Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1990, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1990, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 1990. Viðskipti Vextir hækka á Veröbréfaþingi: Gengi húsbréfa fellur Þeir sem fá húsbréf sem greiöslu út úr fasteignaviðskiptum fá nú minna fyrir þau en þegar þau komu fyrst á markaðinn í nóvember. Þetta stafar af því að gengi húsbréfa á Verðbréfaþingi íslands hefur fallið lítillega að undanfórnu. Kaupendur húsbréfa á Verðbréfaþingi, mest Landsbankinn, gera nú hærri ávöxt- unarkröfu en áður sem þýðir meiri afíoll fyrir eigendur húsbréfa. Ávöxt- unarkrafan er núna 6,85 prósent en var 6,55 prósent fyrst eftir að hús- bréfakerfið var tekið upp. Þessar breytingar hefur mátt sjá í dálknum hér til hliðar um ávöxtunarkröfu kaupenda bréfa á Veröbréfaþingi ís- lands. Hærri ávöxtunarkrafa kaupenda húsbréfa kemur í kjölfarið á hærri ávöxtunarkröfu Seðlabankans í kaupum á spariskírteinum ríkissjóðs á Verðbréfaþingi íslands. Það þýðir með öðrum orðum, að vextir eru að hækka á Verðbréfaþingi. Það er vís- bending um hækkandi raunvexti á peningamarkaðnum almennt en undanfarin misseri hafa raunvextir farið lækkandi bæði vegna minnk- andi eftirspurnar eftir lánsfé í þeirri kreppu sem efnahagslífiö hefur verið í undanfarin tvö ár og eins vegna vaxtalækkunarstefnu ríkisstjórnar- innar. Landsbanki íslands er viðskipta- vaki húsbréfa á Verðbréfaþinginu, samkvæmt sérstökum samningi þar um við Húsnæðisstofnun. Viðskipta- vaki er sá nefndur sem skuldbindur sig til að halda markaðnum uppi, kaupa og selja bréf, að ósk markaðar- ins. Fyrst þegar húsbréfm komu fram gerði Landsbankinn 6,55 prósent ávöxtunarkröfu við kaup á húsbréf- um af þeim sem fengu húsbréf út úr fasteignaviðskiptum. Síöan hækkaði bankinn ávöxtunarkröfuna upp í 6,75 prósent og nú er hún komin í 6,85 prósent. Afföllin hafa aukist. Þau húsbréf sem Landsbankinn hefur keypt hefur hann selt aftur á mark- aönum, mest til lífeyrissjóða. Nú sel- ur bankinn þessi húsbréf gegn 6,65 prósent ávöxtun, sem er hærra en áður. Sigurbjörn Gunnarsson, hjá verð- bréfafyrirtæki Landsbankans, Landsbréfum hf„ segir að þeir hafi hækkaö ávöxtunarkröfuna við kaup á húsbréfum í samræmi við hækkun Seðlabankans á ávöxtunarkröfu sinni við kaup á spariskírteinum rík- issjóðs. Hann segir jafnframt að ráð sé fyrir því gert í samningi Lands- bankans og Húsnæðisstofnunar að bankinn geti hækkað ávöxtunarkröf- una með auknum kaupum hans á bréfunum. Sigurbjörn segir að bankinn hafl nú keypt húsbréf fyrir hátt í 400 milljónir króna frá því að þessi bréf komu á markaðinn og selt þau að mestu aftur. Húsbréf eru ríkistryggð. -JGH Verðbréfaþing íslands - kauptilboð vikunnar FSS = Fjárfestingarsjóður Sláturfélags Suðurlands, GL = Glitnir, IB = Iðnaðar- bankinn, Lind = Fjármögnunarfyrirtækið Lind, SÍS = Samband íslenskra sam- vinn ufélaga, SP = Spariskírteini ríkissjóðs Hæsta kaupverð Einkenni Kr. Vextir 240,06 9,5 BBIBA85/3 5 BBIBA86/1 5 206,25 7,6 BBLBI86/01 4 178,20 9,3 BBLBI87/01 4 174,25 8,3 BBLBI87/034 163,70 8,4 BBLBI87/054 157,45 7,8 HÚSBR89/1 99,71 6,8 SKFSS85/1 5 212,71 13,0 SKGLI86/25 177,86 8,4 SKGLI86/26 165,45 7,8 SKLYS87/01 3 169,74 8,0 SKSIS85/2B 5 246,38 12,0 SKSIS87/01 5 229,75 12,0 SPRÍK75/1 18015,92 6,8 SPRÍK75/2 13504,42 6,8 SPRÍK76/1 12639,80" 6,8 SPRIK76/2 9813,63 6,8 SPRÍ K77/1 8903,29 6,8 SPRÍK77/2 7586,92 6,8 SPRÍK78/1 6036,66 6,8 SPRÍK78/2 4846,75 6,8 SPRÍK79/1 4048 80 6,8 SPRÍK79/2 3152,42 6.8 SPRÍK80/1 2555,97 6,8 SPRÍK80/2 2030,73 6,8 SPRÍK81/1 1667,02 6,8 SPRÍK81/2 1259,39 6,8 SPRÍK82/1 1160,95 6,8 SPRÍK82/2 