Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1990, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1990, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 30. MAl 1990. Spumingin Ætlarðu á leikinn gegn Albaníu í kvöld? Ingólfur Snævarsson nemi: Kannski, þaö fer eftir því hvenær hann verður. Sigurður Hreggviðsson nemi: Ég býst ekki við því. Valdimar Birgisson sjómaður: Nei, alla vega ekki með veski. Selma Ragnarsdóttir nemi: Nei, ég fylgist ekkert með en ég vona að við vinnum. Sigríður Júlíusdóttir hárgreiðslu- dama: Nei, ég er voða lítið fyrir fót- bolta. Ólafur Jónsson nemi: Nei það máttu bóka. Ég hata fótbolta. Lesendur Gæði innfluttra vara dala: Innkaupatrikk eða ímyndun? Björn Sigurðsson skrifar: Þaö er stundum sem ég leiði hug- ann að því við notkun á ýmsum innfluttum vörutegundum hvort það geti verið að sumt sem hingað er keypt sé lélegra að gæðum en það sem selt er erlendis. - Ég gæti tekið ijöldann allan af dæmum, en það má æra óstöðugan á þeim og tek þvi aðeins tvö. Þá sjaldan ég fer til útlanda, kaupi ég oft sitt lítið af hveiju, bæði af því sem mig bráðvantar þá stundina og eins annað sem ég hugsa gott til glóðarinnar aö kaupa þar vegna verömismunar og til að eiga nokkrar birgðir, sem þó end- ast nú aldrei lengi vegna takmörk- unar á leyfilegum innflutningi venjulegs ferðamanns. - En alltaf getur maður haft eitthvað með- ferðis og það kemur sér vel í dýrtíö- inni hér. Eitt er það sem ég alltaf kaupi er ég ferðast utan og það eru rakvélar- blöð. Bæði er það að þau eru langt- um ódýrari þar - en svo er hitt að mér finnst rakvélarblöð, sem keypt eru erlendis, endast mun lengur en þau sem ég kaupi hér á landi, jafn- vel þótt merkið sé hið sama. - Það fer ekki hjá því að það er stað- reynd, þetta með endinguna. Fróð- legt væri að heyra um þetta frá fleirum ef þeir hafa sömu sögu að segja. Eg hefi einnig heyrt að sama sé uppi á teningnum með sokkabuxur kvenna. Þær sem keyptar eru er- lendis hafi marrgfalda endingu á við sumar tegundir a.m.k. sem keyptar eru hér á landi, og eru oft pakkabrenndar eöa gallaðar á ann- an hátt. Ég man eftir því í gamla daga, að þá var talað um leirtau (diska, bolla, o.þ.h.) og jafnvel postulín með góðum merkjum, en hægt að Er hugsanlegt að slaemt viðskipta- siðferði okkar hafi t.d. áhrif á morgunraksturinn? I Laugardalsstúkunni er oft setið þröngt og illþolandi að sitja þar í tóbaksreyk - segir m.a. i bréfinu. Reykingar í áhorfendastúkum: Stundum óbærileg svækja Gunnar skrifar: Þegar ég fer á íþróttakappleiki og hef komið mér fyrir í áhorfendastúk- unni kemur oftar en ekki að því aö einhver eða einhverjir við hlið mér eða í næstu sætum eru byrjaöir að svæla tóbakið sitt allt hvað af tekur. - Þetta er hið versta mál fyrir mig og marga aðra sem þarna sitja þétt um bekki. Nú hélt ég að reykingar væru ólög- legar á svona stað og gilti það sama og annars staðar þar sem settar hafa verið reglur um reykingabann á op- inberum stöðum. Ég tel að t.d. áhorf- endastúkan í Laugardal sé einn þeirra staöa. í stúkunni þarna er ill- þolandi aö vera þegar fólk reykir, og einmitt þarna, vegna þess að þar er allþröngt um mann. Ég legg til að á