Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1990, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1990, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 1990. Úttönd _________ De Klerk frestar Bandaríkjaför Forseti S-Afríku, F.W. de Klerk, hefur frestaö um óákveöinn tíma fyrirhugaöri ferð sinni til Banda- ríkjarma í næsta mánuöi til að forð- ast mótmæli andstæðinga kyn- þáttaaðskilnaðarstefnunnar þar og snúa sér að vandamálunum heima fyrir. Að sögn Pik Botha utanrikisráð- herra vill forsetinn ekki eyðileggja áhrifin af feröinni um Evrópu sem lauk í síðustu viku, Þykir de Klerk hún hafa verið árangursrík. Það er haft eftir heimildarmanni innan s-afrísku stjórnarinnar að blökkumannaleiðtogar í Banda- ríkjunum, þar á meðal Jesse Jack- son, hafi verið mótfallnir því að Bush forseti hitti de Klerk að máli áður en hann tæki á móti blökku- mannaleiötoganum Nelson Mand- ela þann 25. júní næstkomandi. Mandela, sem nú liggur á sjúkra- húsi til að jafna sig eftir lítils háttar aðgerð, hefur heitiö því að fara í fótspor de Klerks um Evrópu í júni og gera að engu það sem honum De Klerk, forseti S-Afriku. Símamynd Reuter varð ágengt. De Klerk vill að vest- rænar þjóöir aflétti efnahagsþving- unum gegn S-Afriku vegna umbóta þeirra sem þegar hafa verið geröar en Mandela vill að þær verði hert- ar. Reuter Tilkynning til launaskattsgreiðenda Athygli launaskattsgreiöenda skal vakin á því að gjalddagi launaskatts fyrir maí er 1. júní nk. Launaskatt ber launagreiðanda að greiða til inn- heimtumanns ríkissjóðs, í Reykjavík tollstjóra, og afhenda um leið launaskattsskýrslu í þríriti. Fjármálaráðuneytið ÍÞRÓTTAFÉLA6 FATLAÐRA REYKJAVÍK HÁTÚNI 14, 105 RVK. PÓSTHÓLF 5214 125 RVK. SÍMI 91-688226 OG 91-688002 PÓSTGÍRÓ 32000-5 GETRAUNANÚMER 121 Aðalfundur verður haldinn þriðjudaginn 12. júní í nýja íþrótta- húsinu, Hátúni 14, kl. 20.00. Dagskrá: venjuleg aðalfundarstörf, lagabreytingar og afhending verðlaunabikara. Copía - Útboð Tilboð óskast í MRI tæki til segulómunar fyrir Landspítalann í Reykjavík. Útboðsgögn ásamt tæknilegri lýsingu og fyrirvörum eru afhent á skrifstofu vorri að Borgartúni 7, Reykjavík. Tilboð, merkt: ,,Útboð 3596/90", berist skrifstofu vorri fyrir þriðju- daginn 11. september nk. kl. 11.00 f.h„ þar sem þau verða opnuð í viðurvist viðstaddra bjóðenda. ll\ll\IKAUPASTOFI\IUI\l RIKISINS BORGARTUNI 7. 105 REYKJAVIK Mubarak, forseti Egyptalands, og Hussein, forseti íraks, deildu hart á leiðtogafundi araba í Bagdad í gær. Símamyndir Reuter Rif ist á leið- togafundi Leiðtogar Egyptalands og íraks deildu um hlutverk Bandaríkjanna í Miðausturlöndum í lok fundar síns i Bagdad í gær. Afi sögn fúndargesta var Hosni Mubarak, forseti Egypta- lands, sem fær rúmlega 2 milljarða dollara aðstoð á ári frá Bandaríkjun- um, mótfallinn því að fordæma heild- - arstefnu Bandaríkjanna í málefnum Miðausturlanda. En Saddam Hus- sein, forseta íraks, sem sætt hefur harðri gagnrýni Vesturlanda fyrir að afla sér hátæknivopna, var um- hugað um að sýna heiminum að allir arabar stæðu að baki honum. íraska fréttastofan sagði að utan- ríkisráðherrar arabaríkjanna, sem semja drög að lokaályktun, myndu hittast aftur í dag. í lokaályktuninni eru Bandaríkin