Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1990, Side 26
50
FÖSTUDAGUR 25. MAl 1990.
Afmæli
Guðmundur Ingi Kristjánsson
Guðmundur Ingi Kristjánsson,
varadagskrárstjóri Innkaupa- og
markaðsdeildar Ríkissjónvarpsins,
Efstasundi 93, Reykjavík, er fertug-
ur í dag. Guðmundur Ingi er fæddur
á Akureyri og ólst upp á Siglufirði,
á Akureyri og í Reykjavík. Hann
lauk stúdentsprófi frá MA, BA-prófi
í sagnfræði frá HÍ1976 og uppeldis-
og kennslufræði frá HÍ1981.
Guðmundur Ingi var kennari í
Laugalækjaskóla i Reykjavík 1975-
1981 og í Námsflokkum Reykjavíkur
1975-1979. Hann var fréttaþulur
Ríkissjónvarpsins 1979-1985 og
fréttamaður á fréttastofu Ríkisút-
varpsins 1981. Guömundur var dag-
skrárfulltrúi á frétta- og fræðslu-
deild Ríkissjónvarpsins 1981-1985 og
hefur verið varadagskrárstjóri Inn-
kaupa- og markaðsdeildar frá 1985.
Guðmundur Ingi var dagskrár-
gei ðarmaður á Rás 21983-1988 og
stjórnaði þá m.a. þáttaröðinni
„Gullöldin" ásamt Boga Ágústssyni.
Hann var formaður Starfsmanna-
félags sjónvarpsins 1984 og var for-
maður Útgarðs, félags háskóla-
manna 1986 og 1987. Guðmundur
var í nefnd Ragnhildar Helgadóttur,
þáverandi menntamálaráðherra um
málvöndun og kennslu í framburði
íslenskrar tungu í ríkisfjölmiölun-
um 1984 og hefur unnið að margvís-
legum verkefnum í kvikmyndagerð.
Guðmundur Ingi kvæntist 24.
september 1977, Ardísi ívarsdóttur,
f. 27. janúar 1954, kennara. For-
eldrar Árdísar eru: ívar Pétur
Hannesson, f. 24. september 1930,
aöstoðaryfirlögregluþjónn hjá
Rannsóknarlögreglu ríkisins, og
kona hans, Jóna Guðbjörg Gísla-
dóttir, f. 28. febrúar 1932, skólarit-
ari, Börn Guðmundar Inga og Árdís-
ar eru: Hildur, f. 8. október 1978 og
Jón Pétur, f. 4. apríl 1984.
Bræður Guðmundar Inga eru
.Kristján Róbert, f. 27. febrúar 1954,
kennari og dagskrárgerðarmaður
hjá Ríkisútvarpinu, í sambýli með
Öggu Hrönn Hauksdóttur, f. 14. nóv-
ember 1957, og Ingólfur Björgvin, f.
6. nóvember 1957, kennari í Mos-
fellsbæ, kvæntur Þóru Hjartardótt-
ur hjúkrunarfræðingi. Systkini
Guðmundar samfeðra eru Kristín,
f. 29. desember 1962, Helga f. 7. okt-
óber 1964 og Marteinn, f. 10. nóv-
ember 1967.
Foreldrar Guðmundar Inga eru:
Kristján Róbertsson, f. 29. apríl 1925,
sóknarprestur á Seyðisfirði, og kona
hans Margrét Ingólfsdóttir, f. 19.
september 1926, verslunarmaður á
Akureyri. Þau skildu. Kristján er
sonur Róberts Bárðdal, b. á Sigríð-
arstöðum í Ljósavatnshreppi Þor-
steinssonar b. á Geiteyjarströnd í
Mývatnssveit Þorsteinssonar. Móð-
ir Róberts var Valgerður Sigurðar-
dóttir. Móðir Kristjáns var Herborg
Sigurðardóttir b. á Hjalla í Reykja-
dal Jónssonar b. í Máskoti Jósafats-
sonar. Móðir Sigurðar var Herborg
Helgadóttir b. á Skútustöðum Ás-
mundssonar, ættfóður Skútustaða-
ættarinnar. Móðir Herborgar Sig-
urðardóttur var Sigríður Halldórs-
dóttir b. á Grímsstöðum í Mývatns-
sveit Jónssonar. Margrét er dóttir
Ingólfs, verkamanns á Akureyri
Guðmundur Ingi Kristjánsson.
Guðmundssonar og konu hans Ingi-
bjargar Halldórsdóttur.
Skafti Fanndal Jónsson
Skafti Fanndal Jónsson, frá Fjalli
er sjötíu og fimm ára í dag. Skafti
er fæddur á Fjalli og fór til sjós þar
til 1942 er hann fluttist til Skaga-
strandar og hefur búið þar síðan.
