert af þeim sem endanlega regulgerðar- smíð annast. Eðlilega varð mér fyrst fyrir að leita að þeim málefnum sem ég öðrum fremur ber fyrir brjósti - málefnum fatlaðra og átta mig á því hvern sess nefndin ætlaði þeim í stjórnkerfí framtíðarinnar. Ég efaðist í upphafi ekki um það að miðað við sjálfstæða stöðu þess- Kjallarixm Helgi Seljan félagsmálafulltrúi ÖBÍ ara málefna í dag, þar sem er sér- stök deild í félagsmálaráðuneytinu, sérstök stjórnarnefnd um málefni fatlaðra svo og skýr afmörkun málaflokksins í íjárlögum yrði hér um sjálfstætt viðfangsefni að ræða, skýrt afmarkað með sinn ákveðna stað, sinn verðuga sess. En lengi mátti ég leita og ekkert fann ég viðfangsefnið málefni fatl- aðra og var þó viðfangsefnalistinn langur og ítarlegur, ekki vantaði það. Vanmat á málaflokki í þessum tillögum eru flestu milli himins og jarðar gerð góð skil og jaðrar við sparðatíning hjá sumum ráðuneytum, en réttlætanlegt er þetta eflaust og skal ekki átalið. En þeim mun meira finnur mað- ur til þegar yfirlestur viðfangsefna af fjölbreyttasta toga leiðir í ljós slíkt vanmat á málaflokki fatlaðra sem raun ber vitni og vikið skal að á eftir. Ég hlýt hins vegar fyrst að segja að ég læt það ekki hvarfla að mér að um viljaverk nefndarmanna sé að ræða. Slíkt væri aö ætla þeim vísvitandi andúð í garð þessa málaflokks eða að vita hreinlega ekki af honum og hvorugt er til staðar. Ég verð að ætla að hér séu hrapalleg mistök ein á ferð því til skemmdarverka, einmitt í þessum málaflokki, eru þessir menn ólíklegastir allra. En mistökin verður að leiðrétta og það svo snarlega að þegar frum- varpið verður nú lagt fyrir Alþingi á haustdögum þá treysti ég því að málefni fatlaðra (og raunar málefni aldraðra einnig) hafi fengið rými í reglugerðartillögum 'sem sjálfstætt og þýðingarmikið viðfangsefni. En þá skal að meginmáli vikið. Eftir ítarlega leit fann ég að lok- um það sem ég leitaði að, en óskap- lega mjög á annan veg en ég hugöi. Þá kom sem sé á daginn að hér var um innskotsaukasetningar ein- ar að ræöa sem létu vægast sagt lítið yfir sér - innskotsorð ein raun- ar. Undir viðfangsefnum hins nýja heilbrigðis- og félagsmálaráðu- neytis - viðfangsefnin eru tólf tals- ins - er viðfangsefni þrjú svohljóð- andi: Mál er varða rekstur sjúkra- húsa, hjúkrunarheimila og dvalar- heimila aldraðra, dagvista sjúkra, sambýla fatlaðra, endurhæfingar- stöðva, meðferðarheimila og aðra starfsemi sérstaklega í þágu sjúkra, fatlaðra og aldraða. Svo mörg eða réttara sagt - svo fá voru þau orð. Máski best að hafa sem fæst orð um fásinnu þessa en finna í þess stað farsæla leið út úr þessum mis- takaógöngum. Óviðunandi tillögugerð Það mætti halda að samþjöppun mála almennt væri slík í viðfangs- efnum ráðuneytanna að þetta væri eðlileg afleiöing þess. En svo er al- deilis ekki. Viðfangsefni númer 4: Mál er varðar vernd barna og unglinga. Sjálfstætt viðfangsefni og sjálfsagt. Númer 11: Atvinnuréttindi útlend- inga. Sjálfstætt viðfangsefni og eflaust í lagi. Og svo mætti áfram telja. Og ekki batnar það þegar kemur yfir í önnur ráðuneyti. Smádæmi um dóms- og kirkjumálaráðuneytið nægja til að sýna hve vandlega er fariö þar ofan í sauma um sjálfstæð viðfangsefni. 