Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1990, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1990, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 1990. Fréttir Að loknum byggðakosningum: Pólitískir bæjarstjórar hrósuðu flestir sigri - sameinuðu framboðin gerðu sig ekki Andstæðingar Davíðs Oddssonar óska honum til hamingju með sigurinn í Reykjavík. Davið er einn þeirra sem vann glæstan sigur í kosningunum. Það voru fleiri, sem voru sterkir fyrir, sem urðu enn sterkari í kosningunum á laugardaginn. Þetta voru kosningar þar sem hinir stóru og sterku sigruðu, þar sem leið- togadýrkun og persónuágreiningur var meira áberandi en málefni á hverjum staö. Þetta voru kosningar þar sem sameiginleg framboð áttu erfitt uppdráttar, meö fáum undan- tekningum þó. Þetta voru kosningar þar sem kvennaframboðum gekk illa. Þetta eru aðeins fáar af mörgum fullyrðingum sem heyrst hafa eftir bæjar- og sveitarstjórnarkosning- arnar um síðustu helgi. Nokkur sannleikur er í hverri þeirra. Sjálfstæðisflokkur sterkari í heildina má segja að Sjálfstæðis- ílokkurinn hafi komist einna best frá kosningunum. í kaupstöðum jók flokkurinn fylgi sitt úr 42,4 prósent- um að meðaltali í 48,3 prósent. Þar sem Sjálfstæðisflokkurinn var sterk- ur fyrir styrkti hann stöðu sína enn frekar, ef frá er talið fall meirihluta flokksins í Hveragerði. Þá vann flokkurinn meirihluta í Vestmanna- eyjum. Af 30 kaupstöðum er Sjálf- stæðisflokkurinn með hreinan meirihluta í 7 þeirra. Þá er flokkur- inn með hreinan meirihluta í Bessa- staðahreppi, 69,5 prósent fylgi, og Gerðahreppi. Pólitískir bæjarstjórar En það eru fleiri stórir og sterkir en Sjálfstæðisflokkurinn. Alþýðu- flokkurinn vann meirihlutasigur í Hafnarfirði og Alþýðubandalagið hélt 44 ára meirihluta á Neskaup- stað. Á báðum stöðum voru þessir flokkar sterkir fyrir. Umræðan um stóra og sterka flokka tengist einnig umræðunni um áhrif þess að hafa pólitíska bæjarstjóra. Haft hefur verið eftir Davíð Odds- syni að pólitískur bæjarstjóri hafi nánast verið skammaryröi en nú hafl viðhorfin breyst. Hefur það með- al annars sýnt sig í útkomu pólitískra bæjarstjóra í kosningunum. Davíð vann stórsigur í Reykjavík. Guö- mundur Árni Stefánsson, bæjarstjóri i Hafnarfirði, vann stærsta sigur Al- þýðuflokksins í þessum kosningum. Sturla Böðvarsson í Stykkishólmi er bæjarstjóri í einu sterkasta vígi Sjálf- stæðisflokksins. Lýðræðissinnar, flokkur Kristjáns Pálssonar, bæjarstóra í Ólafsvík, naut mestrar fylgisaukningar flokka í Ólafsvík. Fylgi lýðræðissinna jókst um 63 prósent. Á ísafirði varð Sjálf- stætt framboð Haraldar L. Haralds- sonar bæjarstjóra næststærsti flokk- urinn á eftir Sjálfstæðisflokki. Ein undantekning er á glæsilegri útkomu pólitískra bæjarstjóra. Kratar í Keflavík misstu meirihluta. Flokkurinn fékk um eitt hundraö atkvæðum færra nú en 1986. Einn viðmælenda DV hafði á orði aö fólk virtist vilja stóran og sterkan lista, og sterka bæjarstjóra. Heíðu þeir því víöast styrkt stöðu sína. Annar viðmælandi sagði þessa for- ingjadýurkun óskiljanlega og í hróp- legri mótsögn við valddreifingar- hugmyndir fjölmargra hsta. Sameiginleg framboð Sameiginlegu framboðunum á höf- uðborgarsvæðinu gekk illa. Nýr vett- vangur fékk mun minna fylgi en von- ir aðstandenda stóðu til. Sama má segja um sameiginleg framboð á Sel- tjarnarnesi, Garöabæ og Mosfellsbæ. Fréttaljós Haukur