Skafti kvæntist 17. júní 1939 Jónu
Guðrúnu Vilhjálmsdóttur, f. 15. júlí
1918. Foreldrar Jónu eru: Vilhjámur
M. Vilhjálmsson og kona hans
Kristín Jónsdóttir. Börn Skafta og
Jónu eru: Hjalti, f. 8. mars 1940,
vagnastjóri hjá SVR, kvæntur Jón-
ínu Þ. Arndal og eiga þau flmm
börn; Jónas, f. 26. febrúar 1941, bíl-
stjóri á Blönduósi, og á hann sex
börn; Vilhjálmur, f. 9. apríl 1942, sjó-
maður á Skagaströnd, kvæntur
Salome Jónu Þorkelsdóttur og á
hann þrjú börn; Anna Eygló, f. 12.
júní 1944, húsmóðir í Njarðvík, gift
Gunnþóri Guðmundssyni og á hann
fjögur börn og Þorvaldur, f. 6. júní
1949, sjómaður á Skagaströnd,
kvæntur Ernu Sigurbjörnsdóttur og
á hann þrjú börn. Þá áttu Skafti og
Jóna tvö börn er létust í frum-
bernsku, auk þess ólu þau upp dótt-
urdóttur sína Valdísi Eddu, hús-
móður í Garði, sambýlismaður
hennar er Hlíðar Sæmundsson og á
hún tvö börn. Systkini Skafta eru:
Guðríður sem er látin; Ólafur sem
er látinn; Hjalti Líndal, látinn og
Jóhanna sem er búsett á Skaga-
strönd.
Foreldrar Skafta voru: Jónas Þor-
valdsson, f. 6. ágúst 1875, d. 21. apríl
1941, b. á Fjalli ogkona hans Sigur-
björg Jónasdóttir, f. 4. nóvember
1885, d. 25. apríl 1980. Jónas var son-
ur Þorvaldar vinnumanns á Fjalli
Bjarnasonar b. í Mánavík Jóhann-
essonar b. í Vikum Jónssonar b. í
Víkum ættfóður Víknaættarinnar.
Jón var sonur Árna, b. í Víkum
Þórðarsonar b. í'Víkum Jónssonar
prests og skálds í Hvammi í Laxárd-
al Þórðarsonar. Móðir Þorvaldar
var Katrín Guðmundsdóttir. Móðir
Bjarna var Guðríður Bjarnadóttir
b. í Tjarnakoti Bjarnasonar b. á
Örlygsstöðum Jörundssonar. Móðir
Jónasar var Sólveig Oddsdóttir b. á
Kálfhamri Sigurðssonar b. á Byggð-
arhorni í Laugadal Einarssonar.
Móðir Sólveig var Guðrún Guð-
mundsdóttir b. á Ási í Vatnsdal
Halldórssonar og konu hans Hall-
dóru Bjamadóttur. Móðir Halldóru
var Hólmfríður Jónsdóttir. Móðir
Hólmfríðar var Halldóra dóttir Guð-
rúnar Halldórsdóttur lögréttu-
manns og skálds á Geitaskarði Jóns-
sonar og konu hans Halldóru Bene-
diktsdóttur lögréttumanns í Ból-
staðarhlíð Björnssonar. Sigurbjörg
var dóttir Jónasar vinnumanns á
Kornsá í Vatnsdal Guðmundssonar
Skafti Fanndal Jónsson.
og Önnu Jónsdóttur.
Til hamingju með afmaelið 25. maí
85 ára 60 ára
Herraann J. Stefánsson, Ánastöðum, Lýtingsstaðahreppi. Böðvar Eyjólfsson, Hlíðarvegi 7, Kópavogi. Jón S. Hallgrímsson, Álftamýri 12, Reykjavík. Björg M. Indriðadóttir, Kvistási, Kelduneshreppi. Halldóra Helgadóttir, Vesturbergi 146, Reykjavík. JónKjartansson, Írabakka6, Reykjavík.
80ára
Óskar Vigfússon, Brekastig28, Vestmannaeyjum. Víglundur Pálsson, Hamrahlíð 18, Vopnafirði.
50 ára
75 ára Gróa Jónatansdóttir, Bræðratungu 36, Kópavogi.
Sigurður Sigurðsson, Sunnuholti, Seyðisljarðarhreppí. María Jóhannsdóttir, Þingvallastræti 27A, Akureyri.
UnnurZoega, Sverristúni 4, Neskaupstað. Skafti F. Jónasson, Ægisgrund2, Skagaströnd. 40 ára
Guðmundur Hermannsson, Eyjabakka 16, Reykjavík. Frímann Guðmundsson, Yanabyggð 13, Akureyri. Einar Kristinsson, Eiðistorgi 7, Seltjarnarnesi.
