Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1990, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1990, Qupperneq 16
16 MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 1990. Iþróttir Evrópukeppni u. 21-árs/ólympíukeppnin: Vantaði alla einbeitingu - markalaust jafntefli íslands og Albaníu „Ég er mjög óhress meö leikinn, strák- ana vantaði alla einbeitingu og viljann til aö sigra. Liðiö spilaði ekki sem ein heild og náöi því ekki að skapa sér afger- andi færi,“ sagöi Marteinn Geirsson, þjálfari íslenska u. 21-árs landsliðsins, eftir að það gerði markalaust jafntefli við Albani á Kópavogsvelli í gærkvöldi. Þetta var fyrsti leikurinn í hinni tvö- földu keppni, Evrópukeppni u. 21-árs liða og forkeppni ólympíuleikanna, en þar leika þessi lið í riðh ásamt Spáni, Frakklandi og Tékkóslóvakíu. „Völlurinn var þungur og erfiður og það hentaði Albönum betur þar sem þeir voru með leiknari einstaklinga. Fyrri hálfleikurinn hjá okkur var þolan- legur en sá síðari slakur," sagði Mar- teinn. í heild var leikurinn ákaflega lítið fyr- ir augað. ísland réð ferðinni að mestu úti á vellinum en Albanir léku skipu- lagðan og yfirvegaðan varnarleik og áttu yfirleitt ekki í vandræðum með að brjóta niður fálmkenndar sóknarlotur íslenska hðsins. Ólafur varði tvisvar glæsilega ísland ógnaði aðeins tvisvar, svo heitið gæti, í bæði skiptin í fyrri hálfleik. Fyrst skallaði Bjarni Benediktsson yfir mark Albana og síðan átti Kristján Halldórs- son fallegt langskot rétt fram hjá stöng. Hinum megin var það Ólafur Pétursson sem forðaði íslenska liöinu frá tapi - fyrst varði hann frá Arben Milori, sem var í opnu færi á vítateigslínu, og síðan gott langskot frá Erion Mehilli. „Við ætluðum okkur bæði stigin en það vantaði einhvern neista til að það tækist," sagði Steinar Adolfsson, fyrir- hði íslenska liðsins. „Það var erfitt aö brjóta niður vöm Albananna, þeir voru leiknir og fljótir og snöggir th baka til að loka svæðum," sagði Steinar. Auk Ólafs í markinu áttu Helgi Björg- vinsson og Þormóður Egilsson góðan leik í vörninni og Rúnar Kristinsson var drjúgur á miðjunni sem og Ingólfur Ing- ólfsson. Lið íslands: Ólafur Pétursson, Helgi Björgvinsson, Þormóður Egilsson, Bjarni Benediktsson, Kristján Halldórs- son, Ingólfur Ingólfsson (Grétar Stein- dórsson 82.), Rúnar Kristinsson, Steinar Adolfsson, Haraldur Ingólfsson, Rík- harður Daðason (Bjarki Pétursson 70.), Valdimar Kristófersson. A. Ritchie frá Norður-írlandi dæmdi leikinn þokkalega og sýndi fjórum Al- bönum gula spjaldið. -VS • Valdimar Kristófersson, sóknarmaður úr Stjörnunni, sækir að Blendi Nallbani, markverði Albaníu, í leiknum i banska A-landsliðsins gegn Englendingum á Wembley fyrir rúmu ári, þá aðeins 16 ára gamall. Sportstúfar Chigaco Bulls sigraði meistara Detroit Pistons, 108-101, í undanúrslitum bandaríska körfuknatt- leiksins í fyrrinótt. Þar með hefur Chicago jafnað metin, 2-2, eftir að hafa unnið tvo leiki í röð á heima- veli sínum og fer næsti leikur einnig fram á heimavelh Detroit. Michael Jordan var atkvæðamestur leik- manna Chicago eins og oft áður og skoraði hann 42 stig og þótti hann leika frábærlega bæði í vörn og sókn. Isiah Thomas var stigahæstur hjá Detroit með 26 stig. Mclnally bjargaði Skotum gegn Möltu Alan Mclnally, leikmaöur meö Bayern Múnchen í Þýskalandi, var á skot- skónum í fyrrakvöld þeg- ar hann skoraði bæði mörk Skota í sigri á Möltu, 2-1, í vináttulandsleik þjóðanna í fyrrakvöld. Mclnally skoraði fyrra markið strax á 5. mín- útu með miklum þrumufleyg en Malta náði að jafna í upphafi síðari hálfleiks en Mclnally skoraði sigur- markiö þegar langt var liðið á leik- inn. Sveinbjörn þjálfar Gróttu í kvennaflokki Sveinbjörn Sigurðsson hefur verið ráðinn þjálfari 1. deildar liðs Gróttu í kvennaílokki. Sveinbjörn hefur síðastliðin tvö ár starfað í Nor- egi sem þjálfari og í vetur þjálfaði hann kvennalið Junkeren Feðgakeppni GR Feðgakeppni GR í golfi fer fram á morgun og hefst klukkan 16.00. Leikinn verður fjórmenningur eða „Foursome" og skal athygli vakin á því að mæðgur eru einnig boðnar velkomnar til leiks. • Þorvaldur Örlygsson og Kristján Jónsson kljást á æfingu. Það er ekki ólíklegt að þeir