880,12 6,8 SPRIK83/1 674,53 6,8 SPRÍK83/2 454,67 6,8 SPRl K84/1 462,99 6,8 SPRÍK84/2 500,78 7,6 SPRÍK84/3 489,73 7,5 SPRÍK85/1A 411,80 7,0 SPRÍK85/1 B 278,44 6,3 SPRÍK85/2A 319,61 7,0 SPR1K85/2SDR 278,03 9.9 SPRÍK86/1A3 283,85 7,0 SPRÍK86/1A4 321,74 7,8 SPRIK86/1A6 341,60 7,8 SPRÍK86/2A4 267,94 7,3 SPRÍK86/2A6 281,98 7,4 SPRIK87/1A2 227,97 6,5 SPRIK87/2A6 206,00 6,8 SPRÍK88/1D3 184,78 6,8 SPRIK88/2D3 151,35 6,8 SPRÍK88/2D5 151,20 6,8 SPRÍK88/2D8 148,52 6,8 SPRIK88/3D3 143,37 6,8 SPRÍK88/3D5 144,72 6,8 SPRIK88/3D8 143,48 6,8 SPRÍK89/1A 116,47 6,8 SPRÍK89/1 D5 139,64 6,8 SPRÍK89/1D8 138,32 6,8 SPRÍK89/2A10 95,32 6,8 SPRIK89/2D5 115,66 6,8 SPRÍK89/2D8 113,08 6,8 SPRÍK90/1 D5 102,52 6,8 Taflan sýnir verð pr. 100 kr. nafnverðs og hagstæðustu raunávöxtun kaupenda í % á ári miðað við viðskipti 28.05/90 og dagafjölda til áætlaðrar innlausnar. Ekki er tekið tillit til þóknunar. Forsendur umverðlagsbreytingar: Viðskipti á Verðbréfaþingi fara fram hjá eftirtöldum þingaðilum: Fjárfestingarfé- lagi Islandshf., Kaupþingi hf„ Lands- banka Islands, Samvinnubanka Islands hf„ Sparisjóði Hafnarfjarðar, Sparisjóði Reykjavíkurog nágrennis, Útvegsbanka Islands hf„ Verðbréfamarkaði Iðnaðar- bankans hf. og Verslunarbanka Isl. hf. íslendingar setja 740 milljónir í Evrópubanka Jón Sigurðsson skrifaði undir stofn- skrá Evrópubankans fyrir hönd is- lands. Hlutur Islands í nýstofnuðum Evr- ópubanka, sem hefur aðsetur í London, verður 740 milljónir króna. Stofnfé bankans er þúsundfalt meira eða 740 milljarðar króna. Ekki er víst að íslendingar þurfi aö greiða allan þennan hlut sinn þvi stofnendur bankans greiða 30 pró- sent af hlut sínum á næstu fimm árum og skuldbinda sig til að greiða afganginn ef bankinn þarf á auknu fé að halda. Greiðslur islands á næstu fimm árum nema því um 44 íslenska stórfyrirtækið sem auglýsti 1 Herald Tribune: Viðræður standa yfir við útlent fyrirtæki „Það standa yfir viðræður við einn erlendan aðila. Þegar hafa nokkrir fundir verið haldnir," segir Ólafur Garðarsson lögfræðingur um árang- ur auglýsingar frá íslensku stórfyrir- tæki sem hann lét birta í hinu víð- lesna blaði, Herald Tribune fyrir nokkrum mánuðum. íslenska fyrir- tækið auglýsti eftir hluthöfum og áttu þeir sem vildu fá frekari upplýs- ingar að snúa sér til Ólafs. Um það hvort ekki sé enn hægt að fá upplýsingar um hvaða fyrirtæki hér ræðir, segir Ólafur að ákveðið hafi verið að greina ekki frá því. Með auglýsingunni sé verið að gera nýja hluti og fara nýjar leiðir og því miður vilji brenna við undir slíkum kring- umstæðum að umræðan hérlendis verði neikvæð. Umrædd auglýsing birtist í Herald Tribune 2. febrúar síðastliðinn. í auglýsingunni segir að fyrirtækið sé stöndugt og rótgróið íslenskt inn- flutningsfyrirtæki með góða stöðu á markaönum og til boða standi helm- ingur hlutafjárins eftir hlutafjár- aukninguna. Ennfremur sagði í auglýsingunni aö eigið fé fyrirtækisins væri metið á 12 milljónir dollara en það geri um 730 milljónir króna. Þá sagði að velta fyrirtækisins á síðasta ári hafi verið á bilinu 12 til 14 milljónir dollara en það er um 730 til 850 milljónir króna. Jafnframt stóð að fyrirtækið hefði mjög góð sambönd og áhrif í íslensku viðskiptalífi og njóti trausts á al- þjóðlegum vettvangi. -JGH Framkvæmdasjóður: Enn óráðið í stöðu aðstoðarforstjóra Enn hefur stjórn Framkvæmda- sjóðs íslands ekki ráðið í stöðu að- stoðarframkvæmdastjóra sjóðsins. Staðan var auglýst 25. febrúar síðast- liðinn og var umsóknarfrestur til 16. mars. Sautján sóttu um. Stjóm Framkvæmdasjóðs skipa þeir Þórður Friðjónsson, formaður, Tómas Ámason, bankastjóri Seöla- bankans og Össur Skarphéðinsson, sérfræðingur í fiskeldi. DV hefur áður greint frá því að Jóhann Antonsson, viðskiptafræð- ingur og starfsmaður hjá Átvinnu- tryggingasjóði, væri á meðal um- sækjenda og þætti líklegastur til að fá starfið. -JGH Framkvæmdasjóðurj íslands auglýsir til umsóknar stöðu aðstoðarfram- kvæmdastjóra. Umsóknir sendist Framkvæmdasjóði íslands, Rauðarárstíg 25, fyrir 16. mars nk. Þessi auglýsing birtist 25. febrúar siðastliðinn. Enn er ekki búið að ráða stöðuna. 