17. viðfangsefni: Mál er varða skipströnd og vogrek. Örugglega þarft og ágætt. 7. viðfangsefni: Mál er varða skráningu og meðferö per- sónuupplýsinga. Þó það nú væri. 11. viðfangsefni: Mál er varða greftranir og útfararstofnanir. Virðingarvert og sjálfsagt. Hins vegar læddist að mér sú óguðlega hugsun hvort ekki hefði allt eins mátt setja einliverja auka- setnignu um fatlaða undir þetta áðurtalda ellefta viðfangsefni dóms- og kirkjumálaráðuneytis miðað við þá meðferð sem ráö er fyrir gert. Ög er nú best að fara að segja „amen eftir efninu“. En áður skal það undirstrikað að svo óviðunandi er þessi tillögugerð að engu er líkara en menn ætli að fara áratugi aftur í tímann og hafi enga hugmynd um þá ágætu og mikilvægu deild um málefni fatl- aðra sem í félagsmálaráðuneytinu er og þá dýrmætu þróun sem í kjöl- farið hefur fylgt. Svo óviðunandi er hún með öllu að það verður að ætla að hér hafi mannleg mistök ein átt sér stað og því verði auðveldur róður og léttur leikur að leiðrétta þau svo ekki hljótist af ófyrirsjáanlegur skaði: Það veit ég enginn ætlar sér. Og því segi ég endanlega amen nú - að sinni. Helgi Seljan „Ég verð að ætla að hér séu hrapalleg mistök ein á ferð því til skemmdar- verka, einmitt í þessum málaflokki, eru þessir menn ólíklegastir allra.“ Fjármálaráðherra í frjálshyggjutaumi Það fer mikið af orku hjá náms- fólki innanlands og utan að hafa áhyggjur af Lánasjóði íslenskra námsmanna. Á hverju ári er út- hlutunarreglum breytt, námslán aukin eða minnkuð, ýmsum þum- alputtareglum breytt og þar fram eftir götunum. Það sem var öruggt í fyrra er allt í einu orðið öðruvísi og enginn getur gengið út frá neinu vísu. Núverandi ástand Lánasjóðurinn er gríðarlegt póli- tískt bitbein milli hægri og vinstri - eða var það a.m.k. Samt talar fjár- málaráðherra, formaður Alþýðu- bandalagsins, eins og frjálshyggju- maður í nóvemberhefti Sæmundar, blaðs SÍNE (Sambands íslenskra námsmanna erlendis) um að það séu nú því miöur ekki til meiri peningar til að standa við lög, út- hlutunarreglur og samninga sem gerðir voru við flokksbróður hans, menntamálaráðherra, í ársbyrjun 1989. Lánasjóðurinn hefur undanfarin ár verið rekinn á þann máta að safna skammtímaskuldum. Það eyðir örku allra sem sinna náms- lánamálum í að ræða hvernig hægt sé að bjarga hinni eða þessari upp- hæðinni við hin eða þessi áramót- in. í þessari umræðu virðist það oft hafa gleymst hver markmið Lánasjóðsins voru þegar hann var stofnaður. Kjallarirm Ingólfur Á. Jóhannesson, sagnfræðingur, leiðbeinandi kennaranema við Wisconsin- háskóla í Bandarikjunum Jafnrétti til náms Rifjum upp fáein grundvallarat- riði: Þegar námslán voru að fullu verðtryggð með lögunum 1976 var gengið út frá þeirri forsendu að námslán skyldu duga til fram- færslu svo að námsfólk þyrfti ekki að vinna með fullu námi. Jafnframt að tekið skyldi tillit til íjölskyldna námsfólks. Þetta þýddi að tekjur námsfólks voru dregnar frá náms- láni að mestum hluta. Þrátt fyrir að upphæð námslána væri miðuð við að lapinn væri dauði úr skel tókst fjölmörgu námsfólki með þessu móti að afla sér menntunar þótt það væri ekki af efnafólki kom- ið. í þessum hópi er greinarhöfund- ur og fjölmargt