Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1990, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1990, Side 17
FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 1990. 41 íþróttir ir að leika á Stjörnumennina Bjarna Benediktsson og Birgi Sigfússon i Garðabæ í DV-mynd Brynjar Gauti ir sigur KR 1-3, í fyrsta 1. deildar leiknum í Garðabæ manna og skoraði af öryggi. Eftir markið komust Stjörnumenn betur inn í leikinn en náðu ekki að skapa sér nein færi. Garðbæingar náðu að jafna strax í upp- hafl síðari hálfleiks. Lárus Guömundsson vann boltann upp við endamörkin og skor- aði með fostu skoti sem Ólafur Gottskálks- son náði ekki að veija. Fögnuður Garðbæinga stóð þó ekki lengi því aðeins sex mínútum síðar náðu KR- ingar forystunni á nýjan leik og var þar Ragnar Margeirsson aftur að verki eftir sendingu frá Pétri Péturssyni. Vesturbæj- arliðið gerði síðan út um leikinn þegar Björn Rafnsson skoraði þriðja mark KR- inga. Bæði lið áttu hættuleg færi á lo- kakaflanum en mörkin urðu ekki fleiri. Stjörnumenn voru sprækir lengst af og ljóst er að þeir verða ekki auðunnir í sum- ar. Miðja hðsins var sterk með Árna Sveinsson og Ragnar Gíslason sem bestu menn en vömin var nokkuð óörugg. KR-ingar eru með sterkt lið um þessar mundir og verða án efa í toppbaráttunni. Ragnar Margeirsson og Pétur Pétursson voru mjög ógnandi í framlínunni og eiga án efa eftir að skora mörg mörk í sumar. Þrátt fyrir sigurinn virtust KR-ingar ekki vera ánægðir eftir leikinn, allavega neituðu þeir DV algerlega um viðtöl og lokuðu dyrum á undirritaðan. Stjarnan-KR 1-3 (0-1) 0-1 Ragnar Margeirsson (15.) 1-1 Lárus Guðmundsson (49.) 1-2 Ragnar Margeirsson (55.) 1-3 Bjöm Rafnsson (70.) Lið Stjörnunnar: Jón Otti Jónsson, Birgir Sigfússon, Bjami Benediktsson, Magnús Bergs, Sveinbjöm Hákonarson, Ingólfur Ingólfsson, Eyþór Sigfússon (Heimir Erl- ingsson 67.), Arni Sveinsson, Ragnar Gísla- son, Lárus Guðmundsson, Valdimar Kristó- fersson. Lið KR: Ólafur Gottskálksson, Sigurður Björgvinsson, Stefán Guðmundsson, Þor- móður Egilsson, Hilmar Bjömsson, Ragnar Margeirsson, Gunnar Skúlason, Þorsteinn Halldórsson, Björn Rafnsson (Sigurður Ómarsson 87.), Arnar Arnarsson, Pétur Pétursson. Áhorfendur: 1215. Dómari: Gísli Guðmundsson og sýndi hann sjö leikmönnum gula spjaldið. -RR „Búnir að fá sjálfstraustið“ - fyrstu stig ÍBV sem vann Þór, 2-0 Berglind Ómaisdóttir, DV, Eyjum: „Nú erum við búnir að fá sjálfstraus- tið eftir skellinn á móti Fram og ég vil þakka áhorfendum fyrir góðan stuðning. Við ætluðum að ná í þrjú stig og strákarnir lögðu sig alla fram, þetta var mikil barátta og hún var meiri hjá okkur. Ég er bjartsýnn á framhaldið," sagði Jón Bragi Arn- arsson, fyrirliði ÍBV, í samtali við DV í gærkvöldi. Þór frá Akureyri sótti Eyjamenn heim í gærkvöldi í 1. deildinni í knattspymu og sigraði ÍBV, 2-0, í miklum