L. Hauksson Sigurjón M. Egilsson Sameiginlegt framboð í Hveragerði vann meirihluta, en það framboð er eldra en hin. Það var stofnað til þess 1986. Á Selfossi og Seyðisfirði tókst sameiginlegum framboðum að halda þeim fulltrúum sem flokkarnir höfðu áður. Guðmundur Ámi Stefánsson, Steingrímur J. Sigfússon, Bjami P. Magnússon og fleiri hafa sagt að allar hugmyndir um sameiginleg framboð heyri nú sögunni til. Tilraunimar hafi einfaldlega mistekist. Það má einnig segja að kjósendur hafi slökkt á rauða ljósinu. - Það vom formenn A-flokkanna sem voru hvað mest áfram um sam- eiginlegu framboðin. Þeir eiga báðir eftir að gera þau mál upp innan sinna flokka. Það er vitað að innan beggja flokanna eru menn sem kunna þeim htlar þakkir fyrir. Deilur innan Al- þýðubandalagsins eru þegar orðnar háværar. Slæm útkoma Kvennalista Kvennahstinn kom ekki vel út úr kosningunum og má muna fífil sinn fegurri. Kvennalistinn bauð fram í íjórum kaupstöðum: Reýkjavík Kópavogi, Akureyri og ísafirði. Kom Kvennahstinn aðeins einum fuhtrúa að, Ehnu G. Ólafsdóttur í Reykjavík. Fylgi listans var þó hlutfallslega mest á ísafirði eða 6,13 prósent. í Reykjavík var fylgið 6,0 prósent. Hafði þaö þá fallið úr 10,9 prósent fylgi 1982 þegar hstinn fékk tvo full- trúa kjörna. Á Akureyri var fylgið 5,35 prósent. Þar bauð Kvennahsti síðast fram 1982 og fékk þá tvo fuh- trúa kjörna. í Kópavogi bauð Kvennalistinn fram í fyrsta skipti og fékk 5,35 prósent fylgi. Reyndar fékk Kvennalistinn kjörinn fulltrúa í bæj- arstjóm á Selfossi en Sigríöur Jens- dóttir er oddviti sameiginlegs fram- boðs A-, G- og V-lista þar. Menn spyrja sig þeirrar spuming- ar nú hvort fylgi Kvennahstans sé almennt hrunið og verði ekki meira. Er taliö aö orsök slæms gengis hstans sé meðal annars að finna í þeirri staðreynd að nýjabrumið sé farið af sérstöku framboði kvenna og að aðr- ir flokkar hafi smám saman gert mörg helstu baráttumál Kvennalist- ans að sínum. Guðrún Agnarsdóttir, þingmaður Kvennahstans, telur síð- arnefnda atriðið einmitt hafa haft áhrif á gengi sérstakra kvennafram- boða nú. Því má viö bæta að á sama tíma og foringjadýrkun virðist vera áberandi er kvennalistinn á önd- verðum meiði og teflir engum einum fulltrúa sínum sérstaklega fram sem foringja. Kosið þverpólitískt Eftir að hafa rætt við fjölda manna um aht land, bæði frambjóöendur og aðra, kemur í ljós að varasamt er að reikna úrslit byggðakosninga yfir á fylgi flokka í þjóðmálum. Það er víða sem kjósendur í byggðakosningum eru að kjósa menn en ekki flokka. Harðir stuðningsmenn ákveðinna flokka kjósa þverpóhtiskt ef þeim hk- ar betur við frambjóðendur á öðrum listum. Góð útkoma pólitísku bæjar- stjóranna styður þessar fuhyrðingar. -hlh/sme í dag mælir Dagfari________________ Frantsókn í oddaaðstöðu Þegar menn eru að útnefna Dav- íð Oddsson og Guömund Árna Stef- ánsson sem sigurvegara kosning- anna um helgina, gleymist sá sig- urvegari sem nú hefur öll tromp á sinni hendi. Það er framsóknar- maður í Kópavogi. Hann heitir Sig- uröur Geirdal. Sá góði maður gerði sér nefnhega lítið fyrir og kom sér í slíka oddaaðstöðu í Kópvogi, aö allt bendir til að hann hafi örlög og framtíð kaupstaðarins í hendi sér. Meöan gamli meirihlutinn í Kópavogi barðist heiftarlega fyrir lífi sínu gegn sókn sjálfstæðis- manna, sem stefndu á hreinan meirihluta, beið frambjóðandi Framsóknarflokksins átekta. Hafði hægt