Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1990, Blaðsíða 27
FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 1990.
51
Lífsstíll
PAPRIKA
Mikllgaröur
SVEPPIR
Nóatún
Bónus
499
Tómatar hafa lækkað um þriðjung frá því i siðustu viku.
DV kannar grænmetismarkaðinn:
Rúmlega þriðjungs
lækkun á tómötum
Enn lækka tómatarnir í veröi á
milli vikna og er meðalverðið núna
58% lægra en það var fyrir hálfum
mánuði. Nú er meðalverðið 212 krón-
ur á kílóið en var fyrir tveimur vik-
um á 499 krónur kílóið. í síðustu viku
var kílóið af þeim rauðu á 339 krónur
og er því lækkunin um 37% milli
vikna.
Tómatakílóið er ódýrast í Bónus
þar sem poki með einu kílói kostar
119 krónur, sem hljóta að teljast
kjarakaup. Dýrastir eru tómatarnir
í Hagkaupum í Kringlunni og Nóa-
túni í Hamraborg í Kópavogi þar sem
þeir kosta 299 krónur kílóiö. Er mun-
urinn á hæsta og lægsta verði því
151%. Mikligarður við Sund selur
kílóiö á 149 krónur og Fjarðarkaup í
Hafnarfirði selur kílóið á 195 krónur.
Gúrkurnar hækkuðu í þessari
viku, öfugt við tómatana, og er
hvorki meira né minna en 74%
hækkun á milli vikna. Meðalverðið
núna er 191 króna kílóið en var í síð-
ustu viku 110 krónur á kílóið. Bónus
er einnig með ódýrustu gúrkurnar
og eru þær á 95 krónur kílóið. Dýr-
Sparigrís vikunnar:
Verslunin
BÓNUS
astar eru þær í Nóatúni á 298 krónur
kílóið og er munurinn þvi rúmlega
þrefaldur eða 214%!. Mikligarður
kemur næst best út með 149 krónur,
Fjarðarkaup meö 187 krónur og Hag-
kaup með 225 krónur.
Meðalverð á sveppum er 792 krón-
ur en það verð gefur þó ranga mynd
því sveppaverðið er ýmist í ökkla eða
eyra. i Hagkaupum er kilóið á 499
krónur og í Fjarðarkaupum á 590
krónur. í Miklagarði, aftur á móti,
er kílóið á 1000 krónur þar sem 250
g eru seld á 250 krónur og í Nóatúni
eru 250 g seld á 270 eða 1.080 krónur
kílóið.
Grænu vínberin hafa lækkað lítil-
lega í verði - meðalverðið er núna
334 krónur, eða 44 krónum lægra en
í síðustu viku. Ódýrust eru þau í
Miklagarði á 298 krónur, en dýrust í
Nóatúni á 350 krónur.
Meðalverðið á papriku er 23 krón-
um lægra í þessari viku, var 487
krónur en er nú 464 krónur. Það er
154% verðmunur á paprikunni þar
sem hún er hæst og lægst. Ódýrust
er hún í Bónus á 254 krónur kílóið
(meðalverð fyrir vigtaðar paprikur),
en dýrust í Nóatúni á 644 krónur kíló-
ið.
Kartöflukílóið er ódýrast í Bónus
þar sem 5 kg poki með burstuðum
kartöflum fæst á 61,60 kílóið. Dýrast-
ar eru kartöflurnar í Miklagarði þar
sem þær eru seldar í lausu á 95 krón-
ur kílóið. Meðalverð á kartöflum
þessa vikuna er 81 króna fyrir kílóið.
-GHK
Sértilboð og afsláttur:
Örbylgjupopp og
sveppadósir
Á tveimur stöðum þar sem DV
kannaði sértilboð er svokallað ör-
bylgjupopp á niðursettu verði. í
Miklagarði við Sund er hægt að fá
poppkorn fyrir örbylgjuofna frá
Town House á 89 krónur og í Nóa-
túni í Hamraborginni er Golden
Valley örbylgjupopp á sértilboðs-
verði á 196 krónur.
í Miklagaröi er einnig boðið upp á
hálfdós af heilum Unicamp sveppum
á 118 krónur, en vilji menn frekar
hafa þá sneidda þá er dósin á 106
krónur. Ef einhver hefur þörf fyrir
sex manna matar- og kafíistell þá er
hægt að fá slíkt í Miklagarði á 2.895
krónur. En hérna er á ferðinni ann-
ars flokks vara.
Fyrir utan poppið, býður Nóatún
einnig upp á Sol Musli og Hawai
Musli frá Ota á 279 krónur og 319
krónur. Þar fást líka tveir pakkar af
Prince kexi á 159 krónur.
í Hagkaupum er kínakál á tilboðs-
verði, eða 129 krónur kílóið. Auk
þess fást Gulla melónur á 129 krónur
stykkið, og bláu vínberin eru á góðu
veröi eða 319 krónur kílóið.
Fjarðarkaup bjóða kextegundir
sem bera vörumerkið McVites á
lækkuðu verði, t.d. kostar pakki af
Homewheat 129 krónur. Eins og í síö-
ustu viku er Lipton te, Earl Grey, á
122 krónur. Einnig eru 900 g af Panda
konfekti á 899 krónur, 425 g af
Cheerios á 174 krónur og Buggles
með ostabragði á 139 krónur.
-GHK
&£ Vínber