gagnrýnd fyrir að þrýsta ekki á ísrael að gera tilslakan- ir í samræmi við yfirlýsingu Frels- issamtaka Palestínu frá 1988 þegar þau viöurkenndu tilverurétt ísraels. Einnig er hvatt til „viðeigandi aö- gerða“ gegn ríkjum, stofnunum og fyrirtækjum sem aðstoða sovéska gyðinga við að setjast að í ísrael og á herteknu svæðunum. Bæði ísrael og Bandaríkin hafa fylgst náið með framvindu mála á leiðtogafundinum. ísraelskir emb- ættismenn segjast hafa áhyggjur af „tali um stríð“ meðal araba og von- ast til að Egyptaland, eina arabaríkið sem friðmælst hefur við ísrael, hafi jákvæð áhrif á fundinum í Bagdad. Viðbrögð bandarískra embættis- manna voru á þann veg að leiðtogar araba ættu að forðast gagnrýni á Bandaríkin því að annars væri hætta á að þau tækju ekki leiðtogafundi araba alvarlega. Reuter Bandaríkin: Geimskoti frestað Geimskoti bandarísku geimferj- unnar Columbíu var frestað í gær- kvöldi og er ekki ljóst hvenær henni verður skotið á loft. Fastlega má þó búast við aö það verði innan sólarhrings. Skotinu var frestað vegna hugsanlegrar sprengihættu samfara þvi er verið var að fylla eldsneytistanka ferjunnar. Skömmu eftir að hafist var handa við að setja eldsneyti á tankana ákváðu sérfræðingar bandarísku geimferðastofnunarinnar að hætta við eldsneytisgjöfina af öryggisá- stæöum. Ástæöan var sú að meira mældist af vetni í nánd við vélar flaugarinnar en eðlilegt er. Um borð í Columbíu veröa sjö geimfarar. Hlutverk þeirra er að koma geimsjónaukum fyrir á braut en það er hluti geimáætlunar stofn- unarinnar sem hófst er Hubble- geimsjónaukanum var komið fyrir í geimnum. Farmur feijunnar nú er metinn á 148 milljónir dollara. Reuter Orlög breskra gísla tengd Rushdie-málinu FRÁ MENNTAMÁLARÁÐUNEYTINU Innritum nemenda í framhaldsskóla í Reykjavík fer fram í Miðbæjarskólanum í Reykjavík dagana 31. maí og 1. júní nk. frá kl. 9.00-18.00. Umsóknum fylgi Ijósrit af próf- skírteini. Þeim nemendum 9. bekkjar sem þess óska er gefinn kostur á persónulegri námsráðgjöf fyrir og samhliða innrituninni. Námsráðgjöfin fer fram í Miðbæjarskólanum og hefst miðviku- daginn 30. maí kl. 9.00 og stendur til kl. 18.00 föstudaginn 1. júní. Þeir sem óska eftir að tala við námsráðgjafa þurfa að skrá sig í viðtal með nokkrum fyrirvara. Skráning í viðtö! fer fram á sama tíma og sama stað, sími 16491. Rithöfundurinn Salman Rushdie er enn i felum. Símamynd Reuter Einn helsti leiötogi Hizbollah- samtakanna, sem hliðholl eru írönskum yfirvöldum, sagði í gær að Bretar ættu að reka rithöfundinn Salman Rushdie úr landi ef þeir vildu aö breskir gíslar í Líbanon yrðu látn- ir lausir. Taliö er samtök undir Hizbollah- samtökunum hafi í haldi þrjá breska gísla, Terry Waite, John McCarthy og Jack Mann. Tólf aðrir vestrænir gíslar eru einnig í haldi í Líbanon. Það var í febrúar í fyrra sem Kho- meini, fyrrum andlegur leiðtogi ír- ana, sakaði Rushdie um guðlast og fyrirskipaði aftöku hans. Rushdie, sem neitar þvi að í bók hans, Söngv- um Satans, sé guðlast, hefur síðan verið í felum í Bretlandi. Að sögn Hizbollah-leiðtogáns, Hus- sein Musawi, taka þau múhameðsku samtök sem eru með bresku gíslana í haldi Rushdie-málið mjög alvarlega. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.