baráttuleik, og fékk sín fyrstu stig í deildinni. Mörkin í seinni hálfleik Bæði lið mættu ákveðin til leiks en fyrri hálfleikur var mjög köflóttur. Eyjamenn komu mun ákveðnari til seinni hálfleiks og skoruðu þá mörk- in tvö. Fyrst var dæmd vítaspyrna á Þórsara sem handlék knöttinn og úr henni skoraði Hlynur Stefánsson. Eftir það sóttu Eyjamenn stíft en seinna markið kom ekki fyrr en und- ir lokin og þar var Jón Bragi að verki eftir góða sendingu frá Andrej Jer- ina. „Dómarinn hrikalega hliðhollur heimamönnum" „Ég er ekki vanur að kenna dómur- um um óhagstæð úrslit en dómgæsl- an var hrikalega hliðholl heima- • !T Knattspvrna 7o 1. deild (Hörpudeiid) Fram.......2 2 0 0 8-0 6 KR.........2 2 0 0 5-2 6 FH.........1 10 0 1-03 Valur......1 10 0 1-03 Stjarnan...2 10 13-33 ÍBV........2 10 12-43 Víkingur...10 0 11-20 KA.........1 0 0 10-10 Þór...........2 0 0 2 0-4 0 ÍA............2 0 0 2 0-5 0 Markahæstir: Guömundur Steinsson, Fram.....3 Árni Sveinsson, Stjörnunni....2 BaldurBjarnason, Fram.........2 Ragnar Margeirsson, KR........2 RíkharðurDaðason, Fram........2 mönnum og það réð úrslitum. En við áttum líka slæman dag fyrir utan fyrsta hálftímann. Eyjamenn mættu ákveðnir til leiks og uppskáru sam- kvæmt því,“ sagði Nói Björnsson, fyrirliði Þórs. í annars jöfnu og góðu liði ÍBV bar mest á Júgóslavanum Andrej Jerina. Hjá Þór var landi hans, Luca Kostic, góður og Friðrik Friðriksson varði oft glæsilega. ÍBV-Þór 2-0 (0-0) 1- 0 Hlynur Stefánsson (59.) 2- 0 Jón Bragi Arnarsson (89.) Lið ÍBV: Adolf Óskarsson, Friðrik Sæbjörnsson, Jakob Jónharðsson, Heimir Hallgrímsson, Jón Bragi Arn- arsson, Ólafur Árnason (Elías Frið- riksson 87.), Sigurlás Þorleifsson, Hlynur Stefánsson, Andrej Jerina, Tómas I. Tómasson, Ingi Sigurðsson. Lið Þórs: Friðrik Friðriksson, Ólafur Þorbergsson (Sverrir Heimisson 83.), Nói Bjömsson, Luca Kostic, Þorsteinn Jónsson, Valdimar Pálsson (Júlíus Tryggvason 65.), Siguróli Kristjáns- son, Sveinn Pálsson, Árni Þór Arna- son, Sævar Árnason, Hlynur Birgis- son. Gul spjöld: Luca Kostic, Árni Þór Árnason, Hlynur Birgisson úr Þór. Áhorfendur: 750. Dómari: Ólafur Ragnarsson dæmdi sinn fyrsta leik í 1. deOd og stóð sig þokkalega. Annarri um- ferð lýkur í kvöld Annarri umferð 1. deildarinnar í knattspyrnu lýkur í kvöld meö tveimur leikjum. Valur og KA mæt- ast á Hlíðarenda og hefst sá leikur klukkan 18. Liðin áttu að mætast á Akureyri en grasvellirnir þar eru ekki tilbúnir þannig að ákveðið var að færa hann suður. Á Víkingsvellin- um í Stjörnugróf eigast síðan við Víkingur og FH og hefst sú viðureign klukkan 20. Keppni í 2. deild hefst í kvöld og er leikin heil umferð. ÍR og Fylkir leika á malarvelli ÍR í Mjódd, Breiða- blik og Víðir á Kópavogsvelh, Grindavík og Tindastóll í Grindavík, Leiftur og Selfoss á Ólafsfirði og ÍBK og KS mætast í Keflavík. Allir leik- irnir hefjast