af hans vina- og kunningjafólki utan af landi. Mörg- um seinkaði aö vísu við að ljúka náminu en minna en áður enda veitti Lánasjóðurinn svigrúm til aö ljúka t.d. þriggja ára námi á fjórum. Það er bjargfost sannfæring mín að Lánasjóðurinn hafi á þessum árum, 1976-1984, lyft Grettistaki í að auka aðgang að menntun án jafnmikils tillits til búsetu og efna- hags aðstandenda eða kynferðis námsmanneskjunnar og áður.var. Það kostaði líka heilmikla baráttu, t.d. þurfti að reka mál fyrir dóm- stólum til að fá viðuricennt að námslán skyldi miða við fjöl- skyldustærð. Énda leist ráðherrum Sjálfstæð- isflokksins, sem komst til valda í menntamálaráðuneytinu 1983, ekki á blikuna. Hrært var upp í grundvallarforsendum kerfisins. Reyndar var það ekki gert allt í einum áfanga svo að fyrirgefi mér lesendur ef ég eigna Sverri Her- mannssyni það sem Ragnhildur Helgadóttir og Birgir Gunnarsson gerðu og öfugt. Fyrir mér eru þau öll eitt, þ.e. íhald eins og viö kölluð- um Sjálfstæðisflokkinn í sveitinni fyrir norðan í gamla daga. Það sem gert var var samverkandi: Upphæð námsláns til framfærslu var lækk- uö um 20,1% (skv. uppl. SÍNE) en námsfólki leyft að vinna meira áö- ur en farið væri að draga tekjur þess frá námsláni. Hið síðastnefnda haföi verið sérstakt baráttumál íhaldssinnaðra stúdenta í Háskól- anum um árabil. Misrétti til náms Hvernig virkar þetta svo í reynd? Hveijum er auðveldast að nýta sér þetta aukna svigrúm til vinnu? Svarið er: Einhleypum karlmönn- um sem eiga aðgang að vel laun- aðri vinnu. Það segir sig sjálft að aukið svigrúm til vinnu nýtist illa barnafólki, einkum einhleypu barnafólki (sem er aðallega konur). Eg hefi einnig trú á að almennt séð komi þetta fyrirkomulag verr út fyrir fólk utan af landi sem stundar nám í Reykjavík. Þetta kemur hörmulega út fyrir margt námsfólk erlendis, námsfólk sem ekki hefur aðgang að vinnu eða styrkjum. Fyrir sjálfan mig kom þetta afar illa út í eitt og hálft ár á meðan ég hafði ekki aðstoðarkennarastöðu hér við háskólann en kom skínandi vel út á sl. ári þegar aðeins einn þriðji hluti tekna var dreginn frá námsláni. Á hinn bóginn seinkar þetta fyrirkomulag mér í námi um a.m.k. hálft ár, ef ekki heilt ár, þar sem ég hefi ekki efni á að sleppa vinnunni eins og mig langar til að gera. Ef ég heföi átt val hefði ég kosið að fá allan tímann námslán sem dygði til þess að lifa af því. Það er líka eina vitið. Til þess var Lánasjóðurinn stofnaður og af því markmiði má ekki missa sjónar. Eini stjórnmálaflokkurinn sem virðist skilja þetta er Kvennalist- inn sem neitar að taka þátt í að „leiðrétta" og „leiðrétta" og „leið- rétta“. Eina raunverulega leiðrétt- ingin er sú að byrja á ný með mark- mið sjóðsins að leiðarljósi og búa til úthlutunarreglur í samræmi við þau og láta þær reglur haldast óbreyttar í fyrirframákveðinn ára- fjölda svo að hægt sé fyrir náms- fólk að gera vitibornar fiárhagsá- ætlanir. Á því munu alhr hagnast. Ingólfur Á. Jóhannesson „Þegar námslán voru að fullu verð- tryggð með lögunum 1976 var gengið út frá þeirri forsendu að námslán skyldu duga til framfærslu svo að námsfólk þyrfti ekki að vinna með fullu námi.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.