leiki saman á vinstri vængnum hjá íslenska liðinu í kvöld. DV-mynd Brynjar Gauti Snorri Már á skotskónum - sextán leikir 1 bikarkeppni KSÍ víða um land 1 gærkvöldi Snorri Már Skúlason var á skot- skónum er hð hans, ÍR, vann stóran sigur á Víkverja i bikarkeppni KSÍ í gærkvöldi en þá fóru fram sextán leikir í keppninni. ÍR-ingar skoruöu 6 mörk í leiknum gegn Vikveija og Snorri Már þrjú þeirra. Hin þrjú mörk ÍR-inga skoruöu þeir Njáll Eiðsson, Stefán Ólafsson, og Bragi Björnsson. • Skallagrímur vann Leikni úr Reykjavík í Borgarnesi, 2-1. Valdi- mar Sigurösson og Haraldur Hin- riksson skoruðu mörk heimamanna en Ath Þorvaldsson mark Leiknis. • Þróttur Reykjavík vann Ægi, 3-0. Sigurður Hallvarðsson, Benedikt Sigurðsson og ívar Jósafatsson skor- uðu mörk Þróttar. • Hveragerði tapaöi á heimavehi gegn BÍ, 0-2. Stefán Tryggvason og Haukur Benediktsson skoruöu mörkin. • Selfoss vann TBR á Selfossi, 6-0. Heimir Karlsson (2), Guðjón Þor- varðarson (2), Izudin Dervic og Gísli Björnsson skoruðu mörk Selfyss- inga. • Reynir frá Sandgerði burstaði Árvakur f Sandgeröi, 5-1. Siguröur Haraldsson (2), Antony Stissí (2), og Þóröur Þorkelsson (viti) skoruðu fyr- ir Reyni en mark Árvakurs skoraði Sæbjörn Guðmundsson úr víta- spymu. • Hafnir léku heima gegn Víöi og töpuðu, 0-4. Klemens Sæmundsson, Hlynur Jóhannsson, Vilberg Þor- valdsson og Steinar Ingimundarson skoruöu mörk Víðis. • Njarðvík lék á heimavehi gegn Árraanni og tapaöi, 0-1. Það var Olaf- ur Jósepsson sem skoraði sigurmark Ármenninga. • Leiftur vann VÖlsung á Olafs- firði, 3-1. Sigurbjöm Jakobsson (2) og Höröur Benónýsson skoruöu mörk Leifturs en Ásmundur Amars- son skoraði mark Völsungs. • Langnesingur lék gegn Reyni á Árskógströnd á laugardaginn á Þórs- höfn. Reynismenn sigraðu, 2-5. Mörk Reynis skoraðu þeir Jóhann Jóhannsson, Þórarinn Ámason (2), Garöar Níelsson og Valdimar Krist- jánsson. • TBR tapaði á heimavelh sínum gegn Magna frá Grenivík, 0-2. Heim- ir Ásgeirsson og Reimar Helgason skoraðu mörk Magna. • Dalvík tapaði einnig á heima- velh gegn KS frá Siglufirði, 1-2. Hlyn- ur Eiríksson og Hafþór Kolbeinsson skoruðu fyrir KS en mark Dalvik- inga skoraði Ingólfur Kristjánsson. • Enneinnútisigurinnleitdagsins Ijós á Reyöarfirði þar sem Valur tap- aði fyrir Þrótti á Neskaupstað, 1-2. Guðgeir Sigjónsson skoraði fyrir Val en þeir Ámi Þór Freysteinsson og Þráinn Haraldsson fyrir Þróttara. • Höttur tapaöi á heimavelh sín- um á Egilsstööum gegn Einheija frá Vopnafirði, 0-1. Sigurmarkiöskoraði Ólafur Ármannsson. • Leiknir Fáskrúðsfiröi vann góð- an heimasigur gegn Austra frá Eski- firði, 4-2. Sigurður Einarsson, Árni Gíslason, Albert Hansson, og Jakob Atlason skoruöu fyrir heimamenn en mörk Austra skoruöu þeir Sigurö- ur Magnússon og Hilmir Ásbjöms- son. • Loks sigraði Afturelding lið Vík- ings í Ólafsvík, 0-1. -SK/ÆMK/KH/KB/MJ ísla »Bg hug - segir ísland og Albanía leika í kvöld fyrsta leikinn í Evrópukeppni lands- liða í knattspyrnu 1990-1992 og fer hann fram á Laugardalsvelhnum og hefst kl. 20. „Við megum ekki vanmeta al- banska liðið. Lið þeirra hefur á að skipa mörgum snjöllum knatt- spymumönnum sem eru tekniskir og fljótir en viö eigum að vinna leik- inn ef hugarfarið verður rétt hjá strákunum," sagði Bo Johansson, þjálfari íslenska landsliösins í knatt- spymu, í samtali viö DV í gær en þá hafði íslenska liðiö nýlokið við að horfa á myndband af leik íslands og Lúxemborgar sem fram fór ytra í vor og lauk með sigri íslands, 1-2. „Ég geri ráð fyrir að Albanirnir muni leika frekar aftarlega en þegar færi gefst þá eru þeir fljótir í sókn. Það eina sem viö höfum séð til þeirra er leikurinn gegn Svíum sem við sáum á myndbandi og á þeim mynd- um sést að albanska liðið er til alls líklegt." Reynum að leika skynsaman sóknarleik „Við munum beita leikaðferðinni 4:4:2 og munum reyna eftir fremsta megni að leika skynsman sóknarleik en alls ekki á kostnað varnarinnar. Ég mun velja á morgun það lið sem hefur leikinn fyrir Islands hönd og það er eríitt val því allir þeir 16 leik- menn sem era í landsliðshópnum eru sterkir og því vont að gera upp á milli sumra,“ sagði Bo Johansson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.