Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1990, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1990, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 30: MAÍ 1990. 25 Sviðsljós Ólyginn sagði... Sylvester Stallone er í einlalífinu hinn rólegasti maður og ólíkur Rocky og Rambo sem hann er þekktastur fyrir að túlka. Þó gerðist það tvisvar um daginn að hann var nærri lentur í slagsmálum. Var það eins að þakka lífverði hans að ekki fór í hart. í fyrra skiptið var verið að vísa honum til borðs á besta stað í veitingahúsi. Maður einn sem sárnaði að vera færður til sneri sér að Stallone og sagði: „Þú og þitt pakk..." Stallone sámaði þetta og ætlaði að ráðast á mann- inn en lífvörður hans gekk á milli. í seinna skiptið sá hann Rob Lowe vera eitthvað að kássast upp á kærustu sína og rauk í Lowe, en áður en þeir gátu gert hvor öðrum mein gekk lífvörður StaUones á milli og skildi þá að. Michael Jackson móðgaði systur sína, Janet, held- ur betur um daginn þegar hann bauð Paula Abdul á sveitasetur sitt í Kaliforníu. Þau áttu þar ágæta stund saman og fór vel á með þeim og apanum hans Mic- hael, Bubbles, sem hann skilur ekki við sig. Þetta líkaði litlu syst- ur illa enda telur hún að Paula Abdul sé hennar helsti keppina- utur um vinsældir og fannst henni að Michael kæmi aftan að henni með því að vingast við Paula Abdul sem eins og Mic- hael, bæði syngur og dansar. Stevie Wonder vann nýlega málaferli þar sem hann var ákærður fyrir að hafa stolið hinu þekkta óskarsverð- launalagi sínu I Just Called to Say I Love You. Þegar hann var yfir- heyrður um tilurð lagsins sagðist hann hafa samið hluta af laginu 1976. Þessi orð hans hafa skapað ný vandræði fyrir Wonder. Málið er nefnilega að til að lög geti ver- ið keppnisfær um óskarinn þurfa þau að vera frumsamin fyrir kvikmynd. Með þessum orðum gaf hann í skyn að lagið væri ekki frumsamið fyrir kvikmynd- ina The Lady in Red. Hvort hann heldur óskarsstyttunni sinni eða ekki mun þrjátíu manna nefnd á vegum amerísku kvikmyndaaka- demíunnar taka ákvörðun um. . DV-myndir: jss. ísland í sviðsljósinu í þýskum fjölmiðlum - vegna menningarhátíðarinnar í Köln Jóhanna S. Sigþórsdóttir, Vestur-Þýskalandi Það var margt um manninn í Rhein- landhalle í Köln í Vestur-Þýskalandi um daginn, þegar íslenska menning- arhátíðin var sett þar með viðhöfn. Meðal þeirra sem ávörp fluttu var Hjálmar W. Hannesson sendiherra íslands í Bonn og Hans Schwier menntamálaráðherra sambands- landsins Nhordrein Westfalen í Þýskalandi. Einnig flutti Hrafnhild- ur Schram listfræðingur ávarp og sagði stuttlega frá undirbúningi listasýningarinnar, sem opnuð var við þetta tækifæri. . Ýmislegt var á dagskrá á menning- ardögunum íslensku. Má þar nefna sýningu á íslensku kvikmyndunum Skyttunum og Kristnihaldi undir jökh. Einnig var kynning á íslensk- um bókmenntum með upplestri nokkurra höfunda, íslenskir tónlist- armenn heimsóttu Köln og létu til sín heyra og svo mætti áfram telja. Ekki má gleyma kynningunni á ís- lenskum matvælum sem haldin var á Pullman-hótelinu í Köln. Þar var það íslenska lambakjötið sem sló í gegn eins og svo oft áður. Þessi íslenska menningarhátíð sem haldin var að frumkvæði íslands- vinarins Wolfgang Schitfer sem er rithöfundur og leiklistarráðunautur við vestur-þýska útvarpið (WDR) vakti mikla athygli í Þýskalandi. Út- varpsstöðvarnar og dagblöð hafa tek- ið viðtöl við íslenska sendiherrann, en einnig hefur verið Qallað mikið um einstaka liði menningarhátíðar- innar svo óg ísland í fjölmiðlum. Albert Salmi ásamt eiginkonu sinni sem hann drap áður en hann framdi sjálfsmorð. Þekktur kúrekaleikari drap eiginkonu sína og síðan sjálfan sig Það muna sjálfsagt margir ve- straunnendur eftir leikaranum Al- bert Salmi. Hann lék í mörgum vestramyndum og öðrum myndum á sjötta, sjöunda og áttunda áratugn- um. Hann var þó þekktastur vestan- hafs fyrir leik sinn í sjónvarps- myndaflokknum um Gunsmoke og The Virginian. Lítið hafði heyrst frá Salmi þegar hann ruddist inn á heimili eiginkonu sinnar, sem hann var skilin við, þó ekki löglega, og drap hana og síðan sjálfan sig. Lögreglan sagði að Salmi hefði skotið eiginkonu sína í eldhúsinu og síðan farið upp á loft og skotið sig. í tvo daga lágu líkin í húsinu áður en nagranni uppgötvaði hvað gerst hafði. Þótt Albert Salmi hafi verið þekkt- astur fyrir leik í sjónvarpi þótti hann liðtækur leikari og lék í tæpum þrjá- tíu kvikmyndum og þótti góður kar- akterleikari. Hann vann mikinn leik- sigur á Broadway í upprunalegri uppsetningu á Bus Stop. Honum var boðið aðalhlutverkið í kvikmyndinni eftir leikritinu á móti Marilyn Monroe, en neitaði á þeirri forsendu . að Hollywood væri staður sem hann langaði ekki til að koma til. Hann skipti þó um skoðun síðar. Albert Salmi var sextíu og tveggja ára þegar hann framdi voðaverkin. Her ntar sendiherra Islands, Hjálmar W. Hannesson nafn sitf í gestabók sýningarinnar. Til vinstri er kona hans, Anna Birgis, en til hægri er Wolf- gang Schiffer, aðalhvatamaóur sýningarinnar og Frank Lenz frá listasamtök- unum Stadtkunst. Tina Turaer enn á fullu Þótt Tina Turner sé komin á sextugsaldur er ekki að sjá að hún sé farin að slaka á. Hún sagði í vlðtali fyrir rúmu ári að timi væri komin fyrir hana að hætta tóntelkaferðum, en hún hefur greinílega endurskoðað ákvörðun sína því hún er komln á fulla ferð í Evrópu og var þessi mynd tekin af henni í Köln um siðustu helgi þar sem hún skemmti tiu þúsund manns á útileikvangi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.