Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1990, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1990, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 30. MAI 1990. 5 Fréttir Jón Geir Sigurbjörnsson (ékk ekki að kjósa í Kópavogi vegna mistaka í kerfinu. Hér heldur hann á tiikynningu um aðsetursskipti en lögheimilinu hafði hann haldið i Kópavogi. DV-mynd BGS Verslunarmannahelgin: Tvær útihátíðir fyrir norðan Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyn: Allt bendir til þess að tvær útihátíðir verði á Norðurlandi um verslunar- mannahelgina, önnur í Húnaveri en hin á Melgerðismelum í Eyjafirði. Samkvæmt heimildum DV eru það Stuðmenn sem standa að hátíðinni í Húnaveri, en þar var ein stærsta úti- hátíðin haldin um verslunarmanna- helgina á síðasta ári. Heyrst hefur að þar komi m.a. fram auk þeirra hljómsveitin Síðan skein sól. Að hátíðinni á Melgerðismelum standa þeir aðilar sem reka skemmti- staðinn Bleika fílinn á Akureyri. Heyrst hefur að aðalhljómsveitir þar verði Sáhn hans Jóns míns og Todmobil. Umsókmr um báðar þess- ar hátíðir eru hjá sýslumönnum á Blönduósi og á Akureyri. Kerfið brást í Kópavogi: Fékk ekki að kjósa - skitt segir fógeti og vill breyta reglum Jón Geir Sigurbjörnsson fór eins og þorri landsmanna á kjörstað á laugardag og ætlaði að fara að kjósa þar í fyrsta sinn. Þar var honum hins vegar sagt að hann gæti ekki kosið þar sem hann væri ekki á kjörskrá. Hann hafði skipt um aðsetur en hald- ið lögheimili sínu í Kópavogi. Vegna mistaka var hann tekinn út af kjör- skrá eins og hann hefði skipt um lög- heimili. Allir pappírar sýna hins veg- ar að svo var ekki. Þrátt fyrir það var ekki hægt að fá hann dæmdan inn á kjörskrá þar sem borgardómari haföi gefið út tilkynningu til stjóm- málaflokkanna um að engar kærur yrðu teknar til greina eftir kl. 3 á fóstudag. Það er hins vegar ekkert sem mæl- ir gegn þvi að dæma menn inn á kjör- skrá og eru fordæmi fyrir því. í Reykjavík var starfandi dómari á kjördag og þar var einn maður dæmdur inn á kjörskrá. Á bæjarskrifstofu Kópavogs vildu menn allt fyrir Jón gera þar sem sýnt þótti að mistök hefðu orðið í kerfinu sem þeir ættu sök á. Kallaður var út dómari en að höföu samráði viö bæjarfógetann var ákveðið að ekkert yrði gert í málinu. „Sá maður sem vill gæta réttar síns verður að gera það sjálfur. Það er hin almenna regla í lífinu. Kjörskrár höföu legið frammi og hann hefði því getað veriö búinn aö athuga þetta mál fyrr. Svona slys geta alltaf kom- ið fyrir og það er auðvitað helvíti skítt að fá ekki að kjósa. Ég tek und- ir það að það þyrfti að setja reglur til þess að fólk geti fengið sig dæmda inn á kjörskrá á kjördag," sagði Ás- geir Pétursson bæjarfógeti. -pj Skagafjörður: Sáralélegt í grásleppunni - og rauðmagi sést varla Þórhallur Ásmundsson, DV, Sauöárkxóki: „Ég held að það sé ákaflega lítil von til þess að verði einhver grásleppu- veiði í vor. Þetta er búið að vera al- veg eindæma lélegt, seint kom hún í fyrra og hún virðist bara hreinlega ekki ætla að sýna sig nú. Ætli sé komið nema um helmingur af veið- inni á sama tíma í fyrra, svona um 30 tunnur hjá öllu úthaldinu hér á Skaganum," sagði Búi Vilhjálmsson, bóndi á Hvalnesi. Grásleppubændur á Skaganum byrjuðu flestir að leggja i aprílbyrjun og ekki bætti úr skák óstöðugt tíöar- far í mánuðinum. Ekki er nema stutt síðan að þeir fáu sem gera út á grá- sleppuna á Króknum lögðu. Einar Jóa, eini grásleppubóndinn á Hofs- ósi, er kominn með fimm tunnur. „Þetta er sáralélegt og veistu það að ég sé varla rauðmaga. Það er varla að maður fái í soðið,“ sagði Einar. Fljótamenn eru heldur ekki ánægðir með vertíðina en samt er útkoman líklega einna best hjá þeim á svæðinu. Tvö úthöld eru þar við veiöar og hefur hvort um sig fengið milli 20 og 30 tunnur. Menn eru sammála um að áhyggj- ur af sölumálum séu óþarfar, en ein- mitt þegar tók að rofa til í þeim mál- um veiddist ekki neitt. Bæjarstjóri Njarövíkur um staðsetningu álvers: Nálgumst kostnað Eyfirðinga „Við höfum verið að láta útfæra betur aðstöðuna á Keilisnesi og hefur verið unnið við að staðsetja ná- kvæmlega höfnina og lóðina. Við telj- um okkur vera að nálgast þann kostnað sem Eyfirðingar geta boðið upp á,“ sagöi Oddur Einarsson, bæj- arstjóri Njarðvíkur, en sveitarstjórn- armenn á Suðurnesjum vinna enn hörðum höndum við að fá nýtt álver til sín. í gær áttu nokkrir þeirra fund með fulltrúa Granges Aluminium, Trepp að nafni. Hann er hér á landi á vegum Atlantal-hópsins og á að vinna við að safna saman gögnum varðandi staösetningu álversins. Suðurnesjamenn eru harðir á því aö Keilisnesið sé heppilegast fyrir staðsetningu álvers og sagði Oddur að nú lægju fyrir nánast öll gögn sem þyrfti að hafa við hendina varðandi Keilisnesið. Þeirra vegna væri ekkert í veginum að taka ákvörðun um stað- setningu fljótlega. -SMJ f \J"eíum nú boðið hinn frábæra geisla- spilara, CDX-105, frá japönsku hljómtækjasér- fræðingunum, Sansui, á sérstöku sumartilboðsverði. CDX-105 er geisilega fullkominn og hljómfagur spilari, er uppfyllir óskir hins kröfuharða hiustanda. Gældu við eyrun, veldu hljómtæki frá Sansui. Sansui fjárfesting til framtíðar. w SKIPHOLT 7 — SÍMI62 25 55 AUGlÝSNGAS70f/WJURn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.