um sig og gætti þess vel að bæta hvorki viö sig né heldur tapa neinu af sínu fylgi. Það markmið er tiltöluega auðvelt fyrir fram- sóknarmann í Kópavogi eins og annars staðar þar sem kosið er í landinu, því kjósendur Framsókn- arflokksins er eina náttúrulögmál- ið í íslenskum stjórnmálum, sem aldrei bregst og alltaf er á sínum stað, hvað sem á gengur. Enda hlaut Framsóknarflokkurinn nokkum veginn nákvæmlega sama fylgi og síöast ef frá em tahn þau framsóknaratkvæði sem hafa fahiö frá á kjörtímabilinu og að viðbætt- um þeim aíkomendum framsókn- armanna, sem nú eru á kjörskrá. Framsóknarfulltrúinn gat gengið aö sínu fylgi vísu og þurfti ekki einu sinni að auglýsa eftir hundrað og tuttugu framsóknaratkvæðum eins og kollegi hans í Reykjavík. Kópavogsbúinn vissi að þau voru öll á lífi og myndu skila sér á kjör- stað. Og þegar upp var staðiö og at- kvæðin talin upp úr kjörkössunum var framsóknarmaöurinn inni en hinar fylkingamar tvær með sína fimm fulltrúana hvor. Þaö var þá sem sigurinn kom í ljós. Þaö er nefnilega ekki alltaf nauðsynlegt að fá sem flesta bæjarfulltrúa til að sigra í kosningum. Aöalatriðið er að vera á réttum stað á réttum tíma og stóla á sitt eigið fasta fylgi. Enda vom kosningamar ekki yfir- staðnar fyrr en kratar og kommar annars vegar og íhaldið hinsvegar fóru á fjörumar við framsóknar- manninn og buðu honum gull og græna skóga. Sigurður Geirdal stendur með pálmann í höndunum. Sjálfstæðis- flokkurinn hefur boðið honum að velja bæjarstjórann og fá jafn marga menn í allar nefndir og Sjálfstæðisflokkurinn og skiptir þá engu máli, þótt íhaldiö hafi fengið fimm menn kjöma en Framsókn bara einn. Það myndar enginn meirirhluta í Kópavogi, nema með Framsókn. Þessum eina og sanna framsóknarmanni, sem haföi vit á því að sækjast ekki eftir öðrum at- kvæðum en sínum eigin. í Kópa- vogi sannast kenningin úr testa- mentinu: Þeir síðustu verðafyrstir. Framsóknarflokkurinn hefur þann eiginleika að geta samið bæði til vinstri og hægri. Hann semur við þann sem býður best. Og nú bíður Sigurður Geirdal eftir tilboð- unum og yfirboðunum og heim- sækir Steingrím flokksformann til að ráðgast við hann um hvor sé betri, brúnn eða rauður. Stein- grímur er líka vanur svona hrossa- kaupum og hefur oft áður verið í hlutverki gleðikonunnar, sem sel- ur sig hæstbjóðanda. Hann mun gefa sínum manni góð ráð. Þessar aðstæður í Kópavogi vekja náttúrlega upp þá spurningu, til hvers flokkar séu að sækjast eftir íjórum eða fimm fulltrúum og hvaða tilgangi þaö þjónar að fá heiljarmikið af atkvæðum, þegar niöurstaðan verður sú, að sá sem minnst fær og stendur einn eftir, kemur til með að ráða ferðinni, ráða bæjarstjóranum og fá jafn marga flokksmenn í nefndir og stóri flokkurinn? Sigurður Geirdal er kannski síðasti geirfuglinn en geirfuglar eru ekki útdauðir, þegar þeir standa uppi sem sigurvegarar í kosningum, með því að bæta engu við sig og eiga enga aö nema sjálfan sig og æviráðiö framsóknarfylgi. Guðmundur Ámi og Davíð Odds- son verða að hafa fyrir því að ná hreinum meirihluta fil að fá að stjórna. Sigurður Geirdal þarf ekki á öðrum bæjarfulltrúum að halda til að komast til valda. Hann snýr ósigri í sigur, tapi í vinning og held- ur á öllum trompspilunum á hend- inni. Kópavogur er hans, strax og Steingrímur er búinn að ráðleggja honum hvað hann eigi að gera. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.