klukkan 20. -VS Framarar óðu í færum - sigruðu Skagamenn sannfærandi, 4-0, en hefðu getað skorað mun fleiri mörk Átta mörk gegn engu og fullt hús stiga eftir tvo fyrstu leikina - það er ekki annað hægt að segja en Framarar hefji íslandsmótið á sannfærandi hátt. Þeir áttu ekki í miklum vandræðum með Skagamenn á sandbornum og erfiðum Valbjarnarvellinum í Laugardal í gær - 4-0 urðu lokatölurnar, en ef Framarar hefðu nýtt færi sín, sérstaklega í síðari hálfleiknum, hefði sigurinn getað orðið helmingi stærri. En þeir fengu líka frið til að leika list- ir sínar. Þeir sýndu hina dæmigerðu Framknattspyrnu, spil og aftur spil, og Skagamenn gættu sóknar-, og miðju- manna þeirra alltof illa. Það nýttu Framarar sér út í ystu æsar og áttu aragrúa af fallegum og vel útfærðum sóknarlotum. Guðmundurfimmti hæsti frá upphafi „Þetta er mjög sannfærandi byrjun og mikil vinna á undirbúningstímabilinu er nú að skila sér. Ég bjóst ekki við að þetta yrði svona létt og það er ljóst að næstu leikir verða erfiðari," sagöi Guð- mundur Steinsson við DV eftir leikinn, en hann skoraði tvö fyrstu mörk Fram- ara. Hann er þar með orðinn fimmti markahæsti leikmaður 1. deildar frá upphafi, með 73 mörk, en í gær renndi hann sér upp fyrir Steinar Jóhannsson sem gerði 72 fyrir ÍBK á áttunda ára- tugnum. Langþráð mark Kristins Fyrsta markið skoraði Guðmundur af örstuttu færi eftir að Kristinn R. Jóns- son hafði skotið í stöng. Annað markið gerði Guðmundur á lokasekúndu fyrri hálfleiks, náði þá skoti eftir fyrirgjöf Baldurs Bjarnasonar og skaut í Heimi Guðmundsson Skagamann og í netið. ■Baldur gerði þriðja markið eftir að Rík- harður Daöason hafði rennt boltanum út til hans, og síðan átti Kristinn R. Jónsson lokaorðið eftir góðan undir- búning Péturs Ormslevs. Þetta var fyrsta 1. deildar mark Kristins í tæp þrjú ár. Állt Framhðið lék vel, með Kristin og Pétur Ormslev í aðalhlutverkum á miðjunni. Ríkharður var drjúgur frammi en fór illa með þrjú góð tæk- ifæri í síðari hálfleiknum. Hjá Skaga- mönnum komust bakverðirnir Jóhann- es Guðlaugsson og Heimir Guðmunds- son einna best frá leiknum en voru þó álíka sekir og félagar þeirra um að gefa sóknarmönnum Fram of mikið næði. Þrátt fyrir skellinn ættu Skagamenn ekki að þurfa að örvænta, þeir reyndu að spila góða knattspyrnu allan tímann og tókst stundum vel upp. Fram-ÍA 4-0 (2-0) 1- 0 Guðmundur Steinsson (15.) 2- 0 Guðmundur Steinsson (45.) 3- 0 Baldur Bjarnason (54.) 