Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1990, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1990, Qupperneq 28
52 FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 1990. Menning Ljóð Ara Nýleg ljóöabók Ara Gísla Bragasonar heitir í stjörnumyrkri. í henni eru reyndar ekki nema 14 ljóö en hverju ljóöi fylgir mynd sem Haukur Halldórsson myndlistarmaöur hefur gert. Þetta er hin snotrasta bók, ágætlega uppsett og vel prentuð. Ari Gísli hefur áður gefið út ljóöabók sem hann kallaði Orö þagnar- innar og kom út 1988. Meistari Hundur sat á stéttinni grét. Horfði á brottför húsbónda síns. Meiraðsegja kettimir í hverfmu bám virðingu fyrir Meistara Hund eftir þetta. Þannig er Brottförin upphaf nýju bókarinnar. Stíll þessa ljóös er aö ýmsu leyti einkennandi fyrir mörg ljóða hennar, einkum framan af. Hér er ekki margt sagt og ekkert um of, Ijóðið í heild virkar líkt og auka- setning viö aðalsetningu sem lesandinn hefur aöeins hugboð um. Raunar finnst mér í þessu dæmi fulllítið sagt til að ljóðið vakni að fullu til lífs í huga mínum. Maður fær á tillfmninguna að hér sé á ferð meinlaus viðbót við áður kunnar staðreyndir. Þó væri lítið rétt- læti í að halda því fram aö þetta sé eitthvert einkenni á bók Ara Gísla; vissulega er hann ekki margmáll í ljóöum sínum en iðulega segir hann þó nóg til að kveikja hugmynd, grun, forvitni, tilfinningu og mætti tilfæra mörg dæmi þar um. Þar sem Ara Gísla tekst best upp segir hann nákvæmlega nógu mikið - eða lítið - til aö halda lesandanum í óvissu og jafnvel spenningi: Ég er fómarlamb stemmninganna geng einn. Ég reyni alltaf að byrja upp á nýtt. Snertu mig meðan augnablikið lifir núna - ekki núna - núna. Hér mætti einnig nefna ljóðið Tímaflug: „Hljóðlega sagði hún: Skapaðu - skapaðu núna. / Hann svaraði: Komdu - komdu núna. / Fljót, sagöi hann - komdu. / Sérðu ekki hvernig hann flýgur / tíminn." Þegar verr lætur hins vegar virka ljóðin gjarna sem ræsking fyrir langa ræðu sem aldrei kemur: „Eins mörg sandkorn / og fmnast í eyðimörkinni / eru taug- ar mínar til efans“ (Sandkom efans). Eins þykir mér nokkuö vanta upp á að málnotkun eða öllu heldur máltilfmning Ara Gísla sé með öllu snurðulaus. Þó má vera að hér sé einungis á feröinni mismunandi málsmekkur okkar Ara þvi ég er ekki viss um að mér tækist að styðja fullgildum rökum þær athugasemdir sem vildi gera - en þá er auðvitað gott að grípa til dæma: „í endalausum biðsal myrkursins / má ekki vænta biöstöðu,11 segir í ljóðinu Óði til kvik- mynda. Það truflar mig soldið að ekki skuh mega vænta biðstöðu í biðsal - og sem mótsögn þykir mér þetta ekki ganga upp. Eins er „biðsalur myrkursins“ að mínum dómi ofurskáldleg líking fyrir kvikmynda- sal þar sem menn eru fyrst og fremst aö bíða kvik- myndarinnar en ekki myrkursins þótt ljósin séu slökkt; „áhrifagjöm hjörtu vonarinnar / slá takt / sem ekki gefst tóm til að afturkalla" er framhald erindis- Bókmenntir Kjartan Arnason ins. Eignarfallsliðir eins og sá í upphafi þessarar til- vitnunar eru afar þungir; enda þótt slíkir liðir séu allalgengir í ljóðum bæði fyrr og síðar þykja mér þeir til lítillar prýði og gefa jafnvel til kynna að hugsun skáldsins er komin í svo marga hringi að það er hætt að botna í henni sjálft. (Þetta síðasnefnda vildi ég þó ekki bera upp á Ara Gísla sem öllu jöfnu leitar eftir einfaldleika í ljóðum sínum og tekst það iðulega vel). Þá finnst mér einkennilegt að tala um að afturkalla takt; síðustu línumar bæta að mínu mati ekki úr skák: „Víðsýni áhorfenda gefur bráðinni / von á nýjan leik.