70ára
Jón Vigfússon, Sólheimum 25, Reykjavík. Halla Árnadóttir, Álftamýri 52, Reykjavík. Ásmundur Þór Þórisson, Nýbýlavegi36, Hvolhreppi. Benedikt Steingrímsson, Vesturvangi 34, Hafnarflrði. Guðmundur Haraldsson, Breiðvangi 2, Hafnarflröi.
er margra böl!
yu^FEROAn
Benoný B. Kristjánsson
Benoný B. Kristjánsson pípulagn-
ingarmaður, Frostafold 5, Reykja-
vík, er sjötugur í dag.
Benoný fæddist að Hjarðardal í
Dýrafirði og ólst þar upp.
Kona Benonýs er Sigurbjörg Run-
ólfsdóttir, f. 4.2.1921, dóttir Runólfs
Guðjónssonar bókbindara í Reykja-
vík og Margrétar Guðmundsdóttur
en þau létust bæði árið 1942.
Benoný og Sigurbjörg eignuðust
tvö börn. Börn þeirra: Hilmar Ben-
onýsson, ÍV12.8.1950, en hann lést
af slysförum 13.6.1960, og Margrét
Erla Benonýsdóttir, f. 23.10.1956,
húsmóðir í Reykjavík, gift Sigurgeir
Ingimundarsyni, f. 25.11.1955 og
eiga þau þrjú börn, Benoný Hilmar
Sigurgeirsson, f. 25.11.1976; Guð-
laugu írisi Sigurgeirsdóttur, f. 20.10.
1978 og Sigurbjörn Guðna Sigur-
geirsson, f. 1.12.1981.
Systkini Benonýs eru Jónasína
Þrúður Kristjánsdóttir, f. 8.1.1914,
Ásgerður Kristjánsdóttir, f. 9.7.1918
og Þórður I. Kristjánsson, f. 3.7.1917.
Foreldrar Benonýs voru Kristján
Jón Benonýsson, f. 25.8.1885, d. 1970,
bóndi í Hjarðardal í Dýrafirði, og
Kristín Þórðardóttir, f. 30.3.1881, d.
1940, húsfrú.
Benoný veröur að heiman á af-
mælisdaginn.
Benoný B. Kristjánsson.
Þórunn Jónsdóttir
Þórunn Jónsdóttir, fyrrv. verka-
kona og saumakona, Vesturvegi 84,
Vestmannaeyjum, er sjötug í dag.
Þórunn er fædd á Hlíðarenda í Ölf-
usi og ólst þar upp. Hún var í barna-
skóla, kvöldskóla iðnaðarmanna,
kvennaskóla og á námskeiði í Esp-
eranto og sníðanámskeiði. Systkini
Þórunnar eru: Guðrún, f. 21. febrúar
1916, d. 12. júlí 1930, Sveinn, f. 8. feb-
rúar 1917, vélstjóri, kvæntur Ester
Lovísu Sigurbjörnsdóttur, Jón, f. 23.
janúar 1918, d. 14. apríl 1963, flug-
stjóri i Rvík, kvæntur Hjálmfríði
Hallgrímsdóttur, Vémundur, f. 23.
maí 1920, netageröarmaður í Vest-
mannaeyjum, kvæntur Sigurleif
Stefánsdóttur og Hjálmar, f. 26. júní
1921, skipstjóri í Vestmannaeyjum.
Foreldrar Þórunnar eru: Jón
Jónsson, b. og smiður í Vestmanna-
eyjum og kona hans Þórunn Svein-
björnsdóttir, rjómabústýra og
prjónakona. Jón var sonur Jóns, b.
ogformanns í Þorlákshöfn, Jóns-
sonar, b. og hreppstjóra í Þorláks-
höfn, Jónssonar, b. á Syðsta-Klekki,
Sturlaugssonar, b. í Eystri-Rauöar-
hóli, Jónssonar, b. á Grjótlæk,
Bergssonar, b. og hreppstjóra í
Brattsholti, Sturlaugssonar, ætt-
föður Bergsættarinnar. Móðir Jóns
smiðs í Vestmannaeyjum var Þó-
runnur Jónsdóttir, dbrm. og hrepp-
stjóra í Þorlákshöfn, Árnasonar,
dbrm. og hreppstjóra í Þorlákshöfn,
Magnússonar, formanns og hrepp-
stjóra í Þorlákshöfn, Beinteinsson-
ar, lögréttumanns á Breiðabólstað í
Ölfusi, Ingimundarsonar, b. í Hólum
í Stokkseyrahreppi, Bergssonar,
bróður Jóns á Grjótlæk. Þórunn var
Þórunn Jónsdóttir.
dóttir Sveinbjarnar, sparisjóðsrit-
ara á Eyrarbakka, Ólafssonar b. í
Hjálmholti, Þormóðssonar.