4- 0 Kristinn R. Jónsson (68.) Lið Fram: Birkir Kristinsson, Jón Sveinsson, Þorsteinn Þorsteinsson, Við- ar Þorkelsson, Kristinn R. Jónsson, Kristján Jónsson, Anton B. Markússon (Arnljótur Davíðsson 80.), Pétur Örmslev, Baldur Bjarnason, Ríkharður Daðason, Guðmundur Steinsson (Jón Erling Ragnarsson 80.) Lið ÍA: Gísli Sigurðsson, Jóhannes Guðlaugsson, Heimir Guðmundsson, Brandur Sigurjónsson, Sigurður B. Jóns- son, Sigursteinn Gíslason, Guðbjörn Tryggvason (Guðmundur Matthíasson 70.), Alexander Högnason, Haraldur Ing- ólfsson, Bjarki Pétursson, Stefán Viðars- son (Arnar Gunnlaugsson 56.) Gul spjöld: Brandur Sigurjónsson og Sigursteinn Gíslason, ÍA. Áhorfendur: 1.256. Dómari: Ólafur Lárusson og dæmdi þokkalega. -VS Sport- stúfar Ægir Már Kárason, DV, Suöumesjurn: Viðismenn tryggðu sér á dögunum sigur í Suð- urnesjamótinu í knatt- spyrnu þegar þeir gerðu markalaust jafntefli við Grindvíkinga í lokaleiknum. Víö- ir hlaut 7 stig í mótinu, Grindavík 5, Reynir 4, Njarðvík 2 og Hafnir 2. FH hætt í 1. deild kvenna FH hefur dregið sig út úr 1. deild- arkeppni kvenna í knattspyrnu og þar með eru aðeins sex lið eft- ir í deildinni. Áður höföu ísa- fjaröarstúlkurnar liætt við að vera með en þær komu upp úr 2. deild ásamt FH. Þá eru eftir í deildinni Valur, Akranes, Breiða- blik, KR, KA og Þór og óljóst hve- nær keppni byrjar þar sem raða þarf mótinu upp á nýtt. í 2. deild kvenna hefur hins vegar liðum fjölgað talsvert og þar er nú leik- ið í þremur riðlum, Suðurlands-, Norðurlands- og Austurlands- riðli. Jónas og Skúli með HSÞ-b Jónas Hallgrímsson, lykilmaðui' í liði Völsunga mörg undanfarin ár, leikur ekki með Húsavíkurhö- inu í 3. deildinni í knattspyrnu í sumar. Hann hyggst spila með hði Mývetninga, HSÞ-b, i 4. deild- inni og sömu sögu er að segja af Skúla Hallgrímssyni, bróður hans, sem einnig hefur leikið með Völsungum síðustu árin. Detroit og Portland meó 2-0 forskot Detroit Pistons sigraði Chicago Buhs, 102-93, i úrslitakeppni banda- rísku NBA-deildarinn- ar í körfuknattleik aðfaranótt miðvikudags. Þar með er Detroit komið með 2-0 forskot á Chicago en það lið sem á undan vinnur fjóra leiki veröur meistari aust- urstrandarinnar og mætir Port- land eða Phoenix í úrslitum um sjálfan meistaratitihnn. Portland sigraði Phoenix, 108-107, í fyrri- nótt og er komið með 2-0 forystu í úrslitunum á vesturströndinni. Joe Dumars lék best leikmanna Detroit og vai' þeirra stigahæstur með 31 stig og Winnie „örbylgju-1 ofn“ Johnson kom næstur með 18 stig. Þaö veiktí lið Chicago mikið að þeirra besti leikmaður, Michael Jordan, lék meiddur og skoraði óvenjulítið eða alls 20 stig. Magic Johnson valinn sá besti INBA Erwin Magic Johnson, leikmaður með Los Angeles Lakers, var í fyrrákvöld vahnn besti leikmaö- ur NBA-deildarinnar í körfu- knattleik annað áriö í röð. Magic hlaut 636 atkvæði, annar varð Charles Barkley, Philadelphia 76ers, með 614 atkvæði og í þriðja sæti varð Michael Jordan, Chicago, með 571 atkvæði. Merkjasala hjá ÍFR íþróttafélag Fatlaðra í Reykjavík verður með merkjasölu á morg- un, kjördag, á flestum kjömtöö- um á höfuðborgarsvæöinu. Ágóð- anum verður varið til byggingar íþróttahúss félagsins en fram- kvæmdir við það hófust fyrir ári.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.