“ Eins og sést fmn ég þe'ssu ljóði flest til foráttu en það er þó ekki með illan ásetning í huga þvi heildarmynd ljóðsins er í sjálfu sér nokkuð skýr. Ljóðið missir aftur á móti áhrifamátt vegna þess að málnotkun og mynd- mál megna ekki að gefa heildarmyndinni líf og særa umk leið smekk vissra ónefndar gagnrýnenda út í bæ. Góður fílingur Eftir þessa ræðu er rétt að snúa sér að því sem vel er gert og þar er reyndar af nógu að taka. Það er víöa í þessari bók sem höfundur leyfir tilfinningum sínum að njóta sín og það gerir ljóðin óneitanlega áhrifa- meiri og jafnvel „sannari“. Eitt öndvegisdæmi um þetta er ljóðiö Síðasta tárið: Lagöist á grúfu síðasta táriö á koddanum. . Bara að þú kæmir og kysstir enni mitt. Leit til lofts þráði loga. Bara að þú kæmir og bærir eld að kveiknum. Lokaði augunum sá stjörnur myrkursins. Bara að þú kæmir og kysstir augnlok mín. Ljóðin Dýpra og dýpra og Þóreyjarnúp, sem er afar fallegt náttúruljóð, mætti einnig nefna í þessari sömu andrá. Ari Gísli getur unað vel við þessa bók. Þótt ein- hveijir gagnrýnendur úti í bæ séu að fetta fingur út í hitt og þetta fer það ekki framhjá neinum að höfund- urinn hefur vandað til þessarar bókar í hvívetna og myndir Hauks Halldórssonar gefa ljóðunum oft skemmtilega vídd. Ofurlítð meiri yfirlega og álit valin- kunnra manna (ekki nauðsynlega annarra skálda heldur allt eins kaldrifjaðra málfræðinga) myndu efa- laust vega upp þann herslumun sem stundum vantar upp á að ljóð Ara Gísla séu óaðfinnanleg. Ari Gisli Bragason: í stjörnumyrkri. Ljóö. Haukur Halldórsson lýsti. AGB, 1989. KjÁrn AncUát Ingunn Runólfsdóttir frá Kornsá, Sunnubraut 48, Keflavík, lést í Kefla- víkurspítala 22. maí. Ingibergur Kristinsson, Helhsgötu 36, Hafnarfirði, andaðist að kvöldi 21. maí. Jóhann Hjálmarsson, fyrrum bóndi á Ljósalandi, Skagafirði, áður hús- vörður í Menntaskólanum viö Hamrahlíð, lést á hjartadeild Borgar- spítalans 22. maí. Jarðarfarir Guðmundur Stefánsson andaðist laugardaginn 12. maí sl. á Hrafnistu, DAS. Útförin hefur farið fram. Magnús E. Guðjónsson, fram- kvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju mánudaginn 28. maí kl. 15. Jóhann Angantýsson frá Brautar- holti, Skarðshlíð 18 G, Akureyri, verður jarðsunginn frá Glerárkirkju í dag, 25. maí, kl. 14.30. Sigrún Siguijónsdóttir hjúkrunar- fræðingur, Melseh 4, lést 18. maí. Útfórin fer fram frá Seljakirkju föstudaginn 25. maí kl. 13.30. Anton Þorvarðarson, Glæsistöðum, Vestur-Landeyjum, verður jarösett- ur frá Akurey f dag, 25. mai, kl. 14. Ferð verður frá BSI kl. 11.30. Útför Helgu Dagbjartar Þórarins- dóttur, Hátúni 47, Reykjavík, fer fram í dag, 25. maí, kl. 15 frá Nes- kirkju. Dagbjört fæddist 25. maí 1914 í Þernuvík við ísafjarðardjúp. For- eldrar hennar voru hjónin Sigrún Sigurðardóttir og Þórarinn Guð- mundsson útvegsbóndi. Hún átti 9 systkini og eru nú 4 þeirra á lífi. Dagbjört giftist árið 1936 Andrew Þorvaldssyni frá Kroppsstöðum í Önundarfirði. Bjuggu þau á Flateyri til ársins 1963 er þau fluttu til Reykja- víkur. Þau eignuðust tvo syni og tvær dætur. Annar sonanna dó í frumbernsku en hinn fyrir rúmum mánuði, 53 ára að aldri. Tilkyimingar Norræn textíllistasýning í Svíþjóð Þann 12. maí sl. var opnuð sýning í gall- ery Textilgruppen, Horusgatan 6 í Stokk- hólmi, til að kynna verk 8 norrænna text- íllistakvenna. Tveimur íslenskum lista- konum var boöið að sýna fyrir íslands- hönd, þeim Aðalheiði Skarphéöinsdóttur sem sýnir grafík og tauþrykksverk og ínu Salóme sem sýnir textílþrykkverk. Aglow-kristilegt félag kvenna verður með samkomu í kafíisal Bústaða- kirkju mánudagskvöldið 28. maí kl. 20 til 22 og mun Mirian Óskarsdóttir úr Hjálp- ræðishernum segja frá starfi sínu í Pan- ama og vitna. Einnig mun Guðrún Lofts- dóttir sýna „fíngrasöng". Allar konur eru hvattar til að koma og taka með sér gesti. ekki ökuskírtemið heldur! Hvert sumar er ( margt fólk í sumarleyfi 1 tekið ölvað við stýrið. yUMFERÐAR RÁO Kvikmyndir DV og hljóðblönduö af þeim Asgeiri Jónssyni og Tómasi M. Tómassyni. Hljómplatan hefur verið í vinnslu, með hléum, um nærfellt tveggja ára skeið. Hljómsveitin hyggst fylgja henni eftir með spila- mennsku víöa um land í sumar. Platan kemur út á vegum Skífunnar