'diyxi(V->x/ l .fCt/ytx ów íOMÍtii, Gengi húsbréfa hefur fallið á Verð- bréfaþingi íslands. Sömu sögu er að segja um gengi spariskirteina ríkissjóðs. Peningamarkaður milljónum króna á ári. Bankinn var stofnaður í fyrradag af 42 ríkjum og stofnunum. Hlutverk bankans er aö greiða fyrir þeim miklu breytingum sem em að verða í ríkjum Miö- og Austur-Evrópu og felast í brotthvarfi frá kommúnisma og miðstýrðum áætlunarbúskap til markaðsbúskapar. Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra undirritaði stofnskrána fyrir hönd íslands. -JGH INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverðtryggð Sparisjóðsbækur ób. 3,0 Allir Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 3-4 Ib.Sb,- Sp 6mán.uppsögn 4-5 ib.Sb 12mán.uppsögn m 4-5,5 lb 18mán.uppsögn 11 Ib Tékkareikningar.alm. 0,5-1 Allir nema Ib Sértékkareikningar 3.0 Allir Innlan verðtryggð Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 1,5 Allir 6mán. uppsögn 2,5-3,0 Lb.Bb,- Sb Innlánmeð sérkjörum 2,5-3,25 lb Innlángengistryggð Bandarikjadalir 7-7,25 Lb.Sb Sterlingspund 13.6-14,25 Sb Vestur-þýskmörk 6,75-7,5 Lb Danskarkrónur 9,25-10,75 Sb ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst Útlán óverðtryggð Almennirvíxlar(forv.) 13,5-13,75 Bb.Sb Viðskiptavixlar(forv.)(1) kaupqenqi Almenn skuldabréf 14,0 Allir Vióskiptaskuldabréf (1) kaupgengi Allir Hlaupareikningar(yfirdr.) 16,5-17.5 Bb Utlan verðtryggö . Skuldabréf 7.5-8,25 Lb.Bb Útlántilframleiðslu Isl. krónur 13,75-14,25 Bb SDR 10,75-11 Bb Bandaríkjadalir 10,10-10,25 Bb Sterlingspund 16,8-17 Sp Vestur-þýskmörk 9.9-10.5 Bb Húsnæðislán 4.0 Lifeyrissjóðslán 5-9 Dráttarvextir 23,0 MEÐALVEXTIR Óverðtr. mai 90 14,0 Verðtr. maí 90 7.9 VÍSITÖLUR Lánskjaravisitala júní 2887 stig Lánskjaravisitala mai 2873 stig Byggingavisitala mai 541 stig Byggingavísitala mai 169,3 stig Húsaleiguvísitala 1,8% hækkað 1. apríl. VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa verðbréfasjóða Einingabréf 1 4,890 Einingabréf 2 2,670 Einingabréf 3 3,223 Skammtimabréf 1,657 Lifeyrisbréf 2,459 Gengisbréf 2,133 Kjarabréf 4,849 Markbréf 2,577 Tekjubréf 1.982 Skyndibréf 1,451 Fjölþjóðabréf 1,270 Sjóðsbréf 1 2,355 Sjóðsbréf 2 1,767 Sjóðsbréf 3 1,644 Sjóðsbréf 4 1,395 Vaxtasjóðsbréf 1,6615 Valsjóðsbréf 1,5630 HLUTABRÉF Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.: Sjóvá-Almennar hf. 650 kr. Eimskip 420 kr. Flugleiðir 168 kr. Hampiðjan 159 kr. Hlutabréfasjóður 180 kr. Eignfél. Iðnaðarb. 159 kr. Skagstrendingur hf. 367 kr. Islandsbanki hf. 155 kr. Eignfél. Verslunarb. 126 kr. Oliufélagið hf. 449 kr. Grandi hf. 166 kr. Tollvörugeymslan hf. 105 kr. Skeljungur hf. 441 kr. (1) Við kaup á viöskiptavíxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðiia, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb = Búnaðarbankinn, Ib = Iðnaðarbank- inn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnu- bankinn, Úb = Útvegsbankinn, Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóðirnir. Nánari upplýsingar um peningamarkað- inn birtast i DV á fimmtudögum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.