þessum málum verði tekið hið fyrsta. Og ef reyking- ar eru ólöglegar þarna er óþolandi að maður skuli vera skikkaöur til að sitja í þeim reykjarmekki sem þar skapast. - Þarna verður þá að setja upp skilti sem segja til um aö reykingar séu ekki leyfðar. - Eða þá að setja upp sérstök svæði fyrir þá sem endilega þurfa að púa sitt tóbak. Samgöngumál og Daglegt mál Ekki mun af veita Ámundi Loftsson hringdi: Ég vil koma á framfæri þakklæti til Marðar Árnasonar fyrir þættina um Daglegt mál í Ríkisútvarpinu, einkum og sér í lagi fyrir lagni hans við að koma á framfæri pólit- ískum viðhorfum sínum. í dag, 28. maí var hann t.d. að ræða um jarðgangagerð (ekki jarð- gangnagerð), og fór mörgum orð- um um hvað til stæði að veita miklu fé til þessara framkvæmda á Vestfjörðum, og eins hvað til stæði að veita miklu fé til að hraða því verkefni. Ekki mun nú af veita, ef flokkur hans, Alþýðubandalagið ætlar að koma inn manni í Vestfjarðarkjör- dæmi við næstu alþingiskosningar að baráttu samgönguráðherra í því áróðursstríði sé lagt hð. kaupa fyrir mismikið fé, eftir því hvort um var að ræða fyrstu, aðra eða þriðju „sorteringu“ frá verk- smiöjunni. Kaupmenn, sem keyptu þessar vörur hingað til lands, buðu þær þá og auglýstu samkvæmt því. Oft var hægt að gera góö kaup í þessum vöruflokkum hjá viðkom- andi kaupmönnum. í þá daga var viðskiptasiðferðið hér ekki líkt því sem það er nú orðið. Ég hef sterkan grun - en aðeins grun ennþá - að hér á landi séu boðin til sölu merki í ýmsum vöruflokkum, sem séu langt undir gæðastaðli þeim sem erlendis er boðinn, án þess aö þess sé sérstak- lega getið í verslunum. - Þetta er kannski mikill gróðavegur ef mikið tíðkaö í innflutningi. Og annað eins hefur nú verið brallað! En svaka- legt er það ef rétt væri. Ánægja með kosningasjón- varp - RUV Gunnar hringdi: Ég vil Iýsa ánægju minni og fleiri sem ég var með í hópi að horfa á kosningadagskrá Sjón- varpsins, hversu vel hún var úr garði gerð. Framsetningin var skýr og myndræn og upplýsingar voru mjög greinargóðar. Skemmtiatriðin voru einnig afar frambærileg, heíðu þó jafnvel mátt standa lengur. En ekki er á allt kosið. - Dagskráin sjálf var til fyrirmyndar í alla staöi. Hið sama var ekki hægt að segja um Stöð 2. Mér fannst sú stöð ekki skila kosningadagskrá sinni jafnvel og við hefði mátt búast, og langt frá þvi sem RÚV gerði. Bæði var myndræn framsetning ákaflega slök og ófagmannleg - ogþetta „Marteins-Mosdals-rugl“ fannst mér vera fram úr hófi vit- laust og sem endaði alltaf í vand- ræðagangi í lokin. Það væri hins vegar fróðlegt að fá vitneskju um hvaða tölvukerfi þeir hjá RÚV notuðu við kosning- aspárnar. Það var ekki kynnt sérstaklega. En þaö gerðu þeir óspart á Stöð 2. Samkvæmt þeim upplýsingum sem Lesendasíöa DV aflaði sér beint frá RÚV var notaö Hewlet Paccard tölvukerfi við kosning- aspárnar. Gefins kettlingur Margrét skrifar: Gullfallegur kettlingur, 9 vikna, fæst gefins (ekki til að vera í blokk), og þó helst í sveit. Upplýs- ingar fást hjá mér, Margréti Þórð- ardóttur, Grýtubakka 26, í síma 91-75140. Hringið í síma 27022 milli kl. 14 og 16 eða skrifið

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.