hf. Regnboginn: Úrvalsdeildin ★ ‘/2 Hver kann reglurnar? Úrvalsdeildin er um baseball, öðru nafni homabolta, en hér er hann aðalstjarnan, óhkt öðrum myndum eins og „Field of Dreams", „Buh Durham" og „The NaturaT. Því miður er gert ráð fyrir að áhorfendur, eins og alhr sannir Banda- ríkjamenn, kunni og hafi áhuga á hornabolta. Okkur Frónbúum er hann flestum allsendis óskhjanlegur og gagnast því lítið að fylgiast með keppni þegar við vitum varla hver er að vinna og hver aö tapa, því síður hvað telst afrek og hvað ekki. Þó nauösynleg þekking sé ekki fyrir héndi má -stundum hafa gaman utan leikvallarins að hinum ýmsu furðufuglum, sem koma saman í hinum miður frægu Cleveland Indíánum. Svikulir yfirmenn ætla liðinu meiri ósigur en venjulega en Charlie Sheen, Tom Berenger og Corbin Bernsen eru meðal liðsmannanna og þeir hafa annað í huga. Annars er þetta dæmigerð amerísk lágmarksaíþreying með tilheyrandi óþörfum yfirborðsfléttum í söguþræðinum. Meira að segja stjörnumar voru óþarfar, því þeirra persónur eru aðeins líflausar skopmyndir. Úrvalsdeildin er stórflóð á myllu andstæðinga hornaboltamynda hér- lendis og verður að teljast fyrsta sanna vindhöggið í þeim vestræna flokki, a.m.k. frá okkar bæjardyrum séð. Major League. Bandarisk 1989, 107 mín. Saga og leikstjórn: David S. Ward (Cannery Row) Leikarar: Tom Berenger, Charlie Sheen, Corbin Bernsen (L.A. Law), Margaret Whitton (The Secret of my Success), James Gammon, Rene Russo, Wesley Sni- pes, Charles Cyphers, Bob Uecker (Bjarni Fel. hornaboltans). ' Gísli Einarsson FjöLmiðlar Suellen með hljómsveitarinnar Súellen og ber hún nýja plötu nafnið „í örmum nætur". Hún inniheldur Nú á dögunum kom út önnur hljómplata tíu frumsamin lög sem tekin voru upp ATH. Breyttur leiktími Valur-KA Föstud. kt. 18. Á Hlíðarenda Áfram stelpur Eitt sinn haföi ég mikið dálæti á hljómplötunni Áfram stelpur og hlustaði á kvenréttindasöngvana af miklum áhuga. Þó sú plata hafi elst illa og mér þyki hún hundleiöinleg, ems og margt kvennakjaftæðið, er ekki þar meö sagt að ég standi ekki áfram meö kvenþjóðinni. Skárra væri það nú. En konur koma mjög mismunandi út í ljósvökum. Sumar eru hreint afbragð á meðan aörar eru kynsystrum sínum hreinlega til skammar. Guðrún Gunnarsdóttir á rás tvö hefur lengi verið minn uppáhaldsút- varpsmaður. Hún hefúr mjög góða rödd sem hentar útvarpi og er laus við alla tilgerð. Það er einmitt til- gerðin sem svo margar kvenraddir falla á sem útvarpsmenn. Eva Ásr- ún, einnig á rás tvö, þy kir mér líka afar góður útvarpsmaður. Ég sakna hennar mikið á morgnana en það er einmitt sá tími sem ég hlusta mest á útvarp. Rás tvö má vera hreykin af þessum tveimur konum. Valdís Gunnarsdóttir á Bylgjunni er einnig meö mjög góða rödd sem gaman er að hlusta á. Hins vegar flaskar hún á talandanum. Hjá Valdísi er allt „meiriháttar, æðis- legt, gott mál, vont mál“ og svo framvegis. Einniglæturhún skoð- anir sínar of oft í ljós. Ég lít á dag- skrárgerðarmann hjá útvarpi sömu augum og blaðamann. Hann á ekki að láta í Ijós skoðanir sxnar á þeim málefnum sem íjallað er um (svona dálkurerundantekning, enda byggður á gagnrýni) og unglinga- talsmáti á hvorki heima á prenti né í útvarpi. Ef Valdís vandaði málfar sitt væri hún mj ög góður útvarps- maður. Margrét Hrafhsdóttir á Aðalstöð- inni er einnig ágætis útvarpsmaður en hún verður að passa sig á mál- fræðinni. Það er ömurlegt að hlusta á útvarpsmann sem ekki einu sinni getur beygt oröíð „dóttir“ rétt. Þessar konur, sem ég nefni hér, hafa allar mjög góðar raddir og gam- an að hlusta á þær í útvarpinu meö þeim undantekningum sem ég hef nefht. Margar aðrar útvarpskonur flaska á væmni í málrómi og skemma þar fy rir sjálfum sér. En sem sagt; Konur geta verið ágætis útvarpsmenn og alls ekkert siöri en karlmenn og því segi ég bara: Áfram stelpur. -ELA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.